Morgunblaðið - 31.12.1988, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1988
Aramótamessur
ÁRBÆJARKIRKJA: Gamlársdag-
ur: Aftansöngur kl. 18.
Nýárdagur: Guðsþjónusta kl. 14.
Elín Ósk Óskarsdóttir syngur ein-
söng. Organleikari Jón Mýrdal. Sr.
Guðmundur Þorsteinsson.
ÁSKIRKJA: Gamlársdagur: Aftan-
söngur kl. 18. Einsöng syngur Eið-
ur Á. Gunnarsson. Sr. Árni Bergur
Sigurbjörnsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Gamlárs-
dagur: Aftansöngur kl. 18.00.
Nýársdagur: Hátíðarguðsþjónusta
kl. 14.
Þriðjudag 3. jan.: Bænaguðsþjón-
usta kl. 18.15. Organisti í guðs-
þjónustunum er Sigríður Jónsdótt-
ir. Sr. Gísli Jónasson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Gamlársdag-
ur: Aftansöngur kl. 18.00. Einar
Örn Einarsson syngur stólvers.
Organisti Guðni Þ. Guðmundsson.
Nýársdagur: Guðsþjónusta kl. 14.
Ásgeir B. Ellertsson læknir flytur
áramótahugleiðingu og Sigurjón
Guðmundsson syngur stólvers.
Organisti Guðni Þ. Guðmundsson.
Sr. Ólafur Skúlason.
DIGRANESPRESTAKALL: Gaml-
ársdagur: Aftansöngur í Kópa-
vogskirkju kl. 18. Sr. Þorbergur
Kristjánsson.
DÓMKIRKJAN: Gamlársdagur:
Aftansöngur kl. 18.00. Sr. Lárus
Halldórsson.
Nýársdagur: Hátíðarmessa kl. 11.
Sr. Hjalti Guðmundsson. Hátíðar-
messa kl. 14. Sr. Torfi Stefánsson
æskulýðsfulltrúi prédikar. Sr. Lár-
us Halldórsson. Dómkórinn syngur
við messurnar. Organleikari og
stjórnandi kórsins er Marteinn H.
Friðriksson.
HAFNARBÚÐIR: Áramótamessa
gamlársdag kl. 15.00. Orgelleikari
Birgir Ás Guðmundsson. Sr. Hjalti
Guðmundsson.
ELLIHEIMILIÐ Grund: Gamlárs-
dagur: Guðsþjónusta kl. 16. Sr.
Anders Josephsson.
Nýársdagur: Guðsþjónusta kl. 10.
Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson.
FELLA- og Hólakirkja: Gamlárs-
dagur: Aftansöngur kl. 18.00.
Prestur Hreinn Hjartarson. Organ-
isti Guðný Margrét Magnúsdóttir.
Nýársdagur: Hátíðarguðsþjónusta
kl. 14.00. Pres^ur Guðmundur Karl
Ágústsson. Organisti Guðný
Margrét Magnúsdóttir. Kór: Kirkju-
kór Fella- og Hólakirkju.
FRÍKIRKJAN í Reyjavík: Gamlárs-
kvöld kl. 18.00, aftansöngur.
Nýársdagur kl. 14.00, guðsþjón-
usta. Orgelleikari Pavel Smid. Sr.
Cecil Haraldsson.
FRÍKIRKJUFÓLK! Hátíðarmessa
kl. 18.00 á gamlárskvöld í Kvenna-
skólanum við Fríkirkjuveg. Flutt
verður klassísk messa. Ræðuefni:
Er allt nýtt undir sólunni? Ágústa
Ágústsdóttir, Hrönn Hafliðadóttir,
Viktor Guðlaugsson og Anders
Josephsson syngja. Söngstjóri:
Jónas Ingimundarson. Sr. Gunnar
Björnsson.
GRENSÁSKIRKJA: Gamlársdag-
ur: Aftansöngur kl. 18.00. Organ-
isti Árni Arinbjarnarson. Einsöng-
ur: Sigurður Björnsson. Sr. Halldór
S. Gröndal annast messuna.
Nýársdagur: Hátíðarmessa kl. 14.
Organisti Árni Arinbjarnason.
Hjálmtýr Hjálmtýsson syngur ein-
söng. Sr. Halldór S. Gröndal ann-
ast messuna. Prestarnir.
HALLGRÍMSKIRKJA: Gamlárs-
dagur: Aftansöngur kl. 18. Sr. Sig-
urður Pálsson.
Nýársdagur: Hátíðarguðsþjónusta
kl. 14. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 18 á
gamlársdag. Sr. Ragnar Fjalar Lár-
usson. Messa kl. 10 á nýársdag.
Sr. Jón Bjarman.
HÁTEIGSKIRKJA: Gamlársdagur:
Aftansöngur kl. 18.00. Sr. Tómas
Sveinsson.
Nýársdagur: Hámessa kl. 14.00.
Sr. Arngrímur Jónsson. Organleik-
ari Orthulf Prunner.
