Morgunblaðið - 06.05.1989, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1989
27
Heildarveltan 8 milljarðar og 453 milljónir:
Kaupfélag Eyfirðinga tapaði
204 milljónum á síðasta ári
Eignir umfram skuldir rúmlega tveir milljarðar
Rekstrarafkoma Kaupfélags Eyfirðinga var mjög slæm á árinu 1988
og varð tap á rekstrinum um 204 miiyónir króna á móti 50 milljón
króna hagnaði á árinu á undan. Fjármunamyndun i rekstri varð aðeins
5 milljónir, en árið 1987 varð hún 123 milljónir króna. Heildarvelta
Kaupfélags Eyfirðinga að samstarfefyrirtækjum meðtöidum nam á
síðasta ári 8 milljörðum og 453 milljónum króna, sem er um 14% aukn-
ing á milli ára. I aðalrekstri félagsins var veltan 6 miiyarðar og 741
miiy'ón og hafði aukist frá árinu áður um 17,6%, en velta samstarfs-
fyrirtækja var á síðasta ári 1 milljarður og 712 milljónir, sem er 25
aukning frá fyrra ári. Veltuaukningin er heldur minni en sem nemur
verðbólguþróuninni og er því um magnsamdrátt að ræða. Beinar launa-
greiðslur í aðalrekstri voru 894 miiyónir króna, sem er aukning upp
á 25%, en hjá samstarfsfyrirtækjum voru beinar Iaunagreiðslur 424
miHjónir króna, sem er um 20% aukning. Á síðasta ári störfuðu að
meðaltali 1.045 manns í aðalrekstri félagsins, sem er aukning um 16
störf, en hjá samstarfefyrirtækjum störfuðu að meðaltali 296 manns,
en þeim fækkaði nokkuð milli ára.
„Arið 1988 einkenndist af miklum
erfiðleikum i atvinnurekstri. Sérstak-
lega hefur atvinnurekstur á lands-
byggðinni átt erfitt uppdráttar.
Kaupfélag Eyfirðinga fór ekki var-
hluta af þessum erfiðleikum og er
óhætt að segja að árið 1988 hafí
verið eitt hið versta í langan tíma
hvað varðar þau skilyrði sem at-
vinnureksturinn bjó við,“ sagði
Magnús Gauti Gautason kaupfélags-
stjóri í skýrslu sinni á aðalfundi fé-
lagsins sem hófst í gær, en honum
lýkur í dag.
Fjárfestingar í varanlegum rekstr-
aríjármunum voru á síðasta ári 186
milljónir króna og munar þar mest
um togarann Baldur, sem kostaði
87 milljónir króna, vélar og áhold
48 milljónir og húseignir fyrir 37
milljónir króna. Fyrirtækið keypti
hlutafé i 18 fyrirtækjum fyrir 59
milljónir króna á árinu.
Veltufjármunir félagsins voru 2
milljarðar 153 milljónir og fastaíjár-
munir samtals 3 milljarðar og 135
milljónir. Félagið skuldaði samtals 3
milljarða og 195 milljónir króna um
áramót, þar af voru skammtíma-
skuldir 1 milljarður 996 milljónir, en
þær hækkuðu um 47% á milli ára.
Langtímaskuldir voru 1 milljarður
199 milljónir króna. Eigið fé Kaup-
félags Eyfirðinga var um áramót. 2
milljarðar og 25 milljónir.
í skýrslu kaupfélagsstjóra kom
fram að skuldir á viðskiptareikning-
um og útistandandi viðskiptakröfur
voru í árslok 888 milljónir króna og
höfðu þær aukist um 233 milijóiiir
króna á milli áramóta, eða um 36%.
Kaupfélagsstjóri sagði þessa miklu
aukningu endurspegla versnandi af-
komu atvinnurekstrar og heimilanna
á liðnu ári, innheimta hafi verið afar
erfið og brýnt væri að herða inn-
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Frá aðalfundi KEA, Jóhannes Sigvaldason stjórnarformaður í
ræðustóli, og Magnús Gauti Gautason kaupfélagsstjóri.
heimtu enn frekar og draga úr útlán-
um.
