Morgunblaðið - 14.12.1988, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 14.12.1988, Qupperneq 31
8861 ÍE*8M383a HU0A0U3IVGIM .aiOAJaMUOÍíOM ____________________ MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVlKUDAGUR 14. DESEMBER 1988 31 Æfíng slökkviliðsins á Reykjalundi: Imyndaður eldur slökktur SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík var kallað að Reykjalundi í Mosfells- bæ í gærmorgun, þar sem til- kynnt hafði verið um eld á 2. hæð. Enginn var þó eldurinn, enda var um æfingu slökkviliðs, starfsmanna og sjúklinga að ræða. Samkvæmt skýrslu slökkviliðsins barst tilkynning frá Reykjalundi um eld á C-gangi 2. hæðar og mikinn reyk í ganginum. „Þegar við kom- um á staðinn var mikill straumur fólks niður á fyrstu hæð,“ segil- í skýrslunni. „Var starfsfólk önnum kafið við að rýma 2. og 3. hæð sjúkrahússins. Fyrsti sjúkrabíll -á staðinn var bíll frá Arbæjarstöð. Tveir reykkafarar voru sendir inn á 2. hæð, C-gang, en í millitíðinni var gengið úr skugga um að 3. hæðin væri orðin mannlaus og langt komið með að rýma aðrar deildir á 2. hæð. Vegna reyks var C-gangur ófær öðrum en reykköfurum til að byija með. Síðan var bætt við fleiri reykköfurum og hjálpast til við að rýma deildirnar. Eldurinn fannst í stofu 225, var slökktur strax og reyklosað með reykblásurum. Þremur sjúklingum var bjargað af slökkviliðinu, en öðrum af starfs- fólki sjúkrahússins. Skömmu síðar kom tilkynning um að eldur væri laus í efnislager og að maður væri inni. Sendir voru þrír reykkafarar inn og björguðu þeir manninum." Hjá slökkviliðinu í Reykjavík fengust þær upplýsingar, að æfing þessi hefði verið tekin sem um fulla alvöru hefði verið að ræða. Allir sjúklingar og starfsfólk fóru út úr LÖGMAÐUR Kaupfélags Skaft- fellinga í Vík í Mýrdal hefúr auglýst eftir kauptilboðum í allar eigur kaupfélagsins í Vík og á Kirkjubæjarklaustri vegna til- rauna félagsins til nauðasamn- inga. Kaupfélagið hætti rekstri fyrr á árinu og leigði Kaupfélagi Arnesinga á Selfossi verslunar- húsnæði og vörugeymslur. Meðal auglýstra eigna eru hús þau sem KA er með starfsemi í. I Vík á félagið verslunarhús, vöruskemmur, gistihús, skrifstofu- hús og gamalt sláturhús við Víkur- braut, íbúðarhús við Austurveg og smiðjur og vöruskemmu við Sunnu- braut. Félagið á verslunarhús og geymsluhús á Kirkjubæjarklaustri. Auglýstir eru tveir vöruflutninga- bílar og þrír tengivagnar, auk ýmissa áhalda svo sem trésmíðavél- húsinu á meðan slökkviliðið leitaði að eldinum, sem enginn var. Æfing- in var tekin upp á myndband og það verður kynnt starfsfólki ann- arra sjúkrastofnana. ar, lyftarar og skrifstofubúnaður. Guðmundur Pétur Guðgeirsson starfsmaður Kaupfélags Skaftfell- inga sagði í gær að mest væri spurt um bílana. Ekið á konu og dreng EKIÐ VAR á konu um sextugt á Grensásvegi kl. 8.43 í gærmorg- un. Konan slasaðist nokkuð og er m.a. fótbrotin. Þá var ekið á tólf ára dreng í Breiðholti kl. 12.45, en ökumaðurinn stöðvaði ekki, heldur ók á brott. Konan var að ganga vestur yfir Grensásveg, þegar hún varð fyrir bifreið, sem ekið var norður götuna. Hún var flutt á slysadeild, þar sem kom í ljós að hún var fótbrotin og rifbeinsbrotin, auk þess sem hún hafði hlotið höfuðáverka. Drengurinn varð fyrir bifreið, sem ekið var austur Norðurfell, þegar hann var á gangi suður yfir götuna. Hann meiddist á fæti. Ökumaðurinn, sem drengurinn lýsir sem dökk- hærðum og á að giska 20 ára göml- um, hægði ferðina, en ók svo á brott. Drengurinn telur bifreið hans hafa verið af japanskri gerð, dökk- gráa. Ökumaðurinn er beðinn um að gefa sig fram við slysarannsókna- deild lögreglunnar í Reykjavík, sem og þeir sem kynnu að geta gefið upplýsingar um málið. Rangt ríkisfang í frétt Morgunblaðsins um heim- sókn dr. Wolfgangs Edelsteins hingað til lands var ranglega sagt að hann væri þýskur. Hið rétta er að Wolfgang er íslenskur ríkis- borgari. Morgunblaðið biður Wolf- gang og lesendur afsökunar á þess- um mistökum. Fiskverð á uppboðsmörkuðum 13. desember. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) i dag verða meöal annars seld 8,5 tonn af þorski, 3 tonn af ýsu og 2 tonn af blönduöum afla úr Hauki Böövarssyni ÍS, 2,5 tonn af þorski, 1,5 tonn af ýsu, 1 tonn af keilu og 0,3 tonn af lúðu úr Ljósfara. