Morgunblaðið - 30.03.1989, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1989
5
Flestir vilja
tvö flugfé-
lög í milli-
landaflugi
UM 80% íslendinga telja æskilegt
að tvö flugfélög í millilandaflugi
séu starfandi í landinu. Þetta
kom fram í skoðanakönnun sem
Gallup á íslandi gerði fyrir Arn-
arflug í síðustu viku.
Spurt var hvort viðkomandi teldi
æskilegt eða óæskilegt að starfandi
væru tvö íslensk flugfélög í utan-
landsflugi. í úrtakinu voru 624, og
af þeim svöruðu 620 þessari spurn-
ingu eða 99,4%. Æskilegt sagði 491
eða 79,2%. Óæskilegt sögðu 82 eða
13,2% en 47, eða 7,6%, voru óá-
kveðnir eða svöruðu ekki.
Spumingin var liður í víðtækari
skoðanakönnun sem Gallup á ís-
landi gerði í síðustu viku, og var
hluti af könnuninni gerður að beiðni
Amarflugs.
Flak Mariönnu
Danielsen:
Frestur er
til 15. apríl
Gríndavík.
BÆJARSTJÓRN Grindavík-
ur ákvað nýlega á fiindi
sínum að auglýsa frest á að
Qarlægja flak Mariönnu
Danielsen af strandstað við
Hópsnes í Grindavík. Frestur
verður gefinn til 15. apríl að
Qarlægja flakið. Að öðrum
kosti mun flakið verða fjar-
lægt á kostnað þeirra sem
ábyrgð bera á því.
Lyngholt sf. í Vogum keypti
skipið, þar sem það er á strand-
stað og í bígerð er að ná skip-
inu á flot þann 8. apríl næst-
komandi en þá verður stór-
straumur.
Kunnugir segja að næsta
stóra flóð verði ekki fyrr en í
haust, þannig að ef takast á
að ná skipinu á flot, munu vera
síðustu forvöð að gera það á
þessum tíma.
- FÓ.
Þorlákshöfii:
Meitilliim hf.
hefiir vinnslu
Þorlákshöfli.
MEITILLINN mun heQa vinnslu
í frystihúsi sínu í dag, fimmtu-
dag. Enginn fiskur hefiir komið
í sal frystihússins síðan fyrir
áramót er rekstrinum var hætt
og Qölda fólks sagt upp störfum.
Ævarr Ingi Agnarsson, yfirverk-
stjóri, sagði að ekki yrði unnið á
fullum afköstum til að byija með
og aðeins yrðu teknar fáar tegund-
ir, eða þær sem hagkvæmast er að
vinna. Togarinn Jón Vídalín kom
inn í gær með 170 tonn, mest þorsk-
ur.
Búið er að ráða um 30 konur í
salinn og enginn hörgull virðist
vera á fólki.
Ævarr sagði einnig að sá al-
menni misskilningur hefði ríkt að
Meitillinn hefði alveg verið lokaður
og enginn rekstur. Alls hefðu um
70 manns verið á launaskrá hjá
þeim að undanfömu sem starfað
hefðu á og í kringum togarana,
saltfiskverkunina og svo skrifstofu-
fólk.
Varðandi sameiningu við Glett-
ing þá eru þau mál í stöðugri vinnslu
og reyndar alveg frágengin að öðru
leyti en því að svar vantar frá
stjórnvöldum varðandi fyrirgreiðslu
til Meitilsins.
Met-
aðsókn
íBlá-
fjöllum
Fjölmennt var í skíða-
löndum í nágrenni
Reykjavíkur yfir pásk-
ana. Að sögn Þorsteins
Hjaltasonar fólkvangs-
varðar í Bláíjöllum voru
um 12 þúsund manns á
skíðum þar á föstudag-
inn langa og er það nýtt
met í aðsókn á einum
degi. Á mánudag, annan
í páskum, var einnig
mikil aðsókn.
„ Þorskalýsiö og
hjartað: Áhugaverð
efni, sem virðast
m.a. geta dregið úr
hættu á myndun
blöðtappa — segir Dr.
Sigmundur
Guðbjarnason. “
Morgunblaðið 6. nóvember 1984.
Æskilegur
dagskammhJr!
5, Vísindalega sannaö
að EPAogDHA
fitusýrur, sem
finnanlegar eru í
f iskalýsi, draga úr
kólesterólmagni í
blóði og
blóðflögumyndun,
stærsta verkef ni
sem Lýsi hf. vinnur
að um þessar
mundir. “
Þjóðviljinn 7. febrúar 1985.
Viðtökur Omega-3 hérlendis sýna
að fslendingum er annt um heilsuna
Omega-3 borskalvsisbvkknið!
Rannsóknir vísindamanna um allan heim benda
ótvíraett til þess að fjölómettaðar fitusýrur af
Omega-3 hópnum (EPA og DHA) stuðli að því að
fyrirbyggja kransæðasjúkdóma eða draga úr
hættunni á þeim.
Omega-3 frá Lýsi hf. er eina þykknið sinnar
tegundar í heiminum sem unnið er úr hreinu
borskalvsi, Hráefnið er sérvalin þorskalifur.
í Omega-3 er mun meira af fjölómettuðum
fitusýrum en í venjulegu þorskalýsi.
Nú hefur magn A og D vítamína varið
minnkað veruleaa. Þeir sem teljast til áhættu-
hóps geta því tekið fleiri perlur á dag án þess að
fara yfir ráðlagðan dagskammt af A og D
vítamínum.
ARGUS/SÍA
- J.H.S.