HJALLAPRESTAKALL f Kópavogi:
Aftansöngur gamlársdag kl. 18.00
í messuheimili Hjallasóknar, Digra-
nesskóla. Kór Hjallasóknar syngur.
Organisti Jakob Hallgrímsson. Sr.
Kristján E. Þorvarðarson.
KÁRSN ESPRESTAKALL: Hátíð-
arguðsþjónusta nýársdag í Kópa-
vogskirkju kl. 14. Heimir Pálsson,
forseti bæjarstjórnar Kópavogs,
prédikar. Sr. Árni Pálsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups: Gamlársdagur:
Þakkarguðsþjónusta kl. 18.00.
Garðar Cortes og kór Langholts-
kirkju flytja hátíðarsöngva sr.
Bjarna Þorsteinssonar. Organisti
Jón Stefánsson. Prestur Sigurður
Haukur Guðjónsson.
Nýársdagur: Hátíðarguðsþjónusta
kl. 14. Prédikun: Bjarni Eiríkur Sig-
urðsson skólastjóri. Garðar Cortes
og kór Langholtskirkju flytja hátíð-
arsöngva sr. Bjarna Þorsteinsson-
ar. Altarisþjónusta. Sr. Sigurður
Haukur Guðjónsson. Organisti Jón
Stefánsson. Sendum öllum hátí-
ðarkveðjur og blessunaróskir á
nýju ári. Sóknarnefndin.
LAUGARNESKIRKJA: Hátíðar-
guðsþjónusta nýársdag kl. 14.
Kristinn Sigmundsson óperu-
söngvari syngur einsöng. Fimmtu-
dag 5. jan.: Helgistund í hádeginu
kl. 12.10. Altarisganga, fyrirbænir.
Kl. 12.20 — Léttur hádegisverður
í safnaðarheimilinu. Sóknarprest-
ur.
NESKIRKJA: Gamlársdagur: Aft-
ansöngur kl. 18.00.
Nýársdagur: Guðsþjónusta kl.
14.00. Orgel- og kórstjórn Reynir
Jónasson. Prestarnir.
SEUAKIRKJA: Gamlársdagur:
Aftansöngur kl. 18.00. Hljómeyki
syngur. Kirkjukórinn syngur. Val-
geir Ástráðsson prédikar.
Nýársdagur: Guðsþjónusta kl. 14.
Kirkjukórinn syngur. Irma Sjöfn
Óskarsdóttir prédikar. Altaris-
ganga. Oranisti Kjartan Sigurjóns-
son. Sóknarprestur.
SELTJARNARNESKIRKJA: Gaml-
ársdagur: Aftansöngur kl. 18.00.
Organisti Sighvatur Jónasson.
Prestur sr. Guðmundur Örn Ragn-
arsson.
Nýársdagur: Hátíðarguðsþjónusta
kl. 14.00. Organisti Sighvatur Jón-
asson. Prestur sr. Solveig Lára
Guðmundsdóttir.
DÓMKIRKJA Krists konungs,
Landakoti: Gamlársdagur: Lág-
messa kl. 14. Þakkargjörðarmessa
fyrir liðið ár kl. 18. Messa á ensku
kl. 20.
Nýársdagur: Lágmessa kl. 8.30.
Hámessa kl. 10.30. Hámessa kl.
14.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Gaml-
ársdagur: Hámessa kl. 18. Nýár-
dagur: Hámessa kl. 14.
KIRKJA óháða safnaðarins: Aftan-
söngur gamlársdag kl. 18.00. Org-
anisti Jónas Þórir. Sr. Þorsteinn
Ragnarsson.
HVITASUNNUKIRKJAN Fila-
delfía: Hátíðarsamkoma nýársdag
kl. 16.30. Ljósbrot syngur. Ræðu-
maður Sam Glad.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Nýárs-
fagnaður kl. 16. Anne Marie F. og
Harold Reinholdtsen flokksforingj-
ar stjórna og tala.
MOSFELLSPRESTAKALL: Aftan-
söngur á Mosfelli gamlársdag kl.
18. Sr. Birgir Ásgeirsson.
GARÐAKIRKJA: Messa nýársdag
Áramót
Hann var maður ósköp blátt áfram, þessi blessaði Sókrates, en mikill sérvitringur.
Hann var sonur myndhöggvara, og hjó í æsku þokkagyðjurnar þijár; þá kastaði
hann frá sér tólunum, og sagðist heldur vilja móta sál sína en marmarann. Frá
þeirri stundu helgaði hann sannleiksleitinni líf sitt. Hann sást á æfingasvæðunum,
á torgunum og í leikhúsunum, þar sem hann ræddi við unga menn, listamenn og
heimspekinga, og spurði alla um rökin fyrir því, sem þeir staðhæfðu. Fyrir nokkr-
um árum höfðu sófístarnir setzt að í Aþenu eins og engisprettusveimur. Sófístinn
er eftirlíking og lifandi afneitun heimspekingsins, rétt eins og lýðskrumarinn er
eftirlíking stjómmálamannsins, hræsnarinn eftirlíking prestsins og sá er iðkar svartagaldur djöfulleg
eftirlíking þess, sem í sannleika er innvígður. Gríska gerðin af sófístum er ísmeygilegri, gefnari fyrir
hártoganir, skarpari en aðrar; en manngerðin er einkenni allra menninga á hnignunarskeiði. Þar er
urmull af sófístum af sömu orsakanauðsyn eins og af ormum í rotnandi líkama. Hvort sem sófístam-
ir kalla sig guðleysingja, lögleysingja eða svartsýnismenn, þá eru þeir sjálfum sér líkir á öllum öldum.
