Morgunblaðið - 06.05.1989, Qupperneq 1
48 SIÐUR B OG LESBOK
100. tbl. 77. árg.
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
40 ár frá stofiiun Evrópuráðsins:
A
Ozonfundinum í
Reuter
Nýrkeisari Eþíópíu
Merd Azmatch Asfa Wossen, sonur Hailes Selassies, fyrrum
keisara Eþíópíu, boðaði fréttamenn á sinn fund í gærkvöldi og
sagðist hafa lýst sig keisara í foðurlandi sínu. Undanfarin 15
ár, eða síðan marxistar steyptu föður hans af stóli, hefur krón-
prinsinn lifað kyrrlátu lifi í Lundúnum ásamt eiginkonu sinni
og dóttur. I gær sagði hann að ástandið í Eþíópíu væri svo slæmt
að hann hygðist reyna að efla landsmenn til að steypa marxista-
stjórninni af stóli svo hann gæti snúið heim sem keisari.
Fulltrúar íslands þar voru alþingis-
mennirnir Ragnhildur Helgadóttir,
formaður sendinefndar íslands,
Guðmundur G. Þórarinsson, Ragn-
ar Arnalds og Hreggviður Jónsson
auk Kjartans Jóhannssonar, forseta
neðri deildar Alþingis, sem var sér-
staklega boðið sem þingforseta.
Á afmælisdaginn fundaði ráð-
herranefnd Evrópuráðsins í aðal-
stöðvunum. Sendu ráðherrarnir frá
sér yfirlýsingu þar sem framtíðar-
hlutverk Evrópuráðsins er skil-
greint nánar í ljósi breyttra að-
stæðna. Fulltrúi íslands á ráðherra-
fundinum var Sveinn Björnsson,
fastafulltrúi hjá Evrópuráðinu.
Lech Walesa, forystumanni Sam-
stöðu í Póllandi, og Helsinki-
mannréttindasamtökunum verða
veitt mannréttindaverðlaun Evr-
ópuráðsins við athöfn í þingsal þess
í Strassborg 10. maí. Það verður
norski utanríkisráðherrann, Thor-
vald Stoltenberg, nýlq'örinn formað-
ur ráðherranefndarinnar, sem veitir
verðlaunin.
Sóst eftir samstarfi
við austantjaldsríki
Fá Ung-verjaland o g Pólland aukaaðild?
EVRÓPURÁÐIÐ hélt upp á 40 ára afmæli sitt í gær, 5. maí, með því
að mælast til aukins samstarfs við Austur-Evrópuríki. Fyrstu áratug-
ina einkenndist starfsemi ráðsins af baráttu fyrir mannréttindum
og gagnrýni á alræði kommúnista austantjalds. Nú eru breyttir timar
og bauð ráðherranefhd ráðsins Ungveijalandi og Póllandi að undir-
rita menningarsáttmála ráðsins en þau ríki þykja líklegust Austur-
Evrópuríkja til aukaaðildar að ráðinu, samkvæmt heimildum Reut-
ers-fréttastofunnar.
Finnar gengu formlega í ráðið á
afmælisdaginn, og eru þá öll lýð-
ræðisríki Evrópu, 23 að tölu, aðilar
að þessari elstu ríkjastofnun álfunn-
ar. Afmælis Evrópuráðsins var
minnst í aðildarríkjunum og í aðal-
stöðvum þess í Strassborg, þar sem
þing ráðsins hélt hátíðarsamkomu.
Kína:
Ræða Zhaos
hefur áhrif
á námsmenn
Peking. Reuter.
NOKKUR hluti kínversku náms-
mannanna, sem krafist hafa lýð-
ræðis með setuverkfalli og
kröfugöngum undanfamar vik-
ur, sneri aftur til náms í gær.
Þar veldur ræða Zhaos Ziyangs,
leiðtoga kínverska kommúnista-
flokksins, á fimmtudag þar sem
hann sagði kröfur námsmanna
„skiljanlegar".
Ræða Zhaos var tíunduð ræki-
lega í kínverskum dagblöðum í gær
og þykir mörgum námsmönnum
hún ótvírætt dæmi um að stjórn-
völd vilji koma til móts við þá og
að aðgerðir undanfarnar vikur hafi
borið árangur. Aðrir segja ræðuna
óljósa og að í henni séu engar
áþreifanlegar ráðstafanir kynntar.
Að sögn Wangs Zhixins, 21 árs
gamals aðalritara hinnar ólöglegu
stúdentahreyfíngar, var ákveðið að
snúa aftur til náms eftir að tug-
þúsundir námsmanna gengu fylktu
liði um Peking á fimmtudag vegna
þess að stjómvöld hefðu sýnt samn-
ingsvilja. „Stjórnin hefur hopað og
ef við hættum verkfalli getur það
greitt fyrir viðræðum,“ sagði Wang
sem hefur verið helsti leiðtogi
80.000 stúdenta í tveggja vikna
langri baráttu þeirra fyrir auknu
lýðræði í Kína.
Helsinki lokið:
Ekkert sam-
komulag um
stuðning við
þróunarríki
Helsinki. Frá Tom Kankkonen, fréttarit-
ara Morgnnblaðsins.
