Morgunblaðið - 23.09.1988, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 23.09.1988, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1988 33 blaði. Hvar sem Þorbjörg kom var hún hrókur alls fagnaðar, enda sér- staklega hress og glaðlynd kona, sem hafði áhuga á hinum aðskiljan- legustu málum. En fyrst og síðast var Þorbjörg mikil Ijölskyldumanneskja, sem alla tíð reyndist eiginmanni sínum, bömum, bamabömum og tengda- bömum einstaklega hlý og um- hyggjusöm og var alltaf boðin og búin til hjálpar í blíðu og stríðu. Móður sinni og tengdamóður, sem báðar komust hátt á efri ár reynd- ist hún einstök stoð og stytta, og sá klettur sem bæði þær og aðrir nákomnir gátu byggt á. Þorbjörg og Guðmundur urðu fyrir þeirri sorg árið 1945 að missa frumburð sinn, Jens Guðmund, sem þá var aðeins sex ára gamall, og hefur það verið þeim þung raun. Víst er að nú þegar jarðvist hennar lýkur hefur hún átt góða heim- komu, þar sem drengurinn hennar og aðrir gengnir ástvinir hafa tekið á móti henni. Ég kveð tengdamóður mína með virðingu og þökk fyrir viðkynningu sem aldrei bar skugga á, og bið henni blessunar Guðs. Morítz W. Sigurðsson í dag kveð ég hinstu kveðju mágkonu mína Þorbjörgu Jens- dóttur. Hún giftist Guðmundi bróð- ur mínum fyrir tæpum fimmtíu árum og frá fyrstu stundu hefur hún verið mér sem besta systir og vinkona. Þó ellefu ára aldursmunur væri töluverður, þá minnkaði hann fljót- lega með árunum. Með sinni léttu og glöðu lund vann hún hugi og hjörtu þeirra er kynntust henni, enda alltaf líf og ij'ör þar sem hún var. Hjálpsemi hennar var einstök og frumkvæði hennar í öllu er varðaði fjölskyiduna var ómetanlegt. Á þeim þijátíu árum sem ég hef verið búsett erlendis, á ég ótal margar ógleymanlegar minningar frá heimsóknum þeirra hjóna til mín og minnar ijölskyldu og ekki síður frá komum mínum til ætt- landsins. Ekkert var of gott fyrir „litlu systur". Móðir mín bjó í skjóli Boggu og Guðmundar bróður míns í næstum tuttugu ár og er mér efst í huga þakklæti fyrir þá miklu umhyggju og elsku sem þau ávallt sýndu henni til hinstu stundar. Var það mér ómetanlegur styrkur. Það varð mér mikið reiðarslag þegar ég frétti af alvarlegum veik- indum mágkonu minnar. En lífsvilji hennar og dugnaður gáfu mér von, sem dugði því miður ekki. Að leiðarlokum þegar ég fylgi henni síðasta spölinn, þakka ég fyr- ir að hafa átt hana að sönnum vini og hvað hún hefur ætíð á einlægan hátt tekið þátt í gleði minni og sorg- um. Blessuð sé minning hennar. Ninna Kveðja frá systkinum Hún Bogga systir er dáin. Hún var kölluð af þessum heimi þann 14. september 1988. Það þurfti ekki að koma á óvart eftir nær 3 mánaða sjúkrahússlegu og baráttu hennar og læknanna á Borgarspíta- lanum við erfiðan sjúkdóm. En svo er læknavísindunum fyrir að þakka að hægt var að hlífa henni við mestu kvölunum. Við sem eftir lif- um vitum að það skarð sem hún skilur eftir sig verður aldrei fyllt, en við verðum að taka því sem að höndum ber án þess að mögla og þetta er jú leið okkar allra fyrr eða síðar. En minning hennar mun lengi lifa. Við getum ekki annað en minnst hennar með fáeinum línum til að þakka fyrir allt og allt. Hún var okkar elst og leiðandi aflið í systkinahópnum, alltaf reiðu- búin til að hjálpa og gera gott úr öllu eftir mætti. Hún var hrókur alls fagnaðar og hvar sem hún