Morgunblaðið - 06.05.1989, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1989
Er Moskva
þriðja Róm?
Austur í Bayern sat Ingólfur Guðmundsson námstjóri í kristn-
um fræðum nýlega endurmenntunarnámskeið þar sem fjaltað var
m.a. um hugsanlega sameiningu Evrópu og einnig um afstöðu
mótmælendakirkjunnar til ýmissa trúarhreyfinga. Menntamála-
yfirvöld í Bayern hafa haldið mörg svipuð námskeið fyrir kenn-
ara sína en þessi námskeið í apríl s.l.voru opin þátttakendum frá
öllum löndum sem eiga aðild að Evrópuráðinu. Samkvæmt upplýs-
ingum Ingólfs var þátttaka góð og menn komu víða að til þess-
ara umræðna.
Að sögn Ingólfs virðast margir
Þjóðverjar nú eiga í miklu stríði
við að fínna sér andlegan sama-
stað í lífínu. Hin efnislegu gæði
virðast ekki fullnægja þeim kröf-
um sem menn gera til lífsins.
Menn tala jafnvel um samsæri
hinna óánægðu, þar sem menn
virðast leita nýrra leiða til þess
að hafa áhrif. Einmanakennd sýn-
ist þjaka fólk og margir leita
trausts og öryggis. Þessi leit sam-
einar þó ekki fólk heldur virðast
menn leita halds og trausts hver
fyrir sig. í þessum vanda leita
sumir menn langt út fyrir endi-
mörk kristinnar kirkju. Djöfla-
dýrkun og andatrú hefur á þess-
um umrótstímum vaxið töluvert
fískur um hrygg. M.a. var sýnd á
námskeiðinu sjónvarpsmynd af
því þegar nom var vígð og sagt
frá starfí hennar. Starfsemi noma
hefur aukist mikið og þær leyfa
t.d. viðtöl í sjónvarpi og mynda-
tökur frá ýmsum athöfnum þeirra.
Þær gefa þó ekki upp nöfn þeirra
sem þær formæla né heldur þeirra
sem um formælingamar biðja.
Nomir þessar telja sig vera í sam-
bandi við eyðingaröfl sem geta
eytt fólki eða unnið því mein. í
þeim tilgangi brenna þær hlutum
sem tilheyrt hafa þeim sem eyða
skal. Þessi starfsemi er orðin svo
víðtæk að mótmælendakirkjan í
Bayem telur nauðsynlegt að taka
þessar hreyfingar inn í sem stóran
þátt í námskeiði fyrir kennara í
kristnum fræðum. Þar er fjallað
um hvemig skólinn geti tekið á
þessu máli þannig að það þjóni
tiigangi kirkjunnar. Þess má þó
geta að nomir, og aðrir aðilar af
svipuðum toga, virðast ekki að-
eins biðja mönnum bölbæna, þess-
ir aðilar reyna líka stundum að
stuðla að jákvæðum breytingum
í lífí manna. Til þess notfæra
menn sér andaglas og það að
spyija pendúl yfír borði, svo eitt-
hvað sé nefnt.
Þessi djúpstæði tilvistarvandi
sem sagður er hrjá Þjóðveija virð-
ist eiga sér hliðstæður víða í Evr-
ópu. „Einingarviðleitni Evrópu er
tilraun til þess að bregðast við
mjög alvarlegum vandamálum",
sagði Ingólfur ennfremur í sam-
tali við blaðamann Morgunblaðs-
ins fyrir skömmu. „Mikilvægast
er að varðveita friðinn í Evrópu.
Til þess hefur NATO verið stofnað
og það hefur dugað, að flestra
dómi. Bandaríkjamenn hafa
bjargað Evrópu tvívegis frá hmni,
bæði 1914 -18 og svo í seinni
heimstyijöldinni. En eiga Evr-
ópubúar eilíflega að vera háðir
því að aðrir bjargi þeim þegar
kemur til illvígra deilna. Menn
vilja leitast við að gera Evrópu
að viðskiptalega sterku afli til
mótvægis við t.d. Bandaríkin og
fleiri sterk ríki eða ríkjasambönd.
