Morgunblaðið - 03.09.1988, Side 53
53
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1988
TENNIS / BANDARIKIN
Becker
og
McEnroe
úr leik
Óvænt úrslit í 2.
umferð opna
bandaríska
meistaramótsins
TVEIR af allra þekktustu tenn-
isleikurum heims, Vestur-Þjóð-
verjinn Boris Becker og Banda-
ríkjamaðurinn John McEnroe,
töpuðu báðir gegn lítt þekktum
tennismönnum í 2. umferð
opna bandaríska meistara-
mótsins ítennis
ecker náði sér aldrei á strik
gegn Ástralíumanninum Darr-
en Cahill og sá síðamefndi sigraði
auðveldlega, 6-3, 6-3, 6-2. Cahill
er algjörlega óþekktur og kom þessi
sig^ur hans og slök frammistaða
Beekers mjög á óvart.
Það var einnig Ástralíumaður,
Mark Woodforde, sem sló McEnroe
út úr mótinu. Leikurinn var spenn-
andi en lauk 7-5, 4-6, 6-7, 6-3,
6-1. Svo skemmtilega vill til að
Ástralíumennimir, sem slógu báðir
svo frækilega í gegn, eru æskufé-
lagar.
McEnroe, sem þekktur er fyrir
skapvonzkú í garð dómara, hélt
uppteknum hætti i leiknum og með-
al annars gekk hann einu sinni til
yfírdómarans og sagði: „Gerði ég
þér eitthvað í fyrra lífí áður en við
komum hingað?
Sovézka stúlkan Natalia
Zvereva, sem er ein fremsta tennis-
kona heims, er dottin úr keppni í
einliðaleik kvenna. Bandaríska
stúlkan Kim Steinmetz sigraði hana
strax í 1. umferð, 4-6, 6-3, 6-4.
Borls Becker — úr leik í 2. umferð
opna bandaríska meistaramótsins.
KNATTSPYRNA
Forsala hafin
á Evrópuleiki
Vals og Fram
Forsala aðgöngumiða á Evr-
ópuleiki Vals og Fram eftir
helgina verður i dag í Kringl-
unni milli kl. 11.00 og 16.00 og
á mánudag í Kringlunni og í
Austurstræti milli kl. 11.00 og
18.00. Miðaverð er kr. 750 f
stúku, 500 í stæði og 200 fyrir
böm.
Sértilboð á stúkumiðum er í
gangi og gildir eingöngu í forsöl-
unni. Stúkumiðar á báða leikina
kosta 1.200 krónur í stað 1.600,
sem þeir kosta annars.
GLÍMA / BRETLAND
Arnar Marteinsson
sigraði í axlatökum
ÍSLENZKIR glímumenn gerðu
góða ferð til Bretlands á dög-
unum. Þeir fóru þangað til að
sýna íslenzka glímu og keppa
í fangbrögðum en Morgun-
blaðið hafði áður greint frá, að
það vœri á döfinni.
Amar Marteinsson sigraði í
opnum flokki í axlatökum á
móti í Rothesay í Bretlandi og varð
þar Bretlandsmeistari. Aðrir glímu-
menn stóðu fyrir sínu í ferðinni,
þótt engum þeirra tækist að sigra
nema Tryggva Héðinssyni en hann
sigraði í axlatökum í flokki yngri
en 15 ára á móti í Burton.
Þrettán íslenzkir glímumenn fóm
utan og með þeim tveir fararstjór-
ar. Auk þess að keppa í Rothesay
og Burton, sýndu þeir og kepptu á
nokkmm öðmm mótum í Skotlandi
og N-Englandi.
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
Mörg eriend lið vilja
fá íslenska leikmenn
7
ÍSLENSKU landsliðsmennirn-
ir í handknattleik hafa ekki
aðeins verið í sviðsljósinu hór
heima að undanförnu heldur
einnig víða erlendis. Mörg
félög hafa sýnt áhuga á að fó
íslenska leikmenn og eftir að
Ijóst var að Atli Hilmarsson
fœri til Spánar eftir Ólympíu-
leikana í Seoul má segja að
símalínur hjá HSÍ hafi verið
rauðglóandi.
Askrifstofu HSÍ fengust þær
upplýsingar að einkum félög
í Frakklandi, Portúgal og Spáni
hefðu spurst mikið fyrir um lands-
liðsmennina og á Spánarmótinu í
síðasta mánuði fengu margir
þeirra gimileg tilboð.
Samkvæmt reglum geta
íslenskir leikmenn, sem leika með
íslenskum liðum, ekki skipt yfír í
erlend félög eftir 31. júlí ár hvert.
Árangur íslenska landsliðsins hef-
ur hins vegar vakið mikla athygli
og einkum sækja Spánverjar stíft
að styrkja lið sín. Á Spáni hefur
handknattleikurinn þegar fengið
gífurlegar ijárhæðir til uppbygg-
ingar fyrir Ólympíuleikana 1992,
en þeir verða haldnir í Barcelona.
