Morgunblaðið - 08.03.1989, Side 44
y
SJOVA-ALMENNAR
ISýtt félag með sterkar rætur
MIÐVIKUDAGUR 8. MARZ 1989
VERÐ I LAUSASOLU 80 KR.
Morgunblaðið/Siguröur Steinar Ketilsson
Togarinn Þórhallur Daníelsson SF á strandstað í HornarQarðarósi I gærmorgnn.
Enn strand í Hornaflarðarósi
TOGARINN Þórhallur Daníelsson SF strandaði við AusturQöru-
tanga innanverðan í HoraaQarðarósi um klukkan sjö í gœrmorg-
un. Á liggjandanum um hádegisbilið í gær tókst að losa skipið,
en engar skemmdir urðu á þvi við þetta óhapp.
Að sögn Sigfúsar Harðarsonar,
hafnsögumanns í Höfn, lenti tog-
arinn á ysta hluta tangans sem
er á kafí, en þar er dýpið um 2-3
metrar. Nokkur straumur var orð-
inn út ósinn þegar óhappið varð
og bar hann skipið upp á tang-
ann. „Þar sem straumurinn fór
vaxandi var ekkert annað að gera
en að bíða þar til liggjandinn
kæmi. Bakkinn þama er það
brattur að straumurinn pressaði
skipið að bakkanum og ekkert
hægt að hreyfa það fyrr en á liggj-
andanum í hádeginu, en þá var
skipinu einfaldlega bakkað frá,“
sagði Sigfús.
Strandferðaskipið Esja strand-
aði á svipuðum stað í Homafjarða-
rósi fyrir skömmu síðan, en að
sögn Sigfúsar hefur Austurfjörut-
anginn lengst um rúmlega 200
metra frá því skömmu fyrir ára-
mót, og siglingaleiðin í ósnum
þrengst að sama skapi. „Þetta
hefur átt sér stað í óveðurskaflan-
um sem verið hefur undanfamar
vikur, en síðast skeði þetta fyrir
um tíu árum síðan við svipuð veð-
urskilyrði."
Aðspurður sagði Sigfús að erf-
itt væri að eiga við sandinn á
þessum slóðum, og þegar farið sé
að leysa eitt vandamál skapaðist
venjulega annað, þannig að var-
lega yrði að fara í allar fram-
kvæmdir til að bæta innsigling-
una. „Menn hafa þó meiri upplýs-
ingar um það núna hvemig þetta
skeður og eru því komnir næ_r því
að gera eitthvað við þessu. Ýms-
um hugmyndum hefur verið sleg-
ið fram, en ekkert hefur þó verið
ákveðið í þessum efnum. Náttúran
verður að fá að sjá um þetta í
aðalatriðum, því þama eru mikil
öfl og efnisflutningar á ferðinni,"
sagði Sigfús.
Oryggisbúnaður í
peningatösku bilaði
og innihaldið litaðist
ÖRYGGISBÚNAÐUR á peningatösku, sem starfsmaður óne&ids
fyrirtækis var í þann veginn að koma fyrir til geymslu í nætur-
hólfí aðalbanka Landsbankans á mánudag, bilaði af óljósum orsök-
um og innihald töskunnar, umtalsverð Qárhæð, mengaðist af
sterku litarefiii, sem komið er fyrir I töskunni. Þrátt fyrir þetta
gat fyrirtækið komið peningum sínum í verð í bankanum en í
höndum annarra en eigenda hefði ekki farið á milli mála að um
illa fengið fé væri að ræða.
Ekki er vitað með vissu hvað
olli því að þessi búnaður fór skyndi-
lega að láta eins og ókunnugur
væri að reyna að opna töskuna en
hugsanlegt er talið að hljóðbylgjur
frá farsíma eða talstöð í bíl sem
ekið var fram hjá bankanum hafí
átt hlut að máli.
Biynjólfur Helgason, aðstoðar-
bankastjóri Landsbankans, stað-
festi í samtali við Morgunblaðið að
bilun hefði orðið í öryggisbúnaði
peningatösku hjá viðskiptavini
bankans en vildi að öðru leyti ekki
ræða um málið. Hann sagði þó að
peningaseðlar þeir sem í töskunni
voru yrðu nú teknir úr almennri
umferð, annað hvort eytt eða
geymdir sérstaklega.
