Morgunblaðið - 14.12.1988, Blaðsíða 2
1 Y.. J
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1988
Pólarprjón á Blönduósi:
Heimamenn kaupa
tækjakost þrotabúsins
SAMNINGAR hafa náðst um
kaup tveggja heimamanna á öllu
Iausafé, þ.e. eigrium öðrum en
fasteignum, þrotabús Pólar-
pijóns á Blönduósi. Kaupverð
nemur _ um fimm milljónum
króna. Aður auglýstu uppboði á
þessum eignum hefur því verið
aflýst.
Kaupendur lausafjárins eru
Zophanías Zophaníasson og Ellert
Pálmason og njóta þeir aðstoðar
Blönduósbæjar við kaupin enda er
ætlun þeirra að endurreisa fyrir-
tækið á staðnum. Þrotabú fyrirtæk-
isins var upp á rúmar 20 milljónir
króna, en fyrir nokkru var fasteign,
sem áður var í eigu þess, seld á
3,5 milljónir króna.
Skákmótið í Júgóslavíu:
Margeir varð í 9. sæti
MARGEIR Pétursson varð í 9.
sæti með 6V2 vinning á opna
skákmótinu í Belgrad, en 8 efstu
komust áfram í úrtökumót fyrir
næsta heimsbikarmót í skák.
Helgi Olafsson varð jafn Mar-
geiri að vinningum en lenti I 15.
sæti af 260 skákmönnum. Jón
L. Arnason fékk 4'/2 vinning.
Sex skákmenn, Gúrevftsj, Hulak,
Psaksis, Pigusov, Pólugajevskíj og
Naumkin urðu efstir með 7 vinninga
af 9 mögulegum, en níu skákmenn
voru næstir með 6V2 vinning, þar
á meðal Margeir, sem gerði jafn-
tefli við Svesnikov í síðustu umferð,
og Helgi, sem vann Plaskett. Tveir
skákmenn, Primosjenko og Baseev,
voru þó fyrir ofan Margeir að stig-
um og komust því áfram í næstu
umferð.
Hrapaði með jeppa í fjallgarði:
Hafði ekki tíma til
að verða hræddur
- segir ökumaðurinn sem slapp með
skrekkinn o g minniháttar skrámur
Rauíarhöfii.
„ÉG HAFÐI ekki tíma til að
verða hræddur. Þetta gerðist
allt svo snöggt að ég áttaði mig
ekki á því fyrr en það var yfir-
Andvíg-
ir skatta-
hækkunum
FORMENN Sjálfstæðisflokks og
Borgaraflokks eru alfarið á móti
þeim skattahækkunum sem fel-
ast í því tekju- og eignaskatts-
frumvarpi sem ríkisstjómin iagði
fram á Alþingi í gær. Kvennalist-
inn mun íjalla um frumvarpið á
fundi í dag, en að sögn Danfríðar
Skarphéðinsdóttur formanns
þingflokks Kvennalista hefur
flokkurinn lagt mikla áherslu á
hátekjuþrep frekar en flata pró-
sentuhækkun.
Sjá nánar um skattafrum-
vörpin á miðopnu.
staðið,“ segir Kristján Indriða-
son sem hrapaði með jeppa-sínum
af veginum i fjallgarðinum sunn-
an við Raufarhöfn. Jeppinn féll
um 200 metra niður Qallshlíðina
en Kristján kastaðist úr honum
á miðri leið.
Jeppinn er gjörónýtur eftir þetta
óhapp en Kristján slapp með minni-
háttar skrámur. Hann segir að þeg-
ar óhappið átti sér stað á mánu-
dagskvöld hafi verið komið aftaka-
veður á þessum slóðum og mikið
rok. Skipti það engum togum að í
einni vindkviðunni fauk jeppinn,
sem er af Lapplander-gerð, út af
veginum.
Kristján segir að rokið hafí verið
það mikið að ekki var stætt á vegin-
um. Hann brá því á það ráð að
dveljast í bílflakinu þar til hjálp
barst. Kristján var á leið til Þórs-
hafnar og er hann kom ekki fram
á réttum tíma fór lögreglan að svip-
ast um eftir honum. Er lögreglan
fann Kristján var hann búinn að
dvelja í bflflakinu í tæpa fjóra tíma.
