Morgunblaðið - 30.03.1989, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1989
Bréf til Péturs Péturssonar
eftirHauk
Eggertsson
Sæll Pétur.
Ég veit ekki hvort þú trúir því,
að mér brá, er ég las pistil þinn í
Morgunblaðinu 21. mars sl., „Um-
búðir og innræti". Ég hlýt að hafa
meitt þig eitthvað, en það var alls
ekki meining mín. Ég var að skrifa
um málefni, svara þinni grein,
„Þrælslund og hemaðarósómi", í
Morgunblaðinu 7. mars. Þú réðst þar
á Jón Baldvin persónulega út af vam-
armálum, og þá um leið á mig og
alla aðra, sem höfum sömu skoðun
um varðveislu þess frelsis og lýðræð-
is, er við nú njótum. Þú gafst tóninn
og á þeim nótum svaraði ég. Ég
veit þó ekki til, að ég hafi talað neitt
illa um þig, en hafi svo verið, og það
þá e.t.v. verr-en þú um Jón Baldvin,
bið ég þig margfaldlega afsökunar.
Annars eru þessi skrif okkar nokk-
uð merkileg og ég vona, að þau eigi
eftir að verða tímamótandi um hvem-
ig eigi að skrifa eða ekki að skrifa
um málefni. Á ég að trúa því, að
þú getir ekki deilt við mann efnis-
lega, án þess að bytja á að þukla
hann og gefa svo einkunn, eftir atvik-
um góða? Og um svar þitt til mín,
þá get ég alls ekki skilið, hvaða er-
indi það eigi inn í þessa umræðu,
hvað ég hafi gert um dagana eða
hvort að ég hafi verið sæmdur gull-
merki einhvers félagsskapar. Þetta
kemur málinu ekki nokkum skapað-
an hlut við. Vona ég því, að ef við
eigum eftir að skiptast á skoðunum
um eitthvað, í blöðum eða á annan
hátt, að þá tölum við aðeins um
málefnið og ekkert annað. Þá gætu
margir tekið okkur sér til fyrirmynd-
ar.
En nú þarf ég aðeins að víkja að
þeim skrifum þínum, sem beint var
til mín. Þú grípur þá setningu frá
mér. „við lentum í soranum". Þú
veist það vel, Pétur, að ég sagði
„við“ en þú breytir því í „hann“,
(þ.e. ég). Þetta sæmir ekki góðum
dreng. Aftur á móti skal ég endur-
taka það, að ég og flestir aðrir ís-
lendingar lentum „réttu megin" og
því gátum við fagnað frelsi á ný að
stríðinu loknu. Þetta frelsi vil ég og
flestir aðrir veija. Þú veist það líka,
að hlutleysi nú til dags er einskis
virði, sé það ekki varið. Þar má nefna
Svíþjóð. Dettur nokkmm heilvita
manni í hug, að Þjóðveijar hefðu
ekki tekið Svíþjóð líka, eins og Dan-
mörku og Noreg, ef það hefði ekki
„Það er harður heimur,
sem við lifum í, Pétur,
og það þýðir ekki bara
að segja, mamma, ég
vil frið. Friðinn verður
að veija, og það er
vegna minnar trúar á
þann frið, að ég svaraði
þér um daginn. Ef að
einhver reynir svo að
koma á mig skrámu
fyrir bragðið, þá væri
það ekki of mikil fórn
af minni hendi, ef það
gæti stuðlað að því að
viðhalda þeim friði, er
við nú þegar höftim, og
betra lífí fyrir okkur,
gömlu starfsfélagana
firá útvarpinu og af-
komendur okkar.“
orðið þeim of dýrt. Svíþjóð var og
er vel varin. Bretar tóku okkur en
ekki nasistar Hitlers né herir Stalíns.
Fyrir það megum við báðir þakka.
Það er ekki víst að við gengjum laus- •
ir núna, ef annar hvor þeirra fóst-
bræðra hefði náð okkur.
Þú lætur að því liggja, Pétur, að
Churchill og Truman hafi svikið lo-
forðið um að veija Pólland. Þú ert
betur að þér í sögunni en þetta.
Churchill réð ekki í Englandi í upp-
hafi stríðsins; það var „friðarsinninn"
Chamberlain, sem veifaði sáttmálan-
um við Hitler framan í allan heim-
inn. „Aldrei oftar stríð“! Sá sátt-
máli var gerður í lok september 1938.
