Morgunblaðið - 24.02.1989, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1989
25
Krístskirkja:
Samleikur á gitar
TORVALD Nilsson frá Svíþjóð og
Símon ívarsson halda tónleika i
Kristskirkju, á morgun, laugar-
daginn 25. febrúar klukkan 15.30.
A efnisskránni eru verk frá fimm
tímabilum, frá endurreisnartímanum
og allt fram til okkar daga og leika
þeir félagar ýmist dúetta eða einleik.
Verkin sem þeir flytja eru m.a. eftir
A. Vivaldi, J. Dowland, F. Sor, F.M.
Torroba og I. Albeniz.
Vitni vantar
Slysarannsóknadeild lögregl-
unnar í Reykjavík lýsir eftir vitn-
um að þvi er ekið var á rauða
Subaru bifreið við Iðnskólann i
Reykjavík milli klukkan 13 og 16,
þriðjudaginn 21. þessa mánaðar.
Þá skorar lögregla á ökumann
rauðrar Toyota Carina bifreiðar,
konu um þrítugt, sem lenti í árekstri
við gráan Colt-bíl, á Suðurlands-
braut við bensínstöð Olís, um klukk-
an 13 á miðvikudag að hafa við sig
samband. Einnig er skorað á vitni
að þessum árekstri að gefa sig fram.
Loks eru vitni að árekstri hvítrar
Daihatsu-bifreiðar og blárrar Fiat-
bifreiðar, á mótum Suðurlandsbraut-
ar og Kringlumýrarbrautar, um-
klukkan 14, þann 21. nóvember
síðastliðinn, beðin að hafa samband
við Slysarannsóknadeild.
Magnavaka í
Hafnarborg
MÁLFUNDAFÉLAGIÐ Magni,
Hafiiarfirði, gengst fyrir svo-
nefndri Magnavðku f Hafiiarborg,
menningar- og listastofnun Hafii-
arflarðar, laugardaginn 25. febrú-
ar.
Á vökunni koma fram ýmsir lista-
menn og flytja Qölbreytta dagskrá í
tali og tónum. Vakan hefst klukkan
14.00 og mun standa yfir í u.þ.b.
tvær klukkustundir.
Öllum er heimill aðgangur, en á
vökunni verður tekið á móti fijálsum
framlögum í menningar- og listasjóð
Magna. Að þessu sinni mun það fé
sem safnast í sjóðinn renna til kaupa
á „konsertflygli“ fyrir Hafnarborg.
(F réttatilkynning)
Thorvald Nilsson lauk gítareinleik-
araprófi frá Tónlistarháskólanum í
Malmö árið 1971 hjá prófessor Per-
Olaf Johnson. Þar að auki hefur
hann stundað nám hjá Ulf Áhslund
og Gunnari Hansson, hann er kenn-
ari í klassískum gítarleik við Sunds-
gárdens Folkhögskola við Tónlistar-
skóla Helsingborgar og við Tónlistar-
háskólann í Malmö.
Símon ívarsson hóf gítamám 19
ára gamall hjá Gunnari H. Jónssyni
við Tónskóla Sigursveins D. Kristins-
sonar. Hann tók lokapróf í gítarkenn-
aradeild skólans vorið 1975 og sama
ár hóf hann nám í einleikaradeild'
prófessors Karls Scheit við Tónlistar-
háskólann í Vínarborg.
Þaðan lauk hann einleikaraprófi
vorið 1980. Símon starfaði í eitt ár
sem gítarkennari við Tónlistarskól-
ann í Luzem í Sviss. Frá 1981 hefur
hann starfað sem gítarkennari við
Tónskóla Sigursveins, en kennir
einnig kennslufræði við sama skóla.
Dansráð Islands:
Ófaglærðir
kennarar
annast dans-
kennslu
„ÓFAGLÆRÐIR danskennarar
hafa f æ ríkara mæli annast og
boðið danskennslu bæði einir sér
og við stofhanir sem beinlinis villa
um fyrir almenningi hvað um er
að vera,“ segir f fréttatilkynningu.
Þar segir að danskennaranám taki
Qögur ár hérlendis en danskenn-
arastarfið hafi ekki fengist lög-
vemdað.