Á FUNDI fiilltrúa 80 ríkja á veg-
um umhverfisáætlunar Samein-
uðu þjóðanna um eyðingu ózon-
lagsins tókst ekki samkomulag
um tillögu um stofhun sjóðs til
að styðja þróunarriki til að draga
úr freonmengun. Mörg helstu
iðnríki heims vildu heldur beita
hefðbundnum aðferðum til að
styrkja vanþróuð ríki. Kaj Bar-
lund umhverfismálaráðherra
Finnlands sagðist reikna með að
slíkur sjóður yrði stofhaður inn-
an skamms.
Hins vegar var samþykkt yfírlýs-
ing þar sem krafist er þess að
hætt verði að nota ózoneyðandiefni
fyrir aldamót. Fundinum, sem hald-
inn var í Helsinki, var ætlað að fínna
leiðir til að renna stoðum undir hina
svokölluð Montreal-samþykkt frá
1987. Þá skuldbatt Evrópubanda-
lagið auk 36 annarra ríkja sig til
að helminga freonmengun frá sínu
yfirráðasvæði til ársins 1998.
Umhverfisvemdarsamtök gagn-
rýndu niðurstöðu fundarins og
sagði talsmaður Grænfriðunga til
dæmis að ekki væri nægilegt að
binda bann við aidamótin, það væri
einfaldega of seint í rassinn gripið.
Ræða Rafsanjanis, leiðtoga íranska þingsins:
Hvetur Palestínumenn til
grimmilegra hermdarverka
Nikósíu. Reuter. Daily Telegraph.
ALI AKBAR Rafsanjani, talsmaður íranska þingsins og líklegur arf-
taki Ayatollahs Khomeinis erkiklerks, skoraði í gær á Palestínumenn
að myrða fimm Bandaríkjamenn, Breta eða Frakka fyrir hvem
píslarvott Palestínumanna sem félli á Vesturbakka Jórdanár eða
Gaza-svæðinu. Hingað til hefhr verið litið á Rafsanjani sem hófsemd-
armann í klerkaveldinu í íran en yfirlýsingar hans í gær kollvarpa
slíkum hugmyndum, að mati fréttaskýrenda. Ræðan vakti mikla
reiði í þeim ríkjum sem hótunin beinist gegn og líkti Marlin Fitz-
water, talsmaður Bandaríkjastjómar, yfirlýsingu Rafsanjanis við
morðhótanir Khomeinis gagnvart rithöfiindinum Salman Rushdie
fyrr á árinu.
Gómsætt!
Fulltrúar íslands, Noregs og
Tyrklands grípa gómsætar flat-
bökusneiðar í hléi sem þær
gerðu á undirbúningi sínum
fyrir þátttöku í fegurðarkeppn-
inni Ungfrú Alheimur, sem
haldin verður í Mexíkóborg eft-
ir nokkra daga. Myndin var
tekin þar í borg en veðrið á
þeim slóðum er í beinu sam-
ræmi við fegurð stúlknanna
þriggja, Guðbjargar Gissurar-
dóttur (í miðið), Lene 0rnhoft
frá Noregi (t.v.) og Jasmin
Baradan frá Tyrldandi (t.h.).
Rafsanjani hvatti Palestínumenn
til að „ræna þotum“ og „sprengja
upp verksmiðjur"; hverfa sem sagt
til hryðjverka á ný. Hann sagði ísra-
ela ekki eins auðveld fórnarlömb
og borgara margra vestrænna ríkja
en þeir bæru ekki síður ábyrgð á
verkum ísraelsstjórnar. Rafsanjani
lét eggjunarorð sín falla á bænas-
amkundu í Teheran í gær en á
fimmtudag var svokallaður Jerúsal-
ems-dagur í íran að undirlagi Kho-
meinis og þá hafði komið til fjölda-
mótmæla í landinu gegn hernámi
ísraels og yfirráðum gyðinga yfir
Jerúsalem. Að sögn viðstaddra
hrópaði lýðurinn slagorð eins og
þessi: „Múslímar heimsins samein-
umst til frelsunar Jerúsalem.“
Þegar Khomeini skipaði trú-
bræðrum sínum um heim allan að
myrða Salman Rushdie í febrúar
vék Rafsanjani sér undan því að
taka afstöðu. Jafnvel er talið að
hann hyggist nú sýna harðlínu-
mönnum í klerkastjórninni að í hon-
um sé nægur dugur til að taka við
af Khomeini. Undanfarin 3 ár gat
Rafsanjani sér orð sem hófsamur
stjómmálaforingi er hann einn
fárra ráðamanna í Teheran reyndi
að bæta sambúð írans og vest-
rænna ríkja.
Umdeilt
dómsmál
Memmingcn, Bæjaralandi. Keuter.
EINUM umdeildustu réttar-
höldum síðari ára í Vestur-
Þýskalandi lauk í bænum
Memmingen í Bæjaralandi í
gær. Þá var kvensjúkdóma-
læknirinn Horst Theissen
dæmdur í tveggja og hálfs árs
fangelsi fyrir ólöglegar fóst-
ureyðingar. Áður höfðu 79
konur verið sektaðar um allt
að 90.000 ísl. krónur fyrir að
hafa leitað til Theissens.
Samkvæmt v-þýskum lögum
þarf samþykki annars læknis en
þess sem fóstureyðinguna fram-
kvæmir fyrir því að aðgerðin sé
nauðsynleg. í kaþólskum sveit-
um Bæjaralands er víða nær
ómögulegt fyrir konur að fá
fóstri eytt og því hafa læknirinn
og sjúklingar hans notið al-
mennrar samúðar.