Morgunblaðið - 03.09.1988, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ; LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1988
fclk í
fréttum
Staðfestir sögu Alberts
Goldnian um Lennon
Mai Peng og John Lennon áttu
í ástarsambandi um 18 mán-
aða skeið, meðan hann var giftur
Yoko Ono. Mai hefur nú staðfest
sögur af John Lennon sem koma
fram í bókinni „The Lives of John
Lennon". Bókin, þar sem farið var
ofan í kjölinn á einkalífi hans, hefur
vakið gífurlega athygli og reiði
meðal aðdáenda hans.
Bókin byggir á viðtölum við 1200
manns sem þekktu til Lennon heit-
ins svo erfitt hefur reynst að hrekja
ógeðfelldar lýsingar á baráttu hans
við eitur og aðra drauga. Mai sagði
í viðtali í Lundúnaborg þar sem
bókin var nýlega gefin út, að hún
væri 99% sönn. Það eina sem hún
ekki vissi um væri að hann hefði
haft kynferðislegt samband við
Brian Epstein framkvæmdastjóra
Bítlanna á sjöunda áratugnum.
Sögur um ráðríki og vald sem
Yoko hafði yfir Lennon, óhamingju
hans og einangrun, eru að hennar
sögn allar á rökum reistar. Yoko
hafi beinlínis haldið honum fyrir
sig, og frá öðru fólki. Yoko ráð-
lagði og skipulagði samband þeirra
Lennons og Mai Peng, sem bjó einn-
ig lengi í húsi þeirra hjóna og var
það ekki það eina sem Yoko réði
til um.
Meðan Mai og Lennon voru sam-
an hafði hann samband við vini sína
í hljómsveitinni, og var hann þá
allt önnur og sterkari persóna. En
árið 1975 fór hann aftur til Yoko
sem þá tók við stjóm. Mai sá hann
síðast tveimur árum fyrir andlát
hans, og höfðu þau þá enn mjög
náin kynni.
Ekkja Lennons, Yoko Ono, og
synir Lennons heitins, heyja nú
harða baráttu við að gera sögur
þessar að engu og ófrægja bók
Goldmans. Það hefur ekki
góðan árangur, of margir hafa
spumir af henni.
Michael Jackson á tónleikunum
í London. Plástrana hefur hann
verið með á fingrunum á öllum
síðustu tónleikum sínum.
Michael Jackson:
Jacko grét
átónleikum
Michael Jackson hélt sögulega tón-
leika í Bretlandi nú í vikunni. Það
vakti furðu meðal 90.000 áhorfenda
þegar hann brotnaði saman á tón-
leikunum og bað alla viðstadda að
lúta höfði í fimm sekúndur, fyrir
vinkonu sína Elísabetu Taylor sem
væri alvarlega veik.
Einhver hafði laumað því að hon-
um að leikkonan og vinkona goðsins
væri lífshættulega sjúk, með lifrar-
bólgu og hálskrabba. Sannleikurinn
er hins vegar sá að Elísabet slapp
af sjúkrahúsi fyrir viku síðan, en
þar hefur hún legið vegna bakveiki
síðustu vikur.
Fleiri hundmð aðdáenda Jack-
sons misstu þó af uppákomunni,
þar sem þeir sem áttu að sjá um
að. sækja þessa áhangendur fyrir
tónleikana, bara steingelymdu því.
Michael varð þrítugur nú 30. ágúst.
Elísabet er furðu jostin yfir atvik-
inu og segir sjálf: „Ég er enn sprell-
lifandi. Eg hef það ekki gott, en
ég er langt frá því að vera alvar-
lega veik.“ Læknar hafa þó enn
áhyggjur af henni.
„Lennon í þess-
arri bók er sá
Lennon sem ég
þekkti" segir
Mai Peng.
Ekki hverja sem er,
segir Stallone. I
Svíþjóð þar sem hann
var á ferð fyrir stuttu
var einhver deyða í
kvennamálunum. En
þegar heim kom, til
Los Angeles, lenti
hann inn á dansiballi,
þar sem allar vildu
meyjarnar manninn.
Ein kom að honum
með bijóstin ber og
bað um eiginhandará-
ritun, á þau bæði. En
hann hristi höfuðið.
Þá kom önnur og I
laumaði 20 þúsund ísl.
krónum í lófa hans og
bað um einn dans,
bara stuttan. Stallone
hristi höfuðið aftur.
Ég sel þessa ekki
dýrara en ég keypti
hana.
Það er margt skrýtið i kýr-
hausnum. Fernando Cepada,
þekktur nautabani, sem stund-
ar nautaat af ólæknandi ástríðu
fær hér heldur illa meðferð í
viðureign við illúðugt naut á
Sevilla á Spáni. Nautið fleygði
honum á loft, rak hornin í gegn
um mjöðm Fernandos, ogþurfti
hann á sjúkrahús. Áhætturnar
sem menn taka í lífinu eru af
misjöfnu tagí, vægast sagt.
Parið Don Jonson og
Barbra Streisand
sjást tíðum i hljóðver-
inu. Þau eru búin að
stofna dúett, og ætla
að syngja jólalög inn
á plötu. Þau hafa
hvort sinn míkrófón-
inn, og þann þriðja
fær enginn annar en
Stevie Wonder sem
ætlar að leggja turtil-
dúfunum lið.
Hún Skrafhildur
sagði mér um daginn
að Dolly Parton væri
komin með ansi rún-
aðar línur á ný. Eitt-
hvað höfðu vinsældir
hennar dalað meðan
hún var álgrönn, en
nú eru sjónvarps-
stöðvar aftur farnar
að gera henni góð til-
boð. Allt út af auk-
akílóunum, þau eru
boðin velkomin aftur
af aðdáendum henn-
COSPER
©PIB
I084Z.
Frænka mín? Ég hélt að þetta væri f rænka þín.
'P'
Leikkonan Linda
Evans er nú farin frá
sterkríkum sambýlis-
manni sinum, Richard
Cohen. Hann er æva-
reiður enda skilur
hann ekki hvað er að
konunni. Málið er
nefnilega það að hún
lætur stjórnast af 35.
000 ára gömlum anda
sem ráðlagði henni að
hypja sig úr húsi hans.
Linda er sögð ráð-
færa sig um alla skap-
aða hluti við þennan
afskiptasama anda,
en maður hennar er
fjarri því að aðhyllast
andatrú.