Morgunblaðið - 31.12.1988, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 31.12.1988, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1988 4- Togarinn Breki flaug tugi metra Brotsjór reis und- ir skipinu í 14 vind stigum við Skotland AFLASKIPIÐ Breki frá Vest- mannaeyjum lenti í slikum brotsjó 12 milum norðan við Skotland í illviðrinu sem gekk yfir Atlantshaf 22. desember, að togarinn þurrkaði sig langt aftur fyrir mitt skip og flaug og hrapaði tugi metra. Loks þegar það lenti var eins og það steytti á skeri en ekki sjó, seg- ir í dagbók skipsins. Breki er um 1100 tonn og þarf talsvert afl til þess að lyfta honum til flugs. Engin slys urðu á mönn- um og þykir það mesta mildi, en dældun varð á botntönkum SH hyggst opna skrif- stofii í Japan SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrysti- húsanna hyggst opna sölu- skrifstofú í Japan, sem sam- kvæmt heimildum Morgun- blaðins myndi þjóna sem mark- aðsskrifstofa fyrir Asíu. Frið- rik Pálsson, forstjóri SH, stað- festi að athugun á því að opna skrifstofú í Japan hefði verið í gangi síðan í sumar, en form- leg ákvörðun hefði ekki verið tekin enn um opnunina. Það yrði væntanlega á næstunni. „Ástæðan fyrir þessari athugun er stöðugt og vaxandi mikilvægi Japansmarkaðar. Undanfarin 3-4 ár hefur sala afurða okkar til Jap- ans aukist um nálægt 100% á ári,“ sagði Friðrik. „Áður var einkum um að ræða loðnu og loðnuafúrðir, en nú hefur verið lögð vaxandi áhersla á karfa, grá- lúðu og síld. Síðastliðin tvö ár, 1988 og 1987 höfum við selt um 20-25% af afurðum okkar til Jap- ans, sem fyrir fengust 13-15% af heildarverðmætinu." Friðrik sagði að af þessum sök- um hefðu forráðamenn SH talið nauðsynlegt að kanna grundvöll fyrir skrifstofu í Japan til þess að bæta þjónustu við viðskipta- vini, afla sem nýjastra og gleggs- tra upplýsinga um markaðinn og stytta boðleiðina milli kaupenda og seljenda. og burðarstoðir í lest bognuðu. Talið er að fjónið nemi um 10 milljónum króna, en það er minna en talið var í upphafi. Togarinn Breki VE 61, sem var aflahæsti togari landsins á síðasta ári, sigldi á 4 mílna ferð móti vest- an stormi fyrir hádegi 22. desem- ber s.l. skammt norðan við Skot- land í um 14 vindstigum þegar brotsjór reis undir skipinu á um 30 faðma dýpi. Skipveijar sátu eftir í loftinu hvort sem þeir sátu eða stóðu og fannst sumum líða heil eilífð þar til skipið lenti aftur því þeir sögðust hafa getað velt ýmsum málum fyrir sér á meðan. Einn skipveiji í lest greip í lest- arfjöl í stíu, en hann flaug upp með fjölinni, brytinn flaug upp í loftið í eldhúsinu og allir pottar með, en þeir eru af stærri gerð- inni og taka tugi lítra. Það er tal- ið hafa bjargað kokkinum frá bruna að hann var nýbúinn að setja kalt vatn í vatnspottinn. 200 gráðu heit feiti úr djúpsteikinga- pottinum, súpur og sósur blönduð- ust saman í loftinu og kælingin varð það mikil að kokkinn sakaði ekki. Verkfæraskápar og hillur á lager skipsins tæmdust. Sævar Brynjólfsson skipstjóri sagði í samtali við Morgunblaðið að hann vonaðist til þess að lenda ekki í mörgum svona flugferðum. Breki var í skoðun í slipp í Reykjavík í gær, en hélt aftur til Vestmannaeyja í nótt og mun fara á, veiðar. Smíða þarf 15 metra langan botnhluta í skipið og setja í stað þess sem bognaði, en 7 tonn af jámi fará í viðgerðina. Morgunblaðið/Sverrir BHreiðaefbirlitinu lokað eftir 60 ára starfsemi Haukur Ingibergsson framkvæmdastjóri Bifreiðaeftirlits ríkisins læsir aðaldyrum stofnunarinnar í síðasta sinn. Síðasti starfsdagur Bifreiðaeftirlitsins var í gær. Þá