Morgunblaðið - 31.12.1988, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1988
„ ... um ræfla þá sem
ná ekki tmrHnnm ...“
Pétur Einarsson sem Rocky skemmtanastjóri og Erla B.
Skúladóttir sem Mary.
Helgi Björnsson í hlutverki sínu.
Leiklist
Jóhanna Kristjónsdóttir
Leikfélag Reykjavíkur frum-
sýndi á Broadway: Heimsmeist-
arakeppnin í maraþondansi,
söngleikur eftir Ray Herman,
byggður á skáldsögu Horace
McCoy.
Þýðing og söngtextar: Karl
Agúst Ulfsson.
Útsetningar og val tónlistar og
tónlistarstjórn: Jóhann G. Jó-
hannsson.
Leikmynd og búningar: Karl Júl-
íusson.
Lýsing Egill Orn Árnason.
Dansar: Auður Bjarnadóttir.
Steppþjálfún: Draumey Aradótt-
ir.
Leikstjóri: Karl Ágúst Úlfsson.
Draumurinn um frægðina og
framann og morð fjár hefur löngum
fylgt mannskepnunni. Þessir
draumar eru misjafnlega áleitnir
og hafa misjafna möguleika til að
rætast. Bæði fyrir sakir ytri að-
stæðna og eiginleika mannsins
sjálfs. Leikverkið Heimsmeistara-
keppnin í maraþondansi sem Leik-
félag Reykjavíkur frumsýndi á
Broadway á fímmtudagskvöld
dregur upp áhrifamikla mynd af
þessari þörf. Sögusviðið er Banda-
ríkin, í miðri kreppu fjórða áratug-
arins, þegar atvinnuleysi og hörm-
ungar hrjáðu milljónir. Fólk leitaði
allra leiða til að koma sér á fram-
færi og margir urðu að sætta sig
við minna, það var kannski bara
gott að hafa í sig og á. Fólk lét
teyma sig út í furðulegustu athafn-
ir sem gátu tekið á sig hinar ógeð-
felldustu myndir, svo sem að keppa
í dansi, ef ske kynni að vinningur-
inn næðist. í þessari danskeppni er
dansað dögum og vikum og jafnvel
mánuðum saman, uns eitt par
stendur uppi að lokum sem sigur-
vegarar. Niðurlægingin sem kepp-
endur sæta uns niðurstaða er feng-
in rennur smátt og smátt upp fyrir
þeim og okkur og öllum brögðum
er beitt, það er svo fjarri því að
mannleg reisn fái staðist álagið sem
þessari „keppni“ fylgir.
Fyrri hluti sýningarinnarvareitt-
hvað losaralegur, það vantaði meira
aðhald leikstjóra og fastari tök og
þar með varð og augljósara að á
skorti einnig að Pétur Einarsson
hefði afdráttarlaus tök á hinum
rotna og hugumspillta skemmtana-
stjóra Rocky Gravo. Hlutverkið er
mjög mikilvægt til að undirstrika
angistina hjá dansfólkinu og inni-
haldsleysi hans sjálfs. Þó að Pétur
ætti góðar senur inn á milli dugði
það ekki til. Raddbeiting hans hefði
þurft að vera töffari og sterkari og
hreyfingar voru dálítið þunglama-
legar.
Helgi Björnsson átti ákaflega
góðan og áhrifamikinn leik í hlut-
verki Roberts Syverten og tókst að
skapa hvað eftirminnilegustu per-
sónu kvöldsins. Helgi Björnsson
hefur fengið ýms góð hlutverk allra
síðustu ár og vex með hverju þeirra.
Hanna María Karlsdóttir var Gloria
Beatly, hin lánlausa og óhamingju-
sama stúlka, sem hlýtur að farast.
Hún á sér aldrei viðreisnar von og
það er ljóst frá upphafí. Ég lít raun-
ar ekki svo á að þar ráði eitt og
sér ömurlegt ytra hlutskipti, í henni
býr vansældin hvað sem öðru líður.
