Morgunblaðið - 08.11.1988, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 1988
51
\
um. Niðurstaða í þessu máli á að
liggja fyrir á næsta Kirkjuþingi.
Frá blaðamannafundi um störf
Kirkjuþings. Frá vinstri: Magnús
Guðjónsson biskupsritari, Gunn-
laugur Finnsson frá Hviflt i Ön-
undarflrði, herra Pétur Sigur-
geirsson biskup og séra Jón Ein-
arsson, prófastur í Saurbæ á
HvalQarðarströnd.
Kirkjuþing leggur til
að hlutverk vígslubisk-
upa verði stóraukið
KIRKJUÞINGI lauk síðastliðinn
fimmtudag. Þar var fjallað um
frumvarp til laga um breytta
skipan prestakalla og prófasts-
dæma í landinu og starfsmenn
þjóðkirkjunnar. Þar er lagt til,
að hlutverk vígslubiskupa verði
stóraukið. Meðal annarra mála,
sem rædd voru á þinginu var
breyting á altarissakramenti
kirkjunnar, bygging bókhlöðu i
Skálholti og stofhun þjóðmála-
ráðs kirkjunnar.
í tillögum Kirkjuþings um
breytta skipan prestakalla og próf-
astsdæma á landinu er lögð áhersla
á aukið sjáifstæði kirkjunnar og
meiri sveigjanleika með það fyrir
augum að tryggja öllum lands-
mönnum prestsþjónustu. Lagt er
til að tvímenningsprestaköll verði
lögð niður en í staðinn stofnuð
embætti aðstoðarpresta, sem ætlað
er að leysa úr vandræðum í fjöl-
mennum prestaköllum.
Prestaköllum verður fækkað, ef
farið verður að tillögum Kirkju-
þings, en hins vegar verða tekin
upp embætti farpresta, sem eiga
að vera til aðstoðar í fjölmennum
og víðlendum prestaköllum, til að
þjóna í forföllum og tii að annast
ýmis sérverkefhi. Itillögunum er
einnig gert ráð fyrir að kirkjumála-
ráðherra geti, að fengnum tillögum
biskups, ráðið presta til sinna ýms-
um sérverkefnum.
Á Kirkjuþingi var einnig rætt
um biskupsembætti í landinu. Hug-
myndir voru uppi um stofnun
þriggja biskupsstóla, í Reykjavík,
á Hólum og í Skálholti, og áttu
þær miklu fylgi að fagna meðal
þingfulltrúa. Þessar hugmyndir
hafa mætt andstöðu hjá stjóm-
völdum og að sögn séra Jóns Ein-
arssonar í Saurbæ var því farin
sú málamiðlunarleið, að fá vígslu-
biskupunum tveimur ákveðin verk-
efni. Er gert ráð fyrir því að þeir
verði nokkurs konar aðstoðarbisk-
upar, sjái um að vígja presta og
kirkjur í sínum umdæmum, vísiteri
kirkjur, presta og söfnuði og verði
biskupi Islands til ráðuneytis um
máleftii þjóðkirkjunnar. Hingað til
hafa vígslubiskupsembættin tvö
fyrst og fremst verið virðingarstöð-
ur.
Miklar umræður urðu á þinginu
um möguleika á breytingum á alt-
arissakramentinu. Töldu ýmsir
heppilegra að dýfa oblátunni í
messuvínið í stað þess að allir
drekki af sama kaleik. Af þessu
tilefni vöknuðu spumingar um að
hvort eyðni gæti hugsanlega smit-
ast við altarisgöngu og ieitaði bisk-
up álits landlæknis á því atriði.
Ólafur Ólafsson landlæknir svaraði
á þá ieið, að ekkert benti til þess
að eyðnismit gæti borist með þeim
hætti. Hins vegar er nú í athugun,
hvort þessi breyting á sakrament-
inu sé framkvæmanleg út frá siða-
reglum kirkjunnar.
Fulltrúar á Kirkjuþingi sam-
þykktu að fela Kirkjuráði að und-
irbúa skipulagningu bókhlöðu í
Skáiholti til að varðveita bókasafn
staðarins og gefa fræðimönnum
kost á að nýta sér það. Að sögn
séra Jóns Einarssonar liggur bóka-
safnið ekki undir skemmdum en
hins vegar nýtist það engan veg-
inn.
Þingið samþykkti einnig að vísa
til Kirkjuráðs tillögu um þjóðmála-
ráð kirkjunnar. Var það almenn
skoðun þingfulltrúa, að kirlgunni
bæri að láta að sér kveða í málefn-
um líðandi stundar. Að sögn herra
Péturs Sigurgeirssonar biskups er
hugmyndin að hér verði um að
ræða ráðgjafarnefnd, sem hefði
það hlutverk að efla umræður um
þjóðmál út frá kristnum forsend-
ÍSLENSKIR
STRAliMAR
í NÝRRI
TÍSKUBÚÐ
Punkturinn er ný tískuverslun á
miðjum Laugavegi. Þar eru föt eftir
unga og kraftmikla íslenska
hönnuði i öndvegi.
Björg Ingadóttir og Valgerður
Torfadóttir eru meðal fremstu
fatahönnuða okkar íslendinga, og
Punkturinn selur föt eftir þær.
Kynntu þér ferska strauma í íslenskri fatahönnun í Punktinum.
PUNKTURINN
LAUGAVEGI 54