Morgunblaðið - 31.12.1988, Page 41

Morgunblaðið - 31.12.1988, Page 41
___________MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1988 _ Jólatrésskemmtun fyrir rúmri öld eftir Pétur Pétursson Stundum hefði ég látið þau orð falla við góðkunningja og vini, að afkomendum Bemhöftsættar beri sérstök heiðursverðlaun og sæmd- arheiti vegna geðprýði og góðvild- ar. Það bregst ekki, ef einhver ættingi þeirra verður á vegi manns, hvort sem er í göngugötu, býti- búri, veitingasal, skrifstofu eða verslun, hvarvetna er glettni, bros og hógvær gamansemi, sem stund- um getur þó þróast í skellihlátur með bakföllum og bergmáli, ef því er að skipta. Þetta gildir jafnt um bæði kyn. Snyrtimennska, mat- gerðarlist (og matarleysi), söngv- ísi, frásagnargleði og lífsgleði ein- kennir margt af því fólki. í skólaljóðum og hetjusöngvum er sungið um landnema og hetjur af konungakyni. Um það er gott eitt að segja. En það er einnig fagnaðarefni að hingað norður í myrkur og fásinni skuli hafa leitað flokkur manna, sem hefir kryddað tilveru heldur hnípinnar þjóðar með suðrænni hlýju í skaphöfn og léttri lund og jákvæðu lífsviðhorfi. Helgi Hjörvar var stundum stór- orður og hvatvís í dómum sínum um menn og málefni. Þótti ýmsum orka tvímælis um dómsorð hans og niðurstöðu. Enginn deildi þó við Helga um þann dóm hans, að Jón bóndi Eiríksson í Skeiðháholti væri göfugmenni. Jón var kominn af ætt Bemhöfts bakara. Ljós yfirlit- um og mildur í framkomu, hæ- verskur í háttsemi. Ekki er þörf á fleiri formálsorð- um með frásögn þeirri er hér birt- ist af jólahaldi og jólagleði fyrir rúmum hundrað árum. Vilhjálmur Þ. Gíslason skóla- stjóri Verslunarskólans var mikill áhugamaður um sögu Reykjavíkur. Jafnframt skólastjóm sinni og rit- störfum hafði hann með höndum stjóm útvarpsþátta og kom þar víða við sögu. Era þau störf hans flestum enn í fersku minni; bóka- þættir, annáll ársins á gamlárs- kvöld og viðtöl við ýmsa borgara. Vilhjálmur var útvarpsstjóri frá árinu 1953 til 1968. í samtali sem hann átti við frú Francisku Olsen era sóttar frásagnir hennar um bæjarbrag og jólaskemmtanir Reykvíkinga fyrir rösklega hundr- að áram. „Heimili okkar var indælt heim- ili. Við voram 9 systkini. Það var oft glatt á hjalla heima. Sérlega á jólunum var alltaf eitthvað meira en venjulega eins og var hjá flest- um. Þá fengum við alltaf að bjóða bömum til okkar bæði telpum og drengjum. Við fengum jólatré frá bróður móður minnar og margt fallegt til að hengja á jólatré. Var það geymt þangað til á aðfanga- dagskvöld, þá kom eldri dama, sem hét fröken Maria Thomsen og puntaði jólatréð. Krakkamir vora voða forvitnir að líta í gegnum skráargatið, hvort ekki væri hægt, að sjá neitt, en það var troðið upp í skráargatið, því enginn mátti sjá jólatréð fyrr en á aðfangadags- kvöldið. Síðan var kveikt á því og inn komum við öll. Þar var margt fagurt að sjá því að það var svo margt fallegt frá útlandinu sem okkur var sent. Síðan var sungið og gengið kringum jólatréð, eins og gengur og gerist en þegar það var á enda þá fengum við hjá móður okkar 2 krónur hvert okkar í jólagjöf. Það þótti nú mikið í þá daga að fá 2 krónur. Þá var siður að spila púkk, lotterí eða þá hálf- tólf. Svo fengum við skipt þessum tveimur