Morgunblaðið - 23.09.1988, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 23 SEPTEMBER 1983
47
DÓMÁRAR
KNATTSPYRNA
Eysteinn og
Baldur kveðja
Munu dæma síðustu leiki sína í 1. deild
á laugardaginn
TVEIR dómarar dæma síðustu
leiki sína í 1. deild í knattspyrnu
um helgina. Það eru þeir Ey-
steinn Guðmundsson og Bald-
ur Scheving. Eysteinn mun
dæma leik Fram og ÍA á Laug-
ardalsvellinum en Baldur leik
KR og Þórs á KR-velli.
Eysteinn hefur dæmt í 28 ár,
þar af 23 ár í 1. deild og verið
milliríkjadómari í 15 ár. Hann átti
að dæma leik ÍBK og Víkings en
Friðgeir Hallgrímsson bauð Ey-
steini að taka leik Fram og ÍA.
Eysteinn endar því 28 ára dómara-
feril á Laugardalsvellinum á laugar-
daginn.
Baldur Scheving hefur dæmt í
29 ár en byijaði ekki að dæma í
1. deild fyrr en 1980. Baldur verður
fimmtugur í október og samkvæmt
reglum FIFA verður hann að hætta.
Síðasti leikur hans í 1. deild verður
því viðureign KR og Þórs á KR-
vellinum.
Bæði Baldur og Eysteinn hafa
þó ekki hugsað sér að leggja flaut-
una algjörlega til hliðar. Þeir munu
líklega halda sér við með því að
dæma leiki í neðri deildunum og
yngri flokkunum.
Arangur ekki í sam-
ræmi við kostnað"
ÍBK mun ekki endurráða Frank Upton. Stefnan sett á
Á FUNDI knattspyrnuráðs
ÍBK var ákveðið að endurráða
ekki Frank Upton sem hefur
þjálfað liðið í rúmt ár. Keflvík-
ingar eru ekki sáttir við stöðu
liðsins og segja að of dýrt sé
að ráða erlendan þjálfara
þegar árangurinn er ekki
betri en raun ber vitni.
Við teljum okkur fá of lítið
fyrir peningana með því að
ráða erlendan þjáifara. Árangur
er ekki í samræmi við kostnað,"
íslenskan þjálfara
Frank Upton.
■■■■■ sagði Krístján Ingi
FráBimi Helgason, formað-
Blöndal ur knattspymur-
iKefíavik áðg jBK nUpton
vildi vera áfram og
taldi að hann þyrfti lengri tíma
til að sanna sig, en við ákváðum
að reyna frekar að fá íslenskan
þjálfara" sagði Kristján.
Kristján Ingi hefur ákveðið að
hætta sem formaður knattspymu-
ráðsins í nóvember. „Áður en ég
hætti ætla ég að ganga frá ráðn-
ingu þjálfara fyrir næsta sumar
samkvæmt fyrirmælum frá
stjóminni,“ sagði Kristján.
KÖRFUKNATTLEIKUR / REYKJANESMÓTIÐ
Keflvfldngar meist-
arar í fyrsta sinn
Sigraði Njarðvík í úrslitaleik. Teitur með 47 stig
KEFLVÍKINGAR tryggðu sér
sigur í Reykjanesmótinu með
því að leggja nágranna sína,
Njarðvíkinga, að velli í úrslit-
leik, 92:20. Leikurinn var mjög
spennandi og skemmtilegur,
einkum þó síðustu mínúturnar.
Njarðvíkingar höfðu undirtökin
framan af og voru yfír í leik-
hléi, 53:45. Þessum mun héldu
Njarðvíkingar lengst af en Keflvík-
ingar náðu frábær-
FráBimi um endaspretti og
Blöndal tryggðu sér sigur.
Kefíavík Þegartæparþijár
mínútur vom til
leiksloka var staðan 88:80
Njarðvíkingum í vil. Keflvíkingar
tóku þá við sér — léku mjög vel á
lokamínútunum — og skomðu 12
stig gegn 2 og sigruðu.
Lee Nober, þjálfari ÍBK, hefur
látið liðið leika pressuvöm í öllum
leikjum á mótinu. Njarðvíkingar
hafa líklega reiknað með því að lið-
Teitur Örlygsson átti mjög góðan
leik og skoraði 47 stig.
ið beitti sömu vöm í úrslitaleiknum.
En svo var ekki. Það var ekki fyrr
en á lokamínútunum að ÍBK tók
upp pressuvömina sem kom
Njarðvík í opna skjöldu.
Þrír Njarðvíkingar fóm útaf með
5 villur á lokamínútunum. Helgi
Rafnsson, Hreiðar Hreiðarsson og
Kristinn Einarsson. Þá lék fyrirlið-
inn ísak Tómasson ekki með en
hann var veikur.
Tertur með 47 stig
Njarðvíkingurinn Teitur Örlygs-
son átti frábæran leik og skoraði
47 stig eða ríflega helming stiga
Njarðvíkur. Mörg þessara stiga
komu úr þriggja stiga skotum og
Teitur var án efa langbesti maður
vallarins. Jón Kr. Gíslason átti að
venju góðan leik, stjómaði leik ÍBK
vel og skoraði 28 stig.
Þetta er í fyrsta sinn sem
Keflvíkingar sigra á Reykjanesmót-
inu og í fyrsta sinn sem það vom
ekki Njarðvíkingar sem tóku við
bikamum.
