Morgunblaðið - 24.02.1989, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1989
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1989
23
Jltargmifrlafrtfe
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
BjörnJóhannsson,
ÁrniJörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. f lausasölu 70 kr. eintakið.
Dæmd fyrir að
leggja blóm á torg
111 tíðindi berast frá Prag,
höfuðborg Tékkóslóvakíu.
Vaclav Havel, leikritahöfundur,
hefur verið dæmdur til fangels-
isvistar og einnig Ota Vevereka
og Jana Petrova. Þau voru
dæmd fyrir það eitt að hafa
viljað minnast þess 16. janúar
síðastliðinn, að 20 ár voru liðin
frá því að stúdentinn Jan
Palach kveikti í sjálfum sér og
fórnaði lifí sínu á Wenceslasar-
torgi í Prag til að mótmæla
hemámi Sovétrílq'anna og fjög-
urra annarra Varsjárbanda-
lagslanda. I ágúst 1968 sendu
ríkin fímm skriðdreka og óvíg-
an her inn í Tékkóslóvakíu til
að kæfa frelsisandann þar.
Jana Petrova var sakfelld
fyrir uppsteyt á almannafæri
og fyrir að hafa móðgað lög-
regluþjón með ljótu orðbragði.
Þegar dómur var genginn,
sagði Petrova, sem er 22 ára,
grátandi: „Ég tel mig ekki
seka, af því að það er fáránlegt
að kalla það uppsteyt að leggja
blóm á torg í minningarskyni.
Engar sönnur voru færðar á
að ég hefði ráðist á lögreglu-
mann með ljótu orðbragði. Mér
er ekki tamt að bölva og
ragna:“
Erfítt er að gera sér í hugar-
lund, hvað fyrir yfírvöldum í
Prag vakir með því að beita
þessa þijá einstaklinga og fé-
laga þeirra í mannréttindabar-
áttunni slíku harðræði. Harkan
er í andstöðu við hina almennu
mynd, sem menn hafa af þróun
mála fyrir austan jámtjald. Þá
er rétt að minnast þess, að
aðeins rúmur mánuður er síðan
ráðstefnu innan ramma loka-
samþykktarinnar frá Helsinki
um öryggi og samvinnu í Evr-
ópu lauk í Vínarborg. A þeim
fundi var hert á skyldum þátt-
tökuríkjanna, en Tékkóslóvakía
er meðal þeirra, til að virða
rétt manna meðal annars til
þess að láta í ljós stuðning sinn
við mannréttindi og frelsi.
Aðför einræðisherranna í
Prag að almennum borgurum
vegna þess eins að þeir vildu
leggja blóm á torgið, þar sem
Jan Palach fómaði lífí sínu,
brýtur í bága við samþykktina
frá Helsinki og ályktun Vínar-
ráðstefnunnar. Öllum ríkjum
sem áttu fulltrúa á þeirri ráð-
stefnu er skylt að láta til sín
heyra og mótmæla því sem nú
er að gerast í Prag. Snýr þetta
ekki síður að íslenskum stjóm-
völdum en öðrum.
í byijun desember var Jiri
Pelikan hér á landi í boði Sam-
taka um vestræna samvinnu.
Hann var háttsettur í Tékkósló-
vakíu fram til 1968 en býr nú
á Ítalíu og situr á Evrópuþing-
inu fyrir ítalska sósíalista. Þeg-
ar Pelikan var spurður, hvers
vegna stjómin í Prag væri jafn
ómannúðleg nú og áður, svar-
aði hann meðal annars á þá
leið, að í Prag teldu valda-
menn, að Gorbatsjov og stjóm-
arhættir hans væru aðeins
tímabundin uppákoma; þeir
næðu bráðlega aftur undirtök-
unum í Kreml, sem myndu
færa allt í gamla horfíð á ný.
Réttarhöldin gegn Havel og
félögum hans eru staðfesting á
því að ekkert hefur breyst í
Prag. Sú staðreynd er jafn
sorgleg og grimmdin sem þeim
er sýnd, er vilja minnast látins
baráttubróður með því að
leggja blóm á dánarbeð hans.
