Morgunblaðið - 31.12.1988, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1985
25
Japan:
Dómsmálaráðherra segir
af sér í kjölfar hneykslis
Tókíó. Reuter.
Reuter
Takashi Hasegawa ásamt Noboru Takeshita, forsætisráðherra Jap-
ans eftir að Hasegawa hafði verið skipaður dómsmálaráðherra síðast-
liðinn þriðjudag. Hasegawa sagði af sér í gær þegar upp komst að
hann hafði þegið peningagreiðslur í eigin kosningasjóð frá fyrirtæk-
inu Recruit Cosmos. Honum hafði verið ætlað að stjórna rannsókn
á því hvort forráðamenn Recruit Cosmos hefðu selt stjórnmálamönn-
um hlutabréf áður en þau fóru á almennan hlutabréfamarkað.
Opinberar byggingar í Sovétrikjunum:
Nöfn Brezhnevs og
Tsjernenkos fjarlægð
Moskvu. Reuter.
Dómsmálaráðherra Japans,
Takashi Hasegawa, sem tók við
embætti fyrir fjórum dögum,
sagði af sér í gær. Hann reynd-
ist viðriðinn hneykslismál sem
honum hafði verið ætlað að leiða
til lykta. Nýr dómsmálaráðherra
hefur verið skipaður í Japan.
Fyrr í þessum mánuði sagði íjár-
málaráðherra landsins, Kiichi
Miyazawa, af sér vegna tengsla
við sama hneykslismál.
Tilefni þessara tillagna eru slys
sem orðið hafa undanfarið, annars
vegar vegna lágflugsæfinga og hins
vegar við þátttöku herflugvéla í
flugsýningum. Þingmennirnir
benda á að undanfarið hafi tvær
herþotur hrapað í nágrenni kjam-
orkuvera, önnur frönsk og hin
bandarísk. í tillögunum er lögð
áhersla á þau linnulausu óþægindi
sem fólk verði fyrir vegna lágflugs-
æfínga, aðallega yfir Þýskalandi.
Þingmennimir telja að í ljósi
síðustu atburða í samskiptum aust-
urs og vesturs hljóti að draga úr
mikilvægi æfingaflugs af þessu
tagi. Það sé a.m.k. ljóst að sú
áhætta sem tekin er í nágrenni
íbúðarsvæða og kjarnorkuvera geti
ekki verið réttlætanleg.
Það er ekki síst slysið í Rem-
scheid í Vestur-Þýskalandi fyrir
skömmu, sem orðið hefur til að ýta
við mönnum, en þá hrapaði
bandarísk orrustuvél af gerðinni
A-10 Thunderbolt til jarðar í miðj-
um bænum. í kjölfar þess ákvað
Peter Kurt Wiirzbach ráðuneytis-
stjóri að banna allt lágflug fram til
2. janúar. Rupert Scholz vamar-
málaráðherra, sem var staddur í
Bandaríkjunum þegar Wúrzbach
Hasegawa var skipaður dóms-
málaráðherra þegar breytingar
vom gerðar á ríkisstjóminni síðast-
liðinn þriðjudag sem miðuðu að því
að leiða til lykta hneykslismál sem
fasteignafyrirtækið Recmit Cosmos
og stjómmála- og kaupsýslumenn
vom viðriðnir. Það orð fór af Ha-
segawa að hann væri maður með
hreinan skjöld og að hann væri vel
til þess fallinn að stjórna rannsókn
á meintum peningagreiðslum frá
tilkynnti bannið, lét það hins vegar
verða sitt fyrsta verk þegar heim
kom að afturkalla „þessa heimsku"
eins og hann komst að orði.
Wúrzbach brást við með því að
segja af sér og nú gerast þær radd-
ir háværar, sem segja, að Scholz
verði að segja af sér. Honum er líka
legið á hálsi fyrir að láta helst aldr-
ei sjá sig meðal óbreyttra hermanna
en gera sér þeim mun meira far
um að vera í sjónvarpinu og blöðum.
Recmit Cosmos-fyrirtækinu til jap-
anskra stjórnmálamanna.
Ráðamenn Recmit Cosmos-fyrir-
tækisins em sakaðir um að hafa
selt áhrifamiklum stjómmála- og
kaupsýslumönnum hlutabréf áður
en þau fóm á almennan hlutabréfa-
markað. Hlutabréfín hækkuðu mik-
ið í verði þegar þau vom skráð í
kauphöllinni í Tókíó og þeir sem
höfðu keypt áður en þau fóm á
hlutabréfamarkað högnuðust vel á
viðskiptunum.
