Morgunblaðið - 14.12.1988, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1988
Helga Soffia Konráðsdóttir, prestur íslendinga í Svíþjóð, við ferming-
arathöfn.
Prestur í Upp-
sala eður ei
eftir Guðrúnu
Vignisdóttur
Mig langar til að vekja athygli á
mikilvægi þess að fá að hafa
íslenskan prest í Svíþjóð.
í Svíaríki eru rúmlega 4.000 ís-
lendingar og eru u.þ.b. helmingur
þeirra í Mið-Svíþjóð.
Eg veit ekki um marga íslend-
inga sem eru í sænskum söfnuði
en þeir segja sem hafa farið í
sænskar messur að þær séu falleg-
ar og hátíðlegar, en það vanti mik-
ið þegar ekki er predikað eða sung-
ið á íslensku.
I Uppsala, þar sem íslenski prest-
urinn okkar er, koma ekki bara
heimamenn til messu heldur einnig
landar frá Stokkhólmi, Vásterás,
Eskilstuna og jafnvel Orebro. Við
messur eru börnin virk í hátíðleik-
anum og muna lengi hvað fram
fór. Við hin eldri þurfum að brýna
raustina og rifja upp sálmana okk-
ar. Gefur þetta góða tilfinningu og
minningu um messurnar heima.
Samkoman færir okkur einnig tæki-
færi að hittast og spjalla saman
yfir kökum og kaffi. Börnin leika
sér saman og æfast í íslenskunni.
Flest þeirra eru á sænskum dag-
heimilum eða hjá dagmömmu og
öll eiga þau félaga sem eru sænsku-
mælandi. Börn á skólaaldri, sem
taka þátt í messum, fá þjálfun við
að tjá sig á íslensku. Fyrir þá sem
Verd..
oggaedi
tara saman
Sími 291 22.
eiga svo stórt barn sem ég, þ.e.
komið á fermingaraldur, er íslensk-
ur prestur með íslenska biblíu mjög
mikilvægur fyrir skilning og þroska
barnsins í trú sinni. Sonur minn er
byijaður að ganga til prestsins okk-
ar, Helgu Soffíu Konráðsdóttur, og
er hann þar ásamt íslenskri stúlku
frá Stokkhólmi. Hann er afskaplega
ánægður með kennsluna og les af
athygli bókina „Líf með Jesú“, sem
presturinn útvegaði honum. Það
sem skyggir á undirbúning ferm-
ingarinnar er, að við höfum ekki
fengið að vita hvort presturinn verð-
ur hér áfram á næsta ári eður ei.
Höfundur er húsmóðir og hjúkr-
unarfræðingur.
Jólamessa
á snældu
KÓR Langholtskirkju hefur til
sölu snældu með messu sem flutt
var á aðfangadag jóla.
Prestur er séra Sigurður Haukur
Guðjónsson. Einsöngvari er Ólöf
Kolbrún Harðardóttir, sem syngur
Ó helga nótt eftir A. Adams. Hátíð-
arsöngvar sr. Bjarna Þorsteinsson-
ar eru fluttir af Garðari Cortes og
Kór Langholtskirkju. Kórinn annast
almennan messusöng ásamt Lang-
holtskirkju. Kórinn annast almenn-
an messusöng, ásamt kirkjugestum.
Söngstjóri og organisti er Jón Stef-
ánsson.
Snældan fæst í Langholtskirkju.
(Fréttatilkynning)
hjáokkui
lierra^
^húsiö/
Lauqaveai 47
Dýrðleeir dafíar
i Glasgow
Helgarverð 17.730
frákr.
* Verð miðast við einstakling í tveggja manna herbergi á Hospitality Inn.
Staðgreiðsluverð.
Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum
Flugleiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum.
FLUGLEIDIR
Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju
og Kringlunni. Upplýsingar og farpantanir í síma 25 100.