Kammer-
sveit
Reykjavík-
ur 15 ára
ess er minnst um þessar
mundir að 15 ár eru liðin
frá því að Kammersveit
Reykjavíkur hóf starfsemi sína.
Undir merkjum hennar hafa
verið flutt um 250 kammerverk
og um 200 hljóðfæraleikarar
hafa tekið þátt í um 60 tónleik-
um hennar. Að stofnun Kamm-
ersveitarinnar stóðu atvinnu-
hljóðfæraleikarar á þjóðhá-
tíðarárinu 1974 í því skyni að
gefa tónlistargestum kost á að
hlusta á kammertónlist og um
leið hljóðfæraleikurum tæki-
færi til að spreyta sig á annars
konar verkefnum en til dæmis
í Sinfóníuhljómsveit íslands.
Til marks um stórhuga
brautryðjendastarf Kammer-
sveitar Reykjavíkur eru af-
mælistónleikamir sjálfír, þar
sem frumflutt var hér á landi
verk eftir franska tónskaldið
Olivier Messiaen fyrir 44 hljóð-
færaleikara undir stjóm Pauls
Zukofskys. Eins og Jón Ás-
geirsson, tónskáld, segir hér í
blaðinu í gær eru það stórtí-
ðindi, að í slíkan flutning sé
ráðist. Þeim mun merkara,
þegar haft er í huga, að það
er gert af áhuga og hugsjón,
eins og annað hjá Kammer-
sveit Reykjavíkur í 15 ár.
íris Erlingsdóttir.
Hildigunnur Rúnarsdóttir.
Eyþór Arnalds.
Katarína Óladóttir.
Rosemary Kajioka.
Tónleikar Tónlistarskólans í Reykjavík og Sinfóníuhljómsveitar íslands:
Stórkostlegt að fá að vinna
með Sinfóníuhljómsveitinni
- segja sjö nemendur Tónlistarskól-
ans sem eru að ljúka lokaprófiim
TÓNLEIKAR Tónlistarskólans í Reykjavík og Sinfóníuhljómsveit-
ar íslands verða haldnir á morgun, laugardag, í Langholts-
kirkju. Tónleikamir, sem hefíast kl. 14.30, eru hluti af lokaprófi
nokkurra nemenda Tónlistarskólans í Reykjavik. Á tónleikunum
koma fram þær íris Erlingsdóttir, sópransöngkona, Rosemary
Kajioka, flautuleikari og Katarína Óladóttir, fiðluleikari, en einn-
ig verða frumflutt lokaverkefhi eftir Eirík Árna Sigtryggsson,
Eyþór Arnalds, Hildigunni Rúnarsdóttur og Þorvald B. Þorvalds-
son, sem eru að ljúka lokaprófi tónfræðadeildar. Stjórnandi Sin-
fóníuhljómsveitar íslands á tónleikunum verður Tuomas Pirilá
frá Finnlandi.
Morgunblaðið ræddi við nemend-
uma, sem nú eru að ljúka lokapróf-
um frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík, þar sem þau vom stödd
á æfingu með Sinfóníhljómsveit fs-
lands í Háskólabíói fyrr í vikunni.
Kom þeim saman um _að framtak
Sinfóníuhljómsveitar íslands að
vinna með nemendum skólans að
lokaverkefnum þeirra væri stór-
kostlegt, þar sem í því væri fólginn
ómetanlegur lærdómur. Væri fátítt
að hljómsveitir af þessu tagi spiluðu
útskriftarverkefni tónlistamem-
enda. Þau vom spurð um náms-
feril, lokaprófsverkefni og fram-
tíðaráform.