Á námskeiðinu í Bayem var hins
vegar miklu meira rætt um menn-
ingarlegu hliðina á slíkri samein-
ingu. Svo virðist sem menn geti
orðið sammála um ýmsa við-
skiptalega samræmingu þó hún
sé vissulega flókin. Hver þarf að
breyta mestu og hver minnstu.
Þeir síðamefndu hagnast mest og
allir vilja vera í þeim flokki. Menn-
ingar og trúmál virðast vera erfíð-
ari viðureignar en viðskiptamálin
þegar hugsað er til sameiningar
Evrópu. Þegar rætt er um hugs-
anlega sameiningu horfa menn
gjaman til Bandaríkjanna. Þar er
hinsvegar um samruna að ræða,
eitt tungumál er ríkjandi og feikn-
arieg áhersla lögð á það sem sam-
einar, stjómarskrána og fánann.
Slíkt yrði menningarlega mjög
erfítt fyrir Evrópu. Margir hallast
því fremur að ríkjasambandi og
horfa þar m.a. til Kanada.
Það sem mér fannst einna at-
hyglisverðast við þá umflöllun
sem fram fór á námskeiðinu í
Bayem var hversu þessi hugsan-
lega sameíning snertir mikið sögu
kirkjunnar. Menn verða að vera
vel að sér í þeirri sögu til þess
að skilja þau átök sem fram fara
undir niðri. Bayem er nálægt
austurmörkum Evrópubandalags-
ins. Nú er spumingin hvort banda-
lagið teygist lengra austur og þá
hvað langt. Landræðileg mörk
Evrópu í austur væm líklega Úral-
flöll. Þá eram við komin það langt
austur að austurkirkjan er mætt
til leiks. Við það myndu valdahlut-
Ingólfur gerir grein fyrir stöðu íslands á námskeiðinu í Bayem.
Sr. Ingólfur Guðmundsson
föllin í Evrópu breytast veralega
mikið. Staða Pólveija er mikið
rædd í þessu sambandi. Pólveijar
hafa lengi litið á sig sem vamar-
vegg milli Eystrasalts og Svarta-
hafs. Vamarvegg gegn áhrifum
austurkirkjunnar vestur á bóginn.
Deilumar milli Rússa og Pólveija
era að hluta til átök milli austur-
og vesturkirkju. Þessar deilur eiga
sér rætur allt til elleftu aldar þeg-
ar Konstantínópel og Róm deildu
um yfírráð í kirkjunnar málum.
Menn leiða rök aðþvf að ef banda-
lagið nær allt til Uralíjalla þá nái
Rússar svo sterkum tökum gegn-
um austurkirkjuna að valdajafn-
vægi í Evrópu raskist veralega.
Slík niðurstaða væri næstum
óhugsandi m.a. fyrir rómversk-
kaþólsk ríki.
Austurkirkjan byggir á kenn-
ingunni „Moskva er þriðja Róm.“
Samkvæmt því var fyrsta Róm
Konstantínópel, önnur Róm var
hin ítalska, þær era báðar fallnar.
Þriðja Róm er Moskva og það
Ingólfur Guð-
mundsson nám-
stjóri segir frá
umræðum í Bay-
ern um samein-
ingu Evrópu frá
menningarlegu
tilliti og guð-
fræðilegum um-
ræðum m.a. um
djöfladýrkun og
andatrú.
verður aldrei til nein fjórða Róm.
Kenning prófessors Strobels við
háskólann í Darmstadt, sem um
þetta mál fjallaði í Bayem, er, að
þessi grandvallarskilningur ríki í
Rússlandi og stjómvöld hafí með-
tekið hann og rilji útbreiða þessa
alheimsblessun vestur á bóginn,
jafnvel undir pólitískum formerkj-
um. í þessu tilliti líta Pólveijar á
sig sem vamarvegg. Verði aust-
urblokkin hins vegar ekki tekin
með þá veikir það sameiningu
Evrópu mjög mikið. Þetta er því
mikil klemma, rétt eins og afstaða
manna til Tyrkja. Tyrkir era í
NATO og vilja vera í bandalag-
inu. Þeir leggja mikla áherslu á
að vera Evrópuþjóð. Þeir era hins
vegar Múslimar. Það virðist skipta
miklu máli, því sameiningarafl
Evrópu er kristnin. Tyrkir gætu
þó hugsanlega gert mikið gagn
sem einskonar „stuðpúði" milli
kristnu Evrópu og írönsku og
múslimsku byltingaraflanna. Þeg-
ar málið er skoðað vandlega virð-
ist því að mörgu leyti heppilegra
að hafa Tyrki með en austurb-
lokkina, þrátt fyrir meiri mismun
á trú og menningu.
