Morgunblaðið - 22.08.1989, Side 46

Morgunblaðið - 22.08.1989, Side 46
María Bieshú sem er ein fræg- asta óperusöngkona Sovétríkj- anna. Sovézkir dagar: Moldavískir tónlistarmenn halda tónleika SOVÉZKIR dagar, tileinkaðir Sovétlýðveldinu Moldavíu, hófust, í gær með tónleikum í menningar- miðstöðinni Halharborg í Hafiiar- fírði. Sovézkir dagar eru haldnir á vegum Menningartengsla Is- lands og Ráðstjórnarríkjanna. Ljósmyndir, teikningar barna og bækur frá Moldavíu eru sýndar í MIR-salnum við Vatnsstíg og á Nes- . kaupstað verður Ijósmyndasýning . Tónleikar eru stór þáttur í dag- skránni. Þar koma fram nærri tutt- ugu félagar í Kammersveit ríkisút- varps og -sjónvarps Moldavíu undir stjórn A. G. Samúile, þjóðlistamanns lýðveldisins og aðalhljómsveitar- stjóra Ríkisóperu- og ballettleik- hússins í Kishinjov, höfuðborg Moldavíu. Þá koma fram tveir þekkt- ir óperusöngvarar, þau María Bieshú sópran og Mikhaíl Múntjanú tenór, en þau bera bæði heiðurstitilinn þjóð- listamaður Sovétríkjanna . x Tónleikar moldavíska listafólksins verða í kvöld kl. 21 í Hveragerðis- kirkju, miðvikudagskvöld kl. 21 á Neskaupstað, fimmtudagskvöld á Eskifirði og föstudagskvöld á Egils- stöðum. Loks verða tónleikar í Þjóð- leikhúsinu sunnudaginn 27. á'gúst kl. 16. Svíþjóð: Alþjóðleg íjöl- miðlaráðstefiia ALÞJÓÐLEG fjölmiðlaráðstefna verður haldin í Vasterás í Svíþjóð 15. til 17. september næstkomandi og er yfirskrift hennar „Mass Media in a Time of Crisis“. A ráð- stelnunni verður fjallað um áhrif íjölmiðla og ábyrgð í nútíma sam- félagi og hvemig nýta megi þá til að stuðla að umhverfisvemd og bæta samskipti manna, segir með- al annars í fréttatilkynningu. Meðal fyrirlesara á ráðstefnunni verða Þorbjörn Broddason, Sigrún Stefánsdóttir, John Kenneth Galbra- ith og Cora Weiss frá Bandaríkjun- um, Eva Nordland og Johan Galtung frá Noregi, Margarita Papandreou frá Grikklandi og Stanislav Mens- hikov frá Sovétríkjunum. Ráðstefnan er haldin að frum- kvæði Norwegian Peace Foundation. Unnið að rammalög- gjöf um forskólastig Menntamálaráðherra gerði ríkisstjóminni á þriðjudag í síðustu viku grein fyrir þeirri vinnu sem unnin hefur verið á vegum ráðuneytisins um forskólastigið. Samkvæmt málefiiasamningi ríkisstjómarinnar er gert ráð fyrir því að unnið verði að undirbúningi löggjafar um forskólastig. Nefnd hefur verið að störfum und- ir forystu Svandísar Skúladóttur síðan í febrúar. Hefur nefndin fjallað ítarlega um málið á 15 formlegum fundum. Nefndin er sammála um að kalla stigið leikskólastig og að dag- vistarstofnanir verði nefndar leik- skólar burtséð frá lengd dvalartíma bamanna. Nefndin hefur annars veg- ar Ijallað um innra starf leikskólans og hins vegar um Ijármögnun. Hefur í sambandi við síðamefnda þáttinn verið gerður samningur við Félagsv- ísindastofnun Háskólans um sér- staka vinnu úr lífskjarakönnun sem unnin var á vegum stofnunarinnar vorið 1988. Nefndin mun gera tillög- ur um fjármögnun leikskólastigsins og telja nefndarmenn óhjákvæmilegt að ríkið komi með einhveijum hætti á nýjan leik inn í rekstur leikskól- anna. Þess skal getið að samkvæmt gild- andi lögum heyra dagvistarmál undir menntamálaráðuneytið. Engar tillög- ur hafa komið fram hjá einstökum ráðherrum um breytingar á því. Á ríkisstjórnarfundi fyrir nokkrum vikum var menntamálaráðherra falið að leiða viðræður um dagvistarmál við samtök launafólks og Samband íslenskra sveitarfélaga. Er gert ráð fyrir því að þær viðræður geti hafist í næsta mánuði. Morgunblaðið/Einar Falur Stuðlasel fékk viðurkennigu Umhverfismálaráðs Reykjavíkur sem fallegasta gata borgarinnar árið 1989. Sigurður Haraldsson og Vilborg Pétursdóttir, eigendur Bilaleigu María Pétursdóttir og Jón H. Sigurðsson, Marbakkabraut 10. S.H. við Nýbýlaveg 32. Þórdís B. Lúðvíksdóttir og Björgvin Ólafsson, Birkihvammi 1. Alda Indriðadóttir og Einar Bjarnason, Brekkutúni 20. Morgunblaðið/Einar Falur Lóðin við Sunnuhlíð. Guðrún M. Samúelsdóttir og Garðar Ingólfsson, Þinghólsbraut 14. ERT ÞU ASKRIFANDI? Tímarítið EiÐFAXI hefur komið út mánaöarlega ítólf ár, uppfulit af f róðleik, frœðslu og fréttum um allt sem viö kemur hestum og hestamennsku Með því að gerast áskrifandi að EIÐFAXA, fytgist þú best með hvað er að gerast \ hinum lifandi og fjölbreytilega heimi hestamennskunnar, hverju sinni. Eldri árgangar fáanlegir. rEIÐFAXI Ármúia 36, 108 Reykjavík Sími 91 -685316 og 91 -687681 EIÐFAXI Laugarásbíó frumsýiiir K-9 LAUGARSBÍÓ heíur tekið til sýning- ar gamanmyndina K-9. Með aðal- hlutverk fara hundurinn Jerry Lee og James Belushi. Myndin er um tvær bestu fíkniefna- lögreglur Chicagoborgar. Önnur þeirra er aðeins skarpari og er það lögreglu- hundurinn Jerry Lee, leikinn af honum sjálfum. Félagi hans er leikinn af James Belushi. Samstarf þeirra félaga er ekki gott til að byrja með, en eftir miklar svaðilfarir fer gagnkvæm virðing að gera vart við sig. Besti vinur mannsins hefur aldrei verið eins traustur og Jerry Lee. Jerry Lee og James Belushi í hiutverkum sínum I myndinni K-9, sem Laugarásbíó hefur tekið til sýninga. H

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.