Töskur af þessu tagi munu vera
fátíðar hérlendis en nokkuð út-
breiddar víða erlendis. Þær eru
ýmist opnaðar af talnaröð eða með
lykli og sé rangt farið að eða reynt
að opna töskuna með öðrum hætti
spýtist sterkt litarefni yfír innihald-
ið og þann sem þannig tekst að
opna töskuna. Eftir því sem næst
verður komist eru töskur af þessu
tagi ekki á almennum markaði hér-
lendis en nokkur fyrirtæki sögðust
geta útvegað þær með skömmum
fyrirvara.
Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson
Piper-Chieftain vélin eftir lendingu á Reykjavíkurflugvelli.
Flugvél missti afl
á báðum hreyflum
Eigendur kæra til RLR
TVEGGJA hreyfla flugvél af
gerðinni Piper Chieftain, í eigu
Flugtaxa, lenti í vandræðum
Halldór Ásgrímsson 1 Brussel:
Viðræður ákveðnar um
samskipti íslands og EB
Brussel. Frá Kriatófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunbiaðsins.
HALLDÓR Ásgrimsson sjávarútvegsráðherra átti í gær fund með
Manuel Marín sem fer með sjávarútvegsmál innan framkvæmda-
stjóraar Evrópubandalagsins (EB). Á fundinum var samþykkt að
taka upp að nýju viðræður á milli EB og íslands um samskipti
vegna fiskveiða en upp úr þessum viðræðum slitnaði árið 1983.
Halldór Ásgrímsson sagði að
markmið þessa fundar hefði verið
að kanna leiðir sem gætu orðið til
þess að samningar tækjust á milli
Islands og EB á sviði fískveiði-
mála. Tilgangur ferðarinnar til
Brussel hefði ekki verið sá að kom-
ast að beinni niðurstöðu heldur
einungis að kanna vilja bandalags-
ins til að taka upp formlegar við-
ræður við íslendinga.
Ráðherra sagði að ákveðið hefði
verið að hvor aðili um sig tilnefndi
menn til þessara viðræðna en
íslenskir embættismenn í Brussel
munu á næstunni ræða fyrirkomu-
lag viðræðnanna við fulltrúa fram-
kvæmdastjómarinnar. Timinn yrði
síðan að leiða í ljós hver árangur
þessara viðræðna yrði. „Við höfum
áhuga á því að ná samkomulagi,"
sagði Halldór og bætti við að
reikna yrði með því að það sama
gilti um Evrópubandalagið. í máli
hans kom fram að ákveðið hefði
verið að Manuel Marín kæmi til
íslands síðar á þessu ári.
Sjá einnig frétt á miðopnu.
Morgunblaðið/Kristófer M. Kristinsson
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra og Manuel Marín, sem fer
með sjávarútvegsmál innan EB, ræðast við í Brussel í gær.
yfir Skeijafirði á laugardag.
Skömmu eftir flugtak urðu
gangtruflanir í báðum hreyfl-
um vélarinnar og sneri hún því
strax við tíl lendingar. Flug-
menn voru tveir af eigendum
vélarinnar og náðu þeir að
lenda heilu og höldnu.
Síðastliðinn miðvikudag munu
nokkrir flugmenn hafa tekið vélina
á leigu og flogið á henni norður í
land. Tilkynntu þeir ekki um neitt
óeðlilegt er vélinni var skilað. Þeg-
ar tveir af eigendum vélarinnar
ætluðu síðan að fljúga henni á
laugardag komu upp gangtruflan-
ir í báðum hreyflum. Þeir höfðu
þó nægjanlegt afl til þess að snúa
við og lenda og vék vélin ekki af
réttri flugleið. Hafa eigendur vél-
arinnar kært þennan atburð til
Rannsóknarlögreglu ríkisins,
vegna gruns um að vélinni hafi
verið beitt á rangan hátt, af þeim
aðilum, sem leigðu hana fyrr í vik-
unni. _____^________
Kaupa ný snjó-
moksturstæki
BORGARRÁÐ hefúr samþykkt
að keypt verði þijú ný tæki til
að moka snjó af gangstéttum.
Áætlaður kostnaður vegna kaup-
anna er um 8,2 millj. í greinargerð
gatnamálastjóra, sem falið var að
kanna tæki er til greina kæmu,
kemur fram að af hagkvæmnis-
ástæðum var tekið tillit til þess að
sömu vélamar nýttust einnig til
sumarverka.