Morgunblaðið - 08.11.1988, Qupperneq 1
64 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
256, tbl. 76. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 8. NOVEMBER 1988
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Forsetakjör í Bandaríkjunum í dag:
Bush talinn mjög
sigurstranglegur
Washington. Reuter. Daily Telegraph.
ÞÓ AÐ skoðanakannanir sýni að munurinn á fylgi Michaels Dukak-
is, forsetaframbjóðanda demókrata, og George Bush, frambjóðanda
repúblikana, hafi minnkað síðustu daga kosningabaráttunnar telja
flestir stjórnmálaskýrendur að Bush eigi sigurinn vísan í forsetakosn-
ingunum, sem fram fara í Bandaríkjunum í dag.
Kannanir síðustu daga gefa til
kynna að munurinn verði 4-12 af
hundraði á landsvísu, Bush í hag.
Hann virðist hafa örugga forystu í
33 ríkjum en Dukakis í aðeins sex.
Forseti er valinn af svonefndum
kjörmönnum í hveiju ríki; sá fram-
bjóðandi, er flest atkvæði fær í
hvetju ríki, hreppir alla kjörmenn-
ina. I dag verður einnig kosið um
öll þingsæti fulltrúadeildar þings-
ins, 435 talsins, 33 sæti í öldunga-
deildinni, 12 ríkisstjóraembætti
ásamt flölda annarra embætta og
ýmsar tillögur.
I könnun ABC-sjónvarpsstöðvar-
innar og dagblaðsins Washington
Post, er birt var á sunnudag, sögð-
ust 54% aðspurðra myndu kjósa
Bush en 44% Dukakis. ABC-stöðin
taldi Bush sigurstranglegan í 33
Bretar og
Irar skipta
landgrunni
Dyílinni. Reuter.
BRETAR og írar sömdu í gær
um skiptingu landgrunns milli
ríkjanna en samningurinn
nær hvorki yfir landgrunnið
undan Norður-írlandi né um-
hverfis Rockall, umdeildan
klett vestur af írlandi.
Sir Geoffrey Howe, utanríkis-
ráðherra Breta, og Brian Leni-
han, írskur starfsbróðir hans,
undirrituðu samninginn í Dyfl-
inni, höfuðborg írlands, í gær.
Sagði Howe að samningurinn
opnaði ný svæði til olíu-, gas-
og málmleitar og ætti eftir að
vera báðum aðilum til hagsbóta.
Samningurinn náðist eftir
tveggja ára sleitulausar samn-
ingaviðræður.
ríkjum með alls 303 kjörmenn en
Dukakis í aðeins se_x með saman-
lagt 74 kjörmenn. í ellefu ríkjum
var staðan óviss en 270 kjörmenn
þarf til að sigra. Könnun á vegum
ATJC-stöðvarinnar og The Wall
Street Journal, einnig birt á sunnu-
dag, gaf Bush hins vegar 48% en
Dukakis 43% fylgi. Á laugardaginn
var skýrt frá könnun CBS-sjón-
varpsstöðvarinnar og The New
York Times. Þar fékk Bush 48%
en Dukakis 40%. í könnun Louis
Barrís-stofnunarinnar var munur-
inn á frambjóðendum aðeins 4%.
Dukakis bar sig vel í gær og
sagði úrslitin eiga eftir að koma á
óvart. „Ég finn að sigurinn liggur
í loftinu," sagði hann vígreifur á
fundi með stuðningsmönnum sínum
í Colorado-ríki í gærmorgun. Reag-
an forseti flutti í gær ræður í Kali-
fomíu til stuðnings Bush.
Búist er við fyrstu tölum og
tölvuspám um kosningaúrslitin
skömmu eftir miðnætti að íslensk-
um tíma._
Sjá „Áhugalitlir Bandaríkja-
menn velja...“ á bls. 14-15.
Reuter
George Bush, varaforseti, og Barbara kona hans veifa til stuðningsmanna á kosningafundi í Kaliforníu
í fyrradag. Bandaríkjamenn kjósa forseta í dag og hafa Bush og mótframbjóðandi hans, Michael Dukak-
is, ferðast landshorna á milli síðustu daga í þeirri von að styrkja stöðu sína. Skoðanakannanir benda
til þess að Bush verði næsti forseti Bandarikjanna.
Kína:
Rúmlega 600 manns
farast í iarðskiálftum
Peking. Reuter.
