Morgunblaðið - 08.03.1989, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MARZ 1989
Baratta gegn kyn-
ferðislegu ofbeldi
ÍSLENSKAR konur ætla að þessu sinni að helga 8. mars barát-
tunni gegn kynferðislegu ofþeldi við konur og börn. Tekist hefur
viðtæk samstaða um málið. Sextán félög standa sameiginlega að
þeim aðgerðum sem um er að ræða varðandi daginn.
Þar sem 8. mars ber upp á rúm-
helgan dag, verður hátíðar- og bar-
áttufundurinn fluttur yfir á laugar-
daginn 11. mars. Hann verður hald-
inn í Hlaðvarpanum þar sem verður
Krabbameinsfé-
lag Reykjavíkur:
Stuðningur við
aðstandendur
AF TILEFNI 40 ára afinælis
Krabbameinsfélags Reykjavíur,
hinn 8. mars, hefur stjórn félags-
ins ákveðið að styrkja aðstand-
endur þeirra krabbameinssjúkl-
inga utan af landi, sem þurfa að
dveljast lengi í Reykjavík, vegna
rannsóknar eða meðferðar.
Styrkurinn felst í því að félagið
greiðir gistingu og morgunverð fyr-
ir maka eða annan náinn vanda-
mann sjúklings á Hótel Lind (hót-
eli Rauða kross íslands) allt að tvær
vikur á meðferðartlmanum.
Er það von félagsins að þetta
greiði fyrir því að krabbameins-
sjúklingar geti notið návistar
vandamanns meðan á meðferð
stendur. Ákvörðun þessi er bundin
við afmlælisárið, en í árslok verður
það metið hve mikil þörfín er fyrir
slíkan stuðning.
(Fréttatilkynningf)
opið hús frá klukkan 13.30,—17.30.
Dagskráin hefst með því að Guð-
rún Jónsdóttir félagsráðgjafí flytur
erindi, en síðan sjá fjórir kvenna-
hópar um framhaldið. Hópamir eru:
Ráðgjafahópur um nauðgunarmál,
Vinnuhópur gegn sifjaspellum,
Bamahópur Kvennaathvarfsins og
hópurinn Konur gegn klámi. Þessir
hópar verða með kynningarbása og
á vegum hvers um sig verða flutt
stutt erindi eða starfsemin kynnt
með öðm móti.
Kynferðislegt ofbeldi er mun út-
breiddara en almennt hefur verið
talið. Þessa glæpi fremja karlar
gagnvart konum og bömum. Þetta
em ásetningsglæpir sem vestræn
menning tekur vægt á og ýtir jafn-
vel undir með margvíslegu móti.
Kynferðislegt ofbeldi er skil-
greint sem hvaðeina sem niðurlæg-
ir konur og böm, sérstaklega svo
sem káf og klámfengið tal, klám-
vamingur alls konar, athugasemdir
um útlit, auglýsingar þar sem fá-
klæddar konur em notaðar sem
agn, nauðganir utan hjónabands
sem innan og sifjaspell.
Framkvæmdanefnd um 8. mars
1989 vonast til að íslenskar konur
taki höndum saman um aðgerðina,
laugardaginn 11. mars og fjölmenni
í Hlaðvarpann milli klukkan 13.30
og 17.30. Það verður heitt á könn-
unni allan daginn.
Fréttatilkynning: frá Fram-
kvæmdanefhd um 8. mars.
Morgunblaöið/Ámi Sæberg
Starfsmenn Landhelgisgæslu (t.v.) og Flugmálastjórnar taka við viðurkenningu frá Alþjóðasamtök-
um einkaflugmanna og fluvélaeiganda (IAOPA) við sérstaka athöfii á Hótel Sögu sl. laugardag
fyrir veitta aðstoð við einkaflugvélar á Norður-Atlantshafi á undanfornum árum.
