Morgunblaðið - 23.09.1988, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1988
Kjarnakljúfiir í bráðri fallhættu:
Fer yfir Island
tvisvar á dag
SOVESKI njósnahötturinn, sem sveimað hefur stjórnlaus yfir höfðum
jarðarbúa síðan í vor með kjarnakljúf innanborðs, er nú í 218-220
kílómetra hæð og getur fallið til jarðar hvenær sem er fram til 15.
október. Gervihnötturinn fer yfir ísland tvisvar á sólarhring, eina
mínútu í senn, og líkurnar á að hann hrapi á landið eru því einn á
móti 720.
Almannavamir fylgjast náið með
ferðum gervihnattarins, að sögn
Guðjóns Petersens, framkvæmda-
stjóra Almannavama, og fá daglega
upplýsingar um umferðarferli hans.
Guðrjón sagði að nú væri talið einna
líklegast að hann félli til jarðar 30.
september, eftir rétta viku, en ekki
væri hægt að segja fyrir um það
með vissu fyrr en þremur dögum
áður en það gerðist.
Sovétmenn segja að lítil ástæða
sé að óttast niðurfall njósnahnattar-
ins, þar sem sjálfvirkur búnaður um
borð eigi að sprengja hann þegar
hann komi inn í gufuhvolfið. Þann-
ig verði kjamakljúfurinn aðskilinn
frá gervihnettinum sjálfum og meiri
líkur séu á því að hin smærri brot
brenni upp í gufuhvolfinu. Guðjón
Petersen sagði að hann hefði nú
nýlega fengið skýrslu þar sem segði
að ekki væri ömggt að þessi búnað-
ur virkaði. Ef sprengjubúnaðurinn
bilaði gætu brot úr gervihnettinum
dreifst á belti sem væri 800 km
langt og 50 km breitt. Hann tók
fram að þó að brot úr kjamakljúfn-
um lentu í sjónum stafaði sjávarlífi
engin hætta af því.
Gervihnötturinn fer yfir ísland í
kvöld, föstudagskvöld, klukkan
21.39 og 23.11.
Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson
Harður árekstur á Sætúni
Harður árekstur tveggja fólksbifreiða varð við gatnamót Sætúns og Höfðatúns um klukkan 15.30
í gær. Farþegi og ökumaður annarrar bifreiðarinnar voru fluttir á sjúkrahús.
VEÐURHORFURíDAG, 23. SEPTEMBER
1988
YFIRUT f GÆR: Lægð fyrir austan land en hæð yfir Grænlandi. Á
sunnudag fer lægð austur um fyrir Suöuriand.
SPÁ: Norðan- og norðaustanátt, sums staðar allhvasst um landið
vestanvert og kaldi eða stinningskaldi í öörum landshlutum. Rign-
ing eða slydda norðan til en þurrt syðra. Hiti 2—5 stig noröan lands
en 5—9 stig sunnan til.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á LAUGARDAG: Norðanátt og svalt í veðri, einkum norö-
an lands. Slydduél norðan lands en léttskýjað á Suðurlandi.
