Morgunblaðið - 14.12.1988, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 14.12.1988, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1988 39 Arnold Schwarzenegger og James Belushi í hlutverkum sínum i kvikmyndinni I eidlínunni sem sýnd er í Regnboganum. „I eldlínunni“ sýnd í Regnboganum REGNBOGINN hefur hafíd sýningar á nýjustu mynd Arnolds Schwarzeneggers, í eldlínunni (Red Heat). I aðalhlutverkum auk Schwarzeneggers eru James Beiushi, Peter Boyle og Larry Fish- burne. Leikstjón er Walter Hill. í kynningu kvikmyndahússins segir um söguþráðinn: „Schwarzen- egger leikur Sovétmanninn Ivan Danko, yfirmann í Rauða hemum í Moskvu. Danko á í höggi við eitur- lyfjasala nokkum, Viktor Rostavili. Eftir að Rostavili sleppur úr greip Danko flýr hann til Bandaríkjanna, uppsprettu tekna sinna. Rostavili verður fyrir því óláni að verða hand- tekinn fyrir umferðarlagabrot og Danko kemur til Chicago að sækja- hann. Þar mætir honum á flugvell- inum lögreglumaðurinn Art Ritzik (James Belushi), sem á að hafa auga með Danko rneðan á stuttri dvöl hans stendur. Aður en Danko tekst að koma Rostavili úr landi er hann frelsaður af óaldaflokki hlið- hollum honum. Fara þá Danko og Ritzik saman að leita að Rostaviii þó sambandið sé stirt í fyrstu, enda sýnist hvorum sitt um þjóðfélag hins. Olíkar starfsaðferðir þeirra bæta hvor aðra upp og ekki líður á löngu þar til þeir komast á sporz. ið.“ Teiknimyndabók eftir Bretcher LI'l'LA gula hænan iiefur gefið út teiknimyndabókina „Beðið eftir kaflínu" eftir franska tciknimyndahöíúndinn Claire Bretcher. í kynningu útgefanda segir að „Beðið eftir kaffinu" sé aðallega ætluð fullorðnum. „Bretcher beitir einföldum grófum skopteikningum í túlkun sinni á persónum sem eru oft á tíðum stressaðar og ráðvilltar en afskaplega fyndnar. Hún gerir líka grín að „hlutverkum" kynj- anna, smávandamálum hjóna og hjónaleysa milli þrítugs og fertugs. Auk þess gerir hún grín að yfír- borðskenndu fólki, sem á það til að segja eitt en framkvæma eitt- hvað alit annað," segir í kynning- unni. Athugasemd végna fréttar eftir Guðmund Magnússon Tvær villur eru í frétt Morgun- blaðsins í gær (þriðjudag 13. des- ember) af niðurstöðum Fósturskóla- nefndar. Langar mig að biðja blað- ið fyrir eftirfarandi leiðréttingu af því tilefni. Tillögur nefndarinnar eru tvíþættar. Annars vegar að Fóstur- skóli íslands verði sameinaður Kennaraháskóla Islands innan fímm ára og fóstrumenntun þar með gerð sambærileg kennara- menntun. Fjórir af sex nefndar- mönnum voru þessu sammála, einn andvígur og skilaði séráliti og einn sat hjá og lagði fram bókun. Hin tillaga nefndarinnar var að stofnað yrði formlega til nýrrar starfsstéttar á dagvistarheimilum, fóstruliða, og hlytu þær starfs- menntun á þriggja ára námsbraut- um við framhaldsskóla. Þessari til- lögu voru fimm af sex nefndar- mönnum sammála, en einn andvíg- ur og skilaði séráliti. Hugmynd nefndarinnar er sú að settar verði ákveðnar reglur um skiptingu starfa milli fóstra annarð vegar og fóstruliða hins vegar. Báðar þessar stéttir eiga að annast uppeldi og umönnun bama, en áskilið er að fóstrur einar, menntun- ar sinnar vegna, gegni störfum for- stöðumanna dagvista og hafí með höndum stjómunar- og/eða skipu- lagsstörf. Fóstruliðum er ætlað að vinna að afmörkuðum uppeldis- og kennsluverkefnum undir hand- leiðslu fóstra. Þetta skipulag felur í sér viðurkenningu á íjölbreytni starfa á dagvistum og ætti m.a. að tryggja að fóstrar geti betur en áður sinnt einstaklingsbundnum þörfum bama. Þess má að lokum geta að álits- gerð Fósturskólanefndar er nú í höndum menntamálaráðherra og hyggst hann taka afstöðu til til- lagna nefndarinnar fyrir áramót. Höfundur var formaður Fóstur- skólanefhdar. í nýju ítölsku línunni Hver hlutureröðrum fallegri í ítölsku stálvörunnifrá SambonetogGuido Bergna. Pottarúr eöalstáli (18/10), skálar, bakkar, föt, kaffistell, hnífapör, katlar... Þaö er þess viröi aö líta inn. Velkomin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.