Morgunblaðið - 10.01.1989, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1989
35
Sigurður Sigurðs-
son — Minning
Fæddur 20. apríl 1954
Dáinn 29. desember 1988
Þegar mér barst sú sorgarfrétt
að Siggi væri látinn varð ég algjör-
lega agndofa. Ég og vinnufélagar
mínir viljum minnast hans með
nokkrum orðum. Siggi var að vinna
með okkur hjá Sólningu í Kópa-
vogi. Hann var alltaf hjá okkur á
haustin við að negla hjólbarða, og
kölluðum við hann alltaf Sigga yfir-
neglara.
Hann var elskulegur, lífsglaður
ogmjögvingjamlegur, félagslyndur
og fullur af áhuga á því sem hann
tók sér fyrir hendur.
Ég man alltaf eftir einu atviki
sem gerðist þegar hann var að
negla. Þá sagði hann við mig:
Heyrðu Bjami, á ég ekkert að negla
í dag? Jú, jú, svaraði ég. Ég fór inn
á lager og náði í þijátíu hjólbarða
sem ég staflaði upp, fyrir aftan
hann. Viti menn, þegar Siggi var á
vélinni hrundi stæðan yfir hann,
hann kom til mín alveg óður og
sagði: Þú ert stórhættulegur, en á
sömu stundu sneri hann sér að mér
brosandi og sagði: Komdu félagi,
við skulum fá okkur góðan
smóktíma.
Við vinnufélagar Sigga kveðjum
hann með söknuði. Fæmm móður
hans, börnum og öðm venslafólki
innilegar samúðarkveðjur.
Bjarni Magnússon
stundaði Sigurður ýmis störf sem
unglingur og ungur maður, var
m.a. til sjós. Hann var mjög laginn
við allar viðgerðir á vélum og árið
1982 hóf hann störf hjá Kirkjugörð-
um Reykjavíkur og annaðist við-
gerðir og viðhald á sláttuvélum.
Arið 1985 tók hann þá ákvörðun
að nýta reynslu sína og stofna eig-
ið verkstæði sem hann og gerði,
og nefndi fyrirtækið Amboð. Tók
hann að sér viðgerðir á sláttuvélum,
rafstöðvum o.fl. Einnig tók hann
að flytja inn ýmis tæki og áhöld
sem viðkoma skógrækt og gegndi
hann því starfi til dauðadags.
Tvítugur að aldri kvæntist Sig-
urður Lindu Ingvadót.tur, en síðar
skildu leiðir þeirra. Þau áttu saman
tvö böm, Sigurpál, fæddan þ.
25.10.75 og Sigurbjörgu, fædda þ.
26.02.81. Unnustu eignaðist Sig-
urður er hann var tæplega þrítugur
að aldri, Björgu Rúnarsdóttur, og
áttu þau eitt barn, Maríu Kolbrúnu,
fædda þ. 26.07.83. Leiðir þeirra
Sigurðar og Bjargar skildu fyrir
tveimur ámm.
Það er erfitt að sætta sig við
þegar svo ungur maður og góður
vinur, sem Siggi var, kveður svo
skyndilega. Það er sárt að missa
svo vænan og blíðan dreng sem svo
gott var að leita til, bæði í sorg og
gamni. Siggi var mikill vinur vina
sinna og vildi allt fyrir þá gera og
lét ekki sitja við orðin tóm, heldur
sýndi það í verki. Ávallt var hann
hress og skemmtilegur og hafði
næmt auga fyrir skoplegum hliðum
hlutanna. Sá eiginleiki er okkur
mönnunum mikilsverður og alltaf
var Siggi boðinn og búinn til að
létta undir með öðmm að því leyti
sem og að öðm.
Með þessum fáu orðum viljum
við kveðja okkar kæra vin sem nú
er lagður af stað í ferðalagið mikla
sem fyrir okkur öllum liggur og
biðjum Guð að gefa honum góða
heimkomu í landi ljóss og friðar.
Við vottum unnustu hans, Emu
M. Viggósdóttur, börnum og öðmm
ástvinum innilega samúð. Minning-
in um Sigga okkar mun ætíð lifa í
hugum okkar.
Sævar Egilsson og Ingibjörg
Jafetsdóttir.
SKAJTHLUTMLL OG
PERSÓNUAFSIÁTTUR
Hinn 29. desember síðastliðinn
lést Sigurður Sigurðsson, sem bú-
settur var hér í Reykjavík.
Sigurður var sonur hjónanna
Svanhildar Siguijónsdóttur og Sig-
urðar Siguijónssonar. Þau hjónin
áttu fjóra drengi og var Sigurður
þeirra yngstur. Hann eignaðist
síðan litla systur sem honum þótti
aftur vænt um og undi sér löngum
við að gæta hennar og aka út um
allan bæ í kermnni hennar.
Að loknu skólanámi í Reykjavík
Borgarnes:
Verkalýðs
félögin með
kynfræðslu
Verkalýðsfélag Borgarness og
Verslunarmannafélag Borgar-
ness halda námskeið undir heit-
inu „Kynfræðsla í dag“, laugar-
daginn 14. janúar, í Snorrabúð.
Stéttarfélögin í Borgarnesi hafa
á liðnum ámm haldið mörg nám-
skeið um ólík efni og hefur þátttaka
yfirleitt verið góð. Aðstaða til
fræðslustarfs í Snorrabúð er ágæt
en þar em stéttarfélögin til húsa.
Námskeiðið Kynfræðsla í dag er
haldið í samvinnu við Menningar-
og fræðslusamband alþýðu og Kyn-
fræðsluná. Leiðbeinandi verður
Jóna Ingibjörg Jónsdóttir hjúkmn-
arfræðingur og kynfræðingur, en
hún stundaði einmitt framhaldsnám
í Bandaríkjunum um kynfræðslu.
Hún hefur haldið mörg námskeið
og fyrirlestra að undanfömu fyrir
almenning og starfsfólk heilbrigðis-
stétta.
Þetta er í fyrsta sinn sem verka-
lýðsfélög bjóða félagsmönnum
sínum fræðslu um kynlíf og er það
dæmi um opnari og meiri umræðu
um þessi mál í sinni tíð. Aðaltil-
gangur námskeiðsins er að eyða
fordómum og vanþekkingu í kyn-
ferðismálum og fræða um vanda-
mál á þessu sviði.
Námskeiðið hefst kl. 9.00 og lýk-
ur um kl. 18.00 og verður haldið í
Snorrabúð, Gunnlaugsgötu 1, Borg-
amesi. Þátttakendur þurfa að skrá
sig á skrifstofu Verkalýðsfélags
Borgarness.
ÁRÐ 1989
Breyting á almennu skatthlutfalli og persónuafslætti hefur ekki í för meö sér aö ný
skattkort verði gefin út til þeirra sem þegar hafa fengið skattkort. Launagreiöanda ber
hins vegar að nota ofangreint skatthlutfall og upphæö persónuafsláttar ?
við útreikning staögreiðslu.
Veita skal launamanni persónuafslátt í samræmi við það hlutfall persónuafsláttar sem
fram kemur á skattkorti hans.
@
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
(Fréttatilkynning)