Innan árs hóf Hitler svo innrásina í
Pólland. Þú veist líka, að Truman
réðekki í Bandaríkjunum 1939, það
var Roosevelt og Bandaríkin vildu
ekki taka þátt í stríðinu fyrr en þau
neyddust til þess. Vinimir Hitler og
Stalín gerðu á milli sín 10 ára „friðar-
sáttmála" í ágúst 1938, aðeins til
þess að blekkja og að þeir gætu svo
báðir tryggt sér sinn skerf af Evr-
ópu, er hún lægi í rúst. Hitler mi-
stókst, en Stalín fékk sitt. Rússneski
herinn beið austan við Pólland og
Haukur Eggertsson
tryggði Þjóðveijum þannig „frið“ á
meðan þeir murkuðu lífíð úr Pólveij-
um vestan frá. Sjálfir gerðu Rússar
svo innrás að austan aðeins rúmum
hálfum mánuði á eftir Þjóðveijunum,
eða þegar þeir voru að nálgast um-
samda línu. Hirtu svo allt síðar og
meira til.
Ég þarf ekki að rekja þetta lengra.
En það er dapurlegt til þess að
hugsa, að mest allan tímann á milli
heimsstyijaldanna kepptust Möndul-
veldin við að vígbúast en Vesturveld-
in að afvopnast og stóðu svo vam-
arlítil gegn ofbeldinu. Ja, hvílíkur
friður! Það er alls óvíst, að nokkurt
stríð hefði orðið, ef Hitler hefði þurft
að hafa áhyggjur af „ógnaijafn-
vægi“. Svo kaldhæðnislegt er það.
Það er harður heimur, sem við lif-
um í, Pétur, og það þýðir ekki bara
að segja, mamma, ég vil frið. Friðinn
verður að veija, og það er vegna
minnar trúar á þann frið, að ég svar-
aði þér um daginn. Ef einhver reyn-
ir svo að koma á mig skrámu fyrir
bragðið, þá væri það ekki of mikil
fóm af minni hendi, ef það gæti
stuðlað að því að viðhalda þeim friði,
er við nú þegar höfum, og betra lífi
fyrir okkur, gömlu starfsfélagana frá
útvarpinu og afkomendur okkar. Ég
vil ekki slíkan „frið“, sem skapar
einum eða neinum vald til „að taka
í lurginn" á öðrum, ef hans „lang-
lundargeð" brestur. en það leynir
sér ekki í skrifum þínum, Pétur, að
þín trú er, að Pólveijar hafi lent
„réttu megin". Þú getur því sjálf-
sagt samglaðst þeim með hlutskiptið.
Með kveðju.
Orðsending til stúdenta
eftír Sigmjón Þór
Friðbjörnsson
í vetur og nú fyrir síðustu kosning-
ar í Háskólanum hefur aðalslagorð
vökumanna verið það að stúdentaráð
eigi ekki að vera „pólitískur sand-
kassi“, eða „æfíngabúðir fyrir verð-
andi alþingismenn". í þessu felst það
m.a. að vilja ekki taka þátt í mót-
mælayfírlýsingum hvers konar, gegn
óréttlæti út í hinum stóra heimi né
t.a.m. gerast aðilar að Suður-Afríku-
samtökum gegn aðskilnaðarstefn-
unni þar.
Röksemdimar fyrir þessu hjá þeim
eru helst tvær, auk svo hinnar þriðju
sem einhveijir kynnu mjög líklega
að selja fyrir sig. Rökin eru eftirfar-
andi: 1. Að stúdentaráð sé ekki rétt-
ur vettvangur fyrir slík mál, „starfið
í stúdentaráði er í raun félagsmál
en ekki pólitík". 2. Að stúdentaráð
á ekki að taka ákvarðanir í slíkum
málum, fyrir hönd allra stúdenta sem
hafa mislitar skoðanir. 3. Þó það sé
lofsvert í sjálfu sér að beijast gegn
ofbeldi og óréttlæti í heiminum, þá
sé það svo til tilgangslaust, heimur-
inn er jú einu sinni eins og hann er
og því verðúr ekkert breytt.