kom var eftir henni tekið. Þessi frjáls- lega, hlýja framkoma ásamt glæsi- leika og góðu útliti og fylltri og fágaðri rödd öfluðu henni margra vina. Við vitum það að hvenær sem við systkinin komum saman, hvort heldur verður í gleði eða sorg, þá mun hún alltaf vera með í hugum okkar, annað væri óhugsandi, slíkur var persónuleiki hennar. Það er skarð fyrir skildi. Við sitjum hnípin eftir. Stór hluti af sál okkar allra mun fylgja henni áleiðis yfír móðuna miklu og okkar hjartans dýpsta þakklæti til hennar fyrir allt sem hún var okkur, í sorg sem gleði alltaf tilbúin til að gefa af sjálfri sér. Eftirlifandi manni hennar, Guð-, mundi, sem alltaf hefur verið okkur sem bróðir, bömum, tengdabömum og bamabömum biðjum við bless- unar guðs og biðjum að þau megi vera sterk í sínum mikla missi. Þessar fáu línur endum við með ljóðlínum eftir föður okkar, Jens Hermannsson. En meðan við sitjum í söknuði og þrá, og soigin í hjartanu bálar. Frá holdinu í moldinni horfum við þá til heimkynna ástkærrar sálar. (Ljóð 1954.) Vörumerkið tryggír gæöi og bestu sniö Við erum einkasalar á íslandi og bjóðum lægsta Evrópu-markaðsverð. Karlmannaföt kr. 3.995 til kr. 9.900,- jakkar kr. 4.995,- terelynebuxur kr. 1.195,- 1.595,- 1.695,- 1.795,- og 1.995,- Andrés Skólavörðustíg 22, sími 18250. maconde formen MADE 1N FpRTUGAL ■ ■ a ■ ■ ■ ■ ■ a ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ a ■ ■ ■ ■ a a a a a a a a ÓKEYPIS BÆKLINGUR Starfsframi, betri vinna, betri laun Eftir nám í ICS-bréfaskólanum átt þú möguleika á auknum starfsframa og betur launaöri vinnu. Þú stundar námiö heima hjá þér á þeim hraöa sem þér hentar. Nú stunda rúmar 8 milljón- ir manna nám í gegnum ICS-bréfaskólann! Líttu á listann og sjáöu öll þau tækifæri sem þér gefast. ICS-bréfaskólinn hefur örugglega námskeið sem hæfir áhuga þínum og getu. Prófskír- teini í lok námskeiöa. Sendu miöann strax í dag og þú færö ÓKEYPIS BÆKLING sendán í f lugpósti. (Setjiö kross í aðeins einn reit). Námskeiöin eru öll áensku. □ Tölvuforritun □ Rafvirkjun □ Ritstörf □ Bókhald □ Vélvirkjun □ Almenntnám □ Bifvólavirkjun □ Nytjalist □ Stjórnun tyrirtœkja □ Garóyrkja □ Kjólasaumur n Innanhús- arkitektúr q Stjórnun hótela og veitingastaóa □ Blaóamennska □ Kælitækni og ■ lottraasting Nafn:........................................................ Heimilisfang:............................................ ... ICS International Correspondence schools Dept. YYS, 312/314 High Street,Sutton,SurreySM11PR, England. SPECIAL“ Ódýrt en best Skötuselssúpa Monkfish soup kr. 225.- Humarsúpa Lobstersoup kr. 395.- Pasta með krækling í hvítlaukssósu Pasta with mussels in garlic sauce kr. 325.- Rækjur með hrísgrjónum barbecue Shrimps with rice barbecue kr. 325.- Ofnbakaður saltfiskur lasagne Ovenbaked saltfish lasagne kr. 795.- Hámerisbauti í rauðvíni Steak of porbeagle in redwinesauce kr. 695.- Grísarifjar í súr sætri sósu Pork rib in sweet and sour sauce kr. 810.- Reykt súla með sveppasósu Smoked gannet with mushroomsauce kr. 895.- Pönnusteikt smálúða að eigin vali Panfried founder at your choose kr. 795.- Að sjélfsögðu er einnig boðið uppá okkar rómaða „a la carte“. ARNARHÓLL RESTAURANT opinn á kvöldin frá kl. 18:00, þriðjud. til laugard. pantanasími 18833 Hverfisgötu 8—10

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.