RÚMLEGA 600 manns fórust í
jarðskjálftum í afskekktu héraði
í suðvesturhluta Kína á sunnu-
dag, að því er fréttastofan Nýja
Kína greindi frá í gær. Sterkasti
skjálftinn, sem mældist 7,6 stig
á Richterskvarða, átti upptök sín
í Lancang-sýslu í Yunnan-héraði
við landamæri Búrma.
Fréttastofan greindi frá því að
Andrei Sakharov í Bandaríkjunum:
Skylda mín að minnast
sovéskra andóísmanna
Boston. Reuter.
SOVÉSKI andófsmaðurinn, An-
drei Sakharov, kom í fyrsta sinn
til Bandaríkjanna sl. sunnudags-
kvöld. Þar ætlar hann að dvelj-
ast í þijár vikur. Heimsækir hann
meðal annars ættingja sína sem
búa í grennd við Boston og situr
ráðstefnu alþjóðlegra mannrétt-
inda- og afvopnunarsamtaka.
Sakharov sagði við komuna til
Bandaríkjanna að það væri skylda
sín að minnast sovéskra andófs-
manna. Gaf hann í skyn að hann
væri síður en svo hættur að gagn-
rýna sovésk yfirvöld fyrir meðferð
þeirra á andófsmönnum. Hann
minntist sérstaklega eins landa
síns, sem mótmælti útlegðardómi
hans 1980. „Hann er ekki fijáls.
Nafn hans er Vazif Meilanov."
Blaðamenn spurðu Sakharov,
sem var sex ár í útlegð í borginni
Gorkíj, hvernig sú tilhugsun væri
að þurfa ef til vill að snúa aftur
þangað, ef perestrojka Míkhaíls
1 1 !' PV fk\
V ' . j
\
n|í V Jk k
Reuter
Andrei Sakharov ásamt stjúp-
dóttur sinni, Tatiönu.
Gorbatsjovs, Sovétleiðtoga, rynni
út í sandinn, svaraði hann: „Bregð-
ist perestrojkan hefði það hörmu-
legar afleiðingar fyrir heimsbyggð-
ina og það skipti ekki máli í því
samhengi hvort ég yrði sendur aft-
ur til Gorkíj.“
36 jarðskjálftakippir hefðu riðið
yfir Yunnan-hérað í kjölfar. stóra
skjálftans og lagt hús í meira en
tíu bæjum í rúst. Mesta eyðilegg-
ingin varð í bænum Banmapuo.
Samgöngur rofnuðu á jarð-
skjálftasvæðinu en í gærmorgun
hafði tekist að opna vegi á ný.
Starfsmenn jarðskjálftastöðvarinn-
ar í Peking sögðust í gær ekki hafa
fengið nýlegar upplýsingar um
mannfall en fréttastofan Nýja Kína
hafði áður greint frá því að tala
látinna væri komin upp í 37 manns
og að 70% húsa á jarðskjálftasvæð-
inu hefðu eyðilagst.
Hjálparstarf hófst í gær og voru
tjöld, matvæli og lyf flutt til
skjálftasvæðanna. Læknar og
björgunarmenn streymdu þangað
og viðgerð var hafin á vegum.
Jarðskjálftanna varð vart frá
sunnudagskvöldi til mánudags-
morguns á 700 km löngu svæði í
Yunnan-héraði. Öflugir skjálftar
skóku borgina Kunming í um 400
km fjarlægð frá skjálftamiðjunni
en ekki hefur verið skýrt frá því
hvort tjón hafi orðið þar.
Síðastliðinn laugardag reið jarð-
KlNA
1.00</
KM
<0
Peking
'N ' &
$ *U
Shanghai f
Kanton/*^
• ; haf
Knight-Ridder Tribune News
skjálfti, sem mældist 7 stig á Richt-
erskvarða, yfir Qinghai-hérað, af-
skekkt og strjálbýlt fjallahérað í
norðvesturhluta Kína. Ekki var
greint frá mannfalli þar.
Fyrr á árinu spáðu jarðskjálfta-
fræðingar að framundan væri aukin
skjálftavirkni í Kína. Búast þeir við
að hún nái hámarki eftir 1990.
Dagblöð í Kína hafa hvatt bænd-
ur á skjálftasvæðunum til að varpa
allri hjátrú fyrir róða. Margir
Kínverjar trúa því að árið 1988, ár
drekans, boði hörmungar.
Árið 1976, á ári drekans, fórust
amk. 240.000 í jarðskjálftum í He-
bei-héraði í norðausturhluta Kína.