Morgunblaðið - 24.02.1989, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1989
41
Þessir hringdu . .
Hveraig viðrar
í Bláflöllum?
Gunnar Ólafsson hring’di:
Það fer fyrir mér eins og hundr-
uðum og jafnvel þúsundum ann-
arra, sem hringja í veðursímann
í Bláfjöllum. Þá segir í símsvaran-
um, að svæðið verði opið á ein-
hveijum tilteknum tíma og síðan
kemur ófullkomin veðurlýsing,
sem því miður er enginn vegur
að treysta. Ekkert er um það sagt,
hvenær skilaboðin eru lesin inn.
Segjum, að það sé gert klukkan
átta um morguninn, en tveimur
tímum seinna er útlitið ef til vill
gerbreytt. Símsvarinn segir
klukkan hálftíu, að í Bláflöllum
sé „gott veður" og heiðskírt. Þeg-
ar maður kemur upp eftir klukk-
utíma seinna eða svo, með flöl-
skylduna með sér, þá er þoka nið-
ur í dalbotna eða kannski él og
hvassviðri, þar sem farið er úr
lyftunni. Þetta er dýrt spaug, pen-
ingalega, en hitt er verra, að böm-
in verða treg til að koma næst.
Þama verða að koma til staðlaðar
upplýsingar um veðurlagið í fyöll-
unum, þannig að fólk viti, að
hveiju það gengur, að því er
helstu veðurþætti varðar, bæði
uppi og niðri. Einnig verður að
koma fram klukkan hvað veður-
lýsingin er lesin inn og loks verð-
ur að endumýja veðurlýsinguna á
um það bil tveggja tíma fresti.
Smekkleysa
7996-9788 hringdi:
Ég varð bæði undrandi og reið
yfir þeirri smekkleysu, hvemig
Geirfinnsmálið var riijað upp í
þættinum „Á því herrans ári
1974“ í sjónvarpinu á þriðjudags-
kvöld. Allir hljóta að skilja, hvað
aðstandendur mannsins hafa mátt
líða á sínum tíma, svo að það
hefði einnig mátt vera ljóst, að
hæpið væri að vega nú í sama
knémnn með því að ýfa upp göm-
ul sár. Það var margt vel gert í
þessum þætti, eins og þeim sem
á undan eru gengnir, en þama
gættu umsjónarmennimir ekki að
sér og fóra yfir strikið.
Heiðrum Bogdan
Anton Erlendsson hringdi:
Mig langar til
að koma þeirri
hugmynd á ML 1
framfæri, að við fw W * s jpj
íslendingar heið-
ram handbolta-
þjálfarann okkar
góða, Bogdan Kowalczyk, sem
nú hefur tekist öðra sinni að koma
okkur í kastljós heimsins. Hefur
hann ekki unnið til, að við sæmum
hann fálkaorðunni?
Aldamótakyn-
slóðin man hrein-
ar gangstéttar
Pétur Pétursson hringdi:
Ég var að lesa viðtal við Þóri
Guðbergsson, yfírmann ellimála-
deildar Reykjavíkurborgar, á bak-
síðu Morgunblaðsins um snjóm-
okstur hér í borginni. Á kreppuár-
unum vora götumar hreinsaðar
af snjó, og gangstéttamar llka.
Það var gert í atvinnubótavinnu.
Kallaðar vora út heilar hersveitir
af verkamönnum og mokað með
handafli, því að þá vora engar
stórvirkar vinnuvélar tiltækar. Þá
var séð fyrir, að borgaramir gætu
gengið um sínar eigin gangstéttir.
Nú virðist ekki nóg að hafa gatna-
málastjóra, heldur virðumst við
einnig þurfa á gangstéttamála-
stjóra að halda. Hugsa sér þetta
ástand — að dæma gamalt fólk í
stofufangelsi og setja á það út-
göngubann. Það er ekki sæm-
andi. Þó að aldamótakynslóðin,
sem alltaf er verið að tala um,
sé nú á fallanda fæti, þá man hún
hreinar gangstéttar í Reykjavík.
Og raunar granar mig, að það
standi einhvers staðar í lögreglu-
samþykkt, að hveijum sé skylt
að hreinsa frá sínum eigin dyram.
Þegar menn era ekki lengur-fær-
ir um slíkt, þarf borgin að koma
til hjálpar. Það ætti heldur ekki
að vera vandkvæðum bundið á
þessari vélaöld, þegar hálfur ann-
ar Reykvíkingur er um hvem bíl.
Hvers vegna notum við ekki frá-
rennslisvatn hitaveitunnar til að
leysa þetta vandamál á ódýran
hátt? Við sjáum það víða gert með
ágætum árangri héma í mið-
bænum. Og svo sjáum við skaf-
lana og svellbunkana annars stað-
ar, þar sem þessi auðlind okkar
er ekki nýtt, jafnvel fyrir framan
flölsótt veitingahús, sem ekki
virðast ráða við að gera hreint
fyrir sínum dyrum.
HEILRÆÐI
\
Ökumenn: Áfengi er slæmur förunautur. Ölvaður
maður við stýri er stórhættulegur og getur valdið sj&lfum sér
og öðrum ólýsanlegu tjóni. Sýnið ábyrgð, verið allsgáð við stýrið.
r
STORKOSTLEG
VERÐLÆKKUN
r
A
KLASSÍSKUM
GEISLADISKUM
VERÐ
FRÁ
con
KRONUM
Geturn nú boðið um 600 titla
af klassískri tónlist á geisla-
diskum frá helstu útgefend-
um heims svo sem Philips,
CBS, Deutsche Grammo-
phon, EMI, Decca og Archiv.
Aðeins er til eitt til þrjú ein-
tök af hverjum titli. Látið
ekki happ úr hendi sleppa.
Opið er á laugardögum til
kl. 16.00.