Morgunblaðið - 03.09.1988, Síða 40

Morgunblaðið - 03.09.1988, Síða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1988 Ungmennabúð- ir í Reykjaskóla Hólmavík. Ungmennabúðir voru starfræktar í sumar í Reykjaskóla í þriðja skipti. Ungmennasamböndin í Austur- og Vestur- Húnavatnssýslum, Ungmennasamband Dalamanna og Héraðs- samband Dalamanna stóðu að ungmennabúðunum. Baldur R. Sigurðsson sóknarprestur á Hólmavík var ráðinn sumar- búðastjóri og fékk hann til liðs við sig starfsfólk úr öllum ungmennasamböndunum. Mjög mikill áhugi var hjá yngri kynslóðinni fyrir ungmennabúðunum og sóttu nærri 2.000 böm á aldrinum 9—13 ára þau þijú námskeið er haldin vom. Dagskrá ungmennabúðanna var í nokkuð föstum skorðum á morgnana. Bömin voru vakin klukkan níu, þau tóku til í vistar- verum sínum og skömmu fyrir morgunverð var fánahylling. Að loknum morgunverði klukkan tíu var bömum skipt niður í þijá hópa og fór einn hópurinn í sund, ann- ar í knattspymu og sá þriðji í leiki. Ef vont veður var fóm böm- in í leiki í leikfímisal. Að loknum hádegisverði var ýmislegt gert. T.a.m. var farið í sveitaferð og dýrin skoðuð, rat- leiki, fijálsar íþróttir, mini-golf o.fl. Einnig vom fengnir gestir til að skemmta bömunum. Þorgils Óttar Mathiesen, landsliðsfyrirliði í handknattleik, kom tvisvar og kenndi bömunum hinar ýmsu kúnstir með handboltann. Hann gaf þeim einnig eiginhandaráritun og mynd af landsliðinu. Bömin vom ánægð með að fá hann í heimsókn og sögðust ætla að fylgjast með honum í leikjum með landsliðinu. Forráðamenn ung- mennabúðanna sögðust vilja koma á framfæri þakklæti til HSI fyrir veitta aðstpð við búðimar. Jón Ólafsson, kattavinur, hljómsveitar- og útvarpsmaður, kom í heimsókn einu sinni og söng fyrir bömin og tóku þau vel und- ir með honum. Brandara sagði hann nokkra og var mikið hlegið. Einnig litu inn tveir sóknarprest- ar, þeir sr. Róbert Jack á Tjöm á Vatnsnesi og sr. Jens H. Nielsen, Búðardal, og töluðu við þau. Síðasti gesturinn og jafnframt sá sterkasti sem mætti á staðinn var Jón Páll en hann sýndi nokkrar aflraunir og fór í reiptog við böm- in. Jón Páll var einn á móti 14 bömum og stóðu þau á móti Jóni á laugarbarmi. Jón Páll dró þau öll út í laugina. Að loknu miðdegiskaffí var skipt niður í fímm klúbba. Þeir voru hesta-, báta-, kvöldvöku-, tölvu- og blaðaklúbbur. Allir fengu að fara einu sinni í hvem klúbb. Hesta- og tölvuklúbbar vom vinsælastir. Þegar lokið var við kvöldverð var það kvöldvöku- klúbbur sem réð ferðinni fram til kl. 22.00 en þá var bænastund. Síðan var kvöldkaffí. Allir áttu að vera komnir í hátt- inn kl. 22.30 og gekk ágætlega að fá bömin til að hlýða þeirri reglu. En einu sinni voru það leið- beinendur, sem brutu þessa reglu og vöktu öll bömin á seinasta námskeiðinu eina nóttina. Þeir sögðu bömunum að flýta sér í föt og mæta í grillveislu. Mörg bam- anna urðu mjög hvumsa og vildu halda áfram að sofa, en þá var tekin mynd af viðkomandi og vaknaði sá hinn sami við aðfarim- ar. Það var síðan frekar syQuleg- ur hópur er borðaði pylsur og söng við varðeld um miðja nótt. Bömin sem dvöldu í Reykja- skóla gáfu út blað og kom þar margt skemmtilegt fram. Þau ortu vísur, skrifuðu sögur og brandara. Þegar haldið var heim á leið fengu allir blað og viður- kenningarskjal. Forráðamenn ungmennabúð- anna vildu taka það fram að búð- imar hefðu ekki starfað með leyfí Bamavemdarráðs íslands. í bréfí er sent var frá Bamavemdarráði Farið var í sveitaferð og skoðuð voru svín, kindur og beljur. Morgunbiaðið/Baidur Rafn Sigurðsson Jón Páll Sigmarsson kom í heimsókn og sést hann hér með hópn- um er sótti seinasta námskeiðið. Þorgils Óttar, landsliðsfyrirliði í handknattleik, kom og leið- beindi börnunum í handknatt- leik. Jón Ólafsson, útvarps- og hljómlistarmaður, mætti í ung- mennabúðirnar og skemmti börnunum. sagði m.a. „samkvæmt upplýsing- um í brunavamarskýrslum Bruna- málastofnunar ríkisins . .. kemur fram að ástand brunavama í gamla skólahúsinu að Reykjum er lélegt og í nemendaíbúðum að Reykjum er ástand brunavama ófullnægjandi". Forráðamönnum