Helgi
Reuter
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra heilsar Wojciech Jaruzelski, leiðtoga Póllands i
gærkvöldi.
Jón Baldvin Hannibalsson um áætlanir Póllandssljórnar:
Ætla að koma á markaðskerfi
Utanríkisráðherra, Jón Baldvin Hannibalsson, átti í gærdag við-
ræður við Dominik Jastrzsbski, ráðherra utanrikisviðskipta í
Póllandi, og í gærkvöldi átti hann síðan klukkustundaríúnd með
Wojciech Jaruzelski, leiðtoga landsins. í dag hyggst Jón hitta
fulltrúa kaþólsku kirkjunnar að máli en í gærkvöldi var enn
óljóst hvort af fúndi hans og Lech Walesa ýrði.
í samtali við Morgunblaðið
sagði utanríkisráðherra að við-
ræður hans og Jaruzelskis hefðu
fyrst og fremst snúist um ný við-
horf í samskiptum austurs og
vestujs, ekki síst þá ákvörðun
Míkhafls Gorbatsjovs Sovétleið-
toga að fækka, hefðbundnum
vopnum og draga úr mannafla
sovéska hersins. í framhaldi af
því ræddu þeir tillögur Atlants-
hafsbandalagsins (NATO), sem
samþykktar voru á ráðherrafundi
bandalagsins í Brussel, um að
ganga mun lengra í afvopnunar-
átt hvað varðar hefðbundin vopn
og sagði Jaruzelski tillögur NATO
áhugaverðar.
Jón Baldvin sagði Jastrzbski
hafa lýst efnahagsáætlunum svo
að m.a. stæði til að gera starfsemi
einkafyrirtækja fijálsa, heimila
útlendingum allt að 100% eignar-
aðild fyrirtækja í landinu, leyfa
stofnun einkabanka, gjaldeyris-
eign verður gerð heimil og stofn-
aður verður verðbréfamarkaður.
„í stuttu máli er verið að skapa
skilyrði fyrir kapítalisku markaðs-
kerfi í Póllandi og reyndar gengið
nokkuð lengra í þá átt en menn
hafa treyst sér til í Framsóknar-
flokknum á íslandi," sagði ut-
anríkisráðherra að lokum.
Mæðrastyrksnefiidin:
Mun meira beðið um
aðstoð nú en áður
„ÞAÐ ER geysilega mikil eftirspurn eftir aðstoð núna, miklu meira
á þessu ári en í fyrra. Það er eins og sé að harðna á dalnum hjá
fólki, greinilega farið að bera á atvinnuleysi,“ sagði Unnur Jónas-
dóttir hjá Mæðrastyrksnefiidinni. Hún var spurð hvort margir leit-
uðu á náðir nefiidarinnar fyrir jólin. Mæðrastyrksnefiidin hóf hefð-
bundið jólastarf í byijun desember. Unnur segir að það felist einkum
í að reyna að veita fjárhagslegan styrk og i fatagjöfum, auk þess
sem lögfræðiaðstoð er veitt eins og aðra mánuði ársins.
Undanfarin tvö ár hafa verið
heldur rólegri en núna, að sögn
Unnar. Hún kvað þó ætíð vera
sveiflur í eftirspum eftir aðstoðinni
um jólin.
„Við erum alltaf með glaðning
fyrir jólin og úthlutum eftir því hve
mikið berst inn. Til dæmis er fataút-
Rangt að fólk njóti ekki öryggis
- segir lögreglustjóri um skýrslu Lögreglufélagsins
„ÉG LEGG áherslu á að þrátt fyrir að kreppi að lögreglunni í höndlun hennar. Ég hefði viljað að
Reykjavík með mannafla og tæki þá stendur hún í stykkinu. Við
viljum ekki að fólk sé hrætt um að það njóti ekki öryggis, þvi það
er rangt," sagði Böðvar Bragason lögreglustjóri í Reykjavík á blaða-
mannafundi í gær. Hann hefur sent dómsmálaráðherra helstu athuga-
semdir sem hann gerir við skýrslu Lögreglufélags Reykjavikur um
löggæslu í borginni. Lögreglustjóri kv'aðst líta á skýrslu Lögreglufé-
lagsins sem umræðugrundvöll og að í henni væru margar athyglis-
verðar ábendingar.
