Morgunblaðið - 10.01.1989, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1989
47
Sembaltónleikar í
Norræna húsinu
Sinfóníuhljómsveit ís-
lands heimsækir skólana
FYRSTU háskólatónleikar vor-
misseris verða haldnir i Norr-
æna húsinu miðvikudaginn 11.
janúar og heQast kl. 12.30. Á
tónleikunum mun Robyn Koh
semballeikari leika verk eftir
Couperin, Purcell, Froberge og
Rameau.
í fréttatilkynningu frá tónleika-
nefnd Háskólans segir m.a. að
Robyn Koh hafði fæðst í Malasýu
og hafíð píanónám 6 ára að aldri.
Hún fluttist til Englands árið 1976
og lærði þar í Chethams School of
Music, Royal Academi of Music og
Royal Northem College of Music.
Hún hefur komið fram sem einleik-
UWE Eschner mun halda ein-
leikstónleika á gítar í Norræna
húsinu miðvikudaginn 11. jan-
úar og liefjast tónleikarnir kl.
20.30.
Listamaðurinn Uwe Eschner er
fæddur í Hamborg árið 1963.
Hann hóf sjálfsnám á gítar 11 ára
gamall en að loknu stúdentsprófi
árið 1982 stundaði hann nám við
Hamburger Konservatorium og
lærði hjá Peter John McAven upp
úr 1983.
Haustið 1985 fékk hann inn-
göngu í tónlistarháskólann í Frei-
ari og með öðrum við margvísleg
tækifæri í Englandi, Frakklandi,
Malasíu, Sovétríkjunum og víðar.
Meðal kennara hennar hafa ver-
ið Ryszard Bakst, Hamish Milne,
David Mason, George Hadjinikos
og á sembal, Virgina Black og
David Roblou. Robin er nemandi
Kenneth Gilbert í Mozarteum, Salz-
burg og kennari við Söngskólann
í Reykjavík og Tónskóla Sigur-
sveins.
Um tónskáldin segir m.a: Louis
Couperin er talinn fyrstur tón-
skálda til að ná valdi á hinum þrem-
ur ”nýju“ hljómborðstegundum, þ.e
. ítölskum tokkötum, hefðbundnum
dansþáttum svítunnar og fjölradda
burg í S—Þýskalandi og mun út-
skrifast þaðan á næstu mánuðum.
Kennari hans þar er Sonja Prunn-
bauer. Að auki hefur Uwe sótt
námskeið hjá D. Kreidler, Roberto
Aussel og David Russel. Hann
hefur leikið í Þýskalandi, Sviss og
á Italíu auk þess sem hann hélt
tónleika í Listasafni Siguijóns Ól-
afssonar í desember sl. og í Sel-
fosskirkju þann 7. þ.m.
Á efnisskrá á miðvikudagskvöld
verða verk eftir J.S. Bach, Leo
Brouwer, F. Martin, A. Lauro og
Heitor Villa-Lobos.
Robyn Kohn
fantasíum. Hann dó ungur en skildi
eftir sig yfír tvöhundruð verk fýrir
orgel og sembal.
Henry Purcell er eitt af fremstu
tónskáldum Englendinga fyrr og
síðar. Hann er best þekktur fyrir
óperur og hljómsveitartónlist sína
og var undir sterkum áhrifum af
frönskum stfl. Hljómborðssvítur
hans eru átta.
Johann Jacob Froberger var á
sínum tíma einn víðförlasti tónlist-
armaður Evrópu og viðurkenndur
sem "skapari hljómborðssvítunn-
ar“. E-moll svítan samanstendur
af þeim fjórum dansþáttum sem
fljótlega urðu uppistaðan í svítum
almennt, en ólíkt t.d. svítum Bachs
sem enda á líflegum Gigue-þætti,
endar hún á Sarabande.
Jean-Philippe Rameau var mesta
tónskáld 18. aldar Frakklands og
mikill tónfærðingur. Hjá honum rís
frönsk semballtónlist einna hæst
og koma þar saman fjölbreyttar
hefðir fyrirrennara frá Chamb-
ponni’eres til Franqois Couperin.
Sinfóníuhljómsveit íslands
heldur tónleika í nokkrum
grunnskólum á Reykjavíkur-
svæðinu dagana 10.—13. janúar.
Leikin verða verk eftir Bizet,
Britten og Prokofíev. Hljómsveit-
arstjóri er Bretinn Anthony Hose,
sem starfað hefur mikið hérlendis
undanfarin misseri með Sinfóníu-
hljómsveitinni og íslensku ópe-
runni.
Þriðjudaginn 10. janúar verða
Samhjálp
gegn sifja-
spellum
Vinnuhópur gegn sifjaspellum
hefúr látið gera barmmerki sem
selt verður til að fjármagna
kynningu á starfsemi hópsins.
Merkið hannaði Guðný Svava
Guðjónsdóttir, myndlistamemi, og
ber það kjörorðin „samhjálp gegn
sifjaspellum". Með frétt Morgun-
blaðsins sl. laugardag af fjáröflun
þessari birtist röng útfærsla barm-
merkisins, en hér fylgir hin rétta
útfærsla.
tónleikar í Breiðholtsskóla, mið-
vikudaginn 11. janúar verða tón-
leikar í íþróttahúsinu í Garðabæ,
fimmtudaginn 12. janúar verða
tónleikar í Hvassaleitisskóla og
föstudaginn 13. janúar verða tón-
leikar í Árbæjarskóla.
Tónleikarnir hefjast allir kl.
10.00 árdegis og hafa nemendur
verið undirbúnir fyrir komu hljóm-
sveitarinnar.
Tónleikar
í safhaðar-
heimili Akra-
neskirkju
TÓNLEIKAR verða haldnir í
safíiaðarheimili Akraneskirkju
miðvikudagskvöldið 11. janúar
kl. 20.30.
Gunnar Guðbjörnsson tenór-
söngvari og Jónas Ingimundarson
píanóleikari flytja þá fjölbreytta
efnisskrá. Sönglög eftir franska -
tónskáldið C. Gounod, þann sama
og samdi óperuna Fást. Hann var
mjög afkastamikill sönglagahöf-
undur og em fimm þeirra flutt nú.
Á efnisskránni em tveir laga-
flokkar. Ljóðasveigur op. 24 eftir
R. Schumann við texta eftir H.
Heine. Þessi fagri flokkur hefur
ekki oft heyrst hér á landi og gegn-
ir það nokkurri furðu. Lög Beetho-
vens An die feme geliebte, em í
hópi hans vinsælustu og trúlega
mest fluttu verka. Tónleikunum
lýkur á nokkmm alþekktum lögum,
sænskum og íslenskum.
Gítartónleikar í
Norræna húsinu
• Hreinsiefni • Pappír • Vélar • Ahöld • Einnota vörur • Vinnufatnaður • Ráðgjöf • O.fl. o.fl.