Morgunblaðið - 24.02.1989, Qupperneq 1
64 SIÐUR B/C
11
STOFNAÐ 1913
46. tbl. 77. árg.
FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Krafa, Grænlendinga:
Norðmenn -
hætti þegar
selveiðum
Kaupmannahöfn. Frá N.J. Bruun, frétta-
ritara Morgunblaðsins.
LEIÐTOGAR stjómmálaflokka á
Grænlandi hafa fordæmt þær að-
ferðir við selveiðar sem sýndar
eru í hinni umdeildu sjónvarps-
mynd, er byggist á myndböndum
Odds Lindbergs. Formaður land-
stjóraarinnar, Jonathan Motzfeldt
úr Siumut-flokknum, segir að
þetta sé svo alvarlegt mál fyrir
Grænlendinga að hann muni segja
norsku fúlltrúunum á væntanleg-
um fúndi Norðurlandaráðs í
Stokkhólmi að Grænlendingar
geti ekki sætt sig við slíkar veiði-
aðferðir.
Talsmenn hins stjómarflokksins,
Atassuts, kreflast þess að selveiðam-
ar milli Jan Mayen og Austur-
Grænlands verði tafarlaust stöðvað-
ar. Hefur flokkurinn hrundið af stað
undirskriftasöfnun gegn veiðunum í
bæjum og byggðum Grænlands og
segir Norðmenn kvelja dýrin með
veiðiaðferðum sínum. Formaður
flokksins, Otto Steenholdt, hefur
beðið danska utanríkisráðuneytið að
koma mótmælum flokksins á fram-
færi við norsk yfirvöld.
Arqaluk Lynge, formaður róttæka
vinstrisinnaflokksins Inuit Ataqatigi-
it, hefur lagt til að rætt verði um
selskinnaútflutning Grænlendinga
samhliða viðræðum um sjávarút-
vegsmál við Evrópubandalagið (EB).
Grænlendingar selja eingöngu skinn
af fullvöxnum selum og krefst Lynge
þess að þeir fái einir leyfi til að selja
selskinn til EB-landa. Einn af þing-
mönnum flokksins, Jens Geisler, seg-
ir veiðiaðferðir Norðmanna grimmd-
arlegar og þær séu í andstöðu við
grænlenskar veiðihefðir og menning-
ararf.
Samtök grænlenskra veiðimanna
hafa tekið undir gagnrýnina á Norð-
menn. Óttast samtökin og græn-
lenska landstjómin að veiðar Norð-
manna muni skaða selveiðar og
skinnasölu Grænlendinga.
Morgunblaðið/Vincent Mouchel
*
Islendingar leika til úrslita
íslendingar sigruðu Hollendinga, 31:17, í B-keppninni í handknattleik í Strasbourg í gærkvöldi.
Sá sigur, og jafntefli Rúmena og Svisslendinga í næsta leik, tryggði íslendingum efsta sætið í
milliriðlinum og úrslitaleik gegn Pólveijum í París á sunnudaginn. Búist er við að á annað hundr-
að íslendingar fari til Parísar, gagngert til að sjá úrslitaleikinn. Á myndinni fagna Ilrafn Mar-
geirsson, Guðmundur Guðmundsson og Guðmundur Hrafnkelsson. Sjá íþróttir bls. 42 og 43.
Hvetja til
stofiiunar
ungverskrar
Samstöðu
Búdapest. Reuter.
NOKKRIR tugir ungverskra
verkamanna hafa dreift 90 þús-
und flugritum þar sem boðaður
er stoftifúndur sjálfstæðs, ung-
versks verkalýðssambands í
likingu við Samstöðu í Póllandi.
Fundurinn verður á laugardag.
Farið er hörðum orðum um
stjómarfar kommúnista í flugritinu.
„Valdhafinn í landi okkar, sem
nefnt hefur sig Hinn sósíalíska
verkamannaflokk Ungveijalands í
32 ár, hefur lagt landið í rúst í
okkar nafni. Allir geta nú séð að
leiðtogar flokksins em án tengsla
við okkur, óbreytta verkamenn.
Þeir hafa hælt sér af stuðningi
okkar en kastað vinnuframlagi okk-
ar á glæ.“
Vestrænir stjómmálaskýrendur
álíta að stofnfundurinn geti skipt
sköpum fyrir stjómvöld en fram til
þessa hafa andófsmenn nær ein-
göngu komið úr röðum mennta-
tr.anna.
Gorbatsjov varar við tals-
mönnum róttækari umbóta
Stjórnvöld stöðva sjónvarpsþátt Sajudis í Litháen fram yfir kosningar
Moskvu. Reuter. Daily Telegraph.
MÍKHAÍL Gorbatsjov Sovétleið-
togi heimsótti í gær borgina
Tsjernobyl í Úkraínu, þar sem
skelfilegasta kjarnorkuslys sög-
unnar varð fyrir tæpum þrem
árum. Málgagn Sovétstjóraar-
innar, ísvezt(ja, segir að leið-
Hirohito jarðsettur í dag:
Leiðtogar firá 150
þjóðum viðstaddir
Tókýó. Reuter.
ÞJÓÐHÖFÐINGJAR og stjórnmálaleiðtogar frá rúmlega 150 rikjum,
auk um 10.000 annarra opinberra gesta, eru nú komnir til Tókýó til
að vera viðstaddir útför Híróhftós Japanskeisara, sem fram fer í dag.
