Morgunblaðið - 08.11.1988, Side 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. NOVEMBER 1988
Kynlífsmyndir
á myndböndum
HUGSJÓN, nýtt fyrirtæki í kvikmyndagerð undirbýr nú gerð fimm
fræðslumynda um kynlíf. Myndirnar heita „Öruggara kynlíf1,
„Unglingar og kynlíf1, „Fatlaðir og kynlíf‘, „Aldraðir og kynlíf'
og „Að gera gott kynlíf betra“. Myndirnar eru ætlaðar bæði til
fræðslu í skólum og heilbrigðisstofriunum sem og til almennrar
fræðslu og verða þær í því skyni gefriar út á myndböndum.
Aðstoð við gerð handrits veita
Jóna Ingibjörg Jónsdóttir, kyn-
fræðingur, Sóley Bender, hjúkrun-
arkona sem séð hefur um kyn-
fræðslu fyrir Landlæknisembættið
"•og bandarískur doktor í kyn-
fræðslu Mark Schoen. Hann hefur
starfað við gerð kynfræðslumynd-
banda og kvikmynda um 15 ára
skeið, og rekur eigið fyrirtæki,
Focus Intemational, sem leigir og
selur kynfræðslumyndir til skóla,
kynlífsráðgjafa og annara þeirra
sem hafa með kynlífsfræðslu að
gera.
Dr. Schoen er staddur hérlendis
Leiðrétting
í frétt Morgunblaðsins á föstu-
daginn af burtfararprófstónleik-
yum Ólafs Elíassonar píanóleik-
ara, féll niður, að Ólafúr lauk
prófi frá Nýja tónlistarskólan-
um.
] s f-Iöfóar til LXfólks í öllum tarfsgreinum!
til skrafs og ráðagerða með starfs-
mönnum Hugsjónar. Morgunblað-
ið hafði samband við hann og
spurði um tilganginn með mynd-
unum.
„Böm ættu fyrst og fremst að
læra um kynlíf af foreldrum
sínum. En þar sem við vitum að
sú er ekki raunin, viljum við koma
til aðstoðar og bæta úr því sam-
bandsleysi sem oft er á milli for-
eldra og bama þegar þessi mál
eru annars vegar. Þegar böm eru
að læra að tala er þeim kennt að
nefna líkamshluta sínum réttu
nöfnum, alla nema kynfærin. Yfir
þau eru notuð einhver fáránleg
gælunöfn og bamið meðtekur þau
skilaboð að kynfæri og kynlíf er
eitthvað sem ekki má tala um.
Þegar það svo kemst á kynþroska-
aldurinn og fer að langa að ræða
þessi mál sitja skilaboðin enn í
minninu og það þorir ekki að leita
svara hjá foreldrunum. Þetta verð-
ur að breytast og megin tilgangur-
inn með fræðslumyndunum er að
koma af stað umræðum, hvort
heldur sem er innan fjölskyldunnar
eða í skólum. Myndbönd hafa þann
kost að hægt er að stoppa og
ræða málin hvenær sem einhver
fínnur hjá sér hvöt til að ræða
eitthvað í myndunum og markmið-
ið er að gera fólk meðvitaðra og
opnara í umræðum um kynlíf.“
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Stafries KE 130 var fánum skreyttur við komuna til Keflavíkur. En á innfelldu myndinni eru eig-
endur Stafnes ásamt eiginkonum sínum. Oddur Sæmundsson skipstjóri er lengst til vinstri ásamt
eiginkonu sinni Jónínu Guðmundsdóttur. Til hægri er Hilmar Magnússon ásamt eiginkonu sinni
Jórunni Garðarsdóttur.
Stafiies KE 130 - nýtt fiski-
skip komið til Keflavíkur
NYTT fiskveiðiskip, Stafnes KE 130, kom til heimahafiiar í
Keflavík fyrir skömmu. Skipið er smiðað í Kolvereid í Noregi, það
er 176 tonn og kostaði fúllbúið 175 milljónir. Eigendur skipsins eru
þeir Hiimar Magnússon og Oddur Sæmundsson úr Keflavík og er
Oddur jafiiframt skipstjóri.
Samningur um smíði skipsins
var gerður í desember í fyrra og
hófst smíðin í febrúar. Oddur skip-
stjóri fór utan í ágúst og dvaldi í
Noregi þar til lokið var við smíði
skipsins. Þeir félagar áttu áður
samnefndan bát, Stafnes, sem
gekk upp í kaupin og var hann
tekinn uppí á 15 milljónir. Gamla
bátinn keyptu þeir Oddur og Hilm-
ar árið 1980, hann hét áður Ásþór
RE 395 og hefur reynst mikið
happaskip.
Heildarverð nýja skipsins var um
210 milljónir króna, en verðið var
greitt niður um 15% af norska
ríkinu. Keflavíkurbær veitti bæjar-
ábyrgð fyrir láni að upphæð um
19 milljónum króna til 7 ára á 2.
veðrétti, en á 1. veðrétti er lán frá
fískveiðasjóði að uppæð 96 milljón-
ir.
