Morgunblaðið - 10.01.1989, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1989
GYM 4 SETT - Vinsamlegast
sendið mér í póstkröfu
ORUGGUR ARANGUR
TILBOÐ
GYM 4 SETT
Öflugur pressubekkur
meðfótatæki - lyftingasett
70kg - krómstangir og
mittisbekkur.
Frískandi verslun
Ný, frískandi verslun
Skeifunni 19-108 Reykjavík
Sími 681717
1 Nafn
Heimilisfang
- Staður Sími
Jon Vickers og Shirley Verrett í hlutverkum Samsonar og Dalilu í
uppfærslu Covent Garden frá árinu 1981 sem Styrktarfélag íslensku
óperunnar sýnir í kvöld, þriðjudag.
Samson et Dalila
eftír Saint-Saens í
Islensku óperunni
eftir Grétar ívarsson
Styrktarfélag Islensku Óperunn-
ar sýnir af myndbandi óperuna
Samson et Dalila eftir Camille
Saint-Saéns í kvöld, þriðjudaginn
10. janúar kl. 20.00 í Gamla bíói.
Sýningin er upptaka frá Covent
Garden í Lundúnum frá árinu 1981.
Með helstu hlutverk fara Jon Vic-
kers (Samson), Shirley Verrett
(Dalila) og Jonathan Summers
(æðsti prestur). Stjómandi er Colin
Davis.
Saint-Saens og Samson
et Dalila
Franska tónskáldið Camille
Saint-Saéns (1835—1921) samdi
alls 12 óperur á löngum og afkast-
amiklum ferli. Ólíkt flestum öðrum
frönskum tónskáldum hafði hann
mestan áhuga á að semja hljóð-
færatónlist og stuðlaði þannig að
endurvakningu þeirrar listar í
Frakklandi. Hann þótti snemma
efnilegt tónskáld og hafði samið
sinfóníu, píanókonsert, fíðlukonsert
og píanókvintett fyrir 25 ára aldur.
Síðar samdi hann sinfónísk Ijóð og
óratoríur en fyrsta óperan hans,
La Príncesse jaune, var frumflutt
árið 1872. Ekki fara miklar sögur
af velgengni hennar né annarra
ópera Saint-Saéns, að Samson et
Dalila undanskilinni. Hún var sú
þriðja í röðinni og var frumflutt 2.
desember 1877 í Weimar fyrir til-
stuðlan Franz Liszt.
Upphaflega mun Saint-Saéns
hafa ætlað Samson et Dalila að
vera óratoría en verkið er byggt á
16. kafla Dómarabókarinnar. Hug-
mynd frá textahöfundinum Ferdin-
and Lemaire, sem einnig rejmdist
vera fjarskyldur ættingi og minni-
háttar tónskáld, fékk Saint-Saéns
til að breyta um skoðun og semja
óperu. Enn eimir þó eftir af órat-
oríu- hugmyndinni í Samson et
Dalila og þá sérstaklega í söng
hinna undirokuðu ísraelsmanna.
Fílisteamir syngja hins vegar meira
í venjulegum óperustíl, þannig að
það eru ekki einungis trúflokkar
sem takast á í Samson et Dalila,
heldur einnig ópera og- óratoría.
Sending frá
LouisFéraud PARIS * ^TÍZKAN Laugavegi71 M hæö Simi 10770