voru jafhframt síðustu bílnúmer- in samkvæmt gamla kerfinu skrúfúð á bíla. Starfsemi Bifreiðaeft- irlits ríkisins rekur sögu sína allt aftur til ársins 1928 og eru þvi um 60 ár liðin frá upphafi til loka starfseminnar. Mikið hefúr verið um númeraskipti nú síðustu dagana, að sögn Hanks Ingi- bergssonar framkvæmdastjóra Bifreiðaeftirlitsins, og hafa menn einkum verið að koma „góðum“ númerum á nýja og lífvænlega bíla. Bifreiðaskoðun íslands hf tekur við starfsemi Bifreiðaeftir- litsins strax eftir áramót. Tillögnr skipulagsnefiidar Sambandsins: Guðjón var einn á móti og mun skila séráliti GUÐJÓN B. Ólafsson, forstjóri Sambandsins, greiddi atkvæði á móti tillögum skipulagsnefndar Sambandsins, sem lagðar verða fyrir stjórnarfúnd þess þann 9. janúar. Hann hyggst skila sér- áliti á þeim fúndi. Þröstur Ólafs- son, stjórnarformaður KRON, sat hjá við atkvæðagreiðsluna en 62 Islendingar létust af slysförum á árinu ALLS létust 62 íslendingar af slysförum á þessu ári og er það 8 einstaklingum fleira en árið 1987, en þá létust 54 íslendingar af slysforum. Árið 1986 létust_74. í umferðarslysum létust 33 einstaklingar á árinu, en 26 á árinu 1987. Enginn íslendingur lést í flugslysi árið 1988, en 5 fórust í flugslysum á árinu 1987. Dauðsföll vegna sjóslysa og drukknunar urðu 11 á þessu ári en voru 10 árið 1987. Fjórtán skip eða bátar fórust við landið á árinu og létu 7 menn lífið í þeim slysum, en 21 var bjargað. Dauðs- fóll vegna ýmissa banaslysa urðu samtals 18 á árinu en voru 13 í fyrra. Þar af létust 4 vegna skot- sára, líkamsárásar eða átaka á þessu ári, en 1 árið 1987. Á þessu ári urðu engin dauðsföll vegna vinnuslysa, en tvö slík dauðsföll urðu árið 1987. Á þessu ári urðu flest banaslys í marsmánuði, en þá létust alls 10 íslendingar af slysförum, þar af 4 í sjóslysum. Flest dauðsföll vegna umferðarslysa urðu í sept- ember, samtals 7 talsins. Átta íslendingar iétust vegna slysa er- lendis á árinu, þar af 5 í um- ferðarslysum, en 2 íslendingar létust af slysförum ^erlendis á ár- inu 1987. Samtals létust 7 erlendir menn af slysförum hér á landi á þessu ári og þar af 4 í flugslysum. fimm nefúdarmenn voru sam- þykkir tillögunum, þeir Axel Gíslason, Jóhannes Sigvaldason, Ólafúr Sverrisson, Þorsteinn Sveinsson og Valur Arnþórsson, formaður nefiidarinnar og frá- farandi stjórnarformaður Sam- bandsins. Guðjón B. Ólafsson sagðist ekki vilja tjá sig um tillögumar eða segja neitt frekar um málið þar til það hefði verið rætt á stjómarfundi Sambandsins. Hann sagðist mundu nota tímann fram að honum til að ganga frá séráliti sínu. Valur Amþórsson sagðist ekkert vilja segja um tillögur nefndarinnar eða afstöðu einstakra manna fyrr en að afloknum næsta stjómarfundi Sambandsins. Hann sagðist ekki vita hvaða hljómgrunn tillögur nefndarinnar ættu í stjóm Sam- bandsins. Aðspurður um hvaða þýð- ingu það hefði að forstjóri Sam- bandsins legðist einn gegn tillögum um breytt skipulag Sambandsins sagðist Valur ekki hafa hugleitt það mál, en það væri ekkert óeðlilegt að skoðanir væru skiptar í málum sem skipulagsmálum, þar sem margt kæmi til álita. Valur sagðist mundu hefja störf sem bankastjóri Landsbankans alveg á næstunni og þá um leið draga sig f hlé í öðrum embættum og þar á meðal í þeim stjómum sem hann situr í. Þetta væri spuming um nokkra daga eða vikur. Tillögur meirihluta nefndarinnar Nær 5.000 börn fædd áárinu HORFUR eru á að fjöldi barns- fæðinga á þessu ári verði á bilinu 4.600 til 4.700, sem er fiölgun um 4-500 frá fyrra ári, og um 7-800 frá árunum 1985 og 1986. Fæðingatalan