Morgunblaðið - 14.12.1988, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 14.12.1988, Blaðsíða 26
' e t 26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1988 Bretland: Flest egg sýkt af salmonellu? St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. FYRIR rúmri viku staðhæfði Edwina Currie aðstoðarheilbrigðisráð- herra, að flest egg, sem seld eru í Bretlandi, væru sýkt af salmonellu. Miklar deilur hafa staðið um þessa fúllyrðingu. Eggjasala hefúr dreg- ist verulega saman. Heilbrigðisyfirvöld hafa nú um nokkurt skeið varað almenning við að borða hrá egg vegna fjölgunar salmonellusýkinga af völdum eggja- neyslu. Stjórnvöld hafa tálið hættuna á sýkingu hverfandi miðað við að á hveijum degi eru borðaðar 30 millj- ónir eggja á Bretlandi. Viðvaranir hafa engin áhrif haft. Yfírlýsing Ekiwinu Curry um að flest egg væru sýkt vakti hins vegar þjóðarathygli þegar í stað. I þinginu urðu nokkrar umræður um þessa yfirlýsingar í síðustu viku. Afdrifaríkasta afleiðing hennar virð- ist ætla að verða samdráttur í neyslu eggja. Eggjaframleiðendur telja, að dregið hafi að jafnaði um 25% úr neyslu og í sumum héruðum um 60%. Ef ekki rætist fjótlega úr, er fyrirsjáanlegt, að slátra verður hæn- um svo milljónum skiptir fyrir ára- mót og margir eggjaframleiðendur fara á hausinn. Samtök Konuefiii í Túrkmenistan: Skóla- gengnar á spottprís ÞRÁTT fyrir bönn yflrvalda er ennþá hægt að kaupa sér brúði í Sovétlýðveldinu Túrkmenistan, segir vestur- þýska dagblaðið Bild og hefúr það eftir sovéska vikuritinu Ogonjok. Furðulegra er þó að ómennt- aðar stúlkur kosta allt að 40.000 rúblur (tæpar þrjár milljónir íslenskra króna) en hríðfalla í verði eigi þær skólagöngu að baki. Til dæmis seljast stúlkur með stúdentspróf oft ekki fyrir meira en 300 rúblur (rúmlega 20 þúsund) því að þær þykja ekki nógu undirgefnar. Norður-Kórea: Nýr forsæt- isráðherra skipaður Tókíó. Reuter. NYR forsætisráðherra tók við embætti i Norður-Kóreu á mánu- dag Hann heitir Yon Hyong-muk og á sæti í stjórnmálaráði komm- únistaflokks landsins. Að sögn fréttaskýranda í Seoul í gær gæti bágur efnahagur landsins undanfarin ár verið ástæðan fyr- ir mannaskipt.unum. Opinber fréttastofa Norður-Kóreu skýrði frá því að forsætisráðherra landsins, Li Gun-mo, hefði sagt af sér vegna heilsubrests. Hann hafði verið tvö ár í embætti. Stjómmálaskýrendur búast ekki við stefnubreytingum í Norður- Kóreu í kjölfar mannaskiptanna og Masao Okonogi, prófessor í stjórn- málafræði við Keio-háskólann í Tókíó, sagði að útnefning Yon Hy- ong-muks vissi ekki á frjálsari hag- stjóm í landinu því að Yon Hyong- muk væri jafnvel enn kreddufastari en fyrirrennarinn Li. Yon Hyong-muk var aðstoðarfor- sætisráðherra í nokkra mánuði á ámnum 1985-86. eggjaframleiðenda hafa krafist þess, að ráðherrann segi af sér. Land- búnaðarráðuneytið undirbýr nú aug- lýsingaherferð til að auka neyslu eggja og draga úr ótta almennings við salmonellusýkingu í eggjum. Samtök kjúklingabænda segjast munu fara fram á verulegar skaða- bætur frá stjómvpldum vegna þessa máls. Der Spiegel Kirkjugarðar víkja fyrir skipulagi Ceausescu Það em ekki einungis lifendur sem víkja verða fyrir sjúklegum skipulagsáætlunum Nikolais Ceausescus, einræðisherra í Rúmeníu, segir í frétt þýska vikuritsins Der Spiegel. Skurðgröfur og jarðýtur jafna nú kirkjugarða í Búkarest við jörðu til þess að þar geti risið glæstar byggingar, og rækta megi almennings- garða. Líkamsleifunum í kirkjugörðunum er safnað saman í kistur og ættingjar mega sækja beinin og „gera það sem þeir vilja við þær“ eins og það heitir í opinberri tilkynningu. Þúsundir krefjast frelsis og mannréttinda í Tékkóslóvakíu Dubcek í stofufangelsi meðan á heimsókn Mitterrands stóð Prag. Reuter. ÞÚSUNDIR manna söfnuðust saman í Prag á laugardag til að krefj- ast þess, að mannréttindi yrðu virt í landinu. Var til fundarins boðað í tilefni af því, að 40 ár eru Iiðin frá undirritun mannréttindasátt- mála Sameinuðu þjóðanna. Samtökin Mannréttindi '77 og fern önnur óháð samtök stóðu að honum, fyrsta slíka fúndinum, sem stjórnvöld leyfa. Alexander Dubcek, fyrrum forsætisráðherra, sem var rekinn frá í innrásinni 1968, sagði, að honum hefði verið haldið í stofufang- elsi meðan Francois Mitterrand Frakklandsforseti var í Tékkósló- vakíu í síðustu viku. Þátttakendur í mannréttinda- fundinum réttu upp hönd til sam- þykkis þegar borin var upp ályktun þar sem skorað