Hasegawa viðurkenndi á
fímmtudag að kosningasamtök
hans hefðu þegið 6 milljónir jena,
eða ríflega 2.2 milljónir ísl. kr., frá
Recmit Company, systurfyrirtæki
Recmit Cosmos frá árinu 1976.
Fyrmrn fjármálaráðherra lands-
ins, Kiichi Miyazawa, neyddist til
að segja af sér snemma í desember-
mánuði þegar hann viðurkenndi að
einkaritari sinn hefði keypt hluta-
bréf í fyrirtækinu. Þá leiddi rann-
sókn í ljós að Keizo Obuchi, helsti
aðstoðarmaður Noboms Takeshitas
forsætisráðherra, tók við peningum
frá Recmit-fyrirtækinu sem mnnu
í kosningasjóð hans. Obuchi sagði
í gær að hann hefði ekki í hyggju
að segja af sér.
Nýr dómsmálaráðherra var skip-
aður í gær í Japan, að sögn tals-
manna Noborus Takeshitas forsæt-
isráðherra. Hann heitir Masami
Takatsuji, 78 ára gamall fyrrver-
andi hæstarréttardómari.
NÖFN fyrrum leiðtoga . Sov-
étríkjanna, Leoníds Brezhnevs
og Konstantíns Tsjernenkos,
verða Qarlægð af opinberum
byggingum í landinu, að sögn
sovésku fréttastofunnar TASS á
fimmtudag. Akvörðunin var tek-
in í sameiningu af æðstu valda-
stofnunum landsins eftir að yfir-
völdum og Qölmiðlum höfðu bo-
rist mörg tilmæli í þessa átt frá
almenningi.
TASS sagði að mennimir báðir
hefðu ráðið ferðinni á „stöðnun-
artímabilinu" svonefnda er ríkt
hefði fyrir valdatöku Míkhaíls Gor-
batsjovs Sovétleiðtoga 1985. Áður
hefur nöfnum nokkurra staða, er
nefndir vom í höfuðið á Brezhnev
og Tsjemenko, verið breytt.
Gagnrýnin á stöðnunina hefur
fram að þessu aðallega beinst að
Brezhnev en að undanfömu hefur
stjóm Tsjemenkos, er lést í mars
1985, orðið fyrir æ meira ámæli.
Hann tók við af Júríj Andropov t
febrúar 1984 en sá fyrmefndi var
sjúkur síðustu mánuði valdaferils
síns og er talið að Gorbatsjov hafí
þá verið áhrifamestur í forystu
landsins þótt Tsjemenko nyti meiri
stuðnings við val eftirmanns An-
dropovs. Sovéskir fjölmiðlar segja
að umbótatilraunir, sem Andropov
reyndi að hrinda í framkvæmd,
hafi verið lagðar á hilluna á valda-
skeiði Tsjemenkos.
New York-borg:
1.846 morð frá áramótum
New York. Reuter.
ÁRSINS sem nú er að líða verð-
ur minnst í New York m.a. sak-
ir þess að morð hafa aldrei
verið þar fleiri en í ár. Á jóla-
dag höfðu 1.846 morð verið
framin frá síðastliðnum ára-
mótum, að því er næst verður
komist, eða að jafhaði rúmlega
fimm á degi hverjum.
Fulltrúar lögreglunnar segja að
skýringuna á auknum manndráp-
um í New York sé að fínna í mik-
illi og stöðugt vaxandi fíkniefna-
neyzlu. Einkum er aukinni neyzlu
á svokölluðu „crack“-efni kennt
um.
Þegar sex dagar vom eftir af
árinu höfðu öll fyrri met verið
slegin. Flest höfðu morðin verið
1981 eða 1.841. Að meðaltali
hafa fímm menn verið vegnir á
þessu ári. Vitað er um a.m.k. 16
menn, sem vegnir vom í New
York á aðfangadagskvöld og jóla-
dag. Flest hafa morðin á árinu
verið á svokölluðu 75. svæði lög-
reglunnar, en það er í Brooklyn,
eða 104.
Evrópuþingið:
Vilja draga úr lág-
flugi í æfíngaskyni
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÞINGMENN á Evrópuþinginu hafa lagt til að öllum lágflugsæfingum
herflugvéla í nágrenni íbúðarsvæða og kjarnorkuvera verði tafar-
laust hætt. Jafnframt leggja þingmennirnir til að sýningaratriði
herflugvéla verði bönnuð á flugsýningum.
Starfsfólk Ferðaskrifstofu íslands og Hótel Eddu
þakka viðskiptin á árinu
og óska landsmönnum farsœldar
á kontandi ári.