Fram kom hjá lögreglustjóra að
við fjárlagagerð síðastliðinn áratug
héfði hann og fyrirrennari hans
árlega farið fram á umtalsverða
§ölgun fastráðinna lögreglumanna.
„Ég geri mér vonir um að nú verði
hægt að ná því sem ég kalla vamar-
sigur," sagði Böðvar. „Að ná ör-
fáum stöðugildum umfram það sem
búið var að ákveða og ná töluverð-
um fjármunum til þess að bæta
bílaflotann." Aðspurður kvaðst
Böðvar Bragason vona að þær
umræður sem skýrsla Lögreglufé-
lagsins hefði vakið mundi auðvelda
sér þá viðleitni.
„Það sem fór úrskeiðis að mínu
mati við þessa skýrslu var með-
fyrst hefði verið rætt við mig og
ráðuneytið um þær hugmyndir sem
þama komá fram sem margar eru
góðar og allrar umræðu verðar.
Hefði það ekki borið árangur hefði
verið sjálfsagt að kynna hana opin-
berlega," sagði lögreglustjóri.
Lögreglustjóri gerði athuga-
semdir við nokkur efnisatriði Lög-
regluféiagsskýrslunnar. Fullyrðing-
um um að svipaður fjöldi manna
væri nú við löggæslu á götunni og
árið 1944, svaraði Böðvar með því
að í skýrslu lögreglumannanna
væri ekki tekið tillit til þess að nú
væri jafnan nokkur fjöldi lögreglu-
manna á aukavakt. Þannig hefðu
64 Iögreglumenn verið starfandi við
embætti lögreglustjórans í
Reykjavík í heild árið 1944 og hefðu
þeir skipst á þijár vaktir. Gögn
sýndu að föstudaginn 10. nóvember
1944 hefðu 20 lögreglumenn verið
á vakt og haft tvo bfla til umráða.
Föstudaginn 1. nóvember 1985
hefðu 44 lögreglumenn verið á vakt
í Reykjavík og haft til umráða sjö
bíla ogtvö bifhjól. Föstudaginn 18.
nóvember 1988 hefðu hins vegar
verið á vakt 60 lögreglumenn í
Reykjavík, Seltjamamesi og Mos-
fellsbæ. Þeir höfðu til ráðstöfunar
11 bifreiðar. Einnig kom fram hjá
lögreglustjóra að aukning hefði orð-
ið á fjárveitingum til Fíkniefna-
deildar. Þar hefðu starfað 8 menn
í júní 1986 en nú væru þeir 14.
hlutun í Traðarkotssundi þrisvar í
viku. Okkur berst geysimikið af
fötum, en það er heldur dræmt með
peninga," sagði Unnur.
Þeir sem leita til Mæðrastyrks-
nefndarinnar eru bæði fjölskyldur
og einhleypt fólk. Unnur sagði að
svo virtist sem einstæðar ungar
mæður væm fjölmennastar, en
einnig leituðu til þeirra konur vegna
óreglu eiginmanna þeirra.
Mæðrastyrksnefndin kannar að-
stæður fólks sem til hennar leitar
til þess að fullvissa sig um að um
raunverulega þörf sé að ræða. Lög-
fræðiaðstoð nefndarinnar er rekin
allt árið og er mikið notuð, að sögn
Unnar. Lögfræðiaðstoðin hefur ver-
ið rekin frá upphafi, ásamt hinni
sérstöku aðstoð um jól.
Borgin kaup-
ir eignir SS
SAMÞYKKT var á fúndi
borgarráðs í gær að borgin
kaupi lóð og hús Sláturfélags
Suðurlands á Skúlagötu 20.
Borgin greiðir 50 milljónir
fyrir lóðina og húsin. Húsin
verða rifín og ný hús byggð á
lóðinni samkvæmt skipulagi.
Sláturfélagið mun hins vegar
verða við Skúlagötuna þar til
fyrirtækið getur flutt alla starf-
semi sína í nýtt húsnæði á Laug-
amesi.