Morgunblaðið - 03.09.1988, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1988
45
„Hinir ómótstæðilegu .
Brynhildur og Hjörtur í hlutverkum g'læpaparsins, Ástráðs
og lagskonunnar.
Björk Jakobsdóttir lék ein-
stæðu móðurina og litli maður-
inn er Birkir Freyr Þrastarson.
„Kátir Piltar":
LEGGJA LEIKLISTINA
FYRIRSIG
Kátir Piltar er hljómsveit sem
kemur upprunalega úr
Hafnarfirði. Þeir komu fram á
sjónarsviðið í vor og gáfu þá út
sína fyrstu hljómplötu sem bar
titilinn „Einstæðar mæður“. Með-
limir hljómsveitarinnar hafa
ýmislegt annað fram að færa en
músik og hafa nú lagt út á hála
braut leiklistarinnar. Fyrsta
kvikmynd þeirra „Hinir ómót-
stæðilegu" var sýnd í sjónvarp-
inu í júlímánuði.
Þessi hálftíma kvikmynd byggir
á minningum um lögregluforingj-
ann Eliot Ness sem réði ríkjum í
Chicago borg á þriðja áratugnum
og lagði AlCapone glæpaforingja á
kné. I myndinni, sem er auðvitað í
léttum dúr er sagt frá alþjóðlegum
glæpamanni, Ástráði Ástvaldssyni,
sem á í höggi við lögregluforingjann
Neliot S. og hans harðsnúna gengi.
Ástráður þessi vekur á sér athygli
með því að stela aleigunni frá ein-
stæðri móður, það er að segja hann
nappar bami hennar, og vinnur
hylli móðurinnar að lokum. Til sög-
unnar kemur einnig Addi Stuð,
bjargvættur einstæðra mæðra.
Nú eru hálfþessir kátu piltar að
vinna að nýrri mynd í svipuðum
dúr, með kímnina að leiðarljósi.
Verður hún væntanlega sýnd í sjón-
varpinu um jólaleytið. Þeir hyggja
jafnframt á frekari plötuútgáfu, en
hvort næsta plata verði tileinkuð
giftum mæðrum, eða bara einstæð-
um feðrum, er á huldu að svo
komnu.
Grímhildur grimma lét það
flakka að Diana Ross ætti
von á öðru barni sinu ntn ára-
mótin. Hún og norski marg-
milljónerinn, Arne Naess, eiga
einn son fyrir og lifa mj ög ein-
angruðu lífi, það er, þau eru
ekki að flika fjölskyldu sinni
fyrir framan myndavélar forvi-
tinna. Bæði eiga hjónin þrjú
börn af fyrra hjónabandi.
Diana er sögð mjög ill vegna
myndarinnar „Dream Girls“
sem verið er að gera um líf
hennar, með Whitney Houston
i aðalhlutverki. Hún hefur
reynt með aðstoð lögfræðinga
að stöðva framleiðslu á mynd-
inni, en óvist er hvað verður.
Þessar vinkonur eiga heima í Garðabæ og þar héldu þær hlutaveltu
til stuðnings Félagsstarfi aldraðra þar i bænum og söfnuðu nær
2.000 kr. Telpurnar heita: Hrönn Jónsdóttir, Edda Rán Jónsdóttir
og Jóhanna Arnaldsdóttir. — Og á myndinni til hægri er Erna
Kristjánsdóttir.
Símar 35408 og 83033
KOPAVOGUR
Víðsvegarum bæinn
AUSTURBÆR
Rauðagerði
Háahlíð