Varðandi fyrstu rökin (ef rök
skyldi kalla) er það fyrst að segja,
að það er einfaldlega ekki til sá vett-
vangur sem er ekki rétti vettvangur-
inn til að beijast gegn óréttlæti og
ofbeldi, og það er eitt af hagsmuna-
málum stúdenta að beijast gegn
slíku, þ.e. sem manneskjur. Þeir
embættismenn í síðari heimsstyijöld-
inni sem unnu við útrýmingarbúðir
nasista stóðu sig vel margir hveijir
sem embættismenn, en illa sem
manneskjur. Ef stúdentar á íslandi
þyrftu að þola ýmsa óréttláta vald-
beitingu hér ætli þeir myndu ekki
vera þakklátir hvers konar stuðn-
ingsyfirlýsingum sem hugsanlega
kæmu frá öðrum stúdentaráðum
hvaðanæva úr heiminum, eða mundu
þeir ef til vill afþakka með þeim orð-
um að þetta væri ekki þeirra rétti
vettvangur? Svo eru þetta engin rök
fyrir því að vandamál heimsins komi
ráðinu ekki við, því ég get enn þá
spurt „hvers vegna ekki“?
Hvað ólíkum skoðunum við kemur
væri forvitnilegt að vita hvers vegna
þeir kalla sig félag lýðræðissinnaðra
stúdenta, hvað með þá sem eru ekki
lýðræðissinnaðir? Það væri auk þess
fróðlegt að vita hvaða skoðanir þetta
fólk hefði sem væru ekki á móti órétt-
læti. Er verið að hygla fasistum eða
hvað? Það er líka mikil mótsögn í
þessu, eða nefnilega það að verið sé
að hafa áhyggjur af rétti fólks sem
hvort eð er er gegn réttlæti. En
kannski er þá ekki sama hver það
er sem verður fyrir óréttlæti og hvar.
Kannski liggur ágreiningurinn í mi-
sjöfnum útleggingum á því hvað rétt-
læti sé. T.d. gæti einhver verið þeirr-
ar skoðunar að það sé ekkert athuga-
vert við aðskilnaðarstefnuna í Suð-
ur-Afríku en Vökumenn hrista af
sjálfum sér sem betur fer slíkar skoð-
Hve leng-i má af litlu taka?
Þroskaþjálfar sem starfa á sólarhringsstoftiunum fyrir fatlaða lýsa
yfir áhyggjum vegna niðurskurðarstefiiu stjórnvalda
Hvað verður um réttindi fatlaðra
ef boðaður niðurskurður stjóm-
valda nær fram að ganga? Þegar
lög um málefni fatlaðra tóku gildi
1984 mátti ætla að réttindi fatl-
aðra væri nokkuð vel tryggð. En
okkur þroskaþjálfum býður í grun
að þeir sem nú sitja við stjóm þekki
illa þessi lög. Enn eigum við langt
í land að framfylgja þessum lögum
vegna fjárskorts. Boðaður héfur
verið niðurskurður á launakostnaði
sem óhjákvæmilega hlýtur að bitna
á slgólstæðingum okkar, þar sem
færra starfsfólk verður til að sinna
þjálfun, umönnun og uppeldi
þieirra. Hvaða réttindi skyldum við
vera að tala um? í lögum um mál-
efni fatlaðra nr. 41/1983 segir í
1. gr. „Markmið þessara laga er
að tryggja fötluðum jafnrétti og
sambærileg lífslgör við aðra þjóð-
félagsþegna og skapa þeim skilyrði
til þess að lifa eðlilegu lífi og hasla
sér völl í samfélaginu þar sem þeim
vegnar best...“
Skyldu ráðamenn gera sér grein
fyrir að slg'ólstæðingar okkar kom-
ast sjaldnast einir ferða sinna. Oft
verður að hafna ýmsum góðum til-
boðum sem þeir fá varðandi tóm-
stundir, fræðslu og skemmtun
vegna þess að stofnanir rísa ekki
undir þeim kostnaði sem tilboðun-
um fylgir. Þá er fyrst og fremst
átt við launakostnað. Öll getum við
örugglega verið sammála um það
að enginn eigi að gjalda fyrir fötlun
sína og það að fá aðeins frum-
þörfúm sínum fullnægt geti varla
talist til mannréttinda f dag.
Þeir sem þekkja til málefna sól-
arhringsstofiiana fyrir fatlaða vita
að þær hafa verið flársveltar til
margra ára, jafnframt sætt tölu-
verðri gagnrýni undanfarið og
mörgum þótt þjónusta þar vera
ónóg. Óvissa sú sem skapast hefur
af þessari umræðu hefur ekki létt
lífsbaráttu þeirra sem þama búa
og starfa. Hefur það oft verið þung-
ur róður að veija tilvist þessara
stofnana. En þrátt fyrir allt eru
þessar stofnanir staðreynd og útlit
fyrir að ekki verði mikil fjárhagsleg
breyting þar á í nánustu framtíð.
En það er líka staðreynd að þarna
býr fólk, sumir næstum alla sina
ævi. Eitt er víst að heimili er ann-
að en skammtímastaður, þar er
fárra kosta völ í spamaði rétt eins
og á öðmm lágiaunaheimilum í
landinu.