Magnús Gauti Gautason sagði
ástæður taprekstrarins fjölmargar,
en enginn vafi væri á að ytri ástæð-
ur réðu þar mestu. Lækkandi verð á
sjávarafurðum, kaupmáttur rýmaði
og eftirspum minnkaði, samdráttur
varð í landbúnaðarframieiðslu, verk-
fall hjá verslunar- og skrifstofufólki
og yfirvinnubann starfsfólks í matvö-
rubúðum hafði þau áhrif að markað-
ir töpuðust og einnig nefndi hann
aukna skattheimtu. Við þessar að-
stæður hafi tekjur félagsins dregist
saman að raungildi á milli ára. Af-
koma félagsins versnaði á öllum svið-
um nema á sviði þjónustu, én þar
var um raunaukningu að ræða og
munar þar mest um mikla aukningu
á Hótel KEA.
„Það sem gerði árið 1988 svona
óvenju óhagstætt fyrir félagið, fyrir
utan að fá samdrátt í tekjum á nær
öllum sviðum, er sú staðreynd að
raunvextir voru á sl. ári hærri en
nokkru sinni áður, hærri en raun-
vextir í samkeppnislöndum okkar og
miklu hærri en atvinnulífíð getur
staðið undir. Ekki er að undra þótt'*
atvinnulífið í landinu sé að kikna,
eins og sést á fjölda gjaldþrota á sl.
ári og atvinnuleysi nú,“ sagði Magn-
ús Gauti, en fjármagnsgjöld umfram
fjármagnstekjur kaupfélagsins ineir
en tvöfölduðust á milli ára og nam
hækkun þeirra um 219 milljónum.
Kaupfélagsstjóri sagði félagið
hafa allar forsendur til að snúa halla-
rekstrinum yfir í hagnað, en um
síðustu áramót voru eignir félagsins
umfram skuldir rúmlega tveir millj-
arðar króna. Leiðum til að snúa halla-
rekstri yfir í hagnað sagði Magnús
Gauti vera annars vegar lagfæringar
á ytri skilyrðum atvinnurekstrar í
landinu og hins vegar aðgerðir sem
félagið sjálft gæti gripið til. Hvað»
lagfæringar á ytri skilyrðum varðar
væri nauðsynlegt að fella gengið til
að koma á rekstrargrundvelli fyrir
fiskvinnslu og útgerð, vextir yrðu
að lækka verulega og halda yrði
verðbólgu í skefjum. Þá væri nauð-
synlegt að fá hækkuð sölulaun fyrir
mjólk og mjólkurvörur og í slátur-
húsum og mjólkursamlögum þyrfti
að fá leiðréttingu í verðlagningu.
Hvað varðar aðgerðir sem félagið
gæti sjálft gripið til væri þegar búið
að grípa til aðhaldsaðgerða í rekstri
og yrði því haldið áfram. Stefnt yrði
að því að selja þær eignir félagsins
sem ekki væru nauðsynlegar rekstr-
inum og ekki skila arði. Andvirði
þessara eigna yrði fyrst og fremst
notað til að lækka skuldir félagsins.
Fjárfestingum á árinu yrði haldið í
lágmarki, en félagið hefur þegar
keypt togarann Súlnafell til að
tryggja hráefnisöflun.
Vorferða-
lag Kirkju-
skólans
VORFERD Kirlquskóla Víðistaðakirkju
verður farin á morgun, sunnudag. og er
ferðinni heitið út á Reykjanes.
Lagt verður af stað frá Víði-
staðakirkiu klukkan 13.00. Áætlað
er að fara út á Reykjanes. Fyrst
verður kirkjan í Ytri-Njarðvík
heimsótt. Þá verður farið út að
Garðskagavita og skoðuð skelja-
sandsíjaran þar og fjölskrúðugt
fuglalíf. Ferðin er ókeypis og boðið
verður upp á kex og drykk. Foreldr-
ar eru velkomnir með börnum
sínum. Fararstjóri er sr. Guðmund-
ur Öm Ragnarsson.
