Morgunblaðið - 03.10.1989, Qupperneq 4
4
MOKGUNBIAÐIÐ ÞRIÐJUÐÁÖUK 3. OKTÓBER 1989
Hagvirki hf. með lægsta tilboð-
ið í framkvæmdir á Amameshæð
HAGVIRKI HF. átti lægsta tilboð, 166,6 milljónir króna, í brúarsmíði
og gatnagerðarframkvæmdir á Amarneshæð. Tilboðið er 76% af kostn-
aðaráætlun. „Sprengd verður meðal annars gjá í gegnum Arnames-
hæðina og byggð brú yfir gjána,“ sagði Pétur Ingólfsson verkfræðing-
ur hjá Vegagerð ríkisins. Pétur sagði að Hafnarfjarðarvegur um sker-
ingu á Arnarneshæð, ásamt brú og gatnamótum á Arnarneshæð, eigi
að vera tilbúinn til umferðar eigi síðar en 1. október 1990 en öllu
verkinu skuli vera lokið eigi síðar en 1. ágúst 1991.
Innifalin í þessu verki er lagning neshæð, svo og gerð eystri hluta
eystri akbrautar Hafnarfjarðarveg-
ar frá Hlíðarvegi í Kópavogi suður
undir Amameslæk, vestari ak-
brautar vegarins um Amameshæð
og tengivega gatnamóta á Amar-
steyptra undirganga norðan Fífu-
hvammsvegar og umferðareyja á
gatnamótum. Einnig er innifalin í
verkinu smíði brúar á eystri ak-
braut Hafnarfjarðarvegar yfir
Kópavogslæk og vegbrúar yfir
Hafnarfjarðarveg á Arnarneshæð.
SH verktakar hf. buðu um 174
milljónir króna í verkið, ístak hf.
bauð um 238,5 milljónir kr., Völur
hf. og Steintak hf. um 184,4 millj-
ónir kr., Klæðning hf. og Ármanns-
fell sf. um 222,8 milljónir kr., Gunn-
ar og Guðmundur hf. um 222,8
milljónir kr., Byggðaverk hf. og
Suðurverk hf. um 189,5 milljónir
kr., svo og Loftorka hf. í Reykjavík
og Álftárós hf. um 215 milljónir kr.
VEÐUR
» *
c
■« ** *
• i
Fyrírhugadar
framkvæmdir
á Arnarneshæð
500m
VEÐURHORFUR í DAG, 3. OKTÓBER:
YFIRLIT í GÆR: Yfir frlandi er heldur minnkandi 1032ja mb hæð,
sem þokast austur, en hægfara 1005 mb lægð á vestanverðu
Grænlandshafi. Fremur hlýtt verður áfram.
SPÁ: Áfram suðlægar áttir með rigningu og súld sunnan- og vestan-
lands en að mestu þurrt á Norðaustur- og Austurlandi. Hlýtt í veðri.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG: Suð- og suðvestlæg-
ar áttir. Súld eða rigning einkum sunnan- og vestanlands. Áfram
hlýtt á miðvikudag en kólnar á fimmtudag.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
s, Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10° Hitastig:
10 gráður á Celsius
y Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
[~<^ Þrumuveður
\m > * 4 VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hltí veður Akureyri 11 skýjað Reykjavik 9 alskýjað
Bergen 9 skýjað
Helsinki 7 alskýjað
Kaupmannah. 15 léttskýjað
Narssarssuaq vantar
Nuuk 2 rigning
Osló 14 úrkoma í grennd
Stokkhólmur 11 skúr
Þórshöfn 9 skýjað
Algarve 25 þokumóða
Amsterdam 14 skýjað
Barcelona 23 mistur
Berlín 14 skýjað
Chicago 18 alskýjað
Feneyjar 18 þokumóða
Frankfurt 13 alskýjað
Glasgow 13 reykur
Hamborg 15 léttskýjað
Las Palmas 26 léttskýjað
London 14 skýjað
Los Angeles 18 skýjað
Lúxemborg 12 skýjað
Madrid 23 mistur
Malaga 24 léttskýjað
Mallorca 24 léttskýjað
Montreal 14 alskýjað
New York vantar
Orlando 24 hálfskýjað
París 15 skýjað
Röm 22 helðskírt
Vín 16 skýjað
Washington 19 rigning
Winnipeg vantar
Morgunblaðið/SPB
Friðrika Stefánsdóttir frá Norðurhlíð í Aðaldal á sjúkrahúsinu
á Húsavík í gær.
