Morgunblaðið - 08.03.1989, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MARZ 1989
Deila Flugleiða og VS:
V erkalýðshreyfingin
nýtur ekki stuðnings SR
FUNDUR stjómar og trúnaðarmannaráðs Sjómannafélags Reylgavík-
ur getur ekki tekið undir það að ekki skipti máli hvort það flugfélag
sé íslenskt eða erlent sem flytji islenska launþega til orlofsdvalar
erlendis. Félagið harmar þá deilu sem upp er komin milli Flugleiða
og Verslunarmannafélags Suðurnesja, en getur ekki tekið undir slíkan
hugsunarhátt eða aðgerðir, að því er fram kemur í yfirlýsingu firá
félaginu. Vill það að ennþá ein tilraun verði gerð til sátta og ef hún
beri ekki árangur þá verði dómstólar látnir úrskurða.
Guðmundur Hallvarðsson, for-
maður Sjómannafélagsins, sagði í
samtali við Morgunblaðið að á und-
anfömum árum hefði félagið mátt
heyja harða baráttu við útgerðir
kaupskipa vegna mikillar notkunar
erlendra leiguskipa með erlendum
áhöfnum í flutningum til og frá
landinu. Nú hefði þessari þróun sem
betur fer verið snúið við og íslenskar
áhafnir væru nú að mestu leyti á
þessum kaupskipum. Félagið hefði
margsinnis varað við því að atvinnu-
öryggi íslendinga til sjós og lands
kynni að vera í hættu, ef ekki væri
gætt hófs í atvinnuráðningum útlend-
inga hér á landi.
„Þess vegna teljum við að við get-
VEÐUR
um ekki annað en verið sjálfum okk-
ur samkvæmir og andmælt þessum
hugmyndum verkalýðsfélaganna,
sem telja að það skipti engu máli
hveijir flytja íslenska launþega í orlof
á erlenda grund. Ef þetta gengur
svona yfir, hvað þá næst? Ef verka-
lýðshreyfingin sjálf beinllnis stuðlar
að því að erlendir aðilar taki að sér
fólksflutninga, hvað þá með vöru-
flutninga og aðrar þjónustugreinar,"
sagði Guðmundur.
Ilann sagðist ekki trúa öðru en
lausn fyndist á þessu máli, sem báðir
aðilar gætu sæmilega við unað, án
þess að það kæmi til kasta dómstól-
anna.
Frá fundi ASÍ og BSRB í gær. Talið firá vinstri: Ari Skúlason, hagfræðingur ASÍ, Ásmundur Stefiáns-
son, Ragna Bergmann og Örn Friðriksson, varaforsetar ASÍ, Ögmundur Jónasson, formaður BSRB,
Haraldur Hannesson, formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Einar Óla&son, formaður
Starfsmannafélags ríkisstofiiana.
Alþýðusamband íslands:
Fundir ákveðnir með rikis-
stjórn og vinnuveitendnm
ÁKVEÐINN hefúr verið við-
ræðufúndur Alþýðusambands ís-
lands og þriggja ráðherra næst-
komandi föstudag um ýmis atriði
sem tengjast komandi kjara-
samningum og fyrsti viðræður-
fúndur ASÍ við vinnuveitendur
hefur verið ákveðinn á mánudag-
inn kemur. Þá fúnduðu forsvars-
menn ASÍ og forsvarsmenn
sjáum reyndar hér á Reykjavíkur-
svæðinu líka alvarlega stöðu, til
dæmis í iðnaði og verslun."
Þeir sem ræða munu við forystu
ASÍ af hálfu ríkisstjómarinnar
verða Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra Jón Baldvin
I/EÐURHORFUR í DAG, 8. MARS
YFIRLIT f GÆR: Hæg breytileg átt, léttskýjað sunnanlands og ól
á Norðurlandi en gengur ( vaxandi suðaustanátt og þykknar upp
undir kvöldið fyrst auðvestan til. Hvassviðri eða stormur og snjó-
koma viða um land ( nótt en hægari í fyrramálið og slydduél eða
skúrir sunnanlands. Frost verður áfram í dag en veður fer heldur
hlýnandi í nótt.
