Morgunblaðið - 14.12.1988, Qupperneq 56
XJöfðar til
X i fólks í öllum
starfsgreinum!
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR.
1 fl dagar
1U til jóla
Tvær telp-
ur þungt
haldnar
eftir slys
EKID var á tvær telpur, fjögurra
og sex ára gamlar, í Skeiðarvogi
í gærmorgun. Telpurnar eru báð-
ar mikið slasaðar og var gerð
höfuðaðgerð á annarri í gær.
Þær liggja báðar á gjörgæslu-
deild Borgarspítalans.
Slysið varð kl. 10.18. Telpumar
voru á leið vestur yfir Skeiðarvog
á móts við hús númer 20, þegar
þær urðu fyrir fólksbifreið, sem
ekið var suður götuna. Sú yngri
slasaðist mjög mikið og var gerð á
henni höfuðaðgerð í gær.
Landsvirkjun fær hagnað af verksmiðjunni á næsta ári
Stúfur hét sá þriðji —'
MJÖG hátt verð er á kísiljárni á
mörkuðum erlendis og rekstur
Islenska járnblendifélagsins hf.
hefur því gengið mjög vel. Hagn-
aður félagsins fyrstu níu mánuði
þessa árs er um 230 milljónir
króna. Miðað við óbreytt ástand
er áætlað að hagnaður félagsins
í ár nemi 400 milljónum króna.
Þetta er mun meiri hagnaður en
búist var en gert var ráð fyrir
að hann yrði um 50 milljónir
króna.
Jón Sigurðsson forstjóri Járn-
blendifélagsins segir að hið háa
verð sé vegna mikillar aukningar á
stálframleiðslu í heiminum. Fram-
boð á kísiljámi hafi hinsvegar ekki
aukist að sama skapi og því hafi
myndast þetta svigrúm til verð-
hækkunar. Verð á kísiljárni er
nokkuð breytilegt eftir mörkuðum
en sem dæmi má nefna að í Vestur-
Þýskalandi er tonnið nú selt á um
2.000 mörk eða 52.000 krónur til
notenda. Í fyrra var þetta verð
1.250 mörk á tonnið eða 32.000
krónur.
Jón Sigurðsson segir að reiknað
sé með að verð á kísiljárni haldist
hátt fram á mitt næsta ár en erfið-
ara sé að spá um verðþróun eftir
þann tíma. Vegna hins háa verðs
og góðrar rekstrarstöðu félagsins
ílf reiknað með að Landsvirkjun fái
tekjur af hagnaði félagsins á næsta
ári. Samkvæmt samningum fær
Landsvirkjun 33% af hagnaði fé-
lagsins eftir að ákveðnu marki er
„Ákvæðið sem fella á út virðist
því aðeins vera til áréttingar á
þeirri friðarskyldu og sé sá skilning-
ur réttur verður ekki séð að breyt-
ingin hafí efnislegt innihald. For-
sætisráðherra túlkaði brejúinguna
hins vegar á allt annan veg og ég
hlýt því að ganga út frá því að ríkis-
stjórnin vilji efnislega breytingu,“
sagði Ásmundur.
Steingrímur Herraannsson, for-
náð, sem er 51 milljón norskra
króna eða rúmar 350 milljónir
íslenskra króna.
sætisráðherra, sagði að þessar
breytingartillögur stjórnarinnar
þýddu að samningar framlengdust
til 15. febrúar, en menn gætu byrj-
að að ræðast við og undirbúa nýja
samninga. Aðspurður sagði
Steingrímur að opinberir starfs-
menn fengju launahækkun um
1,25% þann 15. febrúar ef þeir
semdu ekki um annað. Þeir gætu
hins vegar samið um annað þegar
„Við teljum að ef ekkert breytist
frá því sem nú er verði afkoma
félagsins að minnsta kosti jafn góð
á næsta ári og hún er í ár ef ekki
betri," segir Jón Sigurðsson.
samningar þeirra losnuðu um ára-
mótin.
Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB, sagði að þessi ákvörðun
væri alveg óumdeilanlega árangur
af þeim eindregnu áskorunum sem
hefðu komið frá verkalýðshreyfing-
unni að undanförnu. Hann fagnaði
því að ríkisstjórnin hefði séð að sér
hvað þetta varðaði.
Þórarinn V. Þórarinsson, for-
maður Vinnuveitendasambands ís-
lands, sagði að þessi breyting á
bráðabirgðalögunum væri táknræn
en innihaldslaus. Hún kynni að vera
til þess fallin að bæta samskipti
verkalýðshreyfingar og ríkisvalds,
en hún breytti því ekki að allir
kjarasamningar verða áfram
bundnirtil 15. febrúarhið minnsta.