Morgunblaöiö/Einar Falur
Jón Kr. Gísíason fyrirliði Keflvíkinga í skotstöðu. Hann átti góðan leik í
úrslitaleiknum. Helgi Rafnsson varð hinsvegar að fara útaf með 5 villur skömmu
fyrir leikslok.
GOLF
Styrktar-
mót í Hval-
eyrarholti
GOLFMÓT verður haldið á
Hvaleyrarholtsvelli á morgun,
laugardag 24. september, og
geta snjallir kylfingar unnið bif-
reið af gerðinni Peugeot 405,
1900 GR, árgerð 1988 ef þeir
fara holu í höggi á 17. braut
vallarins.
Golfklúbburinn Keilir gengst
fyrir mótinu, sem er styrktar-
mót vegna þátttöku sveitar félags-
ins í Evrópukeppni félagsliða, sem
fram fer í Marbella á Spáni 21. til
26. nóvember næstkomandi.
Auk bifreiðaverðlaunanna verða
efstu mönnum á mótinu veitt verð-
laun og veitt verða aukaverðlaun á
par 3 holum, sem þeir hljóta sem
verða næst holu eftir upphafshögg.
Keppt verður samkvæmt svokölluðu
7/8 Stableford punktakerfí.
DOMARAMAL / GUÐMUNDUR HARALDSSON
Dalglish konungur vælukjóanna
Oft hefur það komið fram, að
íslenskir dómarar séu við-
kvæmir fyrir nöldri í leikmönnum,
og athugasemdum frá stjómend-
um liðanna. Það er líka talað um
að íslenskir dómarar séu þeir einu
sem fínni fyrir þessu. Vitna menn
þá oft í það að erlendis séu dómar-
ar ekki að finna að þessum hvim-
leiðu köllum.
í síöasta mánuöi átti enskt dag-
blað viðtal við Knuvörð sem hafði
starfað í 7 ár í ensku deildinni. Á
Englandi verða menn að byija
sem línuverðir áður en þeir fá
tækifæri til þess að starfa sem
dómarar. Þetta viðtal var tekið
við línuvörðinn vegna þess að
hann hafði ákveðið að hætta störf-
um. Það sem gerði þá ákvörðun
fréttnæma, var að hún var tekin
í Ijósi þess að viðkomandi línu-
vörður hafði fengið meira en nóg
af grófri framkomu leikmanna og
framkvæmdastjóra margra liða.
Hann tilgreindi marga fram-
kvæmdastjóra en aðeins fáa leik-
menn.
Konungur vælukjóanna
ífyrirsögn viðtalsins var ekki
glæsileg fyrir Kenny Dalglish,
framkvæmdastjóra Liverpool, en
þar stóð; „Dalglish er konungur
vælukjóanna." I greininni kemur
fram að Dalglish er hinn mesti
nöldrari, og Liverpool liðið í heild
mjög slæmt í þessu sambandi.
Eins og línuvörðurinn sagði í við-
talinu; „Það er engu líkara en
leikmönnum liðsins sé uppálagt
að nöldra í dómaratríóinu. Ef Ii-
verpool tapar leik, þá er það ekki
sök liðsins. Bæði leikmenn og
stjómendur liðsins leita orsa-
kanna yfírleitt hjá dómaratríóinu.
Besta dæmið er úrslitaleikurinn í
enska bikamum í vor, þegar Li-
verpool tapaði fyrir Wimbledon."
En það em fleiri sem fá slæma
einkunn hjá línuverðinum. Bryan
Robson, fyrirliði Manchester Un-
ited er að sögn línuvarðarins, leik-
maður sem er sínöldrandi allan
leiktímann. í viðtalinu kemur að-
eins fram einn ljós punktur. Brian
Clough, framkvæmdastjóri Nott-
ingham Forest, var á árum áður
mjög skapmikill og lét reiði sína
bitna mjög á dómumm. Viðhorf
hans er nú breytt, og gangi illa,
leitar hann orsaka hjá liði sínu.
Hann er, að áliti línuvarðarins,
hin besta fyrirmynd í dag.
Ámlnnlngar
Það kemur fram hjá línuverðin-
um, að enska knattspyrnusam-
bandið tekur ekki nógu hart á
kæmm frá dómumm. Leikmenn
og stjómendur Iiða, sem em kærð-
ir fyrir leiðinlega og grófa fram-
komu, sleppa oftast með minni
háttar áminningar. Því hafði þessi
ágæti línuvörður tekið þá ákvörð-
un að hætta í dómgæslunni. Hann
hafði fengið sig fullsaddan á þess-
ari leiðinlegu framkomu.
Nú er ég hræddur um að ein-
hveijir segi að þessi ágæti línu-
vörður sé of viðkvæmur til þess
að vera í dómgæslunni. En málið
er ekki svo einfalt. Auðvitað gera
dómarar mistök, en það réttlætir
ekki að leikmenn og forystan séu
með leiðinlega framkomu í garð
þeirra.
Það er svo ekki úr vegi að Ijúka
þessu með dæmisögu úr daglega
lífínu. Maður segir við annan:
„Hvað er að þér maður? Ég er
búinn að ausa yfír þig skömmum
og svívirðingum, og’segir ekkert
við þessu." Þá svarar hinn: „Ég
er knattspymudómari".
Með dómarakveðju,
Guðmundur Haraldsson.