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur(óst) 43,00 43,00 43,00 0,100 4.300 Ýsa(óst) 102,00 102,00 102,00 0,167 17.034 Sild 8,55 5,69 6,57 96,230 632.507 Samtals 6,78 96,497 653.841 j dag veröa meöal annars seld 5 tonn af þorski, 5 tonn af ýsu og 4 tonn af kola úr Þrymi BA og óákveöið magn úr bátum. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Ýsa 97,50 95,00 96,50 1,870 167.981 Karfi 30,50 30,50 30,50 0,900 27.450 Síld 8,30 8,30 8,30 4,170 34.611 Samtals 33,74 6,818 230.042 Selt var aöallega úr Hauki GK og Sandvik GK. i dag veröur meöal annars selt úr Gnúpi GK og Hrafni Sveinbjarnarsyni GK. Næstkomandi mánudag verður selt óákveðiö magn, aðallega af þorski, úr Bergvik KE. Vík í Mýrdal: Allar eigiiir kaupfélags- ins auglýstar til sölu Hönnunarkostn- aður ráðhúss 104 milljónir 1988 Hönnunarkostnaður við ráðliús Reykjavíkur fyrir árið 1988 nem- ur rúmum 104 milljónum króna. Þegar hefur verið bókfærð tæp 81 milljón og til ársloka er reiknað með að við bætist rúmar 23 milljónir. Þetta kom fram á fundi borgar- ráðs í gær, í greinargerð Þórðar Þ. Þorbjarnarsonar, borgarverk- fræðings, vegna fyrirspumar Sig- urjóns Péturssonar. Sigurjón spurði hve mikið hefði verið greitt af hönnunarkostnaði og hve áætlað væri að mikill hönnunarkostnaður væri eftir. Borgarverkfræðingur svaraði fyrir hönd verkefnisstjóm- ar ráðhúss Reykjavíkur og í grein- argerð hans kemur fram að bók- færðar greiðslur þann 7. desember til arkitekta, Studio Granda, nema tæpri 21 milljón. Til sama tíma hefur Almenna verkfræðistofan hf fengið greiddar tæpar 40 milljónir, Rafhönnun hf rúmar 9 milljónir, Línuhönnun hf um 2V2 milljón, Verkfræðistofan Önn sf rúmar 860 þúsund krónur og J.R. Preston & Partners rúmar 7 milljónir, að meðtöldum útlögðum kostnaði vegna flugmiða. Ferðakostnaður skiptist þannig, að greiddar hafa verið til Hótel Sögu, vegna J.R. Preston & Partn- ers, rúmar 184 þúsund krónur, til Flugleiða hf rúmar 65 þúsund krónur, ferðakostnaður Ríkharðs Kristjánssonar nemur tæpum 50 þúsund krónum og ferðaskrifstof- unni Samvinnuferðum-Landsýn hefur verið greiddar tæpar 160 þúsund krónur. Þá er nefndur sérstakur ráð- gjafi, Friðrik Gíslason, og hefur hann fengið greiddar 98 þúsund krónur. Alls er bókfærður hönnun- arkostnaður frá ársbytjun til 7. desember 80 milljónir, 815 þúsund, 467 krónur. Aætlun til ársloka og eftirstöðv- ar nóvember og desember nemur 23 milljónum, 284 þúsundum og 533 krónum. Alls nemur því hönn- unarkostnaður á þessu ári 104 milljónum og 100 þúsund krónum. í greinargerð borgarverkfræð- ings kemur enn fremur fram, að unnið er að áætlun um heildar- kostnað vegna hönnunar og að áætlun um framkvæmdakostnað í heild, en þar sem þær tölur sem nú liggi fyrir séu bráðabirgðatölur þyki ekki rétt að láta þær koma fram á þessu stigi. Gospel- tónleikar á Hótel ís- landi í kvöld UNGT fólk með hlutverk stendur fyrir tónleikum á Hótel Islandi í kvöld, miðvikudag, kl. 21.00 til að styrkja uppbyggingu Bibliu- skólans á Eyjólfsstöðum. Ýmislegt verður á dagskrá tón- leikanna, allt kristilegt efni. T.d. verða sungnir söngvar af plötu sem er að koma út á vegum Ungs fólks með hlutverk sem ber heitið „Þú ert hjá mér“, kórsöngur, „No ex- cuse“ syngur og leikur, Þorvaldur Halldórsson syngur negrasálma og margt fleira. Flytjendurnir verða fjölmargir og koma flestir úr kristi- legum samfélögum. (Fréttatilkynning) Atriði úr kvikmyndinni „Hver skellti skuldinni á Kalla kanínu?“ sem sýnd er í Bíóhöllinni. Bíóhöllin: Hver skellti skuld- inni á Kalla kanínu? BÍÓHÖLLIN hefur tekid til sýninga kvikmyndina Hver skellti skuldinni á Kalla kanínu? („Who Framed Roger Rabbit?“) með Bob Hoskins, Chnstopher Lloyd í aðalhlutverkum. Leikstjóri er í kynningu kvikmyndahússins segir m.a. að einhver sé staðráð- inn í því að koma morðsök á Kalla kanínu, ýmsum gögnum er komið fyrir og allt látið líta svo út að enginn annar en Kalli hafi getað unnið ódæðið. Eddi Valiant er þá fenginn til aðstoðar og kemst , Joanna Cassidy og Stubby Kaye Robert Zemeckis. hann fljótt að því að Kalli er sak- laus. Tekur hann á það ráð að hjálpa Kalla til að hverfa og fara huldu höfði. Um síðir kemur erfðaskrá nokkur fram sem sann- ar sakleysi Kalla og sekt nokk- urra auðmanna og braskara.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.