Morgunblaðið - 03.09.1988, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 03.09.1988, Qupperneq 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1988 „ ýii lítur ekk\ út fyrir db 'jenz, ne.itt £>ér£t&kh gá.Pnaljo% jóurirm. HvaePinn ég bók um íjúlfótrauSt ?" TMReg. U.S. PatOff.—allrightsreserved ° 1988LosAngelesTimesSyndicate um að matartíminn verði framvegis 20 mín. í stað klukkutíma...? „Bjartar nætur“- HeíUandi heimur Til Velvakanda. í Reykjavík hefur um margra ára skeið verið haldið uppi kynningu á Íslandi og íslenskri þjóðmenningu, með sýningum á kvöldvökunum „Bjartar nætur“ (Light Nights). Sýningar þessar hafa einkum verið ætlaðar útlendingum þeim, sem til landsins koma á sumrin, en ekki eru þær síður athyglisverðar fyrir íslendinga sjálfa. A „Björtum nóttum" opnast gest- um heillandi heimur, þar sem saman fara minnisverð atriði úr sögu þjóð- ar okkar, dulúðugur andblær þjóð- trúar og þjóðlegra sagna horfins tíma, og auk þess hrífandi frásagn- arlist og sviðsframkoma Kristínar G. Magnús, sem hlýtur að heilla hvern þann, sem á horfír og hlýðir opnum huga. Ég hef átt þess kost, að koma á sýningar þessar á hverju sumri um langt árabil og tala því af eigin reynslu. Aðstandendur þeirra breyta þeim að nokkru frá einu sumri til annars, svo hér er ávallt eitthvað nýtt að sjá og heyra, þótt meginstofninn sé hinn sami frá ári til árs. Það mun vera nær einsdæmi, að einstaklingar haldi uppi slíku menn- ingarafreki, sem sýningar á „Björt- um nóttum" vissulega eru. ísland væri fátækara, menningarléga séð, ef þeirra nyti ekki við. „Bjartar nætur“, sem fram fara í Tjarnarbíói, eru einhver besta og áhrifaríkasta kynning á landi okkar og þjóðmenningu, sem völ er á. Hjónin Kristín G. Magnús og Hall- dór Snorrason eiga með réttu óskipta aðdáun og þakklæti fyrir hið sérstæða framtak sitt, að halda uppi þessum fögru, þjóðlegu sýn- ingum, sem birtast í „Björtum nótt- um“, og enginn getur sér að skað- lausu látið óséðar. Ingvar Agnarsson. Sumarauki fyrir þá sem ekki komust til útlanda Kona frá Húsavík hringdi: Eg er fullorðin kona úr þjónustu- stétt og ég þarfnast hvíldar. Flestir íslendingar fara til útlanda til afs- löppunar en ég hef uppgötvað góða hvíld og afslöppun á Islandi. Þú ferð í frí á september eða október. Þá er sumarið liðið með öllu sínu stressi og langur vetur framundan. Öll hótel bjóða upp á lágt verð á gistingu og þú velur þér hótel í sveit eða þorpi, hótel sem starfar allt árið. Þangað ferðu með því hugarfari að þú sért að fara til út- landa, skoðar staðinn með augum útlendings og hagar þér eins. Skrif- ar kort til vina og lýsir staðnum, sefur mikið, ferð í sund, gufubað, ljósalampa og gönguferðir. Skiptir um föt tvisvar á dag og færð þér vín með matnum. Þú getur lesið eða ráðið krossgátur og dagurinn líður hraðar en þig grunar. Ekkert stress í fríhöfninni, engin gjaldeyriseyðsla, engir tungumála- erfiðleikar og engin magaveiki. Ekki hringja heim. Mundu að þú ert í útlöndum og kemst ekki heim. Reykjahlíð í Myvatnssveit er mitt uppáhald, fólkið indælt, maturinn frábær og landslagið - ja, það þætti fallegt í Grikklandi. Það liggur við að bóka megi góð- viðrisdaga í september og október og þá er Snæfellsnesið, Hvolsvöllur og Húsavík tilvaldir staðir að dvelj- ast á. Best er að fara nokkur sam- an til að hringja og semja um verð. Með ósk um ánægjulega hvíld, Karítas Hermannsdóttir. Hugmynd til Dýraspítalans Til Velvakanda. Mig langar til að koma á fram- færi hugmynd til Dýraspítalans og þeirra sem hafa með týnd gæludýr að gera. Hún er, hvort ekki væri hægt að hafa daga, með vissu milli- bili, þar sem allir þeir sem hafa dýr í óskilum