Skíðasvæðinu
lokað
„ÞAÐ KOM okkur á óvart
hversu margt fólk var hérna um
helgina," sagði Ívar Sigmunds-
Nú eru síðustu forvöð fyrir
skíðaunnendur að renna sér um
brekkur Hlíðarfjalls því skíðasvæð-
unum verður lokað á sunnudaginn,
að sögn ívars.
Sjö sóttu
um stöðu
yfírlæknis
SJÖ SÓTTU um stöðu yfirlæknis
á fæðingar- og kvensjúkdóma-
deild Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri, en umsóknarfrestur
rann út fyrir skömmu.
Þeir sem sóttu um eru Benedikt
Ó. Sveinsson, Reykjavík, Jón B.
Stefánsson, Reykjavík, Jónas
Franklín, Ákureyri, Kristján Bald-
vinsson, Reykjavík, Ólafur M. Hák-
ansson, Linköping, Stefán Helga-
son, Akranesi, og Vilhjálmur Kr.
Andrésson, Reykjavík.
Umsóknir eiga eftir að fara fyr-
ir stöðunefnd og læknaráð og mun
stjóm FSA að loknum umsögnum
ráða í stöðuna.
Tónskóli Sigursveins
Þrennir
tónleikar
UM ÞESSA helgi verða þrennir
tónleikar á vegum Tónskóla Sig-
ursveins D. Kristinssonar.
Laugardaginn 6. maí verða vor-
tónleikar yngri deildar í sal skólans,
Hraunbergi 2, klukkan 14.
Sunnudaginn 7. maí verða aðrir
tónleikar yngri deildar í Norræna
húsinu klukkan 17. Á báðum þess-
um tónleikum koma fram nemend-
ur í einleik og samleik á ýmis hljóð-
færi.
Mánduaginn 8. maí verða svo
tónleikar söngdeildar í sal skólans
við Hraunberg 2.
Allir em velkomnir á þessa tón-
leika.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Gísli Konráðsson til vinstri á myndinni með konu sinni, Sólveigu
Axelsdóttur, og Vilhelm Þorsteinssyni framkvæmdastjóra.
Gísli Konráðsson lætur af störfiim:
Efst í huga þakkir
til starfsfólks ÚA
EFTIR rúmlega 31 árs starf hjá Útgerðarfélagi Akureyringa ók Gísli
Konráðsson heim úr vinnunni I síðasta skipti seinnipartinn í gær, en
þá lét hann af störfum' framkvæmdastjóra félagsins og við tók Gunnar
Ragnars. í kaffitíma starfefólks í gær var eftit til samsætis Gísla til
heiðurs og við það tækifæri afiienti stjórnin starfsmannafélaginu sum-
arhús að gjöf og verður því brátt
félagsmanna.
Gísli Konráðsson sagði í samtali við
Morgunblaðið að er hann hefði hafíð
störf hjá ÚA hefði reksturinn verið
erfiður, en hann hefði þróast jafnt
og þétt. „Það hefur stundum verið
tap á rekstrinum og stundum hagn-
aður, en ég tel að reksturinn sé kom-
inn á góðan kjöl," sagði Gísli.
Gísli sagði að starfið hefði verið
valinn staður í samræmi við óskir
ákaflega ánægjulegt og vitanlega
fyndi hann fyrir söknuði að vera far-
inn frá því ágæta starfsfólki sem hjá
Útgerðarfélaginu ynni. „Mér eru efst
í huga þakkir til alls þess ágæta
starfsfólks og sem vinnur hjá ÚA
og ég er hálfhrærður yfir því hversu
vinsamlegt og elskulegt þetta fólk
var þegar ég kvaddi," sagði Gísli.