Dansráð íslands stendur fyrir
könnun á danskennslu og sendir öll-
um, sem auglýsa hana, bréf þar sem
spurt er hvort kenndir séu dansar
hjá viðkomandi og þá hvaða, hvemig
þessi kennsla hafi farið fram og hver
annist hana, hvort kennarinn sé með
danskennarapróf og þá hvaða og
hvort hann sé auglýstur sem dans-
kennari.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 23. febrúar.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lasgsta Meðal- Magn Heildar-
varð varð varð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 52,00 43,00 48,97 53,780 2.633.382
Þorskur(ósf) 49,00 45,00 46,48 21,763 1.011.556
Ýsa 71,00 30,00 54,24 6,835 370.780
Ýsafósl.) 65,00 33,00 60,14 3,794 228.168
Ýsa(2.fl.) 35,00 35,00 35,00 4,500 157.600
Karfi 32,50 23,00 25,52 50,558 1.290.335
Ufsi 16,00 16,00 16,00 0,170 2.728
Steinbítur 38,00 20,00 29 jS3 3,016 89.378
Steinbítur(ósf) 25,00 25,00 25,00 1,661 41.525
Koli 40,00 35,00 35,74 0,587 20.980
Lúöa 225,00 200,00 201,55 0,194 39.110
Keila 15,00 15,00 15,00 0,764 11.464
Skata 40,00 40,00 40,00 0,041 1.640
Skötuselur 115,00 115,00 115,00 0,022 2.530
Hrogn 130,00 100,00 110,30 0,500 60.718
Samtals 40,21 148,237 5.961.694
Selt var aðallega úr Otri HF, Stakkavík ÁR, Núpi ÞH, Gullfara
HF, Náttfara HF, fró Hafbjörgu sf. og Stakkholti hf. I dag verða
meðal annars seld 70 tonn af þorski, 35 tonn af karfa og 3 tonn
af blálöngu úr Otri HF og óákveðið magn af blönduöum afla
úr Stakkavík ÁR, frá Jóa á Nesi SH og Tanga hf.
FAXAMARKAÐUR hf. f Reykjavík
Þorskur 46,00 39,00 47,08 2,797 131.686
Þorskur(ósf) 46,00 33,00 43,79 40,023 1.752.452
Ýsa 44,00 29,00 36,78 1,234 45.389
Ýsa(ósf) 54,00 26,00 45,22 0,724 32.740
Ýsa(umálósl) 15,00 13,00 13,47 0,081 1.091
Ufsi 26,00 15,00 25,82 1,333 34.416
Karfi 18,00 13,00 17,36 0,940 16.315
Steinbítur 26,00 15,00 18,78 0,463 8.694
Steinbítur(ósf) 23,00 23,00 23,00 0,090 2.070
Skarkoli 68,00 25,00 60,34 0,149 8.990
Lúöa 270,00 215,00 230,99 0,086 19.865
Rauömagi 120,00 120,00 120,00 0,014 1.680
Samtals 42,88 47,934 2.055.361
Seit var úr Freyju RE og netabátum. ( dag verður selt úr neta
bátum. Fjarskiptauppboö verður klukkan 11 ef á sjó gefur.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 55,00 30,00 45,41 14,684 668.230
Ýsa 65,00 25,00 53,10 4,802 254.990
Ufsi 20,00 15,00 16,35 5,000 81.750
Karfi 16,00 15,00 15,00 1,246 18.696
Steinbítur 26,00 9,00 19,96 2,486 49.616
Langa 29,50 29,50 29,50 1,020 30.090
Skarkoli 44,00 44,00 44,00 0,250 11.000
Lúða 320,00 65,00 248,71 0,145 36.063
Keila 14,00 11,00 13,86 1,070 14.830
Samtals 37,95 30,703 1.165.265
Selt var aðallega úr Eldeyjar-Goða GK, Matta GK og Happa-
sæli SF. i dag verður selt úr dagróðrabátum ef á sjó gefur.
Menningarverðlaun DV fyrir árið 1988 voru afhent í gær og er þetta í ellefta sinn sem verðlaunin
eru veitt. Að þessu sinni hlutu verðlaunin: Björn Th. Björnsson rithöfundur og listfræðingur fyrir
bók sfna, „Minningarmörk í Hólavallagarði" (Mál og menning.) Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari fyrir
störf sín með íslensku kammersveitinni sem nú heldur upp á fimmtán ára afinæli sitt. Róbert
Arnfinnsson leikari fyrir leik sinn i „Heimkomunni" eftir Harold Pinter sem P-leikhúsið stóð fyr-
ir. Sigurður Örlygsson myndlistarmaður fyrir framlag sitt til islenskrar myndlistar á árinu 1988.