Stórkostleg upplifun
íris Erlingsdóttir, sópran, er
fædd 1959 og lýkur hún fyrri hluta
einsöngvaraprófs. Hún lauk stúd-
entsprófi árið 1979, en hóf nám í
Tónlistarskólanum í Reykjavík árið
1981. „Ég hef verið hjá sama kenn-
aranum allan tímann, Elísabetu
Erlingsdóttur, sem er frábær kenn-
ari. An hennar leiðsagnar væri ég
ömgglega ekki komin svona langt
í söngnáminu," sagði íris. Síðari
hluta einsöngvaraprófs lýkur íris
með sjálfstæðum tónleikum sem
haldnir verða í Norræna húsinu í
maí næstkomandi. Aðspurð sagðist
hún stefna að því að fara í fram-
haldsnám erlendis, en hún væri þó
ekki búin að taka neinar ákvarðan-
ir í þeim efnum.
Á tónleikunum á laugardaginn
syngur íris aríur eftir Weber, Puc-
cini og Donizetti. „Það er vissulega
mikil spenna sem fylgir þessu, og
þetta tækifæri að fá að syngja með
Sinfóníuhljómsveit íslands þau verk
sem ég hef verið að æfa er eitthvað
það stórkostlegasta sem ég hef
upplifað, og varla hægt að lýsa því
með orðum."
Mikil vinna að baki
Katarína Óladóttir, fiðluleikari,
er fædd 1967 og lýkur fyrri hluta
einleikaraprófs frá skólanum.
Kennari er Guðný Guðmundsdóttir.
Katarína lauk stúdentsprófi 1987.
„Ég hóf sjö ára gömul nám í fiðlu-
leik í Tónmenntaskólanum í
Reykjavík, og fimmtán ára gömul
hóf ég nám í Tónlistarskólanum í
Reykjavík, en þar stunda ég jafn-
framt nám í fiðlukennaradeild, sem
ég lýk einnig í vor.“ Seinni hluta
einleikaraprófsins lýkur Katarína í
maí, en hún stefnir á að fara í fram-
haldsnám erlendis næsta haust og
þá helst í Evrópu.
Á tónleikunum leikur Katarína
Óladóttir Fiðlukonsert eftir Stravin-
sky. „Þetta er erfitt virtúósastykki,
sem er undir miklum áhrifum frá
Bach. Ég hef æft þetta verk frá því
í fyrrasumar, þannig að baki liggur
mikil vinna, og það er mjög
skemmtilegt að fá tækifæri til að
spila það með hljómsveitinni, þó það
sé á vissan hátt erfítt og því fylgi
mikil spenna. Kannski er þetta líka
eina tækifærið af þessu tagi sem
manni býðst á ævinni,“ sagði Kat-
arína.
Flókið og erfítt verk
Rosemary Kajioka, flautuleik-
ari, er fædd í Bandarílq'unum 1965.
Hún lýkur fyrri hluta einleikara-
prófs, en kennari hennar er Bem-
harður Wilkinson. Móðir Rosemary
er íslensk en faðir kanadískur. „Ég
hef lengst af búið í Kanada, en flutt-
ist til Islands 1985. Fimmtán ára
gömul hóf ég nám í flautuleik í
tónlistarskóla í Toronto, og 1986
byijaði ég í Tónlistarskólanum í
Reykjavík, en i vor lýk ég jafnframt
kennaraprófi frá skólanum.“ Ro-
semary hyggur á framhaldsnám
erlendis næsta vetur, en hefur ekki
ákveðið hvar.
Eiríkur Árni Sigtryggsson,
Verkið sem Rosemary Kajioka
leikur á tónleikunum hetir „Halil",
og er eftir Leonard Bemstein.
„Þetta verk er fyrir einleiksflautu,
strengjasveit og slagverk. Verkið
samdi Bemstein 1981 í minningu
19 ára drengs sem var flautuleikari
og lét lífið í stríði í ísrael. Verkið
lýsir vonum og draumum, martröð
og vonleysi, stríð og friði, og er
nokkuð flókið og erfitt í flutningi,"
sagði Rosemary.
Mikil eldskírn
Eyþór Arnalds er fæddur 1964.