krónum í smærri peninga til að fara að spila. Þegar við höfð- um spilað svona þrisvar sinnum fannst okkur við vera farin að tapa. Svo tókum við báðum höndum um borðið og sögðum: Við ætlum nú ekki að vera með núna, til að tapa ekki öllum aurunum. Við voram alltaf boðin á indæl heimili einu sinni á vetri á bama- böll. Svo var aftur boðið heim til okkar. Eitt var svo einkennilegt sem ég held að ekki tíðkist nú. Móðir okkar hafði alltaf afbrennt rauðvín. Það var stór tarína og í tarínunni var rauðvín. Eg held að það hafi kostað 50 aura potturinn í þá daga af rauðvíninu. Síðan var látið kramarhús með spíritus ofan á þetta rauðvín í tarínunni og síðan var kveikt í því til þess að það færi úr því allt sem hét alkohól. Svo fengum við að drekka úr þessu alveg eins og við vildum úr litlum glösum, en svolitlu vatni var bætt í. Og af þessu hafði enginn illt. Þá var nú ekki til hvorki Coca Cola og heldur ekki til límonaði. Það var afskaplega skemmtilegt á Hótel íslandi. Þar voru líka alltaf böll. Þangað fengu ekki að koma nema verslunarmenn. Það var ekki um það að tala. Þar var dansað og skemmt sér og mikið sungið. Á jólunum var alltaf eitthvað extra haft. Þar var það sem við köllum coutilionslauffur. Það var nú held- ur spenningur í ungu piltunum og ungu stúlkunum þegar slauffurnar komu inn því að það var raðað, fyrst dömurnar og .herrarnir, og síðan var gengið með þennan púða og svo mátti hver dama taka eina slauffu, hún var hvít og rauð, en handa herranum blá og rauð. Og svo var maður nú spenntur hvort maður fékk margar slauffur í barminn, eða enga. Svo var farið að dansa og það var alltaf siður að hafa þrjá túra í hveijum dansi. Sá sem færði upp ballið með dö- muna sína hann byijaði alltaf fyrst að dansa. Svo var alltaf sagt: Eig- um við að fara í... Við skulum hafa blómin. Við skulum hafa spegilinn. Við skulum hafa, eitt- hvað svona annað. Og þetta gekk svo vel. Okkur þótti svo lifandi ósköp gaman að þessu. Þá var maður nú ungur og kátur og fjör- ugur. Þá spilaði alltaf frú Anna Petersen ein, alla nóttina á hljóð- færið og þótti nú ágætt að dansa eftir því.“ Um klúbba í Reykjavík „Starfandi var klúbbur á þessum áram. Sumir kölluðu hann Reykjavíkurklúbbinn, en aðrir Broddaklúbbinn. Móðir mín var í þessum Brodda- klúbbi. Svo var þar einu sinni jóla- ball. Þá var ég ekki nema eitthvað 12 ára gömul. Þá fengum við að fara Wilhelm, Mína og ég á ballið. Og móðir okkar. Allar mæður með börnum sínum. Við fengum náttúr- lega súkkulaði og allt sem er nú enn í dag á þessum böllum. Það var reglulega fullkomið allt saman. Síðan var farið að dansa og skemmta sér. Þetta held ég hafi verið á Hótel Alexandra. Mig minnir að hann hafi heitið Jespersen þessi vert sem var þar. Það var allt ágætt þar. Svo fréttum við það — það kvisaðist eiginlega, — að við ættum kannske að fá að vera til klukkan þijú, en annars var talað um það þegar að heiman var farið að fara klukkan tólf heim. Þetta var nú allt indælt. En svo allt í einu standa allar gömlu mæðurnar upp, út í hom fara þær allar til að halda fund. Og við vorum nú heldur spennt. Wilhelm bróðir segir: Held- urðu ekki við fáum að vera, Sissa. Ég held þær séu að tala um að við fáum að vera lengur. Og þá koma þær allar úr hominu, þær sem vora búnar að halda fund, gömlu konum- ar, og fara til allra bama sinna, hver fyrir sig og segja: „Þið megið Hótel Alex- andra í Hafiiar- stræti 16. Martin Smith kons- úllog Andreas Je- spersen veitinga- maður standa við anddyri hót- elsins. í þessum húsakynn- um var jóla- trésskemmt- unin haldin. Börnin fengu að veratilkl. 