Lúterstrúarmenn verða fyrir-
sjáanlega í miklum minnihluta í
þessari sameinuðu Evrópu. Ég
sagði í gamni á námskeiðinu að
það væri lítið gagn í okkur íslend-
ingum því við væram svo fáir.
Við leggjum heldur ekki þung lóð
á vogarskálamar þegar litið er til
mannaflöldasjónarmiða, en slík
mál vora einnig rædd í Bayem.
Sannleikurinn er sá að viðkoma
Evróubúa er svo lítil að til vand-
ræða horfir. Manníjölgun í Þýska-
landi er t.d. langmest í hópi tyrk-.
neskra innflytjenda og svipaða
sögu er að segja víðar. Það virð-
ist þörf á að reka í Evrópu
pólitíska stefnu sem hvetur til
barneigna.
Ef við hyggjum að hagsmunum
okkar íslendinga varðandi Evr-
ópubandalagið, þá er það mín nið-
urstaða nú, eftir að hafa tekið
þátt í umræðunum í Bayem og
kynnt mér þetta mál á annan
hátt, að við getum ekki tryggt
okkar framtíð hvorki viðskipta-
lega né menningarlega innan slíks
bandalags. Við eram ekki nema
að hluta til Evrópuland land-
fræðilega. Við tilheyram allt eins
Ameríku. Við verðum að rækja
okkar hlutverk í heiminum með
samvinnu á báða bóga, að öðram
kosti verðum við alger útkjálki
og höfum sáralitla möguleika á
að gera okkur gildandi. Eg tel að
þörf sé miklu meiri umræðna hér
á landi um menningarlega og
menntunarlega þætti varðandi
samvinnu Evrópuríkja og aðild
okkar að slíkri samvinnu. En mitt
mat er að innganga okkar í Evr-
ópubandalagið komi ekki til
greina að sinni.“
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
Yfirlýsing vegna um-
mæla í útvarpsþætti
Það vill oft henda í hita um-
ræðna, að ógætilega er leikið með
orð og svo henti undirritaðan á
dögunum í umræðuþætti Sigrúnar
Stefánsdóttur „í liðinni viku“ 29. sl.
Umræðan spratt upp vegna
fréttaflutnings Ríkisútvarpsins um
uppfærslu Tannháusers, eftir
Wagner. Þar var farið með rangt
mál en mér vitanlega hefur frétta-
stofa Ríkisútvarpsins ekki leiðrétt
þær missagnir, sem þó er venja
þegar slíkt hendir. Af þessu spratt
sú umræða að fjölmiðlafólk sé ótrú-
lega illa í stakk búið til að íjalla
um alvarlega tónlist og í því sam-
bandi vitnað til þess að jafnvel tón-
listardeild Ríkisútvarpsins sé stjórn-
að af „amatör“ á sviði tónlistar, en
af einskærri ógætni sagt um þá sem
starfa við tónlistardeildina, að það
sé fólk sem ekki geti unnið fyrir
sér sem tónlistarmenn. Þeir, sem
þar eiga hlut að, era beðnir velvirð-
ingar á þessari ógætni og ómaklegu
staðhæfíngu, þó hins vegar standi,
eftir sem áður, fullyrðingin varð-
andi stjórn tónlistardeildarinnar.
Reykjavík, 4. maí 1989,
Jón Ásgeirsson.
Tvær bækur
frá Prent-
húsinu
BÓKIN um ísfólkið, sú 45. í
röðinni, er komin út og heit-
ir „Böðullinn“.
Prenthúsið hefur einnig gefíð
út sjöundu bókina um Raija og
heitir hún „Raija bíður skipsins
að austan".
(Úr {réttatilkynningu.)
