Morgunblaðið - 03.09.1988, Page 51

Morgunblaðið - 03.09.1988, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1988 51 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Ófriður í miðbænum um helgar Ég bý í miðbæ Reykjavíkur. Það er þægilegt, maður hefur allt við hendina. En það sem gerir þetta bölvað eru föstudags— og Iaugar- dagsnætumar. Þá fer allt á annan endann: Öskur, akstur og langvar- andi flaut í bílum. Þá em nætumar svefnlitlar og það liggur við að við séum tilneydd til að yfirgefa heimili okkar um helgar til að fá eðlilega næturhvfld. Nú er í umferðarlögunum að það sé skylt að ökumaður vélknúins ökutækis skuli haga meðferð þess og akstri þannig að það valdi ekki hávaða. Þessi lög em þverbrotin í miðbænum, mótorhjól bmna fram- hjá með slíkum gný að rúður titra og þótt komið sé yfir miðnætti liggja sjálfumglaðir ökumenn á flautunum. Er ekki kominn tími til að reyna að draga úr þessari hávað- amengun með því að loka mið- bænum fyrir þessum rúntakstri og reyna að gera eitthvað til að þessar hræður sem vilja að miðbærinn haldist lifandi, haldist sjálfar við í honum. Það er meira en nóg að gatan fyrir framan svefnherbergis- gluggann er sneisafull af dmkknu og hávæm fólki þó ekki bætist við þessi skelfilegi gnýr af hávaðasöm- um ökutækjum. Hvað um 8. grein lögreglusam- þykktarinnar þar sem fram kemur að lögreglan getur vísað þeim mönnum í burtu af almannafæri sem með háttemi sínu valda íbúum verulegu ónæði? Er ekki kominn tími til að reyna á þessa samþykkt? íbúi við Lækjargötuna, 2665— 3673. Tillaga um nýjan flugvöll Til Velvakanda. Eftir að hafa hlustað upp á síðkastið á stanslausar fréttir af flugslysum austanhafs og vestan, til viðbótar við hörmulegt slys á flugbrautarendanum hér í Reykjavík, blöskrar manni hve hin „mannlegu mistök" færast í auk- ana. Engir viðvaningar eru við stjómvöl á flugsýningum, en þó getur þeim líka orðið á mistök. Það vekur því undmn að nokkur ábyrgur aðili skuli mæla því bót að nota Reykjavíkurflugvöll um alla framtíð, þar sem í algengustu vind- átt er flogið lágt með ægilegum gný yfir miðborg Reykjavíkur og þéttbýlinu í KÓpavogskaupstað. Það má kallast slembilukka að ekki hef- ur ennþá hlotist af stórslys. Erlendis þykir ekki tiltökumál þó 20—30 mínútna akstur sé til flug- vallar. Má þar nefna Kaupmanna- höfn, Stokkhólm, Osló, Malaga, Þessir hringdu . . Reiðhjól tekið traustataki 16 tommu drengjahjól var tekið frá Grýtubakka fyrir 3—4 vikum. Hjólið er blátt með gráum lás og sást það síðast í Efra—Breiðholti. Foreldrar em beðnir að líta í hjóla- geymslur í húsum sínum. Upplýs- ingar í síma 78910. Palma og Tenerife þar sem lengst þarf að aka. Þó það sé þannig engin frágangs- Gleraugu fundust á hárgreiðslustofu Kvenmannsgleraugu með lituðu gleri fundust á hárgreiðslustof- unni Spörtu. Eigandinn getur vitj- að þeirra þar. Gerir við sokkabuxur Unnur Jóhannsdóttir, Akureyri hringdi: Vegna fyrirspumar í Velvak- andi fyrir nokkm um hvort nokk- ur tæki að sér að gera við nælon- sokka og sokkabuxur, vil ég að fram komi að ég tek að mér að gera við sokka. Öllum er fijálst að senda til mín sokka til viðgerð- ar en ég bý á Jarðabyggð 4 Akur- eyri og síminn er 96—21269. sök að nota Keflavíkurflugvöll sem eina flugvöll höfuðstaðarins og með bættum og breykkuðum vegi til Keflavíkur yrði fjarlægðin frá Reykjavík ekki umtalsverð. Með því móti fæst allt núverandi flugvallar- svæði fyrir byggingarlóðir í stað þess að dreyfa byggðinni upp um holt og hæðir. Samt sem áður er sjálfsagt að líta í kringum sig og athuga möu- leika til flugvallargerðar til kennslu— og innanlandsflugs á að- gengilegum stað og hefur mér kom- ið tiul hugar að slíkan flugvöll mætti gera á ysta tanga Seltjarnar- ness. Með því að fylla upp í Selt- jörn mætti fá 1000—1300 metra langar flugbrautir sem strax nægja vegna kennslu og að fáum árum liðnum fyrir innanlandsflug. Á hveiju ári koma fram flugvélar sem nota styttri og styttri flugbrautir. Ég álít að þessi möguleiki sé athug- unarverður og komi vel til greina, nema framtíðardraumur Seltirn- inga sé að byggja sitt ráðhús í Selt- jöminni. Siguijón Sigurbjörnsson. Postulínsmálun! Allt það nýjasta í postulínsskreytingum. Kennsla er að hefjast. Innritun í síma 46436. Jónína Magnúsdóttir, Ninný, mynd- og handmenntakennarí. TILSOLU Vél 1600, Twin Cam 16 ventla, 5 gíra, veltistýri, snúningshraðamælir, Toyota útvarp, klukka. Litur grænsanseraður. Ekinn 4000 km. Sá eini á landinu. Verð kr. 720 þús. Bein sala eða skuldabréf. Upplýsingar í síma 91 -671339. /------------------------------------------------------\ Norrænn styrkur til bókmennta nágrannalandanna Ráðherranefnd Norðurlanda hefur skipað sérlega nefnd til að ráðstafa fé því, sem árlega er veitt, til að styrkja útgáfu á norrænum bókmenntum í þýðing- um á Norðurlöndum. Önnur úthlutun nefndarinnar á styrkjum í þessu skyni fer fram í nóvember 1988. Umsóknareyðublöð ásamt leiðbeiningum fást hjá menntamálaráðuneytinu í Reykjavík (sími 25000), eða á skrifstofu Ráðherranefndar Norðurlanda í Kaupmannahöfn (sími + 45 I 11 47 11).. Umsóknarfrestur fyrir styrkinn rennur út 1. október 1988. Umsóknirsendist til: Nordisk Ministerrád Store strandstræde 18 DK-1255 Kobenhavn K, Danmark V______________________________________________________4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.