Morgunblaðið - 14.12.1988, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B
286. tbl. 76. árg.
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1988
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Setningu herlaga minnst í Póllandi:
Barist af hörku í
miðborg Varsjár
Varsjá. Reuter.
HORÐ átök brutust út í miðborg Varsjár í gær er stjórnarandstæðing-
ar söfnuðust saman til að minnast þess að sjö ár voru liðin frá setn-
ingu herlaga í landinu. Sjónarvottar kváðust ekki muna eftir viðlíka
bardögum stjórnarandstæðinga og lögreglusveita allt frá því herlög
voru í gildi 1981 til 1983.
Að sögn sjónarvotta réðust stjórn-
arandstæðingar á lögreglusveitir,
sem kvaddar höfðu verið út, og sögð-
ust elstu menn ekki vita til þess að
það hefði gerst áður. Að auki lét'
fólkið táragashylkjum og grjóti rigna
yfir lögreglusveitirnar og hermdu
fréttir í gærkvöldi að einn maður
Angóla:
Friðarsamn-
ingi fagnað
Lissabon. Reuter.
FULLTRÚAR Suður-Afríku,
Kúbu og Angólu undirrituðu í gær
í Brazzaville, höfuðborg Kongó,
drög að samningi um brottflutn-
ing kúbverskra liermanna frá
Angólu og sjálfstæði Namibíu.
UNITA-skæruliðar, sem tóku ekki
þátt í samningaviðræðum ríkjanna,
fögnuðu samkomulaginu en hótuðu
auknum skæruhernaði féllist Ang-
ólustjórn ekki á að ræða við þá um
frið í landinu.
í samningsdrögum Suður-Afríku-
manna, Kúbveija og Angólumanna
er gert ráð fyrir að Kúbveijar flytji
50.000 hermenn sína frá Angólu
fyrir 30. júní árið 1991 og að
Namibía verði sjálfstætt ríki eftir
kosningar í landinu 1. nóvember á
næsta ári. Samningurinn verður end-
anlega staðfestur í New York 22.
desember.
Sjá „Kúbveijar firá Angólu ...“
á bls. 25.
hefði slasast og að ekki færri en fimm
hefðu verið handteknir. Borðum og
spjöldum var haldið á lofti og sáust
áletranir á borð við „Niður með
kommúnismann" auk þess sem
Jaruzelski, leiðtogi pólska kommúni-
staflokksins, var hvattur til að segja
af sér.
Onefndir fylgismenn Samstöðu,
hinnar óleyfilegu hreyfingar pólskra
verkamanna, sögðu þúsundir manna
hafa safnast saman í borginni Wrocl-
aw. Hefði þess verið krafist að starf-
semi Samstöðu yrði heimiluð og að
Jaruzelski hyrfi frá völdum. Heimild-
armennimir sögðu lögreglu ekki hafa
reynt að koma í veg fyrir mótmælin
og hefðu þau farið friðsamlega fram.
Reuter
Lögreglumenn handtaka andstæðing stjórnar Wojciechs Jaruzelskis, hershöfðingja og leiðtoga pólskra
kommúnista, í miðborg Varsjár i gær.
Náttúruhamfarirnar í Sovétríkjunum:
Fórnarlömb landskjálft-
ans talin vera um 55.000
*
Utg'öng'ubann í Lenínakan vegna gripdeilda og hervörður á götum borgarinnar
Moskvu. Reuter.
SOVÉSKIR embættismenn
skýrðu frá því í gær að sam-
kvæmt bráðabirgðatölum yfir-
valda hefðu 55.000 manns týnt
lífi í náttúruhamförunum í Arm-
eníu í síðustu viku. Áður hafði
verið frá því skýrt að 40.000 til
45.000 manns hefðu farist. Þús-
Yasser Arafat ávarpar allsherjarþing SÞ:
Israelar hafiia boði
hans um viðræður
Genf. Reuter.
YITZHAK Shamir, forsætisráðherra ísraels, hafnaði í gærkvöldi
boði Yassers Arafats, leiðtoga Frelsissamtaka Palestínu (PLO), um
að ganga til friðarviðræðna við fulltrúa palestínsku þjóðarinnar.
Arafat hvatti til slíkra viðræðna í gær er hann ávarpaði sérstakan
fhnd allshetjarþings Sameinuðu þjóðanna um málefhi Palestínu-
manna, sem fram fór í Genf í Sviss.
í ræðu sinni, þeirri fyrstu sem
hann flytur á vettvangi SÞ í 14 ár,
vísaði Arafat kröfum Bandaríkja-
stjórnar á bug og sagði það vera
skilyrði fyrir friðarviðræðum að
tekið yrði tillit til hagsmuna beggja
deiluaðila. Bandaríkjamenn hafa
krafist þess að PLO viðurkenni til-
verurétt ísraels án nokkurra skil-
yrða og að samtökin fordæmi með
öllu hryðjuverkastarfsemi. „Ég for-
dæmi öll hryðjuverk en á sama tíma
vil ég lofa þá sem sitja hér and-
spænis mér og voru sakaðir um
hryðjuverkastarfsemi af þeim sem
kúguðu þá er þeir háðu frelsis-
baráttu týrir hönd þjóða sinna,"
sagði Arafat.