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir,
þingmaður Borgaraflokks, sagði
aðspurð að hún teldi að með þessu
væri ríkisstjórnin að taka undir til-
lögu Borgaraflokksins. Hún sagðist
ekki vita til að að ríkisstjórnin hefði
rætt við þingmenn Borgaraflokks-
ins vegna þessa, en niðurfelling
þessa ákvæðis skipti ákaflega miklu
máli í sínum huga. Kristín Halldórs-
dóttir, þingmaður Kvennalista,
sagði að þessi ákvörðun ríkisstjórn-
arinnar væri ekki árangur af nein-
um samningaviðræðum við Kvenna-
listann.
Halldór Blöndal, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, sagði að þetta
ákvæði skipti litlu máli nú því að
engum dytti í hug að fara út í verk-
fallsbaráttu nú þegar atvinnuleysi
blasti við íj'ölda fólks.
Sjá þingfréttir bls. 33.
Forseti ASÍ vill lögfræðiálit
á tillögu ríkisstjórnarinnar
RÍKISSTJÓRNIN vill fella úr gildi ákvæði úr bráðabirgðalögum
sínum þess efnis að verkföll og verkbönn séu óheimil. Hún vill hins
vegar áfram hafa í gildi ákvæði sem framlengir alla gildandi kjara-
samninga fram til 15. febrúar á næsta ári. Asmundur Stefánsson,
forseti Alþýðusambands íslands, segist fagna þeirri hugarfarsbreyt-
ingu sem þetta lýsi. Hann hyggist hins vegar fá lögfræðilegt álit á
hvað þessi breyting þýði í raun, því í fljótu bragði virðist sem verk-
föll verði áfram óheimil til 15. febrúar vegna friðarskyldu sem al-
mennt er á gildistíma kjarasamninga. Atkvæðagreiðsla um bráða-
birgðalögin á að fara fram á Alþingi i dag.
Stærsti happdrættisvinningurinn:
Sjötug kona
fékk 25 niillj-
ónir hjá HHÍ
„Mig deymdi að eitthvað myndi
gerast í dag,“ segir vinningshafinn
SJÖTUG kona í Reykjavík, Karitas Magnúsdóttir, fékk í gærdag
stærsta happdrættisvinning, sem um getur hérlendis, er 5 milljón
króna vinningur Happdrættis Háskóla Islands kom á trompmiða
hennar. Trompmiðinn er fimmfaldur og hún er því 25 milljón
krónum ríkari í dag. Númer miðans er 20975.
„Mig dreymdi fyrir því að eitt- eða svo. Hún segir að hún hafi
hvað myndi gerast í dag en ég
átti ekki von á þessu," sagði Kar-
itas í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi. Hún vildi hinsvegar
ekki segja hvemig sá draumur
var. Trompmiðinn var lengi í eigu
manns hennar,, Ingólfs heitins
Guðmundssonar trésmíðameist-
ara, en hann lést í október sl. En
það eru fleiri sem njóta munu
góðs af þessum vinningi.
„Ég var búin að heita .því að
ef vinningur kæmi á annað borð
á einhveija af miðum mínum í
happdrættinu myndi Félag fatl-
aðra og lamaðra njóta góðs af
því. Það mun fá sinn skerf af
þessum vinningi,“ sagði Karitas.
Hún og maður hennar hafa átt
miða í Happdrætti Háskólans um
langt skeið eða undanfarin 40 ár
síðast fengið vinning í happdrætt-
inu fyrir 36 árum.
Karitas vinnur nú sem dagm-
amma og ætlar ekki að láta af
því starfi þrátt fyrir hinn óvænta
glaðning... „Ég vil ekki svíkja
vini mína,“ segir hún.
Þrátt fyrir drauminn sem að
framan getur tók það nokkurn
tíma fyrir hana að trúa þessari
heppni er Jóhannes L.L. Helgason
framkvæmdastjóri HHÍ hringdi í
hana síðdegis í gær með gleði-
fréttimar. En vinningurinn er
staðreynd og átti Karitas von á
að jólagjafir frá henni yrðu í veg-
legri kantinum í ár.
Sjá vinningsnúmerin í des-
emberdrætti Háskólahapp-
drættisins á bls. 38.
TÍU DAGAR eru til jóla og
í dag, miðvikudag, kemur
jólasveinninn Stúfur til
byggða.
Stúfur heimsækir Þjóðminja-
safnið klukkan 11 í dag. Hanna
Bjartmars Arnardóttir, grafík-
listamaður, bjó til jólasveina-
brúður fyrir Þjóðminjasafnið og
birtast myndir af þeim í Morg-
unblaðinu jafnóðum og jóla-
sveinarnir koma til byggða.
Morgunblaðið/Þorkell
Karitas Magnúsdóttir með vinningsmiðann, trompmiða í Happa-
drætti Háskólans, sem gaf henni 25 milljón krónur.
Hagnaður Jámblendifélags-
ins 400 milljónir króna í ár