HORFUR Á SUNNUDAG: Austan strekkingur með skúrum syöst á
landinu en hægari norðaustlæg eða breytileg átt og að mestu þurrt
í öðrum landshlutum. Áfram svalt og víða næturfrost inn til landsins.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r / Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■j 0 Hitastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
Þrumuveður
■FT
C 4 ■P m
V ¥
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri 6 alskýjað
Raykjavfk 5 rigning
Bergen 12 þokumóða
Helsinki 12 léttskýjað
Kaupmannah. 16 þokumóða
Narssarssuaq 0 léttskýjað
Nuuk 1 slydda
Osló 16 skýjað
Stokkhólmur 13 súld
Þórshöfn 12 skýjað
Algarve 26 heiðskirt
Amsterdam 19 þokumóða
Barcelona 26 léttskýjað
Chicago 17 skúr
Feneyjar 22 þokumóða
Frankfurt 16 heiðskírt
Glasgow 13 rigning
Hamborg 17 mistur
Las Palmas 24 léttskýjað
London 19 skýjað
Los Angeles 15 heiðskírt
Luxemborg 15 mistur
Madríd 25 mistur
Malaga 25 léttskýjað
Mallorca 24 léttskýjað
Montreal 10 skýjað
New York 17 skýjað
Paris 19 skýjað
Róm 23 léttskýjað
San Diego 14 heiðskírt
Winnipeg 8 skýjað
Menskum skipum
hótað í landhelgi
DÖNSK gæsluflugvél hótaði því í fyrradag að íslensku loðnuskipin
yrðu tekin fyrir ólöglegar veiðar í grænlensku lögsögunni, að sögn
Finnboga Jónssonar framkvæmdastjóra Sfldarvinnslunnar hf. á
Neskaupstað. „Við höfðum samband við Landhelgisgæsluna og ut-
anríkisráðuneytið vegna þessa og niðurstaðan varð sú að skipin
þyrftu ekki að færa sig þar sem þau væru í íslensku lögsögunni.
Ef Danir láta verða af þessum hótunum sínum verður bara stríð,“
sagði Finnbogi í samtali við Morgunblaðið.
Danir viðurkenna ekki Kolbeins-
ey sem grunnlínupunkt í íslensku
lögsögunni og því voru íslensku
loðnuskipin á svokölluðu gráu
svæði þegar danska gæsluflugvélin
hótaði því að þau yrðu tekin fyrir
ólöglegar veiðar.
Loðnuskipin fengu engan afla í
fyrrinótt, að sögn Finnboga Jóns-
sonar. Jón Kjartansson SU, skip
Hraðfrystihúss Eskiíjarðar, fékk
60 tonn aðfaranótt miðvikudagsins
en önnur loðnuskip fengu þá engan
afla, samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins.
V erðlagsstofhun:
Bílaverkstæði látin
lækka útselda vinnu
VERÐLAGSSTOFNUN hefur beint þeim tilmælum til nokkurra bif-
reiðaverkstæða að þau lækki gjaldskrár sinar fyrir útselda vinnu. í
athugun stofnunarinnar fyrr í mánuðinum kom í Ijós að nokkur
verkstæði höfðu hækkað útselda þjónustu umfram almenna launa-
hækkun frá því síðasta könnun var gerð í vor er leið, að sögn Guð-
mundar Sigurðsson yfirviðskiptafræðings Verðlagsstofnunar.
Guðmundur sagði að sfjómendur
tíu bifreiðaverkstæða hefðu verið
kallaðir til viðtals og leitað skýringa
þar sem fram hefði komið meira
en 10% hækkun taxta. Hjá helm-
ingi verkstæðanna hefðu verið eðli-
legar skýringar en þeim tilmælum
beint til 4-5 verkstæða að þau lækk-
uðu útselda vinnu til samræmis við
almenna launahækkun á þessu
tímabili. Öll verkstæðin hefðu ætlað
að verða við þessum tilmælum.
Sagði Guðmundur að Verðlags-
stofnun væri að vinna að athugun
á fleiri þjónustugreinum og bæri
sig eins að og hjá bílaverkstæðun-
um.
Brú yfir Dýrafjörð:
Tilboð opnuð í undir-
búningsfi’amkvæmdir
OPNUÐ hafa verið tilboð í undirbúningsframkvæmdir við brú yfir
Dýrafiörð. Tvö tilboð bárust og var lægra tilboðið frá Brautinni sf.
á Þingeyri, 5,9 milfiónir kr., sem er 77% af kostnaðaráætlun Vega-
gcrðarinnar.
, Hitt tilboðið var frá Ingvari
Ástmarssyni, Bolungarvík, 6,9
milljónir, en kostnaðaráætlun er 7,7
milljónir kr.
U ndirbúningsframkvæmdimar
felast í gerð vegar að brúarstæði
og efnisnámum og gerð vinnusvæð-
is. Verkinu á að vera lokið 1. desem-
ber næstkomandi.