Hægræðing og spamaður þarf
ekki alltaf að vera af hinu illa og
eru þroskaþjálfar vissulega tilbúnir
að ræða þau mál. En við hljótum
þó ávallt að hafa það í huga að
spamaðaraðgerðir bijóti ekki í
bága við rétt skjólstæðinga okkar.
„í fljótu bragði sjáum
við hvorki mörg eða
stór úrræði til sparn-
aðar, t.d. getum við
ekki lokað deildum,
því hvert ætti að senda
íbúana? Telst það
kannski sanngjörn að-
gerð að loka heimilum
fólks?“
í fljótu bragði sjáum við hvorki
mörg eða stór úrræði til spamað-
ar, t.d. getum við ekki lokað deild-
um, því hvert ætti að senda íbú-
ana? Telst það kannski sanngjöm
aðgerð að loka heimilum fólks? Við
viljum einnig benda á að fátt er
um dýra sérfræðinga á þessum
stofnunum. Þorri þeirra starfs-
manna sem starfa á þessum heimil-
um eru láglaunastéttir enda að
mestu úr röðum hinna hefðbundnu
kvennastétta. „Illt er aumu að
trúa“ ef efnahagsvandi ríkisins
liggur í launum þessa fólks. En
eitt er víst að hið opinbera nýtur
góðs af áhuga fólks á starfiny, því
ekki laða launin að. Finnst okkur
ómaklega vegið að starfsmönnum
þessara staða þegar talað er um
yfirvinnubann. Engin slík yfírvinna
er unnin nema brýna nauðsyn beri
til. í þessum störfum vinnur fólk
oft á tíðum undir miklu álagi við
erfið skilyrði.
í reglugerð um störf, starfsvett-
vang og starfshætti þroskaþjálfa
kveður m.a. á um að þroskaþjálfar
skuli í störfum sínum leggja sér-
staka áherslu á skyldur samfélags-
ins við fatlaða og stuðla að því að
samfélagið mæti þörfum þeirra.
\Óttumst við að ef til framkvæmda
kemur á fyrirhuguðum niðurskurði
verði okkur gert ókleift að starfa
samkvæmt því sem okkur ber
skylda til. Einnig finnst okkur
umræðan um þessi mál hafa ein-
kennst af kaldranahætti og skiln-
ingsleysi. Allar þessar aðgerðir
snúast um fólk, sem á við ærinn
vanda að stríða fyrir, þ.e.a.s. fötlun
og/eða veikindi. Hefur það hingað
til ekki þótt neinum til sóma að
ráðast á garðinn þar sem hann er
lægstur. Teljum við það því verð-
ugt verkefni fyrir alþingismenn að
velta fyrir sér í næstu fríum hvort
lögin um málefni fatlaðra eða fjár-
lögin hafi meira vægi þegar allt
kemur til alls.
(Frá Félagi þroskaþjálfa.)
Sigurjón Þór Friðbjömsson
„Hvað ólíkum skoðun-
um við kemur væri for-
vitnilegt að vita hvers
vegna þeir kalla sig fé-
lag lýðræðissinnaðra
stúdenta, hvað með þá
sem eru ekki lýðræðis-
sinnaðir? Það væri auk
þess ft’óðlegt að vita
hvaða skoðanir þetta
fólk hefði sem væru
ekki á móti óréttlæti.“
anir. Síðast varðandi þessi önnur
rök, þá er þetta ekki spuming um
vijja eins né neins, heldur skyldu (en
enn og aftur eru einhveijir sjálfsagt
ósammála þessu — en þetta mál verð-
ur víst ekki tæmt í þessu stutta
bréfi).
Varðandi þriðju rökin (sem ég hef
hér aukalega með því ég hef hvergi
rekist á þau í Vökubæklingum, en
tel þó næsta víst að margir setji fyr-
ir sig) vil ég benda á það, að ef þú
ert þeirrar skoðunar að þú getir engu
breytt, þá getur þú það alveg örugg-
lega ekki heldur. Því forsendan fyrir
því að geta breytt einhveiju er trúin
á að það sé hægt að breyta ein-
hveiju. Án hugsjóna held ég að fólk
sjái síður tilgang í lífinu, það lifir
þá við andlega tómhyggju, missir
hluta úr sál sinni, verður jafnvel eins
og andlitslausir hlekkir í hugsunar-
lausri vél.
Ég þakka þeim sem lásu.
Höfundur er heimspekinemi við
Hí.