Morgunblaðið - 31.12.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 31.12.1988, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B 299. tbl. 76. árg. LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1988 Prentsmiðja Morgxinblaðsins Danska stj órnin íhugar nið- urfærslu Rættum 10% launalækkun Kaupmannahöfh. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunbladsins. RÍKISSTJÓRN Pouls SchlUters í Danmörku íhugar nú að Iækka laun um 10% og skattaálögur um 2%. Var frá þessu greint í dagblaðinu Börsen. Blaðið segir að þessir fyrirhuguðu aðgerðir séu svo róttækar að þær gætu nægt til að útrýma halla Dana á viðskiptum við útlönd þegar árið 1992 og fækka atvinnulaus- um úr 250.000 í 200.000. Búist er við því að þessar rót- tæku efnahagstillögur verði born- ar undir launþegahreyfinguna í næsta mánuði. Hans Skov Christ- ensen, formaður Danska vinnu- veitendasambandsins, segir í sam- tali við Börsen að umrædd niður- færsluleið geti haft góð áhrif á stuttu tímabili en mikilvægara sé að ekki séu lagðar auknar álögur á atvinnulífið frá ári til árs með launahækkunum. „Dönum verður að lærast að koma á stöðugleika í efnahagslífinu annars horfir mjög illa,“ segir formaður vinnu- veitendasambandsins. Eftir að frétt Börsen birtist varð vart harðrar gagnrýni frá verka- lýðshreyfingunni og jafnaðar- mönnum í stjómarandstöðu. Þess- ir aðilar óttast að niðurfærsluhug- myndimar geti stefnt viðræðum stjómarinnar, Alþýðusambandsins og atvinnurekenda um kaup og kjör í voða en þær eiga að heíjast 6. janúar. Forsvarsmenn Alþýðu- sambandsins segja þó að þeir hafi ekkert á móti því að ræða sam- band skattaálagna og launa. Mogens Lykketoft, efnahags- málasérfræðingur danskra jafnað- armanna, segir að það sé „fárán- lega heimskulegt" að koma með slíkar tillögur á þessari stundu. Grunur bein- ist að PFLP Frankfurt. Reuter. VESTUR-þýzka lögreglan rann- sakar nú hvort félagar úr Al- þýðufylkingu til frelsunar Pal- estínu (PFLP), róttækum samtök- um Palestínumanna sem njóta stuðnings sýrlenzkra stjórnvalda, tengist hryðjuverkinu þegar þotu bandaríska Qugfélagsins Pan Am var grandað yfir Skotlandi. í október síðastliðnum fundust 5 kíló af tékkneska sprengiefninu Sem- tex í íbúð Hadjs Dalkamouni í Vest- ur-Þýskalandi en hann er talinn vera einn helzti leiðtogi PFLP. í bifreið hans var einnig segulband, sem búið var að breyta í sprengju, ásamt flóknum búnaði sem setur tíma- sprengju af stað við ákveðinn loft- þrýsing. Morgunblaðið/ Bjarni Eiríksson Sovétríkin: Tengdason- ur Brezhnevs dæmdur í 12 ára fangelsi Moskvu. Reuter. HÆSTIRÉTTUR Sovétríkjanna dæmdi í gær Júrí Tsjúrbanov, tengdason Leoníds Brezhnevs heitins, fyrrum leiðtoga Sov- étrikjanna, í 12 ára fangelsi fyrir að þiggja rúmlega 45 millj- ónir íslenskra króna í mútur. Tsjúrbanov, sem er 52 ára gam- all, var næstæðsti yfírmaður sovésku lögreglunnar á árunum 1980-1984. Saksóknari hafði krafist 15 ára fangelsunar Tsjúrbanovs sem sak- aður var um að hafa tekið við greiðslum frá embættismönnum í Uzbekistan. í staðinn beitti ákærði áhrifum sínum til að hindra rann- sókn á spillingu í Sovétlýðveldinu. Hæstiréttur Sovétríkjanna sak- felldi einnig sex háttsetta embætt- ismenn