Morgunblaðið - 22.08.1989, Side 17
MORGljNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 1989
42
NU
RÉTTI TÍMINN!
HAGNÝTT OG STUTT NÁM FYRIR ÞARFIR VINNUMARKAÐARINS
„Skrifstofu- og ritaraskólinn helur markvisst
unnið að því að þjálfa og leiðbeina þeim
sem áhuga hafa á að gegna skrifstofustörf-
um. Atvinnurekendur hafa í auknum mæli
sýnt áhuga á að ráða nýútskrifaða nemendur
skólans til almennra skrifstofustarfa. Erþað
bæði þeirra mat og okkar, sem vinnum við
starfsmannaráðningar, að þau sem útskrifast
með góðan vitnisburð séu vel undirbúin til
að takast á við svo fjölbreytt starf sem hið almenna skrifstofustarf
er í dag."
Katrín Óladóttir,
ráðningarstjóri hjá
Hagvangi.
„Ég er ein af þeim sem uppgötvaði fyrir ári síðan að
mennt er máttur. Eftirað hafa verið húsmóðir í II ár
ákvað ég að drífa mig á vélritunarnámskeið og þaðan
lá leiðin í Skrifstofu- og ritaraskólann. Mér sóttist
námið í SR mjög vel vegna þess hve vel fjölskyldan
stóð með mér og hafði nám mitt mikil og góð áhrif
á nám barnanna minna. Einnig höfðu kennararnir
mikil áhrif á mig. Skrefið sem ég steig var stórt, en
ánægjan er mikil eftiryndislegt nám.
I dag starfa ég sem skrifstofumaður hjá Slysavarnafélagi fslands."
Margrét Ósk
Guðmundsdóttir.
Magttús Gunnarssott,
framkvæmdastjóri SÍF
„Reynsla mín af starfsmanni okkar. sem
lokið hefur námi í Skrifstofu- og
ritaraskólanum sýnir að námið þar
hentar mjögvel sem undirbúningur fyrir
almenn skrifstofustörf."
KJARNABRAUT
Aimenn skrifstofustörf
Ef þú ert 18 ára eða eldri, geturðu sótt
um inngöngu og lokið almennu skrif-
stofuprófi á einu ári.
Við búum þig undir að takast á við
hin almennu störf sem tilheyra nú-
tíma skrifstofurekstri.
Veitt er starfsmenntunarián sem
þú þarft ekki að byrja að greiða af
fyrr en að námi loknu. Fjölmörg
stéttarfélög og fyrirtæki styrkja
menn sína til námsins.
FJÁRMÁLA- OG
REKSTRARBRAUT
Ef þú hefur lokið sem samsvarar 2
árum í framhaldsnámi eftir grunn-
skóla, geturðu sótt um inngöngu og
lokið sérhæfðu skrifstofuprófi á einu
ári.
Hér er tilvalið nám fyrir þá sem
vilja taka að sér ábyrgðarmeiri verk-
efni á sviði fjármála og skrifstofu-
reksturs.
Námið er lánshæft hjá Lánasjóði
íslenskra námsmanna. Einnig veitir
Iðnaðarbankinn „starfsmenntunar-
lán".
SÖLU- OG
MARKAÐSBRAUT
Ef þú hefur lokið sem samsvarar 2
árum í framhaldsnámi eftir grunn-
skóla, geturðu sótt um inngöngu og
lokið sérhæfðu skrifstofuprófi á einu
ári.
Markaðs- og sölumál eru alltaf að
verða mikilvægari þáttur í fyrirtækj-
um. Hérfærðu hagnýtt nám sem mið-
ar að sérhæfingu á því sviði.
Námið er lánshæft hjá Lánasjóði
íslenskra námsmanna. Einnig veitir
Iðnaðarbankinn „starfsmenntunar-
lán".
NÁMSARIÐ A HVERRI BRAUT ER 2x13 VIKUR
VIÐ BJÓÐUM ÞÉR STARFSÞJÁLFUN HJÁ GÓÐUM FYRIRTÆKJUM
MORGUNBEKKIR - MIÐDEGISBEKKIR - SÍÐDEGISBEKKIR
- KVÖLDBEKKIR - ÞITT ER VALIÐ
„Það þarf bæði kjark og áræðni til
þess að setjast á skólabekk eftir
jafn langt hlé frá nárni og um var
I að ræða hjá mér, þegar ég byrjaði
í Skrifstofu- og ritaraskólanum
I veturinn I986-87. En góðir
| kennarar í SR kenndu mér (ljótt að
Árný j. aldrei er of seint að læra. Þessi
Guðjohnsen. vetur er mér ógleymanlegur vegna
góðra kennara og skólasystra. Ég starfa nú við tölvubók-
hald hjá Rafis hf.“
„Ég sóttist eftir stuttu og hentugu
námi í takt við þarfir vinnumarkað-
arins, en til að geta sinnt
skrifstofustörfum vel í dag þarftu
að hafa góða þekkingu á því sem
þar fer fram. Ég fann þetta nám (
Skrifstofu- og ritaraskólanum og
hefur það reynst mér sérstaklega
vel í starfi mínu sem ritari
Ameríkudeildar hjá Hf. Eimskipafélagi íslands."
Elínborg
Andrésdóttir.
Erna Svala Gunnarsdóttir
Það var kannski ekki beint spennandi
tilhugsun að vera í ísbúð það sem eftir væri
ævinnar svo ég fór að hugsa . . . Hvað
ætlaði ég eiginlega að gera við líf mitt? Ein
vinkona mín var í Ritaraskólanum um þctta
leyti svo mér datt í hug að reyna sjálf. Ég var
líka í góðri aðstöðu, ég gat haldið vinnunni
i ísbúðinni með skólanum svo ég þurfti ekki
að kvíða því að verða blönk á meðan og ég
var búin að vera eitt ár í MS svo ég treysti
mér vel í þetta. Það var ekki erfið ákvörðun.
SKÓLINN HEFST 11. SEPTEMBER
INNRITUN STENDUR YFIR
SÍMAR 91-10004 • 621066
SKRIFSTOFU-' OG
RITARASKÓLINN
Ánanaustum 15, 101 Reykjavík, sími (91)10004/21655/621066
FLJÓTT • FLJÓTT - AliG LÝSINC ASM I DJ.