Hanna María hefði þurft að draga
Gloriu upp mýkri og fjölbreyttari
dráttum, hún sýndi of harðan leik,
og þar af leiðandi tókst ekki að
kalla fram samúðina með þjáningu
hennar. Sýnilegt er að Gloria reyn-
ir að brynja sig, en mér fannst
hamsleysið ganga of langt, alveg
sérstaklega í fyrri hlutanum. Þar
af leiðandi urðu afdrif hennar, sem
okkur eru ljós frá öndverðu, ekki
tiltakanlega sorgleg. En ýmsar fal-
legar senur sem Hanna María átti
undir lokin sýndu fullvel hæfni
hennar í hlutverkið.
Valgeir Skagfjörð lék Mario
Batone og var með góða framsögn'
og svipbrigði og hreyfingar. En
bjagað tal réði hann ekki við að
gera sannfærandi. Ólafía Hrönn
Jónsdóttir lék vanfæra konu hans
af smekkvísi og hélt hárréttri tón-
tegund að mínum dómi. Erla B.
Skúladóttir og Harald G. Haralds-
son voru Vee og Mary og náðu að
búa til nokkuð sannfærandi mynd
Á Valhúsahæð lii
v/Ægissíðu ^jj
v/ Holtaveg
12'
I Vatnsmýri
§
I Skildinganesi £
m :
ARAMÓTA-
BRENNUR
1988
v/Fossvogskirkjugarð
JL
|Í v/Hæðagarð
Á Kársnesi ^
v/Fylkisvöll
^ v/Kópavogshæli
v/Leirubakka
i
v/Suðurfell
v/Arnarneslæk
AÐ VENJU eru birtar hér
í biaðinu upplýsingar um
hvar helstu áramóta-
brennur eru haldnar.
Reykjavík
Lejríi hefur verið veitt fyrir eft-
irtöldum áramótarbrennum í
borgarlandinu:
1. Ægisíða við Hofsvallagötu.
2. Upp af Leirubakka.
3. Víkingssvæði við Hæðar-
garð.
4. Á sjávarkamdi neðan við
Fossvogskirkjugarð.
5. Sunnan við Fylkisvöll.
6. Milli Holtavegar og Álf-
heima.
7. Suðurfell við Rjúpufell.
8. í Vatnsmýri, Reykjavíkur-
vegur-Fossagata.
9. Við Skildinganes.
Kópavogur
Þijár brennur verða í landi
Kópavogs.
1. Á Kársnesi.
2. Á Vatnsenda.
3. Við Kópavogshæli.
Selljarnarnes
Á Seltjamarnesi verður ein
brenna:
Á Valhúsahæð.
HafinarQörður
Tvær brennur verða í Hafnar-
fírði:
1. Vlð Hrafnistu.
2. Við Stekkjarhvamm sunnan
Reykj anesbrautar.
Garðabær
Að sögn lögreglu hefur verið
veitt leyfí fyrir tveimur brennum
í landi Garðabæjar:
1. Við Bæjarbraut. Kveikt verð-
ur klukkan 21.
2. Við Arnamesslæk.
Mosfellsbær
í Mosfellsbæ hefur verið veitt
leyfí fyrir einni brennu: við hest-
húsin.
Bessastaðahreppur
Á Álftanesi verður brenna í
landi Gestshúsa.
Akureyri
Veitt hefur verið leyfí fyrir
einni brennu á Akureyri og verður
hún vestan Hlíðarbrautar.
ísafjörður
Tvær brennur verða á ísafirði:
1. Við íþróttavöllinn á Torfnesi.
2. Á bökkum Úlfsár.
Einnig verður brenna á Hnífsdal.
Akranes
Á Akranesi verður brenna á
sjavarbakkanum fyrir neðan Víði-
grund.
Keflavík
l'vær brennur verða í Keflavík:
1. Ofan við Iðavelli.
2. Ofan við Eyjabyggð.
Þá verða brennur viðast í þétt-
býli á Suðumesjum.
Selfoss
Á Selfossi verður brenna
skammt vestan Eyrarvegar.
Egilsstaðir
Á Egilsstöðum verður brenna á
óbyggðu svæði sunnan ónefndrar
götu á svæði milli Árskóga og
þjóðvegar númer 93, kafla 01.