Morgunblaðið - 06.05.1989, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR -6. MAÍ 1989
Audrey Heburn hefiir yfírgefið leiklistina
og snúið sér að hjálparstarfí í Afríku.
AFRÍKU
Audrey
Hepurn
í Barna-
hjálpinni
hjálpasvelt-
andi börnum er mikil-
vægara en að hugsa
um eigin frama,“
segir leikkonan Au-
drey Heburn. Hún
hefur nú sagt skilið
við hvíta tjaldið og
gefið sig að barna-
hjálp í Afríku.
Þessa dagana er Audrey, sem
er tæplega sextug, í Súdan á
vegum barnahjálpar Sameinuðu
þjóðanna, en þar eru hundruð
þúsunda manna í svelti. Áður
hefur hún dvalið í Eþíópíu og á
öðrum svæðum þar sem þurrkar
eru miklir. „Ég hef lært að ekk-
ert er vonlaust,“ segir hún í við-
tali við sænskt síðdegisblað.
„Glimrandi Hollywood-heimur
heillar mig ekki,“ segir hún enn-
fremur.
)
Sjálf segist hún vita hvað
hungur er og það öryggisleysi
sem því fylgir. Á tímum seinni
heimsstyijaldarinnar bjó hún ein
með móður sinni í Hollandi, en
faðir hennar flutti að heiman
þegar hún var sex ára að aldri.
Hún segir að það skipti engu
þótt aðdáendur gleymi henni,
en Audrey hefur leikið í fjölda
kvikmynda gegnum árin. Hún
býr nú í Sviss ásamt sambýlis-
manni sínum, leikaranum Ro-
bertWolders.
Aðrar frægar kvikmynda-
stjömur starfa einnig fyrir
Bamahjálp Sameinuðu þjóðanna
og má þar nefna Harry Bela-
fonte, Liv Ullmann og Peter
Ustinov.
SUÐUREYRI
Rauðmaginn kominn
í Galtarlandið
Rauðmaga-
vertíðin hófst
fyrir nokkru. Þetta
er tómstundagam-
an sem margir
hafa heillast af og
fara sumir á
hveiju vori til að
leggja fáein net.
Útiveran og ferskt
sjávarloftið dregur
menn í litlu bátana
sína.
Fréttaritara
gafst kostur á að
fara í stutta rauð-
magasjóferð með
Sturlu Páli Sturlu-
syni flugvallar-
stjóra. Leiðin lá út
í svokallað Galtar-
land þar sem menn
hafa lagt net í ára-
tugi með ágætum
árangri.
Þegar baujum-
ar komu í ljós tók Sturla þær um
borð. Síðan var byijað að draga og
það fyrsta sem kom í ljós var dauð-
ur æðarbliki. Sturla segir að það
sé nokkuð algengt að fuglar festi
sig í netunum og þá sérstaklega
æðarfuglinn.
Afli var tregur í þessari veiðiferð
því í þau tvö net sem lögð vom
fengust aðeins tveir rauðmagar eft-
ir sólarhrings legu. Þarinn og dras-
lið er greitt úr netunum og þau
síðan lögð aftur í sjóinn á sama
stað. Aflinn er ekki allt, útiveran
og hreyfingin er það sem heillar
og síðan veðrið.
„Það er nú ekki alltaf svona
gott,“ sagði Sturla, „svo maður
þakkar veðurguðunum fyrir það að
Hér er Sturla
Galtarlandinu
Morgunblaðið/Róbert Schmidt
með rauðmagann sem fékkst í
I Súgandafirði.
fá að komast út á sjó í fáeina klukk-
utíma til að leika sér.“
í lokin var farið í smá útsýnis-
ferðalag um fjörðinn. Hávellan var
í hundraðatali um allan sjó og einn
og einn svartfúgl var á flögri. Einn-
ig mátti sjá dílaskarfana á flugi
hátt uppi.
Ferðin var senn á enda og bátur-
inn rann inn í höfnina. Sturla gerði
að rauðmögunum, gaf mér þá í
soðið og ég þáði með þökkum.
Svona ferð gefur manni virkilega
mikið. Að geta fengið að anda
hreinu og tæru sjávarloftinu að sér
er tilfinning sem gleymist aldrei og
rekur mann á stað í aðra ferð áður
en vikan er liðin.
- R. Schmidt
Árgerð 1989 af þessum heimsþekktu gæðabíl-
tækjum er komin. Með réttu Pioneerbíltækjunum
getur þú gert bílinn að „hljómveri á hjólum".
STÓRSÝNING Á HUÓMTÆKJUM OG BÍL-
TÆKJUM i VERSLUN OKKAR i DAG KL.
10-17 OG Á MORGUN KL. 13-17.
FRÁ KR.
Komið og kynnið ykkur gæðatæki í öllum verð-
flokkum frá kr. 12.800,-
Hjá okkurfinna allir eitthvað við sitt hæfi.
HUOMBÆR
HVERRSGÖTU 103 SÍMI 25999
ATH.
Radiöþjónusta
Bjarna setur
Pioneertækin í
bflinn
samdægurs.
Gæða-
drykkurinn
Minute
Maid
verður á
boðstólum
báða
dagana.
Grace Jones.
GRACE J0NES
Poppstjarna
í fangelsi
Grace Jones, söng- og leik-
konan fræga, var hand-
tekin nýlega og afplánar nú dóm
í fangelsi á Jamaica. Ástæðan
er sú að kókaín fannst í hand-
tösku hennar og höfðu dollara-
seðlar verið vafðir utan um eit-
urefnið. Hún var handtekin
heima hjá elskhuga sínum,
raggísöngvaranum Chris Stan-
ley.
Atvikið átti sér stað í Stoney
Hill, sem er rétt utan við Kings-
ton, höfuðborg Jamaica. Fyrir
tveimur mánuðum hafði Grace
tilkynnt lögreglu um hvarf vinar
síns sem er hjartveikur og sagð-
ist þá vera hrædd um að hann
hefði tapað minninu. Hins vegar
hafa þær raddir heyrst að fjöl-
skyldu Chris hafi ekki verið gef-
ið um samband hans við leikkon-
una og leikið mannræningja til
þess að halda honum frá henni.
Ógjörningur er að átta sig á
hinu sanna í málinu og er allt
á huldu um hver áhrif fangavist-
in hefur á ástina.
Grace, sem er 37 ára, þarf
að sitja í steininum í nokkra
daga og mun ekki fást út gegn
tryggingu.
MICHAEL JACKSON
Stjarnan
fær nýjan
umboðsmann
opparinn
frægi, Mic-
hael Jackson,
hefur nú sparkað
umboðsmanni
sínum, Frank
Dileo, eftir fímm
ára samstarf.
Eitthvað sá hann
athugavert við
lífsstíl umboðs-
mannsins sem
þótti til dæmis
reykja úr hófi.
Undrast menn
því ekki að upp
úr samstarfinu
slitnaðu, þrátt
fyrir að Frank
hafi hjálpað Mic-
hael að verða
milljónamæring-
ur. Sjálfur segir
Michael að þeir
séu enn vinir en
Frank væntir
þess að fá stórar
fjárfúlgur í sárabætur. Nýi umboðs-
maðurinn heitir John Branca og er
sagt að sá taki Beethoven fram-
fyrir „beatmúsík".
Michael
Jackson