Morgunblaðið - 31.12.1988, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1988
17
orðið að láta undan óvæginni er-
lendri samkeppni. í þessari iðngrein
hefur það sýnt sig að með sér-
hæfíngu, eins og hefur átt sér stað
í skrifstofu- og stofnanahúsgögn-
um, er hægt að halda velli í vax-
andi samkeppni, sem bendir ein-
dregið til þess, að ef við sérhæfum
okkur á tiltölulega fáum sviðum en
vöndum þar vel til verka má ná
umtalsverðum árangri. Raunar hef-
ur verið sýnt fram á það með lofs-
verðu framtaki einstakra aðila, að
íslendingar geta, ef aðstæður og
vilji eru fyrir hendi, hannað, þróað
og selt húsgögn í hæsta gæðaflokki
og fengið fyrir verð, sem stendur
undir framleiðslukostnaði. Hlið-
stæðir möguleikar eru einnig vafa-
laust fyrir hendi í skyldum greinum
s.s. fataiðnaði, ef rétt og fagmann-
lega er að verki staðið á öllum stig-
um, allt frá hönnun til framleiðslu
og sölu. Það hefur hins vegar oft
viljað brenna við, að sveiflur og
sviptingar í íslensku efiiahagslífí
og starfsumhverfí fyrirtækja, ekki
bara frá náttúrunnar hendi heldur
einnig af manna völdum, hafa því
miður oft órðið þess valdandi, að
u ppbyggi ngarstarf af þessum toga,
sem menn hafa lagt mikla fjármuni
í, hefur farið í súginn.
Þótt byggingariðnaður horfi nú
fram á umtalsverðan samdrátt,
stendur hann þó föstum fótum í
íslensku atvinnulífí, en hefur því
miður oft orðið að ganga í gegnum
stórar sveiflur á undanfömum
árum, sem vissulega skapar mikla
erfiðleika. En þegar þess er gætt
að fjárfesting hefur almennt verið
mun minni á þessu ári en í marga
áratugi á undan er líklegt að hann
muni tiltölulega fljótt rétta við aft-
ur, ef fótunum verður ekki kippt
undan ungu fólki til að koma yfír
sig íbúðum, og annað atvinnulíf í
landinu heldur velli, en til þess verð-
ur öflugur byggingariðnaður að
vera fyrir hendi.
Um smærri iðngreinar má al-
mennt segja, að þær hafí til skamms
tíma flestar staðið nokkuð vel, og
margar nýtt það til aukinnar fjöl-
breytni og framfara, svo sem brauð-
og kökugerð, þrátt fyrir mikinn inn-
flutning og harða samkeppni.
Síðast en ekki síst vil ég neftia
að mjög miklar hræringar eru nú
í allri framleiðslu- og verktækni í
iðnaði. Tölvubyltingin hefur bæði
áhrif á stjómun fyrirtækjanna,
þ.m.t. sölu og markaðsmál og fram-
leiðsluna sjálfa. Einhæf færibanda-
framleiðsla er nú um allan heim að
víkja fyrir þeirri fjölhæfni, sem
samspil rafeindatækni og nýjunga
í véltækni hefur gert mögulega.
Nýjar vélar og tæki eru stöðugt að
líta dagsins ljós og sömuleiðis em
sífelit að koma fram ný efni og
efnismeðferð.
Þessi þróun gefur okkur alveg
nýjar víddir í möguleikum þó hún
kalli jafnframt á gagngert endur-
mat á iðn- og tæknimenntun,
stjómunarmenntun og raunar
starfsmenntun almennt.
Til að nýta þessa þróun þarf
dugmikið og framsækið fólk, og
tækniþróun er þess eðlis að iðnnám
og iðnaðarstörf ættu að vera sífellt
meira spennandi vettvangur fyrir
ungt fólk, ef við berum gæfu til
að sjá til þess að starfsmenntun
þróist ásamt skipulagi og starfsemi
fyrirtækja í iðnaði í samræmi við
tækniþróunina.
Það sem upp úr stendur er því
fyrst og fremst það að þrátt fyrir
óhagstæð ytri skilyrði um sinn, á
þessi atvinnuvegur mikla og glæsta
framtíð ef rétt er á málum haldið.
Allar aðstæður f efnahagsmálum
þjóðarinnar krefjast þess, að stjóm-
völd hvetji til og ýti undir nýsköpun
og uppbyggingu í íslenskum iðnaði
og atvinnulífí almennt, en standi
ekki í því sýknt og heilagt að draga
þrótt úr mönnum með óhóflegri og
algjörlega órökréttri skattheimtu,
sem bitnar' verst á stöðu þeirra
greina, sem eiga við mesta erlenda
samkeppni að etja.
Að lokum vil ég þakka félögum
í Landssambandi iðnaðarmanna
ánægjulegt samstarf á árinu sem
er að líða og óska þeim og lands-
mönnum öllum árs og friðar.
Gamlársdag OPIÐ 11:00-14:00
Nýársdag OPIÐ 17:30-23:30
<ImíI
loríoii
VEITINGAHÚS
AMlMANNSSTÍCi I RI YKJAVÍK SÍMI 91-13505
REIÐHÖLLIN HE
Reiðskólinn, Reiðhöllinni,
Víðidal
Kennsla í janúar:
Kennsla héfst 4. jan. til 20. jan.
Næstu námskeið hefjast 23. jan. til 8. febr.
Mánud. Miðvikud. Föstud.
Byrjendanámskeið kl. 16.00 16.00 16.00
Kennarar: 17.00 17.00 17.00
Unn Krógen 18.00 18.00 18.00
Aðalsteinn Aðalsteinsson 20.00 20.00 20.00
Gangskiptingar kl. 18.00 18.00 18.00
19.00 19.00 19.00
20.00 20.00 20.00
Hlýðni- og fimiæfingar kl. 19.00 19.00 19.00
Kennsla hefst fimmtud. 5. jan. til 31. jan. '
Næstu námskeið 2. febr. til 28. febr.
Þriðjud. Fimmtud.
Byrjendanámskeið kl. 16.00 16.00
17.00 17.00
18.00 18.00
Gangskiptingar kl. 18.00 18.00
19.00 19.00
20.00 20.00
Hlýðni og fimiæfingar kl. 19.00 19.00
20.00 20.00
Hundahlýðninámskeið. Mánudaga og fimmtudaga
hefjast 5. jan. til 6. febr. Næsta námskeið hefst 9. febr.
kl. 14og 15.
Kennari: Unn Krógen.
Innritun og upplýsingar í síma 673620.
Skólastjóri.
VIKAN OG HÚS & HÍBÝLI
Tvö á toppnum
Um leið og SAM-útgáfan
óskar lesendum sínum gleðilegs árs þakkar
útgáfan þær frábæru móttökur á árinu 1988
sem komu Húsum & híbýlum og Vikunni í
toppsæti nýafstaðinnar lesendakönnunar
sem Félagsvísindastofnun Háskóla íslands
framkvæmdi fyrir Verslunarráð íslands.
SAM-útgáfan