Flugmálastjórn og Landhelgisgæslan:
Viðurkenning fyrir aðstoð við
einkaflugvélar á N-Atlantshafi
STARFSMÖNNUM Landhelgisgæslu og Flugmálastjórnar var
á laugardag veitt viðurkenning fyrir veitta aðstoð við flug
einkaflugvéla yfir Norður-Atlantshafið á liðnum árum. Það
var forseti Alþjóðasambands einkaflugmanna (IAOPA), John
L. Baker, sem afhenti starfsmönnum þessara stofiiana verð-
launin.
LAOPA eru stærstu samtök
einkaflugmanna í heiminum en
þau gæta hagsmuna jrfir 330 þús-
und einkaflugmanna í 29 löndum.
Baker sagði við þetta tækifæri
að flugmenn af öllum þjóðemum
stæðu í þakkarskuld við íslend-
inga fyrir veitta aðstoð við leit
og björgun á iindanfomum árum.
Sökum legu íslands í miðju Atl-
antshafí myndi ísland halda
áfram að gegna mikilvægu örygg-
ishlutverki fyrir alla flugumferð
sem ætti sér stað yfír hafíð.
íslenskir einkaflugmenn gerð-
ust aðilar að LAOPA með aðild
Vélflugfélags íslands (AOPA á
íslandi) að samtökunum árið 1984
og eru íslenskir AOPA félagar nú
yfír 700 um allt land. John Ba-
ker, sem dvaldi hér um síðustu
helgi, átti m.a. viðræður við full-
trúa Flugmálastjómar og ávarp-
aði fjölmenna flugöryggisráð-
stefnu einkaflugmanna sem fram
fór að Hótel Loftleiðum á vegum
Vélflugfélags íslands í samvinnu
við Flugmálastjóm.
Peter Guth Ulrike Steinsky
Þrennir Vínartón-
leikar í þessari viku
Sinfóníuhljómsveit íslands heldur þrenna tónleika í þessari viku,
þar sem Vínartónlist verður á efnisskránni. Fyrstu tónleikamir
verða I íþróttahúsinu í Keflavik nk. fímmtudag klukkan 20.30
og verður efnisskráin, vinsæl Vínartónlist, endurtekin i Há-
skólabiói laugardaginn 11. mars klukkan 16.30. Einnig verða
Vínartónleikar í Háskólabíói föstudaginn 10. mars klukkan 20.30.,
þar sem klassísk Vínartónlist verður einnig á efnisskránni. Hljóm-
sveitarstjóri og einleikari á tónleikunum verður Peter Guth og
einsöngvari Ulrike Steinsky.
Á tónleikunum í Keflavík og á
laugardagstónleikunum í Há-
skólabíói verða flutt verk eftir C.M.
Zierer, Jóhann Strauss yngri og
eldri, R. Stolz, F. Kreisler og Oskar
Strauss. Á fostudagstónleikunum
verða hins vegar verk eftir Mozart,
Schubert og Strauss.
Hljómsveitarstjórinn og einleik-
arinn Peter Guth kom hingað og
stjómaði Vínartónleikunum Sin-
fóníuhljómsveitarinnar, þar sem
hann hreif gesti með lifandi stjóm
og fjörlegum einleik á fíðlu.
Hann nam fiðluleik í Vín og var
síðar við þriggja ára nám í Moskvu
hjá David Oistrach. Hann lék með
Vínartríójnu; var 1., konsertmeist-
ari austurrísku útvarpshljómsveit-
arinnar og kennari. Hann hefur
hlotið fjölmörg verðlaun og viður-
kenningar fyrir fiðluleik og skrifaði
kennslubók um nýja fíðlutækni.
Hann hefur á annan áratug stjómað
ýmsum hljómsveitum við flutning
Vínartónlistar og heimssöngvarar
eins og t.d. Iieana Cotrubas, Elisa-
beth Söderström og Nicolai Gedda
hafa sungið undir hans stjóm.