Hann lýkur lokaprófi tónfræða-
deildar, en kennari hans er Atli
Heimir Sveinsson. Eyþór lauk stúd-
entsprófí 1985. „í vor lýk ég einnig
burtfararprófi í sellóleik frá Tónlist-
arskólanum í Reykjavík, en það
nám hóf ég sextán ára gamall.
Kennari minn í því námi er Gunnar
Kvaran. Ég hef reyndar verið í
margvíslegu tónlistamámi alveg
frá því ég var fimm ára gamall.“
Næsta vetur stefnir Eyþór að því
að sækja einkatíma hjá í tónsmíðum
og sellóleik hjá Frances Marie Uitti
í Hollandi.
Verkið sem leikið verður eftir
Eyþór á tónleikunum heitir „Terta".
„Það má segja að þetta sé „terta"
í mörgum skilningi. Bæði er það
byggt eins og terta í mörgum lög-
um, og einnig er það byggt á
þríundum og þríhljómum, eða tert-
ian. Verkið skiptist í inngang og
Þorvaldur B. Þorvaldsson.
þrjú tilbrigði af þríundarkeðjum, og
er samið fyrir fullskipaða sinfóníu-
hljómsveit. Það er mikil eldskím
að fylgjast með hljómsveitinni spila
verkið, og tilfinningamar eru mjög
blendnar, bæði hrollur og sæla,“
sagði Eyþór.
Lærdómsríkt að vinna með
hljómsveitinni
Eiríkur Ámi Sigtryggsson er
fæddur 1943. Hann lýkur lokaprófi
tónfræðadeildar, en tónsmíðakenn-
ari hans er Atli Heimir Sveinsson.
Eiríkur Ámi lauk prófi frá söng-
kennaradeild Tónlistarskólans í
Reykjavík árið 1963, en áður hafði
hann stundað tónlistamám í
Keflavík hjá Ragnari Bjömssjmi.
„Frá því ég lauk söngkennara-
prófi hef ég starfað við tónlistar-
kennslu og kórstjóm. Ég var meðal
annars kennari í Flensborgarskóla
í Hafnarfirði og einnig kenndi ég í
Tónlistarskóla Keflavíkur, en auk
þess hef ég þrívegis verið búsettur
í Svíþjóð og starfað þar við tónlist-
arkennslu. Þá var ég við við nám
í tónfræðum í Bandaríkjunum
1984-85, og hóf síðan nám á öðru
ári við tónfræðadeild Tónlistarskól-
ans í Reykjavík haustið 1986.“
Verkið sem Sinfóníuhljómsveit
íslands leikur eftir Eirík Áma á
tónleikunum á morgun heitir Sin-
fónía nr. 1. „Sinfónían er í þremur
þáttum, og er miðþátturinn þeirra
lengstur og viðamestur. Fyrsti þátt-
urinn byggist á tónaröðum sem
ganga upp, og má segja að hann
sé dálítið loftkenndur. Síðasti þátt-
urinn er líflegur og með ákveðnari
laglínur, og endar með hröðum leik
í allri hljómsveitinni. Það er mjög
lærdómsríkt að vinna að flutningi
verksins með Sinfóníuhljómsveit-
inni, og reyndar má segja að þetta
framtak hljómsveitarinnar sé alveg
einstakt," sagði Eiríkur Ámi. Að-
spurður sagðist hann stefna að því
að fara i framhaldsnám til Banda-
ríkjanna að einu ári liðnu og ljúka
þaðan meistaraprófi í tónsmíðum.
Sinfónískt ljóð
Hildigunnur Rúnarsdóttir er
fædd 1964, og lýkur lokaprófi tón-
fræðadeildar. Tónsmíðakennari
hennar er Þorkell Sigurbjömsson.
„Ég byijaði að læra á fíðlu í Tónlist-
arskólanum í Garðabæ þegar ég var
sjö ára gömul, en einnig hef ég
stundað nám í fíðluleik í Tónskóla
Sigursveins. Ég lauk stúdentsprófi
1983 og hóf síðan nám í fiðluleik
við Tónlistarskólann í Reykjavík,
en nám við tónfræðadeildina hóf
ég haustið 1986.“
Verkið sem Sinfóníuhljómsveit
íslands flytur eftir Hildigunni heitir
„Myrkvi". „Verkið er samið fyrir
strengi, málmblásara og slagverk.