ungmennabúðanna þótti þetta harður dómur, því húsnæði Reykjaskóla hefur verið notað allt árið, sem skóli á vetmm, en hótel á sumrin. Hvers vegna var skóli starfræktur átta mánuði'á ári í þeim húsakynnum, sem ekki mátti nota undir sumarbúðastarfsemi? A næsta skólaári verða starf- ræktar skólabúðir í Reykjaskóla og er þá áætlað að nemendur úr hinum ýmsu grunnskólum lands- ins komi og dvelji fímm daga í skólanum ásamt kennurum sínum. Þá hlýtur sú spuming að vakna hvort skólabúðimar sem slíkar megi starfa í húsnæði sem ekki hefur fullkominn eldvamar- búnað og er ekki leyfður til notk- unar undir sumarbúðastarfsemi. Barnavemdarráð íslands ætlar ekki að leyfa rekstur ungmenna- búða í Reykjaskóla sumarið 1989, verði ekki bætt úr brunavömum og mun láta loka á starfsemina ef hún færi af stað, þó slíkt hafí ekki verið gert í sumar. - BRS V^terkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiðill! t Hjartanlegustu þakkir sendum við öllum þeim, er auðsýndu okkur hluttekningu og samúð við andlát og útför eiginkonu minnar og móður okkar, KRISTÍNAR HALLGRÍMSDÓTTUR frá Vinaminni í Borgarfirði. Einnig innilegustu þakkir til sveitunga okkar og vina, Borgfirðinga- félagsins í Reykjavík, Leikfélags Fljótsdalshéraös o.fl. er styrktu okkur með fjárhagsaðstoö og veittu ómetanlega hjálp og aðstoö þegar við misstum húsið okkar og aðrar eigur í brunanum í vor. Vigfús Helgason og börnin. t Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug viö andlát og útför konu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, HILDEGARD GUÐLEIFSSON, Lynghelði 15, Selfossi, Guð blessi ykkur öll. Guðmundur Guðleifsson, Sigurður Guðmundsson, Ingibjörg Helena Guðmundsdóttir, Guðmundur Ólafsson, Sonja Guðmundsdóttir og barnabörn. 1 " 1 " " mmiwnmm'i ■ ■■■ , i i ■ i , , 1 1111 i i w, smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar f dag kl. 14.00-17.00 er opiö hús í Þríbúðum, Hverfisgötu 42. Lítið inn og rabbiö um daginn og veg- inn. Heitt kaffi á könnunni. Kl. 15.30 tökum viö lagið saman og syngjum kóra. Takiö með ykkur gesti. Allir velkomnír. Samhjálp. Systir Phanuela úr hópi Hinna evangelisku Mariusystra heldur tvær sam- komur í Grensáskirkju laugardag kl. 20.30 og sunnudag kl. 17.00. Næsta laugardag Þann 10. sept. byrjar laugar- dagsbibliuskólinn. Kennari þann dag verður Bengt Sundberg frá Livets Ord, Svíþjóð. Skráið ykkur sem. fyrst í síma 656797. Krossinn Auðbrekku 2, 200 Kópavogur Samkoma í kvöld kl. 20.30. Samkoma á morgun á gamla, góða tímanum kl. 16.30. Útivist Sími/símsvari: 14606 Sunnudagsferðir 4. sept. 1. Kl. 8.00 Þórsmörk - Goða- land. Nú er haustlitatiminn að byrja. Ferð vlð allra hæfl. Verð 1.200,- kr. 2. KL 10.30 Hrómundartindur - Ölfusvatnsárgljúfur. Gengið frá Hellisheiði á Hrómundartind og þaðan niður með ölfusvatnsár- gljúfrum i Grafning. Verð 900,- kr. 3. Kl. 13.00 Sporhelludalur - Nesjavellir. Létt ganga í Grafn- ingnum. Skemmtilegt göngu- land. Verð kr. 900,- kr., frítt f. börn m. fullorðnum. Brottför frá BSÍ, bensínsölu. Sjáumstl Útivist, ferðafélag. FERDAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR11798 og 19533. Dagsferðir Ferðafólagsins sunnudaginn 4. sept.: 1. Kl. 10.00 ÖHusvatnsárgljufur - Grafnlngur. Ekið austur á Hellisheiði, gengið um gamla þjóðleið í Grafning. Leiðin liggur fyrst milli hrauns og hliða, yfir Fremstadal um Brúnkollubletti I Þverárdal, milli Krossfjalla og Hrómundartinds, aö Ölfusárvatnsgljúfrum. Ekið um Grafning til baka. Verð kr. 1000. 2. Kl. 13.00 Grafnlngur - Ölfus- vatnsá. Ekið I Grafning aö ölfusvatnsá, gengið upp með hennl að ölfus- vatnsárglúfri, Verð kr. 1000. Brottför frá Umferðarmiðstöö- inni, austanmegin. Farmiðar við bfl. Fritt fyrir börn i fylgd fullorð- inna. Næstu dagsferðir til Þórsmerk- un Kl. 08 sunnudaglnnn 11. sept. og sunnudaplnn 18. sept. Dvaliö verður um 4 klst. i Þórs- mörk. Timi gefst til gönguferða. Á þessum tíma eru komnir haustlitlr f Þórsmörk. Verð kr. 1200. Ferðafélag fslands. Höföar til „fólks í öllum starfsgreinum!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.