hefúr því hækkað um fimmtung á tveimur árum, en þar áður hafði hún fallið mik- ið. Á Kvennadeild Landspítalans höfðu í gær fæðst 2.796 börn á þessu ári og stefúir í að fæðing- ar þar verði 2.800 fyrir áramót, sem er talsverð aukning frá 1987, en þá fæddust 2.362 börn á deildinni. Árin 1985 og 1986 fæddust færri böm en nokkurt ár síðan 1947, og hafði þó fyöldi kvenna á bams- burðaraldri ríflega tvöfaldast síðan þá. Fæðingatalan á árinu 1988 er hins vegar svo há að það er aðeins á ámnum 1957-60, 1962-66 og 1972, sem fleiri böm hafa fæðst. Miðað við fjölda kvenna á bams- burðaraldri svarar fæðingartíðnin á þessu ári til þess sem var árin 1982 og 1983, en er minni en hún var nokkurt ár fyrir þann tíma. munu ganga í þá átt að ákveðnir þættir í rekstri Sambandsins verði færðir yfir til sjálfstæðra fyrirtækja í formi hlutafélaga eða samvinnufé- laga. Guðjón er talinn vilja ganga skemur í þeim efnum. Tölur um afkomu Sambandsins á þessu ári liggja ekki endanlega fyrir og ekki hefur verið unnið upp úr uppgjöri fyrir fyrstu ellefu mán- uði ársins, að sögn Guðjóns B. Ól- afssonar. Tíu mánaða uppgjör sýnir tap upp á um 700 milljónir, þar af er gengistap um 600 milljónir. í fyrra var tap Sambandsins nær 220 milljónir króna, ef sala eigna er ekki talin til tekna. HSÍ og Ríkisútvarpið: Samið um for- gangsrétt að landsleikjum Handknattleikssamband ís- lands og Ríkisútvarpið gengu í gær frá samningi, sem tryggir Ríkisútvarpinu forgangsrétt að beinum sjónvarpssendingum frá landsleikjum i handknattleik næstu tvö árin. Að sögn Jóns Hjaltalins _ Magnússonar, for- manns HSÍ, er þetta sennilega langstærsti samningur, sem sér- samband innan íþróttahreyfing- arinnar hefiir gert við Ríkisút- varpið. „Samningurinn tryggir Sjónvarp- inu forgangsrétt að beinum útsend- ingum frá öllum landsleikjum í hand- knattleik næstu tvö árin, en um leið mun Stöð 2 eiga möguleika á beinum útsendingum nokkurra leikja og að- gang að öllum landsleikjum til út- sendingar samdægurs eða síðar. Nú standa yfir samningar við Stöð 2 um aðgang að landsleikjunum, og reikna ég með að frá þeim verði gengið um leið og Stöð 2 lýsir því yfir að liðkað verði til fyrir Ríkisút- varpinu um að fá að senda beint frá íslandsmótinu og Bikarkeppninni í handknattleik," sagði Jón Hjaltalín Magnússon. Hann vildi ekki gefa upp þá upphæð, sem Ríkisútvarpið greiðir fyrir forkaupsréttinn, en sagði að stjórn HSÍ væri mjög sátt við samninginn. „Við teljum að þetta séu sanngjamar greiðslur fyrir áhugavert efni, um leið og það tryggir öllum landsmönnum að geta fylgst með landsleikjum okkar næstu tvö árin.“ Borgin kaupir Víkings- heimilið við Hæðargarð inu austan við húsið, en Víkingur hefur afnotarétt af íþróttavöllum vestan heimilisins enn um sinn eða þar til framkvæmdir á nýju félags- svæði í Fossvogi eru lengra komnar. Víkingur hyggst flytja starfsemi sína á svæði við Stjömugróf aust- ast í Fossvogsdal. Þar hefur félagið þegar haslað sér knattspyrnuvöll gert tennisvelli og stórt vallar- og búningshús er tæplega fokhelt Aðalfundur félagsins á eftir að fialla um fyrmefnt samkomulag. Á FUNDI borgarráðs í gær var samþykkt samhljóða samkomu- lag Rey kj avíkurborgar vlð Knattspymufélagið Víking um yfirtöku borgarinnar á eignum félagsins og aðstöðu við Hæðar- garð. Borgin greiðir 32 milljónir króna fyrir eignimar. Að sögn Gunnars Eydal, ritara borgarráðs, var ekki ákveðið á fundinum til hverra nota félags- heimili Víkings verður tekið. Borgin mun hafa ráðstöfunarrétt á svæð-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.