Það má segja að þetta sé sinfónískt
ljóð, en það er í einum kafla og
tekur um níu mínútur í flutningi,"
sagði Hildigunnur. Hún sagðist
stefna að því að fara í framhalds-
nám í tónfræðum erlendis, en hefur
ekki ákveðið hvert.
Mikið starfað við
popptónlist
Þorvaldur B. Þorvaldsson er
fæddur 1966, og lýkur lokaprófí
tónfræðadeildar, en tónsmíðakenn-
ari hans er Hjálmar H. Ragnarsson.
„Ég lauk burtfararprófí á klassísk-
an gítar frá Tónskóla Sigursveins
árið 1987, og ég hef starfað tölu-
vert við popptónlist og samið tals-
vert á því sviði. Næsta ár ætla ég
að starfa við tónlist hér á landi, en
að því loknu stefni ég að því að
fara til Bandaríkjanna í framhalds-
nám í tónsmíðum."
Verkið sem Sinfóníuhljómsveit
íslands flytur eftir Þorvald á tón-
leikunum heitir „Kross". „Verkið
er byggt í kringum fimmundar-
hringinn og sigtaður úr honum
pentatóníski skalinn, en verkið er
fyrir fullskipaða sinfóníuhljóm-
sveit," sagði Þorvaldur, þegar hann
var beðinn að lýsa verkinu.
Morgunblaðið/Sverrir
Mikill fíöldi var samankominn á Hót-
el Sögu í _gær að hlýða á hátíðardag-
skrána. A innfelldu myndinni sést
Svavar Gestsson, menntamálaráð-
herra, aíhendajieim Svanhildi Kaab-
er, formanni KI, og Wincie Jóhanns-
dóttur, formanni HÍK, gjafabréf fyrir
húsi gamla kennaraskólans.
Hundrað ár liðin frá stofiiun fyrsta kennarafélagsins:
Kennarafélögimum gefið hús
kennaraskólans við Laufósveg
EITT hundrað ár voru i gær liðin firá því fyrsta kennarafélagið var
stofhað hér á Iandi, en það hét „Hið islenzka kjennarafélag". Af
þessu tilefni tilkynnti Svavar Gestsson, menntamálaráherra, að rikis-
stjómin hefði ákveðið að gefa kennarafélögunum tveimur, Kennara-
sambandi íslands og Hinu íslenska kennarafélagi, hús gamla kennara-
skólans við Laufásveg.
Sérstök dagskrá var í tilefni eitt-
hundrað ára afmælis fyrsta kenn-
arafélagsins á Hótel Sögu í gær. í
ávarpi sem Svavar Gestsson,
menntamálaráðherra, flutti við það
tækifæri greindi hann frá þeirri
ákvörðun ríkisstjómar að afhenda
kennarafélögunum hús gamla
kennaraskólans við Laufásveg til
eignar í tilefni af hundrað ára af-
mæli kennarasamtaka á íslandi.
Hann sagði að gjöfin væri háð þeim
skilyrðum að Rannsóknastofnun
uppeldismála yrði áfram í húsinu
þar til sú stofnun fengi annað hent-
ugt húsnæði til afnota og þiggjend-
um væri óheimilt að selja eignina
eða láta af hendi til annarra aðila
en ríkissjóðs.
Wincie Jóhannsdóttir, formaður
Hins íslenska kennarafélags sagði
í samtali við Morgunblaðið að gjöf
ríkisstjórnarinnar væri rausnarleg
og kæmi sér mjög vel. „Þetta er
sérstakt hús sem tengist kennurum
mikið og því emm við mjög glöð
að fá það til eignar. Það er þó ljóst
að það verður mjög fjárfrekt að
gera það upp eins og við ætlum
okkur að gera. Við munum nýta
húsið fyrir þá starfsemi sem er á
vegum félaganna beggja, en bæði
félögin em núna í mjög þröngu
húsnæði. Fagkennarafélög, sem nú
hafa enga aðstöðu, eiga að geta
fengið aðstöðu í húsinu, og vonandi
skapast þama betri aðstaða til
fundahalda og samkoma á vegum
félaganna. Þetta á að verða lifandi
staður, en ekki eingöngu þur-
pumpulegar skrifstofur."
