Morgunblaðið - 23.09.1988, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 23 SEPTEMBER 1988
>
.*
KNATTSPYRNA / BIKARKEPPNI HSS
Stúlknalandsliðið
keppir í Frakklandi
Amorgun mun unglingalandslið
stúlkna, fæddra 1969 og síðar,
í fijálsum íþróttum, etja kappi við
jafnaldra sína frá nokkrum Evrópu-
löndum. Alls taka 6 lið þátt í þess-
ari keppni sem er sett upp sem fé-
lagakeppni bestu liðanna í Evrópu.
ísland fær að senda landslið til
keppninnar til að standa jafnt að
vígi og hin liðin.
Keppnin fer fram á einum degi
í borginni Rennes í Frakklandi.
Eftirtaldar stúlkur skipa liðið:
Súsanna Helgadóttir, FH;
100 m hlaup, langstökk og 4x100
m boðhlaup,
Guðrún Amardóttir, UMSK;
200 m hlaup og 4x100 m boðhlaup,
Guðrún Ásgeirsdóttir, ÍR;
400 m hlaup og 4x400 m boðhlaup,
Fríða Rún Þórðardóttir, UMSK;
Susanna Helgadóttlr úr FH kepp-
ir í 100 m hlaupi, langstökk og 4x100
m boðhlaupi.
800 m og 1.500 m hlaup og 4x400
m boðhlaup,
Margrét Brynjólfsdóttir, UMSB;
3.000 m hlaup,
Fanney Sigurðardóttir, Armanni;
100 m grindahlaup og 4x100 m
boðhlaup,
Helen Omarsdóttir, FH;
400 m grindahlaup og 4x400 m
boðhlaup,
Björg Össurardóttir, FH;
4x100 m boðhlaup,
Elín Jóna Traustadóttir, HSK;
hástökk,
Guðbjörg Viðarsdóttir, HSK;
kúluvarp,
Bryndís Guðnadóttir, ÍR;
spjótkast
Berglind Bjamadóttir;
kringlukast.
Neistinn sigraði eftir
vítaspymukeppni
BaldurRafn
Sigurösson
skrifarfrá
Hólmavik
ÚRSLITALEIKUR í bikar-
keppni Héraðssambands
Strandamanna í knattspyrnu
fór fram fyrir skömmu á Sœ-
vangsvelli. Til úrslita léku
Geislinn á Hólmavík og Neist-
inn í Kaldrananeshreppi.
Neistinn sigraði i spennandi
leik, eftir vítaspyrnukeppni,
4:3.
Aður en leikurinn hófst var
leikinn síðasti leikurinn í
svonefndu pollamóti HSS. A-lið
Geislans sigraði mótið og fékk
afhent verðlaun
eftir síðasta leik-
inn í pollamótinu.
Leikur Geislans og
Neistans hófst
með mikilli sókn Geislamanna, en
Neistamenn áttu skyndisóknir.
Geislamönnum tókst að skora eitt
mark í fyrri hálfleik. Seinni hálf-
leikur var mjög íjörugur. Geislinn
náði að bæta við einu marki og
héldu þá margir að nú væri sigur
þeirra í höfn. En Neistamenn gáf-
ust ekki upp og með mikilli bar-
áttu náðu þeir að jafna leikinn
fyrir leikslok og þurfti því að
framlengja leikinn um 2x15
mínútur. Framlengingin endaði
einnig á þann veg að bæði liðin
skoruðu eitt mark.
Urslitin í leiknum réðust í víta-
spymukeppni og var hún mjög
spennandi. Neistamenn sigruðu
þar 4:3 og unnu til eignar bikar,
því þetta var þriðja árið í röð sem
þeir unnu bikarinn.
Þetta var þriðji leikur þessara
liða því tveir fyrri leikimir enduðu
1:2. í fyrra skiptið sigraði Neist-
inn, en í þeim síðari sigraði Geisl-
inn.
Eftir leikinn vom kunngjörð
úrslit í vali knattspymumanns
HSS. Guðmundur V. Gústafsson
hlaut þann titil og var hann vel
að honum kominn.
Morgunblaðiö/Baldur Rafn Sigurösson
LIA' Neistans sem sigraði í bikarkeppni HSS.
A-IIA Qelslans sem sigraði í pollamóti HSS.
FRJALSAR IÞROTTIR / UNGLINGALANDSLIÐ
KNATTSPYRNA / U-21
Ólafur Gottskálksson markvörður ÍA leikur með U-21 árs landsliðinu
gegn Finnum í næstu viku. Hér stendur hann í ströngu í Evrópuleik á Skagan-
um fyrir skömmu.
Evrópuleikur
við Finnland
ínæstuviku
Juri Sedov hefurvalið 16 leikmenn
Unglingalandslið íslands fer til
Finnlands 25. september og
leikur við Finna þremur dögum
síðar í Oulu sem er um 700 km
norður af Helsinki. Leikurinn er lið-
ur í Evrópukeppni landsliða U-21.
Eftirtaldir leikmenn hafa verið
valdir í ferðina:
Markmenn:
Ólafur Gottskálksson.........ÍA
Adólf Óskarsson.............ÍBV
Aðrir leikmenn:
Alexander Högnason...........ÍA
KNATTSPYRNA
Haraldur Ingólfsson............ÍA
Rúnar Kristinsson..............KR
Þorsteinn Halldórsson..........KR
Einar P. Tómasson.............Val
Steinar Adólfsson.............Val
Amljótur Davíðsson...........Fram
Hallsteinn Amarsson........Víking
Pétur Óskarsson.............Fylki
Baldur Bjamason.............Fýlki
Ólafur Kristjánsson............FH
Gestur Gylfason...............ÍBK
Eyjólfur Sverrisson.....Tindastól
Ágúst Már Jónsson..............KR
Valdo í leikbann
Alþjóða knattspymusambandið,
FIFA, hefur dæmt Brasilíu-
manninn Valdo í leikbann vegna
þess að félag hans Benfica í Portúg-
al vildi ekki leyfa honum að fara
til Seoul. Bannið gildir þar til annað
hefur verið ákveðið. í samningi
Valdo við Benfica segir að honum
sé frjálst að leika með landsliðinu.
Joao Santos, forseti Benfica sagði
í gær að málið væri allt byggt á
misskilningi. „Við vildum leyfa
Valdo að fara gegn því að Brasilíu-
menn borguðu honum laun og
tryggðu hann. En svo heyrðum við
ekki meira frá þeim," sagði Santos.
Margar þjóðir eiga í vandræðum
vegna þess að leikmenn hafa ekki
fengið leyfi frá liðum sínum.
HAPPDRÆTTI
5 Ford Bronco - 40 Fiat Uno
Dregið 7. október
Fleildarverómœti vinninga 21,5 milljón.
/j/tt/r/ mark