í Uzbekistan. Fengu þeir fangelsisdóma á bilinu 8-10 ár. Frami Tsjúrbanovs var skjótur eftir að hann gekk að eiga Galínu dóttur Brezhnevs árið 1971. Innan tíu ára var hann orðinn fyrsti að- stoðarinnanríkisráðherra. Réttarhöldin yfir Tsjúrbanov stóðu í fjóra mánuði og endur- spegla þá viðleitni ráðamanna i Sovétríkjunum að uppræta spill- inguna sem viðgekkst í valdatíð Brezhnevs. Sjá „Nöfii Brezhnevs . . “ á bls. 25. Umrót 1 Júgóslavíu: Ríkisþingið veltir Mikulic forsætisráðherra úr sessi Atburðirnir eiga sér ekki fordæmi í sögu kommúnistastj órnar landsins Belgrað. Reuter. SLAGSMÁL í matvælabiðröðum, götuóeirðir, 1400 verkföll á árinu, óðaverðbólga og gífúrleg erlend skuldasöfnun; allt voru þetta að sögn andstæðinga merki um mistök Branko Mikulics, forsætisráð- herra Júgóslavíu, er sagði af sér embætti ásamt samráðherrum sinum í gær. Á fimmtudag felldi sambandsþingið í Belgrað fjárlög stjórnar- innar ásamt tillögum hennar um efnahagsumbætur. Kommúnistar undir forystu Josips Titó náðu völdum i landinu i lok siðari heims- styijaldar og hefúr það ekki áður gerst á valdatíma þeirra að forsæt- isráðherra hafi misst völdin með þessum hætti. Heiftarlegar deilur hafa verið í Júgóslavíu á árinu milli hinna ýmsu þjóða landsins en það skiptist í sex ríki með mikla sjálfsstjóm í eigin málum og tvö svonefnd sjálfsstjórn- arhéruð. í ræðu sinni í þinginu i gær sagði Mikulic að þessar deilur ættu sinn þátt í vandræðunum en jafnframt að rætur þeirra væru dýpri. Hann bar sig vel en sagði að stjómin hefði ákveðið að segja af sér vegna „eiturörva" sem skotið hefði verið að henni úr öllum áttum. Mikulic sagði að valdi væri um of dreift í ríkinu og allt of mikið væri um það að krafist væri ein- róma samþykktar allra héraðanna átta varðandi ákvarðanir í efna- hagsmálum. „Ríkisstjórn mín gerði sig seka um að leiða í ljós mistök kerfísins undanfarna áratugi og fólk nýr henni því um nasir að hafa ekki bætt úr þeim á tveim og hálfu ári." Þessari athugasemd var greinilega beint gegn efnahags- stefnu Títós, er nefnd var „sósía- listískt sjálfsforræði" og byggðist á því að starfsmenn hvers fyrirtækis hefðu úrslitaáhrif á stefnu þess. Tító, sem varð þjóðhetja í landinu er hann barðist gegn nasistum og ekki síður er hann stóð fast á rétti Júgóslava í deilum við Stalín skömmu eftir stríð, lést árið 1980. Tóku þá við æðstu völdum í landinu forsætisráð þar sem sitja átta menn, einn frá hvetju héraði, og kjósa þeir forseta landsins úr eigin röðum. Ráðið tilnefnir forsætisráðherra eft- ir samráð við stjórnmálaráð komm- únistaflokksins, eina leyfilega "flokkinn, en síðan verður þingið að samþykkja valið. Mikulic, sem sagður er hafa kom- ist til áhrifa vegna starfa sinna í andspyrnuhreyfingunni með Tító á 'stríðsárunum, réð marga kaup- sýslumenn og viðskiptasérfræðinga til aðstoðar stjórninni. Vestrænir stjórnmálaskýrendur segja að pólitískt umrót í Júgóslavíu geti stefnt í hættu mikilvægum áform- um í þá átt að láta lögmál markað- arins ráða meira um framvindu efnahagsmála. Einnig geti viðræður við vestræna lánardrottna um greiðslur af fjallháum skuldum ríkisins siglt í strand.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.