Stafnes KE 130 getur stundað
allar hefðbundnar fískveiðar og er
með frystilest. Oddur Sæmundsson
skipstjóri sagði að allur búnaður
hefði verið reyndur áður en haldið
var heim og færi skipið beint á
síldveiðar. Ætlunin er að frysta
síldina um borð fyrir Japansmarkað
og er skipið útbúið með nýrri teg-
und af dælu til að dæla síldinni upp
úr nótinni án þess að á henni sjáist.
Heimferðin tók þrjá og hálfan
sólarhring, ganghraðinn var um
13 sjómílur og sagði Oddur Sæ-
mundsson skipstjóri að skipið hefði
reynst hið besta sjóskip. Stafnes
KE er tæpir 35 metrar á lengd og
8 metrar á breidd og ristir dýpst
6,25 metra. Yfirvélstjóri er Amar
Jóhannsson og 1. stýrimaður er
Sigurður Kristjánsson.
BB
:
!
LJÚMANDISKILABOÐ SEM TEKIfl ER EFTIR!
Skilaboðin fá nýtt og aukið líf með nýju TEXT-LITE veggtöfl-
unni. Skær fíúrljómandi marglita skriftin og teikningarnar
vekja athygli og stuðla að hámarksárangri. Auðvelt að þurrka
af og skrifa ný skilaboð á svipstundu. Spennandi nýjung.
Notkunarmöguleikar: I Tækniupplýsingar:
• I veitingahúsum • Skyndi-
bitastöðum • Matvöruversl-
unum • Sérverslunum •
Videóleigum • Hljómplötu-
verslunum • Listgalleríum •
Isbúðum og víðar þar sem
þörf er á að ná betri árangri.
• Jöfn og skær fíúriýsing •
Tvær endingargóðar 13w
fíúrijósapipur tryggja
hámarks flúrijómun • Vand-
aður frágangur, gott efni •
Fallegir teiknilitir fylgja • Lóð-
rétt eða lárétt uppsetning •
Stærð 82x57 cm.
^un BRUN
SÍMI27990
^DuWi Chorotefc
f Píppfxnuvt-
^ Lfctuon. Ctisfar'i
r-Kpyímt g
ýfyúYlSc y
SIEMENS sjónvarpstæki
FC910
21 “ flatskjár, 40 stöðva
minni, 99 rásir, tengi fyrir
heyrnartól, þráðlaus fjar-
stýring.
Verð: 55.770.-
FS928
25“ flatskjár, stereo, 31
stöðva minni, HiFi-magn-
ari, sjálfvirkur stöðvaleit-
ari, tengi fyrir heyrnartól,
þráðlaus fjarstýring.
Verð: 76.700.-
FS937
28“ flatskjár, stereo, 31
stöðva minni, HiFi-magn-
ari, sjálfvirkur stöðvaleit-
ari, tengi fyrir heyrnartól,
þráðlaus fjarstýring.
Verð: 79.990,-
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
Islendingar verð-
launaðir á norskri
írímerkj asýningu
Lau^arhóli, Bjarnarfírði.
Frímerkjabækur tveggja ís-
Iendinga voru verðlaunaðar á
Frímerkjasýningin „Posthorn
88“ var haldin í Osló í október.
Hlaut bókin „íslensk frímerki
1988“ eftir Sigurð Hólm Þor-
steinsson næst hæstu verðlaun
í bókmenntadeild eða Vermeil,
sem er öðru nafini gyllt silfúr.
Bók Þórs Þorsteins um pósthús
og bréfliirðingar á íslandi hlaut
stórt silfúr.
Sýningin var haldin í Osló Kon-
serthus í tilefni af því að frímerkja-
klúbburinn Frimerkeringen-Post-
horn varð 20 ára gamall. Voru
sýnendur vel yfir 50, en þetta var
norsk innanlandssýning með
íslenskri þátttöku í bókmennta-
deild.
í bókmenntadeildinni voru 14
sýnendur og hlaut Norgeskatalog-
en 1987/1988 stórt gyllt silfur,
sem voru hæstu verðlaun í deild-
inni. Fjögur sýningarefni voru frá
íslandi. Bókin „Islensk frímerki
1988“ eftir Sigurð H. Þorsteins-
son, sem fékk gyllt silfur, Bók
Þórs Þorsteins „Pósthús og bréf-
hirðingar á íslandi", sem fékk
stórt silfur, en auk þess skrá yfir
íslensk póstflug eftir Sigurð, sem
hlaut bronsverðlaun og skrá um
íslensk Maximkort, einnig eftir
hann, sem fékk viðurkenningar-
skjal.
Eru þetta hæstu verðlaun sem
bókin „íslensk frímerki" hefur
fengið á frímerkjasýningu, en geta
má þess að bókin „Islensk frímerki
1989“ er nýkomin út og er hún
Forsíða bókarinnar „íslensk
frímerki 1988“.
FRIMERKEUTSTILLING
OSLO 7.-9.10.1988
FRIMERKE-RINGEN POSTHORN 20 Ar
Merki sýningarinnar „Posthorn
88“.
einmitt með viðbótarefni um
íslensk frímerkjahefti eftir Þór
Þorsteins í þetta sinn.
- SHÞ