SPÁ.Á morgun verður austan- og suðaustanátt um land allt vlðast
kaldi eða stinningskaldi. Skúrir eða siydduól verða um sunnanvert
landið, en þurrt að mestu fyrir norðan. Él eða snjókoma noröan til
á Vestfiörðum. Vfðast frostlau9t.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á FIMMTUDAG:Breyti!eg átt, él um sunnan- og vestan- vert landið en úrkomulítið norðaustanlands. Frost 1—7 stig, kald-
ast norðvestanlands. HORFUR Á FÖSTUDAG:Norö!æg átt og él lóttskýjað syðra. Frost 3—10 stig. norðanlands en víða
TÁKN: x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- 1Q° Hitastig: 10 gráður á Celsius
Heiðskírt ▼ stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. \J Skúrir V Él
'CÍlÉl Léttskýjað r r r r r r r Rigning V = Þoka
.rÍj, Hálfskýjað r r r * r * = Þokumóða ’ , ’ Súld
'ÚÍIiílkSkýiaS r * r,* Slydda r * r . CO Mistur —j. Skafrenningur
J!|!| Alskýjað * * * * Snjókoma # # # Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
Akureyrl Reykjavfk hftl +« +6 veóur anjóál hálfskýjað
Bergan 7 rignlng
Helsinkl 1 þokumóða
Kaupmannah. 9 þokumóða
NarBsarssuaq +26 skýjað
Nuuk +21 lóttskýjað
Osló 7 þokumóða
Stokkhólmur 3 þokumóða
Þórshöfn 4 haglél
Algarvo 19 skýjað
Amsterdam 10 rignlng
Barcelona 16 mlstur
Berlín 14 heiðskfrt
Chlcago vantar
Feneyjar 14 helðskfrt
Frankfurt 14 skýjað
Glasgow 7 úrkoma
Hamborg 16 mistur
Las Palmas vantar
London B alskýjað
Los Angeies 13 helðskfrt
Lúxemborg vantar
Madrfd 14 mlstur
Malaga 16 mistur
Mallorca 17 léttskýjað
Montreal +27 léttskýjað
New York +8 kornsnjór
Orlando 16 rignlng
Parfs 11 rignlng
Rðm 14 hétfskýjað
San Diego 13 þokumóða
Vfn 11 mistur
Washlngton +4 snjókoma
Wfnnipeg +8 skafrenningur
Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja í hádeginu í gær um ýmis
atriði sem tengst gætu viðræðum
aðila við ríkisvaldið, en báðir
aðilar hafii lýst yfir áhuga á að
hafa samvinnu um þau atriði.
Ásmundur Stefánsson, forseti
ASÍ, sagði að niðurstaða fundarins
með BSRB hefði orðið sú að gagn-
kvæmur vilji væri til þess að hafa
náið samstarf um þau atriði sem
rædd yrðu við stjómvöld. „Við telj-
um að það sé styrkur fyrir báða
aðila að vinna sameiginlega að því
að knýja á um ýmsar félagslegar
úrbætur, svo og aðgerðir í vaxta-
málum."
Hann sagði að á fundinum hefði
einnig var skipst á upplýsingum um
undirbúning viðræðna við viðsemj-
endur um kjarasamning. Ekki verið
tekin út ákveðin atriði umfram önn-
ur til leggja áherslu á í viðræðum
við stjómvöld. Það væri skynsam-
legrá að ganga með óbundnar hend-
ur til viðræðnanna og heyra hvað
stjómvöld hefðu til málanna að
leggja. Atriði eins og hækkun skatt-
leysismarka, hækkun bamabóta-
auka, veikindaréttarmál, lffeyrismál
og fleiri hefðu verið nefnd. At-
vinnnumálin hlytu þó að bera hæst.
„Það þarf að taka af alvöru á þeim
málum. Það er hættuleg óvissa í
þeim efnum út um allt land og við
Hannibalsson, utanríkisráðherra og
Svavar Gestsson, menntamálaráð-
herra. í samtali við Morgunblaðið
sagði forsætisráðherra að ríkis-
stjómin hefði þegar hafið undirbún-
ing að þessum viðræðum, en efnis-
lega vildi hann ekki tjá sig þar um.
Loðnan er
fiindiii við
Stokksnes
Vestmannaeyjum.
LOÐNA FANNST í gær á milli
Stokksness og Hrollaugseyja og
í gærkvöldi voru um 20 skip á
loðnuveiðum 20 mílum vestan
við Stokksnes.
„Þetta eru bara tvær torfur en
þær þyrftu að vera hundrað,“
sagði Kristbjöm Ámason, skip-
stjóri á Sigurði RE, í samtali við
Morgunblaðið. „Loðnan er ágæt
og hæf í frystingu væri ekki full
mikil áta í henni,“ sagði Krist-
bjöm.
Grímur.
Jónas Jósteinsson fv.
yfírkennari látinn
Jónas Jósteinsson, fyrrver-
andi yfirkennari í Austurbæjar-
skóla, lést á Landspítalanum
laugardaginn 4. mars, á 93. ald-
ursári.
Jónas fæddist 7. september
1896 á Kárastöðum í Skagafirði.
Hann Iauk kennaraprófi árið 1920,
en 1925-26 dvaldist hann við nám
í Englandi og Þýskalandi. Jónas
kenndi við barnaskólann á Stokks-
eyri árin 1920-29, og var skóla-
stjóri þar frá 1929-31, en þá varð
hann kennari við Austurbæjar-
skólann í Reykjavík, þar sem hann
var yfirkennari frá 1945-60. Prá
1960-84 var Jónas starfsmaður
bamavinafélagsins Sumargjafar,
en hann átti sæti í stjóm félagsins
frá 1942-72. Hann var fulltrúi á
stéttarþingum kennara 1934-60, í
stjóm Sambands íslenskra bama-
kennara 1958-60, og fulltrúi á
öllum þingum BSRB til 1961.
Jónas Jósteinsson
Eftirlifandi kona Jónasar er
Gréta Kristjánsdóttir. Böm þeirra
eru tvö, Kristín og Kári.