Söngkonan Ulrike Steinsky söng
á Vínartónleikum með Sinfóníu-
hljómsveitinni f hitteðfyrra. Hún er
Austurríkismaður og hóf söngnám
komung hjá Margarethe Zimmer-
mann og innritaðist í óperudeild
Tónlistarskóla Vínarborgar 1981.
Hún hefur verið tengd Ríkisóper-
unni í Vín síðan haustið 1982,
fyrsta árið sem nemi við Óperuskól-
ann en sfðan sem einsöngvari. Hún
hefur á stuttum ferli sínum farið í
söngferðir víða um Evrópu.
Miðar eru seldir í Gimli við Lækj-
argötu. Miðar á tónleikana í Kefla-
vík verða seldir í anddyri íþrótta-
hússins við upphaf tónleikanna.
(Úr fréttatilkyrnlingn)
Hafiiarqörður:
650 þúsund króna fram-
lag í Afmælisgjafasjóð
ÞANN 8. MARS, þ.e. í dag, eru hundrað ár liðin frá fæðingu
Bjarna Snæbjörnssonar, læknis,
HafnarQarðar.
Af þessu tilefni hefur bæjar-
stjóm Hafnarfjarðar samþykkt að
veita krónur 400.000 í Áfmælis-
gjafasjóð Hafnfírðinga, sem stofn-
aður var á 75 ára afmæli Bjama
Snæbjömssonar. Ennfrémur hafa
böm Bjama, þau Jónas, Málfríður,
Bjami, Kristjana og ekkja Snæ-
bjöms, Áslaug Magnúsdóttir, gef-
ið 250.000 krónur í sjóðinn. Sjóð-
urinn veitir móttöku framlögum
einstaklinga og fyrirtækja á merk-
isdögum í ævi þeirra og starfi.
Afmælisgjafasjóður Hafnfírð-
inga var eins og áður segir stofn-
aður á 75 ára afmæli Bjama, fyr-
ir forgöngu Axels Kristjánssonar
í Rafha. Tilgangur sjóðsins er sá
að styrkja hvejja þá starfsemi í
Hafnarfírði sem unnin er í þágu
bama og unglinga undir 16 ára
fyrsta og eina heiðursborgara
aldri. Má vænta úthlutunar úr
sjóðnum bráðlega.
Stjóm Afmælisgjafasjóðsins er
nú þannig skipuð: Már Pétursson,
bæjarfógeti, Guðmundur Árni
Stefánsson, bæjarstjóri, séra
Gunnþór Ingason, sóknarprestur,
Jónas Bjamason, læknir og Helga
Snæbjömsdóttir, Bjarni Bjarna-
son, lögg. endurskoðandi til vara.
(Fréttatilkynning)
INNLENT
Hömmnardagnr á Kjar-
valsstöðum á morgun
HÖNNUNARDAGUR verður haldinn öðru sinni á morgun,
fimmtudag, á Kjarvalsstöðum. TÍu fyrirtæki taka þátt í hönnun-
ardeginum og er fyrirkomulagið með þeim hætti að framleið-
endur og fyrirtæki sem markaðssetja hönnunarvörur gangast
fyrir sameiginlegri kynningu og kynna m.a. helstu nýjungar
sem á boðstólum eru.
Það er Form Island sem ásamt
húsgagnaframleiðendum gangast
fyrir hönnunardeginum og er til-
gangurinn fyrst og fremst sá að
ná saman fagmönnum um hönnun
og öðrum þeim sem annast val
og innkaup búnaðar þar sem
gæði hönnunar skipta verulegu
máli.
Dagskráin hefst kl. 14.00 að
Kjarvalsstöðum og er þátttakend-
um boðið upp á akstur milli þeirra
fyrirtækja sem þátt taka \ hönn-
unardeginum. Að kveldi mun Jón
Sigurðsson iðnaðarráðherra af-
henda hönnunarviðurkenningu í
móttöku sem verður að Kjarvals-
stöðum.