Pálmi Jónsson, alþingismaður
óskaði eftir umræðu utan dagskrár
á Alþingi í gær vegna þeirrar frétt-
ar, að Svavar Gestsson mennta-
málaráðherra hygðist gefa samtök-
um kennara hús Kennaraskólans
við Laufásveg. Spurði hann ráð-
herra hvort þessar fregnir væm
réttar og sagði að ef svo væri, þá
færi ráðherra þama býsna fijáls-
lega með eignir ríkisins, því valdið
til að ráðstafa þeim væri í höndum
Alþingis. Kennarar og samtök
þeirra ættu allt gott skilið en óeðli-
lega væri staðið að þessu máli.
Menntamálaráðherra sagði að ráð-
herrar gætu auðvitað ekki gefið hús
ríkisins upp á sitt eindæmi. Ríkis-
stjómin hefði hins vegar samþykkt
að beita sér fyrir þessu, með þeim
áskilnaði að Rannsóknarstofnun
uppeldismála fengi að vera þar
áfram. Af afhendingu gæti þó ekki
orðið fyrr en tillaga um þessa gjöf
hefði verið samþykkt á Álþingi.
Bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda:
Meðalverð lægra en í fyrra
BÓKAMARKAÐUR Félags
íslenskra bókaútgefenda hófst í
gær, fimmtudag, á þriðju hæð í
Kringlunni. Meðalverð bóka á
bókamarkaðinum er nú um 200
krónur, en mörg hundruð bó-
katitlar eru fiáanlegir fyrir minna
en 100 krónur. Að sögn Eyjólfs
Sigurðssonar, formanns Félags
íslenskra bókaútgefenda, er verð-
ið á bókamarkaðinum nú lægra
en verðið var i fyrra, og lögð
hefiir verið sérstök áhersla á lágt
verð nú i tilefni af 100 ára af-
mæli félagsins á þessu ári.
í fyrra var tekin upp sú nýbreytni
að bjóða einnig sérstaka bókapakka
á bókamarkaðinum, og er það einnig
gert nú. Bækumar eru þá flokkaðar
eftir efni og aldurshópum og seldar
nokkrar saman í pakka á enn hag-
stæðara verði en í fyrra. „Sem dæmi
má nefna að við erum með bó-
kapakka með fimmtán bókum og
kostar hann 2.853 krónur, sem er
ríflega verð meðalbókar um- síðustu
jól, og pakki með átján bamabókum
kostar 1.600 krónur.“ sagði Eyjólfur
Sigurðsson. Hann sagði að á bóka-
markaðinum í fyrra hafi selst 110
þúsund eintök fyrir 25 milljónir
króna, og væri ástæða til að ætla
að því marki væri hægt að ná aftur.
Unnt er að panta bækur og bóka-
pakka í síma 91-678011 allan sólar-
hringinn, og tekið er við greiðslu
með greiðslukortum bæði í síma og
á staðnum. Bókamarkaðurinn stend-
ur yfir frá 23. febrúar til 5. mars.
Mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga
og fimmtudaga er opið frá kl. 10-19,
á föstudögum er opið frá kl. 10-20,
á laugardögum frá kl. 10-18 og á
sunnudögum frá kl. 12-18. Er þetta
í fyrsta sinn sem bókamarkaðurinn
er einnig opinn á sunnudögum, en
það hefur ekki verið heimilað áður
innan borgarmarkanna.
Morgunblaðið/Júlíus
Við opnun bókamarkaðar Félags íslenskra bókaútgefenda í gær var
strax orðið margt um manninn, en bókamarkaðurinn verður opinn
til 5. mars.