Þeir afneita jafnan guði og sálinni; þ.e. æðsta sannleik og hinu æðsta lífi. Sófístamir á tímum Sókrat-
esar, eins og Gorgías, Prodikus og Prótagóras, sögðu að enginn munur væri á sannleik og villu^
Þeir gortuðu af því að geta sann-
að hvaða hugmynd sem var og
einnig andstæðu hennar, og full-
yrtu að ekkert réttlæti væri til
annað en valdið, enginn sann-
leikur annar en persónuleg skoð-
un. Þar fyrir utan vora þeir án-
ægðir með sjálfa sig, hóglífs-
menn, er seldu hveija stund
dýra verði; þeir hvöttu Tinga
menn til munaðarlífis, lauslætis
og harðýðgi."
Hugsi nú hver fyrir sig — en
vilji einhver lesa áfram, þá flet-
tið upp á bls. 322 í bókinni
Vígðir meistarar eftir Edouard
Schuré, sem prófessor Bjöm
Magnússon íslenskaði og bókaforlag Odds Bjömssonar gaf út árið 1958 og löngu er orðið tímabært
að endurútgefa.
Um áramót verður okkur litið yfir farinn veg og það er okkur ljúft að skyggnast aftur til þeirra,
sem lögðu granninn að því, sem við stöndum á, og leiða hugann að því, hvernig okkur hefur farnast við
að byggja ofan á. Þá er það, hvort ekki rennur upp fyrir okkur, að þeir, sem lögðu undirstöðumar
á bjargið, höfðu líka reist húsið, en við aðeins verið í viðhaldinu.
I pælingum áramótanna er gott að hreiðra um sig í homi með kex og grænmeti og ljúffenga ídýfu
— það hjálpar.
Gleðilegt nýár.
Ýmislegt er notað sem snarlmatur. Að mínu mati er best að nota alls konar hrátt grænmeti. Það
er hægt að skera allavega til, leggja í kalt vatn í k.æliskápinn, þerra lauslega með eldhúspappír og
bera með ídýfum. Hægt er að skera þetta grænmeti til og láta það stirðna og snúa upp á sig í vatninu,
en pláss mitt í blaðinu leyfir ekki að ég fari út í þá sálma að þessu sinni.
Það grænmeti, sem best hentar með ídýíum, er: Radísur, kínahreðka, þunnt skomar rófusneiðar,
gulrætur skomar langsum með kartöfluhníf eða skomar í stafí, gulrótarstafir, sellerístönglar, gúrka
skorin í stafí, ferskir sveppir og svo mætti lengi telja, jafnvel má nota soðnar belgbaunir eða snjóbaun-
ir, sem eru kældar áður en þær era bomar fram. Ekki þarf heldur alltaf að kaupa tilbúinn snarlmat
í pökkum, við getum skorið brauð í stafí og þurrkað í bakaraofninum við lítinn hita.
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
Uppáhalds ídýfan mín
1 dós sýrður ijómi
1 msk. olíusósa (mayonnaise)
1-2 hvítlauksgeirar
1 msk. karrý
6 dropar tabaskósósa
nýmalaður pipar
salt milli fingurgómanna
1. Setjið sýrðan ijóma og olíu-
sósu í skál.
2. Afhýðið hvítlaukinn, meijið
síðan í pressu eða með hnífsoddi.
Setjið út í.
3. Setjið karrý, tabaskósósu,
pipar og salt út í. Hrærið vel sam-
an.
4. Látið ídýfuna standa í minnst
1 klst. í kæliskáp áður en hún er
borin fram.
Athugið: Þessi ídýfa hentar
sérstaklega vel með grænmeti.
ídýfa með rækjum
200 g rækjur
100 g ijómaostur án bragðefna
1 dós sýrður rjómi
2 tsk. engiferduft
1 tsk. sítrónusafi
nýmalaður pipar
salt milli fingurgómanna
2 tsk. þurrkaður graslaukur
1. Þíðið rækjurnar í kæliskáp.
Setjið síðan á sigti og látið renna
af þeim.
2. Blandið saman sýrðum ijóma
og ijómaosti. Hrærið í með gaffli
og látið blandast vel saman.
3. Setjið sítrónusafa, engifer-
duft, pipar og salt út í. Hrærið
vel saman.
4. Skerið rækjumar í litla bita
og setjið út í.
5. Setjið í skál, stráið graslauk
yfír.