Talsmaður bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins skýrði frá því í gær
að Arafat hefði ekki komi til móts
við kröfur Bandaríkjamanna þó svo
ýmislegt bæði „athyglisvert og já-
kvætt“ hefði verið að finna í ræðu
hans. Yitzhak Shamir vísaði tilboði
leiðtogans á bug og sagði tilgang
hans þann að þyrla upp moldviðri
blekkinga.
Arafat lagði til að Sameinuðu
þjóðirnar tækju tímabundið við
stjórn hernámssvæða ísraels og
hefðu umsjón með brottflutningi
Rcutcr
Yasser Arafat flytur ræðu sína
í Genf í gær.
ísraelskra hersveita þaðan. Þá
hvatti hann til þess að skipuð yrði
nefnd, með fulltrúum þeirra fimm
ríkja sem ættu fast sæti í Öryggis-
ráði Sameinuðu þjóðanna, til að
vinna að undirbúningi alþjóðlegrar
friðarráðstefnu. Sagði hann Frelsis-
samtök Palestínumanna leita eftir
samkomulagi sem tryggði ísraelum,
Palestínumönnum og nágrönnum
þeirra rétt til að lifa í friði og njóta
öryggis. Athygli vakti að hann
nefndi Ísraelsríki þráfaldlega á nafn
í ræðu sinni.
undir manna hafa verið fluttar
á brott úr bæjum og þorpum og
útgöngubanni hefur verið komið
á i borginni Lenínakan vegna
flokka manna sem farið hafa um
rænandi og ruplandi. Talsmaður
sovéska utanríkisráðuneytisins
staðfesti í gær að björgunarstörf
hefðu gengið erfiðlega og sagði
skipulag þeirra hafa verið í mol-
um.
Sovéska fréttastofan TASS
skýrði frá því í gær að 3.500 til
4.000 manns hefðu verið fluttir frá
hörmungarsvæðunum á degi hveij-
um að undanförnu. Míkhaíl S. Gorb-
atsjov Sovétleiðtogi hefur hvatt
björgunarsveitir til að halda áfram
leit að fólki í rústum húsa sem
hrundu í landskjálftanum og minnt
á að menn hafi fundist á lífi 13
dögum eftir náttúruhamfarirnar í
Mexíkóborg árið 1985.
Gennadíj Gerasímov, talsmaður
sovéska utanríkisráðuneytisins,
sagði á blaðamannafundi í gær að
18.500 manns hefðu fundist í
rústum húsa í Armeníu og hefðu
um 5.400 þeirra verið á lífi. Ger-
asímov sagði að björgunarstörf
hefðu ekki gengið sem skyldi.
„Vissulega var skipulagningu
ábótavant, það voru engir kranar
tiltækir og engin tæki.“ Fram kom
í máli Gerasímovs að vinnuvélar á
leið til hörmungarsvæðanna hefðu
verið stöðvaðar og stjórnendum
þeirra skipað að hefja björgunar-
störf við heimili embættismanna
kommúnistaflokksins í lýðveldinu.
„Þetta er skiljanlegt. Við vorum
einfaldlega ekki undir þetta búnir.“
Útgöngubanni hefur verið komið
á í borginni Lenínakan og eru her-
menn, klæddir skotheldum vestum,
á verði á götum borgarinnar en
þjófaflokkar hafa farið um borgina
og rænt verslanir og heimili, að
sögn Prövdu, málgagns sovéska
kommúnistaflokksins. Í . blaðinu
kom einnig fram að þúsundir
manna hefðust við á götum borgar-
innar af ótta við frekari land-
skjálfta og mætti rekja nokkur
dauðsföll til ofkælingar.
Gerasímov bar til baka fréttir
þess efnis að efnt hefði verið til
hátíðarhalda í nágrannalýðveldinu
Azerbajdzhan vegna náttúruham-
faranna en svo sem fram hefur
komið í fréttum hafa iýðveldin tvö
deilt ákaft um yfirráð yfir héraðinu
Nagorno-Karabakh í Azerbajdzhan.
Pravda skýrði frá því í gær að Arm-
enum hefðu verið send heillaóska-
skeyti vegna landskjálftans ógur-
lega og fylgdi fréttinni að þeir sem
vildu auka á þjáningar fólksins með
þessum hætti yrðu lögsóttir.
Um 1.000 útlendingar eru komn-
ir til Armeníu til að aðstoða við
hjálparstarfið og í gær skýrði
TASS-fréttastofan frá því að Móðir
Teresa væri væntanleg til jarð-
skjálftasvæðanna.
Sjá ennfiremur „Hverjar
verða . ..“ á bls. 24.