Á meðal þeirra er George Bush, sem er I sinni fyrstu ferð erlendis i
embætti Bandaríkjaforseta, og notar hann tækifærið til þess að ræða
friðarhorfúr fyrir botni Miðjarðarhafs og önnur alþjóðamál við nokkra
af leiðtogunum.
Marlin Fitzwater, talsmaður
Bandaríkjaforseta, sagði í gær að
Bush hefði rætt við Francois Mitterr-
and Frakklandsforseta og Noboru
Takeshita, forsætisráðherra Japans,
um málefni ríkjanna fyrir botni Mið-
jarðarhafs, samskipti austurs og
vesturs og umhverfísmál. Banda-
rílqaforseti ræddi einnig friðarum-
leitanir fyrir botni Miðjarðarhafs við
Hosni Mobarak, forseta Egypta-
lands, Hussein Jórdaníukonung og
Chaim Herzog, forseta ísraels. Ja-
mes Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði að allir leið-
togarnir þrír hefðu bent á „mögu-
leika sem ekki hafa verið fyrir hendi
á svæðinu til þessa".
Fulltrúar Kínveija og Indónesa,
sem staddir eru í Tókýó, skýrðu frá
því að ákveðið hefði verið að bæta
samskipti ríkjanna en grunnt hefur
verið á þvi góða með þeim í 22 ár,
eða síðan stjómin i Jakarta sakaði
Kínveija um að hafa stutt misheppn-
aða valdaránstilraun í Indónesíu.
Qian Qichen, utanríkisráðherra Kína,
og Murdiono, utanríkisráðherra In-
dónesíu, sögðu að ríkin hétu því að
láta innanríkismál hvors annars af-
skiptalaus, en þau hefðu hins vegar
ekki orðið ásátt um að taka upp
stjómmálasamband þegar í stað.
toginn hafi rætt um öryggisráð-
stafanir og mengunarvarnir við
verkamenn í kjarnorkuverinu og
fjölmarga íbúa borgarinnar Slav-
útísj sem byggð var handa þeim
100.000 borgurum er fluttir voru
á brott vegna geislunarhættu
eftir slysið. Fjölmiðlar hafa
gagnrýnt yfirvöld harðlega fyrir
að verja ekki fólk fyrir geislun-
inni. Á ferðalagi sínu hefúr
Gorbatsjov ráðist á þá sem hann
segir misnota sér umbótastefti-
una og aukið tjáningarfrelsi; með
þvi að heimta mun hraðari um-
bætur séu sumir þeirra að skara
eld að eigin köku.
Sovétleiðtoginn ræddi við verka-
menn í borginni Dónetsk á miðviku-
dag og sagði þá að lélegur árangur
umbótastefnunnar á sumum sviðum
efldi andstöðu við áætlanir hans.
Oft væm það lágt settir embættis-
menn sem þar fæm í fararbroddi.
Hann varaði einnig við of snöggum
breytingum. „Við vísum ofurrót-
tækni og hugmyndum um risastökk
fram á við á bug eins og hverri
annarri vitleysu," sagði Gorbatsjov.
Þjóðemiskennd hefur látið á sér
kræla í Úkraínu eins og mörgum
öðmm Sovétlýðveldum og hefur
lögregla fengið skipun um að bijóta
á bak aftur allar mótmælaaðgerðir
í nánd við ferðaleið Gorbatsjovs. í
borginni Lvov vom níu forystumenn
úkraínskra þjóðemissinna teknir í
vörslu lögreglu meðan leiðtoginn
var þar á ferð í byijun vikunnar.
Talsmenn þjóðemissinna sögðu að
mörgum borgarhverfum hefði verið
lokað til að koma í veg fyrir „óvænt-
ar uppákomur".
Reuter
Míkhail S. Gorbatsjov Sovétleiðtogi og eiginkona hans, Raísa Gor-
batsjova, ræða við starfsmenn í Tsjernobyl-kjarnorkuverinu í Ukr-
aínu í gær.
Flokksmálgagnið Pravda réðst
nýlega harkalega á litháensku þjóð-
arhreyfinguna Sajudis og þykir
stjómmálaskýrendum allt benda til
þess að örvænting hafí gripið um
sig í flokksforystunni. Sajudis gerir
sér vonir um að fá allt að 30 af
42 þingsætum Litháens á sameigin-
legu fulltrúaþingi Sovétríkjanna
sem kosið verður til 26 mars. Sum-
ir af leiðtogum Kommúnistaflokks
Litháens em opinberlega félagar í
hreyfíngunni, sem ekki kallast
stjómmálaflokkur en berst fyrir
auknu pólitísku sjálfstæði og vemd-
un litháenskrar menningar. rravda
sagði vissa hópa innan Sajudis taka
undir kröfur þjóðemissinna er krefj-
ist fulls sjálfstæðis Litháens. Þjóð-
emissinnar hefðu í hávegum „borg-
aralegar þjóðfélagskenningar“ og
sumir háttsettir félagar í miðstjóm
kommúnistaflokksins hefðu látið í
ljós „andúð á Sovét-Litháen“, þ.e.
tekið undir sjálfstæðiskröfumar.
Heimildarmenn segja lögreglu
hafa ráðist með bareflum á þátttak-
endur í nokkur þúsund manna mót-
mælagöngu í Tíflis í Georgíu síðast-
liðinn laugardag.
Sjá einnig bls. 20: „Sajudis
hugsar sér____“