Skarst illa á
hendi og fæti
Húsavík.
„ÉG ÆTLAÐI að fara að hátta og var að gá að stofnglugganum
því að ansi var orðið hvasst. Vissi ég þá ekki fyrr en eitthvað
fýkur i gluggann og yfir mig kastast glerbrotin,“ sagði Friðrika
Stefánsdóttir, 81 árs gömul kona búsett á bænum Norðurhlíð í
Aðaldal, þegar fréttaritari Morgunblaðsins á Húsavík hafði tal
af henni þar sem hún lá á sjúkrahúsinu þar.
I suðvestanstorminum síðast-
liðið laugardagskvöld skarst Frið-
rika af völdum glerbrotanna, en
í storminum brotnaði rúða í stofu-
glugga hennar. Mikið blæddi úr
öðrum fætinum og annarri hend-
inni auk þess _sem Friðrika fékk
glóðurauga. „Ég ætlaði að hafa
mig að símanum, en hafði ein-
hvern veginn ekki þrótt til þess
og svo sé ég líka illa. Agnar, son-
_ ur minn, kom svo áður en langur
tími leið og dreif í því að farið
yrði með mig á sjúkrahúsið á
Húsavík og hér ligg ég eins og
þú sérð. Læknarnir hafa lagað
þetta og ég er bara hress. Ég
vona að ég þurfi ekki að vera hér
lengi og að ég komist sem fyrst
heim til þess að hjálpa Agnari þó
lítil stoð sé orðin í mér. Ég bý
hjá honum og þykist eitthvað geta
gert,“ sagði hin 81 árs gamla
kona.
Frettaritari
16 milljónir króna
fyrir leyfi tll fiskveiða
ALMENN leyfi til fiskveiða hér við land kosta nú 5.400 krónur
hvert. Skammtíma- og tilraunaveiðileyfi kosta 1.800 krónur. Gjald-
skráin er ákveðin með reglugerð Qármálaráðuneytisins um aukatekj-
ur ríkissjóðs og er henni fyrst og fremst ætlað að standa undir kostn-
aði við útgáfú leyfanna.
Útgáfa veiðileyfa hófst, þegar
skipulagi og eftirliti með rækjuveið-
um inni á fjörðum og flóum var
komið á. Með aukinni stjórn á svo-
kölluðum sérveiðum, rækju, humri,
skel og síld, eykst útgáfa veiðileyfa
og með tilkomu kvótakerfsins í
upphafi ársins 1984 urðu botnfisk-
veiðar einnig bundnar leyfisveiting-
um.
Aætlaður fjöldi veiðileyfa árlega
er nálægt 3.000 og miðað við það
nemur galdtaka vegna þeirra um
16 milljónum króna. Sjávarútvegs-
ráðherra telur eðlilegt að gjöld
vegna veiðileyfa standi undir kostn-
aði við veiðaeftirlit, en samkvæmt
fjárlögum þessa árs, er kostnaður
vegna þess tæpar 40 milljónir
króna.
MÁL og menning hefur gefið út
ljóðabók eftir Stefán Hörð
Grímsson og er það jafnframt
fyrsta jólabók forlagsins. Bókin
nefnist Yfir heiðan morgun og
hefur undirtitilinn Ljóð ’87-’89.
Hún geymir 43 ljóð og skiptist í
fjóra hluta sem nefnast Tónar frá
ánni, Hliðar, Hvítir teningar og
Dægur.
Yfir heiðan morgun er sjötta
ljóðabók Stefáns Harðar, en fyrsta
ljóðabók hans, Glugginn snýr í
norður, kom út 1946. Síðast sendi
hann frá sér safnið Tengsl árið
1987. Yfir heiðan morgun er 64
blaðsíður að stærð, innbundin og
með hlífðarkápu. Bókin er unnin í
Prentsmiðjunni Odda hf.
Stefán Hörður Grímsson.
Ljóðabók eftir Stef-
án Hörð Grímsson