Morgunblaðið - 31.12.1988, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1988
5
STAÐGREÐSLA
1989
Ákveðið hefur verið að skattkort ársins
1988 skulu gilda áfram á árinu 1989. Þó
með þeirri undantekningu að skattkort
með uppsöfnuðum persónuafslætti
gefin út á árinu 1988 falla úr gildi frá og
með1.janúar1989.
Ný skattkort, sem gilda fyrir árið
.1989, verða gefin út til þeirra
sem öðlast rétt til þeirra í fyrsta sinn.
Nýju skattkortin verða frábrugðin skatt-
kortum ársins 1988 á þann hátt að á
þeim verður aðeins tilgreint hlutfall pers-
ónuafsláttar, auk persónubundinna
upplýsinga um launamanninn, en ekki
skatthlutfall og upphæð persónuafsláttar
eins og áður.
Áríðandi er að launagreiðandi
athugi, að það skatthlutfall og sú upp-
hæð persónuafsláttar sem fram koma á
skattkortum útgefnum vegna ársins
1988 falla úr gildi frá og með 1. janúar
1989.
Frá og með 1. janúar 1989 ber því
launagreiðanda að reikna stað-
greiðslu af launum miðað við auglýst
skatthlutfall og persónuafslátt og að
teknu tilliti til þess hlutfalls pers-
ónuafsláttar sem tilgreint er á skatt-
korti launamanns.
SKAUHLUTFALL
STAÐGREIÐSLU
CUD«°" svQN8JÖR
StofMfuriM,
**tott*V Wl:;(
1009*
xiff- Muf/aff
: P&rsanwufs' .
Skýnngar
I >0<< i j
'< • í Jft
með
• OOfis
skattk
Skatthlutfall staðgreiðslu ersameiginlegt
skatthlutfall tekjuskatts og útsvars.
Fyrir árið 1989 verður skatthlut-
fall staðgreiðslu 37,74%.
Persónuafsláttur ársins 1989 hefur verið
ákveðinn 214.104 kr. Mánaðarlegur
persónuafsláttur verður þá 17.842 kr.
Við útreikning á staðgreiðslu launa-
manns á árinu 1989 ber launagreiðanda
að nota:
1. Auglýsta upphæð persónuafsláttar
fyrir árið 1989 en ekki þá upphæð
persónuafsláttar sem tilgreind er
á skattkortum ársins 1988.
2. Hlutfall persónuafsláttar sem
fram kemur á skattkorti launamanns.
Sjómannaafsláttur ársins 1989 verður
492 kr. fyrir hvern dag sem maðurtelst
stunda sjómannsstörf.
Breytingar sem kunna að verða á upp-
hæð persónu- og sjómannaafsláttar
síðar á árinu 1989 verða auglýstar sér-
staklega, auk þess sem allir launagreið-
endur, sem hafa tilkynnt sig til launa-
greiðendaskrár RSK, munu fá orðsend-
ingu um breytingar á fjárhæðum.
Áríðandi er að launagreiðendur
fylgistmeð breytingum.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
vis / NvisnNor<ívoNiSAionv aao