gætu komið með dýrin, og þeir sem hafa týnt gæludýri gætu svipast um eftir sínu. Þetta væri vel þegið af öllum þeim, sem á annað borð finna ekki dýrin sín þrátt fyrir mikla ieit. Og svona í lokin: Bröndóttur köttur, tveggja ára fress, hvarf frá Hraunbæ snemma í ágúst. Hann heitir Depill og er vel merktur, með bláa hálsól og eymamerkingu. Þeir sem vita eitthvað um ferðir Depils geta haft samband í síma 73977, annars er símanúmerið á ólinni. Síðan er hérna hálfstálpaður kettlingur í óskilum, líklega læða. Hún er grábröndótt og með bláa hálsól. Kisan fannst í Fellunum en er núna í Seljahverfinu. Hún er al- veg ómerkt, en þeir sem kannast við lýsinguna geta haft samband í síma 73977. Hún fannst um miðjan ágúst. Með þökk fýrir birtinguna, Lilja Björk Einarsdóttir. HÖGNI HREKKVÍSI „ ÁHA, E6 STENP ÞlGAp UFRKI, /VtEP KKU/VlLURNAf? KÖKU0ÖXINU- " 9-7 Víkverji skrifar að er makalaust hversu al- gengt er að menn aki yfir á rauðu ljósi, og sennilega er það allt- af að aukast með auknu stressi þjóðfélágsþegna. Athygli vekja sér- staklega gatnamótin Kringlumýrar- braut/Miklabraut. Tvisvar sama daginn sá Víkverji að ekið var yfir á rauðu ljósi. í bæði skiptin var lögreglubíll á beygjuljósunum að koma vestur Miklubraut og beygja yfír á Kringlumýrarbraut. I annað skiptið létu verðir laganna sig engu skipta, þótt þó nokkrir bifreiðastjór- ar ækju yfír á rauðu ljósi, en í hitt skiptið ók „aðeins" einn yfír og þá létu þeir til skarar skríða og stöðv- uðu bílinn. Eftir aðeins örfáa daga byijar skólinn og þá fer fjöldinn allur af börnum út í umferðina. Þeim er kennt að þau megi treysta því að ef grænt ljós logar þá megi þau ganga yfír gangbrautina. Reyndar er börnunum kennt að þau skuli líta eftir því hvort bílar eru að koma, en sá sem er að stelast yfir á rauðu ljósi, hann er yfirleitt að flýta sér og þá er skaðinn skeður. Rætt er um að kreppa sé að skella yfír okkur, sem þýðir meðal annars að heimilin verða að halda að sér höndum. Umhugsunar- efni er hvernig þetta kemur til með að bitna á unglingunum. Undanfar- in ár hafa þeir ekki misst af góðær- inu fremur en aðrir. Þeir hafa jafn- vel unnið með skóla til að hafa eyðslufé milli handanna, sem flest- um finnst alveg makalaust, hversu mikið þeir telja sig þurfa. Hvað gerist svo þegar unglingarnir fá ekki vinnu eins og undanfarin ár vegna samdráttar atvinnurekenda, heimilin eru aðkreppt með peninga og lítið aflögufær? Sætta þau sig við að geta ekki gert helminginn af því sem þau áður hafa gert eða eykst hópur afbrotaunglinga? Víkveija fyndist ekki úr vegi að þjóðfélagsástandið væri rætt í ungl- ingadeildum og framhaldsskólum til að mynda samstöðu meðal ungl- inganna um að draga úr eyðslu. Og þá kemur enn í hugann skortur á skemmtistöðum fyrir þann aldurs- hóp sem má ekki fara inn á vínveit- ingastaði en er vaxinn upp úr félag- smiðstöðvunum. Er ekki orðið tíma- bært að sveitarfélögin komi til móts við þetta unga fólk? Þetta er sá aldurshópur sem hefur mesta þörf- ina fyrir að sýna sig og sjá aðra og vera í hóp að skemmta sér. — 0g fyrir valinu verður Hallærispla- nið! xxx n IVelvakanda fyrir nokkru var verið að kvarta yfir því að túnið í „litlu Öskjuhlíð“, þ.e. fyrir neðan Skógarhlíðina, hafi ekkert verið slegið í sumar. Og enn hefur ekki verið bætt úr því. En athygli vekur að það eru fleiri staðir í borginni, sem hafá verið sérstaklega illa hirt- ir í sumar, m.a. meðfram Miklu- brautinni allri, þar hefur að vísu verið slegið, en illgresið meðfram tijánum fær óáreitt að vaxa. Hing- að til hefur unglingavinnan séð um þessa hreinsun, en hvers vegna ekki nú?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.