___________Brids_______________
Arnór Ragnarsson
Bridsfélag’ kvenna
3ja kvölda hraðsveitakeppni hófst hjá
félaginu sl. mánudag, 14 sveitir mættu til
leiks og var spilað í einum riðli með yfir-
setu, úrslit:
Sveit Öldu Hansen 543
Sveit Sigrúnar Pétursdóttur 540
Sveit Laufeyjar Ingólfsdóttur 536
Sveit Vénýjar Viðarsdóttur 534
SveitÓlínuKjartansdóttur 531
Sveit Önnu Lúðvfksdóttur 528
Meðalskor 504.
Frá Skagfirðingum
Reglulegri spilamennsku deildarinnar á
þriðjudögum er lokið. Næstu tvo fimmtu-
daga verður þó spilað í Drangey v/SIðum-
úla 35 I Sumarbrids 1989.
Sl. þriðjudag var lokakvöld deildarinnar
á þessu starfsári. Spilað var í 2x14 para
riðlum og urðu úrslit þessi:
A-riðill
Amór Ragnarsson — Gísli Torfason 185
Véný Viðarsdóttir — Hjálmar S. Pálsson 184
Lárus Hermannsson — Óskar Karlsson 170
Alfreð Alfreðsson — Jóhann Gestsson 169
Bogi Sigurbjöfnsson — Sævin Bjamason 169
Jóhannes Guðmannsson —
Sigurður ívarsson 165
B-riðill
Anton R. Gunnarsson —
Jón Þorvarðarson 185
Rúnar Lárusson —
SigurðurLárusson 184
Bjöm Amarson —
Stefán Kalmannsson 176
Steingrímur Jónasson —
Sigurleifur Guðjónsson 165
Esther Jakobsdóttir —
Aron Njáll Þorfinnsson 158
Murat Serdar —
Þorbergur Ólafsson 156
Stjóm deildarinnar þakkar spilurum góða
þátttöku á starfsárinu.
Sumarbrids 1989
Sumarbrids 1989 hefst á þriðjudaginn
kemur. Spilað verður I Sigtúni 9, húsi Brids-
sambandsins. Húsið opnar kl. 17.30. Fyrir-
komulag verður með hefðbundnu sniði, þ.e.
spilað I riðlum, og hefst spilamennska I
hveijum riðli um leið og hann fyllist. Síðasti
riðill fer af stað kl. 19.30.
Fimmtudagana 11. og 18. maí verður
spilað I Sumarbrids I Drangey v/Síðumúla
35 (húsið t Sigtúni er upptekið þá daga).
Þá tvo fimmtudaga er húsið opnað kl. 18.30
(takmörkuð þátttaka vegna húsnæðis).
Umsjónarmenn Sumarbrids á þriðjudög-
um em: Ólafur Lárasson og Isak Öm sig-
urðsson. Umsjónarmenn á fimmtudögum
era: Ólafur Lárasson og Hermann Láras-
son. Til aðstoðar er Jakob Kristinsson.
Nánari uppl. era veittar á skrifstofu
Bridssambandsins I s: 91-689360.
Bridsdeild
Húnvetningafélagsins
Hjörtur Cyrasson og Ingvar Sigurðsson
sigraðu með yfirburðum t tvímennings-
keppninni sem lauk sl. miðvikudag. Spilað
var f tveimur 14 para riðlum.
Lokastaðan:
Hjörtur — Ingvar 592
Þórarinn Ámason —
Gfsli Víglundsson 524
Friðjón Guðmundsson —
Snorri Guðmundsson 509
Ólína Kjartansdóttir —
Hanna B. Jóhannesdóttir 497
Gunnar Valgeirsson —
Höskuldur Gunnarsson 493
Guðlaugur Sveinsson —
Guðión Jónsson 493
Þetta var sfðasta keppni vetrarins en
næsta miðvikudag fer fram verðlaunaaf-
hending fyrir mót vetrarins. Spilarar eru
hvattir til að mæta í Skeifuna 17, kl. 19.30.
Bridsfélag Breiðholts
Spilaður var eins kvölds tvfmenningur
si. þriðjudag f cinum 12 para riðli.
Urslit:
Guðmundur Skúlason —
Einar Hafsteinsson 135
Guðmundur Baldursson —
Jóhann Stefánsson 134
Hermann Lárusson —
Þórann Jónsdóttir 131
Á þriðjudag verður firmakeppni félagsins
og verður spilað um veglegan farandbikar.
Keppnin er eins kvölds og era allir velkomn-
ir. Spilað er í Gerðubergi kl. 19.30.