Stefnan er að gera veg hand-
knattleiksins sem mestan og
fyrsta skrefíð í þeirri uppbygg-
ingu er að styrkja 1. deildar liðin,
sem síðan á að skila sér í sterk-
ara landsliði.
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNIN
Barcelona keypti leikmenn
fyrir 757.5 miljónir ísl. kr.
BARCELONA kemur til íslands,
í Evrópuieikinn gegn Fram í
nœstu viku, með hvorki meira
né minna en ellefu nýliða - leik-
menn sem félagið þurfti að
greiða „litlar11757.5 millj. ísl.
króna fyrir. Eftir sl. keppn-
istímabil voru miklar breyting-
ar gerðar hjá Barcelona og
ákveðið var að Johann Cruyff
fengi það hlutverk að gjör-
breyta liðinu.
ÆV
Íkjölfarið fóru forráðamenn fé-
lagsins að leita eftir nýjum leik-
mönnum og þegar upp var staðið
voru þeir búnir að kaupa ellefu
þekkta leikmenn, sem flestir hafa
klæðst spænska landsliðsbúingin-
um. Þeir leikmenn sem Barcelona
þurfti að borga mestu peningaupp-
hæð fyrir, komu frá nágranaliðinu
Espanol, en Barcelona mætir ein-
mitt Espanol á morgun í fyrstu
umferð spænsku 1. deildarkeppn-
innar. Þetta eru leikmennimir
Miguel Soler, sem kostaði 157.5
millj. ísl. kr. og Emesto Valverde,
sem kostaði 77.5 millj.
Eftirtaldir leikmenn voru keyptir
til Barcelona - nöfn, félög og pen-
ingaupphæð í millj. fsl: króna:
MiguelSoler.......Espanol 157.5
Valverde..........Espanol 77.5
Baquero.....Real Sociedad 67.5
Serma.............Sevilla 62.5
Unzue.............Osasuna 57.5
Goicoechea............... 57.5
Eusebio....Atletico Madrid 57.5
Salinas....Atletico Madrid 57.5
BeguiristainReal Socieddad 57.5
Requarte...Real Socieddad 52.5
Hierro.........Valladolid • 52.5
Það er ekki mörg félög sem geta
státað af ellefu nýjum leikmönnum
- leikmönnum í fremsta flokki,
þegar nýtt keppnistímabil hefst. -
HANDKNATTLEIKUR
Mistök og misskilningur hjá KA
- segirJón Hjaltalín Magnússon um þjálfaramál félagsins
Eg ræddi við KA-menn á Akur-
.i
eyri meðan á Flugleiðamótinu
stóð og þá kom í ljós að þjálfar-
inn, sem þeir höfðu ráðið og feng-
ið upplýsingar unn var ekki sá sem
þeir vildu ráða. Eg benti þeim á
að þeir höfðu gert mistök og
bauðst til að fá staðfestingu júgó-
slavneska handknattleikssam-
bandsins á því sem og ég gerði.
Aðalsteinn Jónsson, formaður
handknattleiksdeildar KA, fer því
með rangt mál í Morgunblaðinu
í gær og vil ég að hið rétta komi
frarn," sagði Jón Hjaltalín Magn-
ússon, formaður HSÍ, við Morgun-
blaðið.
Jón hafði samband við blaðið
vegna fréttar um þjálfaramál KA
og sagðist ósáttur við að sitja
undir ásökunum Aðalsteins. „KA.
hafði samband við júgóslavneska
sambandið í sumar og bað um
upplýsingar um Miskovic. Sá eini
sanni er mjög þekktur og KA-
menn fengu upplýsingar um hann,
en ekki þann sem þeir réðu. Sá
ræddi við okkur Ingvar Viktors-
son á HM unglinga í Júgóslavíu
í fyrra, ekki í sumar, og óskaði
eftir starfí á íslandi. Ég sinnti því
ekki frekar þvi ég taldi hann ekki
þeim hæfíleikum búinn til að
þjálfa íslenskt félagslið. Bambir
kvennalandsliðsþjálfari hafði í
sumar samband við Ivan Snoj,
formann landsliðsnefndar Júgó-
slavíu, sem sagðist hafa sagt KA
að hann bæri enga ábyrgð á við-
komandi þjálfara, og í framhaldi
af því sagði Bambir mér frá mis-
tökunum og ég lét KA-menn vita.
Þetta er leiðinlegur misskilningur
og verst að KA-menn sáu ekki í
gegnum þetta strax, þar sem við-
komandi þjálfari hafði komið til
íslands og rætt við þá persónu-
lega,“ sagði Jón.
TOPPLEIKUR I DAG
VALUR - VÍKIIMGUR
kl. 17.00 á Hlídarenda
O heppnir áhorfendur ... fá einn kassa af Pepsi hver
1 o heppnir áhorfendur . fá einn Pepsibolta hver
1Ö heppnir áhorfendur .. fá eina Pepsitösku hver
Það verður sannkölluð Pepsistemning á Hliðarenda
Allirá iföllinn
Knattspyrnufélagið Valur