Þorsteinn Gunnarsson arkitekt og Leifur Blumenstein byggingarfræðingur fyrir endurbyggingu
Viðeyjarstofu og Viðeyjarkirkju. Viðar Víkingsson kvikmyndagerðarmaður fyrir sjónvarpsmyndim-
ar „Tilbury" og „Guðmund Kamban". Valgerður Torfadóttir textílhönnuður fyrir fatahönnun sína.
DV skipaði þriggja manna dómenfhdir gagnrýnenda og annarra sérfræðinga fyrir hveija list-
grein, og tilnefhdu nefiidhmar iistafólkið til verðlauna. Verðlaunagripina gerði Öm Þorsteinsson
myndlistarmaður en þeir eru í formi sjö marmaraskúlptúra. Á myndinni eru frá vinstri Þorsteinn
Gunnarsson, Leifur Blumenstein, Sigriður Þorvaldsdóttir (fyrir Róbert Amfinnsson), Bjöm Th.
Bjömsson, Rut Ingólfedóttir, Viðar Víkingsson, Sigurður Örlygsson. Á myndina vantar Valgerði
Torfadóttur. (DV mynd GVA.)
Málverkasýning
opnar í Hafimrborg’
EDDA María Guðbjörasdóttir
opnar málverkasýningu í Hafn-
arborg, menningar- og lista-
stofiiun Hafnarfjarðar, i dag
föstudaginn 24. febrúar klukkan
17.00. A sýningunni verða 28
oliumálverk sem máluð era á
siðustu áram bæði hér heima og
erlendis.
Edda María er fædd og uppalin
í Hafnarfírði, dóttir hjónanna Juttu
D. Guðbergsson listmálara og Guð-
bjöms Guðbergssonar bygginga-
meistara.
Hún stundaði myndlistamám í
Þýskalandi samfara öðm námi á
ámnum 1970-1974. Þetta er fyrsta
einkasýning Eddu Maríu, en mynd-
ir hennar vora sýndar í glugga
Málarans við Bankastræti árið
1972. Sýningin í Hafnarborg er
opin alla daga nema þriðjudaga frá
klukkan 14.00-19.00. «
Edda María Guðbjömsdóttir.
Steindór Steindórs-
Danskennara-
samband Islands:
Danssýning
á Hótel íslandi
DANSSÝNING á vegum Dans-
kennarasambands íslands sem
átti að vera fyrir hálfum mánuði
síðan, en var frestað vegna veð-
urs, verður á sunnudaginn kl. 15
á Hótel íslandi.
Á danssýningunni koma fram
nemendur og kennarar úr skólum
innan Danskennarasambands ís-
lands, og sýna bamadansa, nýja og
gamla dansa, samkvæmisdansa,
jassballett og klassískan ballett.
Umferðin um
Oseyrarbrú
Eyrabakki.
í VEÐURHAMNUM undanfarið
hefur mikil umferð verið um
Óseyrarbrúna, enda oftast að-
eins fært um Þrengsli, sem er
mikið snjóléttari leið en Hellis-
heiði.
Trúlega sparast miklir fjármunir,
sem annars hefði verið varið til
snjómðnings á heiðinni. Menn hafa
haft á orði að upphæðin sem þann-
ig sparast, jafnist á við stóran hluta
Qármagnskostnaðar vegna brúar-
innar. — Óskar
son — Kveðjuorð
Fæddur 3. mars 1917
Dáinn 13. febrúar 1989
Þótt ung við séum að ámm og
skiljum ekki gang lífsins að öllu
leyti, þá vitum við að Steini afi hefur
verið kallaður burt. En okkur langar
að þakka fyrir allar þær góðu stund-
ir og minningar sem við eigum um
hann. Hvar sem hann fór, fylgdi
ferskur blær, og margt kenndi hann
okkur sem við komum síðar til með
að virða og meta þegar við þrosk-
umst. Á þessum alltof fáu ámm sem
við áttum saman hefur hann verið
sannur afi í orði og verki. Þó hann
komi ekki aftur í heimsókn I Grana-
skjólið, eða fari með okkur út að
keyra eins og við gerðum stundum,
þá eigum við öll skemmtilegar minn-
ingar frá þessum tíma sem geymast
hjá okkur meðan við lifum. Guð
geymi og blessi elsku afa.
Afabörnin í Granaskjóli.
t
Elginkona mín,
HREFNA SIGRÍÐUR BJARNADÓTTIR,
Skálholtl 16,
Ólafsvfk,
verður jarðsungin frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 25. febrúar
kl. 14.00. Rútuferð verður frá BSÍ á laugardagsmorgun kl. 8.00.
Fyrir hönd vandamanna,
Ólafur Krlstjánsson.