3. Bemhöftssystkin: sitjandi: Franciska Olsen, María Hansen, Vilhelmina Bemhöft, Luc- inda. Standandi: Vilhelm Bernhöft tannlæknir, Daniel Bemhöft bakari. Þrír bræður fóra til Ameríku. 41 Jóhanne Bernhöft, móðir Bera- höftssystkinanna. vera til þijú. Þið megið vera til þrjú.“ Og það var svo mikil lukka að ég gleymi aldrei því balli á með- an ég lifi.“ Reykjavikurblöðin ísafold og Þjóðólfur geta frú Jóhönnu Bem- höft bæði lofsamlega er hún lést rúmlega sextug að aldri í júnímán- uði 1898. ísafold segir: „Hún var merk kona og vönduð, ráðdeildar- og atorkusöm. Hún var eigandi elstu bakaraiðnarinnar hér í bænum og stjómaði henni mörg ár, að tengdaföður sínum látnum er var stofnandi brauðgerðarinnar og lést í hárri elli. Maður hennar var látinn löngu á undan henni. Þeim hjónum varð 9 bama auðið, er öll era á lífi, 4 erlendis, 3 synir í Ameríku og 1 dóttir í Danmörku gift, og 5 hér, María Hansen, gift Ludvig Hansen verslunarstjóra, Franciska Olsen, gift Guðmundi Olsen kaupmanni, Vilhelmina, ógift, Daníel bakari og Vilhelm cand med & chir, tannlækn- ir.“ Þjóðólfur segir: „ ... umhyggju- söm móðir, trygglynd og hjarta- góð.“ „Rak bakarí hér í bæ í félagi við son sinn með miklum dugnaði." Hótel Alexandra var til húsa í Hafnarstræti 16. Þar heitir Jóska húsið. í Þjóðólfi er sagt frá þvi síðla árs 1880 að „herra Consul M. Smith hafi keypt húseign í Strandgötunni og látið byggja ofan á aðalhúsið, svo það er nú tvíloptað: er það ætlað til gistinga- og veitingahúss." Svo er lokið lofsorði á Smith fyrir smekkvísi og sagt að hótelið verði „full-sómasamlegt, enda fyrir út- lend stórmenni, og má fullyrða, að hér í bæ hefir ekki fyrr sést veit- ingastaður jafn fagur og þægilega útbúinn sem þessi“. í þessum húsakynnum fór jóla- trésskemmtunin fram, sú er Franc- iska Olsen sótti með móður sinni og systkinum. Á æskuheimili Bernhöftssystkina var aðallega töluð danska. Af frá- sögn Daníels Bemhöfts má þó sjá að hann hefir kosið íslensku. Mun sú tunga hafa verið þeim systkinum mismunandi munntöm. Föll og beygingar ekki ævinlega hljómað samkvæmt ströngustu reglum. Aldraðir Reykvíkingar kunnu sögur af samdrætti þeirra Maríu Bemhöft og Ludvigs Hansens er þau vora 5 tilhugalífi. Sagt var að systumar, Lucinda er giftist dönskum kaup- manni frá Slagelse, og María, hafi setið við glugga er Hansen gekk þar hjá. Þá bendir Lucinda út um gluggann og segir: Þarna er nú mannsefnið þitt, María. María ans- aði að bragði: Ó, það vildi ég hann Hansen kom og á mig. Af Bernhöftsfólki má nefna bræðurna Guido og Sverri, stór- kaupmenn, Ludvig Hjálmtýsson fv. ferðamálastjóra, Sigrúnu Hjálmtýs- dóttur (Diddú) söngkonu, Hjálmtý Heiðdal auglýsingamann, Hönnu Ásgeirsdóttur, sjúkraþjálfara, Vil- hjálm Sigtryggsson skógræktar- mann, auk fjölda annarra búsettra hérlendis og austan hafs og vestan. Höfundur er þulur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.