Morgunblaðið - 14.12.1988, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 14.12.1988, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1988 35 Nunnur og skæru- liðar saman á flótta Erlendar bækur Jóhanna Kristjónsdóttir Sidney Sheldon: The Sands of Time Útg. Collins 1988 Þessi bók er splúnkuný og líkleg til vinsælda eins og margar ef ekki flestar sem þessi höfundur sendir frá sér. Sögusviðið er Spánn. Skæruliðar — eða hryðjuverkamenn — Baska hafa verið beittir taum- lausum órétti, svikist aftan að þeim, loforðum rift og það bullar allt og sýður. Frelsishetjan Jaime Miro er dýrlingur í Baskalandi vegna dæmafárrar dirfsku og klókinda. Með honum eru á ferð nokkrir aðr- ir fylgismenn hans, Jaime hefur rétt nýlega unnið það afrek að ná tveimur skæruliðum úr fangelsi með því að fara inn í klefa þeirra dulbúinn sem prestur. Acoca hershöfðingi hefur verið settur í að hafa upp á Jaime Miro. Acoca er grimmlyndur maður, en kannski má rekja það til hörmulegs atburðar í lífí hans fyrrum, þegar eiginkona hans varð saklaus fyrir árásum Baska. Acoca gerir atlögu á nunnuklaustur eitt, þar sem hann hefur njósn af því að þar sé Jaime Miro í felum. Fjórum nunnum tekst að flýja í ofboði og það vill svo sérkennilega til að þær rekast á Miro og fylgdarmenn hans, þótt Acoca herforingja hafí ekki tekist að finna þá. Nunnumar flórar hafa gengið í klaustur af ýmsum ástæðum. Syst- ir Teresa þeirra elst ruglast á geðs- munum og telur að hún verði að segja til Miros en það endar með ósköpum, enginn leggur trúnað á orð hennar og loks þegar það renn- ur upp fyrir henni skýtur hún nokkra hermenn frekar en ekkert. Nunnan Graciela hefur í bernsku orðið fyrir kynferðislegri áreitni stjúpa síns og ekki beðið þess bæt- ur og leitaði á náðir guðs síns vegna vantrúar á manneskjunni. Hún verður ástfangin af einum liðs- manna Jaime Miro, en það eru áhöld um hvort hún getur snúið baki við klausturlífinu þegar allt kemur til alls. Lucia hefur leitað í klaustrið vegna þess að hún er á flótta, eftir- lýst fyrir morð. Hún ætlar að nota flóttann úr klaustrinu til að komast í burtu, en það fer á annan veg. Megan er munaðarleysingi, sem enginn kann nein deili á. Hún verð- ur hrifín af foringjanum sjálfum, en þar sem hann hefur með sér undurfagra konu og byltingarfé- laga á hún sennilega litla von. Þó er aldrei að vita. Fjölmiðlar slá því upp, þegar það spyrst nú fljótlega út, að hryðju- verkamennimir hafa tekið nunn- umar sem gísla. Að vísu er það ekki alveg sannleikanum sam- kvæmt því að Jaime er guðhræddur Sidney Sheldon maður og stefnir að því að koma systrunum til nýs klausturs. Acoca herforingi er á hælum þeirra og verður einatt að beita brögðum til að komast undan honum. Það lítur út fyrir að svikari sé í hópnum, því að herforinginn virðist vita um allar þeirra ferðir. Sidney Sheldon lætur söguna enda hæfílega vel og það á við í sögu þessarar gerðar. Frásögnin er hröð og spennandi, auðlesin bók og skemmtileg, þótt mér hafí að vísu fundist ívið meiri fljótaskrift á henni en Vindmyllum guðanna. Statistar á leiksviði leiðans Bókmenntir Friðrika Benónýs Ólafur Jóhann Ólafsson: Markaðstorg guðanna Vaka-Helgafell 1988 Ólafur Jóhann Ólafsson sendir nú frá sér sína fyrstu