var á kommúnista- stjómina að standa við alþjóðlegar skuldbindingar sínar og tryggja þegnunum rétt og frelsi til að stofna félög, ferðast til annarra landa og leita sér upplýsinga. Auk þess var krafist trúfrelsis og þess, að pólitískir fangar yrðu leystir úr haldi. „Þjóðin er að vakna af þyrni- rósarsvefninum," sagði leikskáldið Vaclav Havel í ræðu, sem hann hélt á fundinum en talið er, að stjómin hafi skirrst við að banna hann vegna heimsóknar Mitter- rands. Fáir einkennisklæddir lög- reglumenn voru á ferli en óeinkenn- isklæddir menn með upptökuvélar tóku myndir af fundarmönnum. Dubcek, sem Mitterrand hafði viljað hitta að máli, var hafður í stofufangelsi meðan á heimsókninni stóð. „Ég kemst ekki út úr húsi. Vel heppnað geimskot GEIMSKOT evrópsku geimfeijunnar Ariane-4 á laugardag heppnaðist vel og kom hún tveimur fjarskiptahnöttum fyrir í geimnum daginn eftir. Annar gervihnattanna nefnist Skynet og er fyrsti könnunar- hnötturinn af þremur sem bæta eiga fjarskipti breskra herstöðva við skip, kafbáta og flugvélar breska hersins. Hinn heitir Astra og er fyrsti evrópski gervihnötturinn sem einkaaðilar kosta og getur hann sent út á sextán rásum til lítilla móttökudiska í Evrópu. Gervihnettim- ir verða báðir teknir í notkun eftir mánuð. hér eru lögreglumenn á hveiju strái," sagði Dubcek á föstudags- kvöldið. „Paranoia querulans“ Á sunnudag héldu um 1.000 manns bænavöku í þorpinu Olomo- uc til að krefjast þess, að Augustin Navratil yrði látinn laus af geð- veikrahæli en honum var komið þar fyrir eftir að hann hafði gengist fyrir undirskriftasöfnun til stuðn- ings trúfrelsi. 600.000 manns skrif- uðu nafn sitt undir áskomnina. í viðtali, sem fréttamaður Reuters fékk að eiga við hann í heimsókn- artíma á sjúkrahúsinu, sagði Navr- atil, að hann hefði verið fluttur þangað 28. október sl. í handjárn- um. Þá höfðu tékkneskir geðlæknar úrskurðað, að hann þjáðist af „par- anoia querulans" eða sjúklegri kvörtunarsemi. „Ég er trúaður maður og ég hefði getað Iátið allt mitt líf snúast um fjölskylduna í stað þess að ráðast í þetta verk," sagði Navratil, „en ég vildi ekki koma fram fyrir drott- in minn og segja: „Gjöfina, sem þú gafst mér, hef ég ekki notað.““ Reuter Kaþólskur maður heldur á loft róðukrossi og gerir jafnframt sigurmerki með fingrunum. Myndin var tekin í bænum Olomouc í Tékksóslóvakíu þegar fólk safnaðist þar saman til að krefjast þess, að Augustin Navr- atil yrði látinn laus af geðveikra- hæli. Hann gekkst fyrir undir- skriftasöfnun og urðu 600.000 manns til þess að krefjast trú- frelsis í Tékkóslóvakíu. Pakistan: Ishaq Khan sver embættiseið sinn Þingið lýsir yfir stuðningi við Bhutto Islamabad. Reuter. GHULAM Ishaq Khan, sem tók við sem forseti Pakistans þegar Zia- uI-Haq féll frá í sumar, var kjörinn forseti Iandsins með yfirgnæf- andi meirihluta á mánudag og í gær sór hann embættiseið í forseta- höllinni í Islamabad og var Benazir Bhutto, forsætisráðherra lands- ins, viðstödd athöfiiina. Ishaq Khan hlaut 78% atkvæða kjörmanna eða 348 atkvæði en helsti keppinautur hans, Nawabzada Nasrullah Khan, hlaut 91 atkvæði. Kosningasigur Khans sigldi í kjölfar stuðningsyfirlýsingar Benazirs Bhutto, forsætisráðherra landsins, og stjómarandstöðunnar. Þingmenn beggja deilda, 237 þingmenn þjóðþingsins og 87 öld- ungardeildarþingmenn, greiddu at- kvæði í forsetakosningunum svo og 180 þingmenn frá fjórum héruðum landsins. Honum hefur verið hælt bæði heima fyrir og erlendis fyrir að leiða Pakistana í gegnum fyrstu fijálsu kosningarnar þar í landi í 11 ár. Við athöfnina í forsetahöllinni í gær lýsti Khan yfir trausti á Benaz- ir Bhutto og sagðist hafa mikla trú á stjórnunarhæfileikum hennar. „Við höfum þjóðkjörna ríkisstjórn með mikið fylgi á bak við sig,“ sagði forsetinn. Khan er þriðji forseti landsins frá stofnun Pakistan-ríkis árið 1947. Zia-ul-Haq, fyrrum forseti lands- ins sem lést í flugslysi í ágúst síðast- liðnum, gerði breytingar á stjómar- skrá landsins sem juku mjög völd forsetans. Forsetinn útnefnir nú forsætisráðherra og foringja innan hersins og getur leyst upp þjóð- þingið. Bhutto hefur látið svo um- mælt að hún muni reyna að afnema þessi lög. Bhutto vann sinn fyrsta sigur á pakistanska þinginu á mánudag þegar þingið lýsti yfir stuðningi sínum við hana. 148 þingmenn þjóð- þingsins lýstu yfir stuðningi sínum við Bhutto en 55 voru á móti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.