skáldsögu, en áður hefur komið frá honum smásagnasafnið „Níu lyklar". Fyrir þá bók hlaut hann mikið lof gagn- rýnenda, eins og óspart hefur verið hamrað á í auglýsingum um þessa nýju skáldsögu. „Markaðstorg guðanna" segir sögu Friðriks Jónsonar, guðfræð- ings og heimspekings af ’68 kyn- slóðinni, sem giftist auðmannsdótt- ur í Ameríku og hefst til virðingar innan íjölþjóðlegs japansks fyrir- tækis. FViðrik þessi er óttalegt rolu- bein, lætur berast fyrir straumi samtímans, án þess að staldra við og íhuga hvert stefnir nema til málamynda. Rótlaus og slitinn úr tengslum við uppruna sinn og ætt- jörð þvælist hann um í tilgangs- leysi og þykist maður að meiri ef honum tekst að ljúga nógu sann- færandi og skjóta stóru körlunum skelk í bringu. Sá heimur sem hann hrærist í er rotinn til grunna og eina leiðin til að lifa af er að rotna sjálfur, og helst bijóta öll boðorð guðs og manna. Sá heimur sem lýst er í „Mark- aðstorgi guðanna" er íslenskum les- endum lítt kunnur nema þá helst úr bókum Harold Robbins og Sid- ney Sheldons og skýtur nokkuð skökku við að sjá þeim heimi lýst á ákaflega bókmálslegrí gullaldar Ólafiir Jóhann Ólafsson íslensku. En vissulega skrifar Ólaf- ur Jóhann vel. Og kannski er það allt sem þarf, en ég hefði þó gjam- an viljað sjá hann fást við dýpri viðfangsefni. Allar persónur sög- unnar eru hálfgerðar klisjur og sál- arstríð Friðriks Jónssonar er svo óverulegt að það hrærir ekki upp í neinum ósvöruðum spumingum í sálarfylgsninu. Vondu mennimir eru afskaplega líkir þeim sem Bog- art átti í baráttu við á sínum tíma og eiginkonan nær aldrei máli, þrátt fyrir greinilega samúð höfundar með henni. Eftir stendur fallegur texti og vel dregnar myndir, en mér er spum hvar em íslenskar bókmenntir staddar ef það nægir til þess að gera útgáfu bókar að bókmenntaviðburði? Fródleikur og skemmtun fyrir háa sem lága! ptíúrgamhWiíh Kjarvalsstaðir: Uthlutun á sýningarrými 1990 lýkur um áramótin Að gefiiu tilefiii vill Menning- armálanefnd Reykjavíkurborgar koma því á framfæri, að sýning- arrými á Kjarvalsstöðum hefur þegar verið úthlutað fyrir árið 1989. Umsóknir um sýningaraðstöðu á árinu 1990 verða að hafa borist Kjarvalsstöðum í síðasta lagi fyrir lok ársins 1988. Umsóknir ásamt fylgigögnum sendist Listráðunaut Reykjavíkur- borgar, Kjarvalsstöðum við FÍóka- götu, 105 Reykjavík. (Frcttatilkynning frá Kjarvalsstöðum) MULINEX HRÆRIVÉLASAMST ÆÐAN KR. 7.990,- stgr. HITACHI TÖLVUSTÝRÐUR ÖRBYLGJUOFN MEÐ SNÚNINGSDISKI KR. 20.805,- stgr. RYKSUGUR FRÁ KR. 4.900,- stgr. HANDRYKSUGUR KR. 1.980,- stgr. BÍLARYKSUGA KR. 1.490,- stgr. EF ÞU VILT EKKI GEFA FJÖLSKYLDUNNI ÁFENGISMÆLI, ÞÁ ER ÝMISLEGT FLEIRA NYTSAMLEGT TIL HJÁ RÖNNING í KRINGLUNNI! KRUPS EXPRESSO KAFFIVÉL KR. 4.953,- stgr. KRUPS SAMBYGGÐ EXPRESSO OG VENJU- LEG KAFFIVÉL KR. 8.948,- stgr. HITACHI SJÓNVARPSTÆKI MEÐ FJARSTÝR- INGU KR. 32.110,- stgr. HITACHI VIDEOTÆKI MEÐ FJARSTÝRINGU KR. 47.405,- stgr. ÚTVARPSKLUKKUR FRÁ KR. 1.990,- stgr. ÁFENGISMÆLIR KR. 2.990,- stgr. /»/*RÖNNING wfí' heimilistæki KRINGLUNNI 8-12/103 REYKJAVÍK/SÍMI (91)685868 HITACHI SAMBYGGÐ ÚTVARPS- OG SEGUL- BANDSTÆKI FRÁ KR. 6.500,- stgr. HITACHI GEISLASPILARI KR. 13.775,- stgr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.