Morgunblaðið - 03.10.1989, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 1989
9
Ferðaskrifstofur, flugfélög, hótel, bankar,
útflutningsfyrirtæki, ríkisstofnanir og
aðrir sem áhuga hafa á góðri landkynningu.
JÓLAKORT
og landkynningarbæklingur
Höfum fyrirliggjandi mikið úrval af jólakortum
með fallegum vetrarmyndum.
Einnig fallegan landkynningarbækling eftir
Dr. Hannes Jónsson, þar sem saga landsins
er rakin í máli og myndum.
Sérprentum texta eftir þörfum.
Offsetprentsmiðjan LITBRÁ
Höfðatúni 12. Reykjavík - Símar 22930 og 22865
Skrifstofutækninám
Hjá okkur færðu einhveija þá bestu kennslu sem
völ er á í tölvu- og viðskiptagreinum.
Við kennum á tölvubúnað sem notaður er hjá
helstu fyrirtækjum landsins.
Einn nemandi um hverja tölvu og fámennir
hópar, tryggja hámarks árangur og tímanýtingu.
Betra verð og góð greiðslukjör.
Tölvuskóli Islands
S: 67 14
Ný
námsketð
GULLÖLD GLÆPAMYNDANNA
Með þessu námskeiði hefjum við kvikmynda-
umfjöllun og byrjum á athyglisverðustu
sakamálamyndunum.
Viðar Víkingsson kiippirsaman, sýnirog segirfrá.
TRÉSMÍÐI FYRIR KONUR
Fagið sem konur misstu af í skólanum.
Undirstöðuatriði og smíði einfaldra húsgagna.
Kennt í trésmíðadeild Iðnskólans.
BÓKFÆRSLA
Handhægt námskeið fyrir byrjendur og óvana.
Farið í undirstöðu og meginþætti daglegs bókhalds
og uppgjörs.
HOLLUSTA, HREYFING OG HEILBRIGÐI
Lifið heilbrigðara lífi án allra öfga.
íþróttakennari, næringarfræðingur og læknirfræða
um rétt mataræði, streitu og slökun og gildi þess að
hreyfa sig. Skokkað saman úti.
TÓMSTUNDA
SKOLINN
Skólavöiöustís 28 Sími 621488
Lögin vantar
Umhverfisráðuneyti
hefur ekki verið komið á
fót hér á landi. Þegar
rætt var imi aðild Borg-
araflokksins að ríkis-
stjóm Steingríms Her-
mannssonar og í ljós
kom, að engir nema
framsóknarmenn voru
reiðubúnir til að láta af
háum embættum fyrir
borgaraflokksmemi var
málum bjargað i hom á
þann veg, að Júlíus Sól-
nes, formaður Borgara-
flokksins, var gerður að
hagstoftiráðherra á með-
an unnið yrði að því að
stofha umhverfismála-
ráðuneyti. Um tíma íhug-
aði forsætisráðherra
hvort haim ætti að stoftia
slíkt ráðuneyti með
bráðabirgðalögum eða
gera Júlíus að ráðherra
án ráðuneytis með slíkri
lagcisetningu. En
Steingrímur féll frá því
og sagði meðal annars
um þetta í sjónvarpsþætti
á Stöð 2:
„Hins vegar er það
skylda mín sem forsætis-
ráðherra að gera þetta
þannig að siðferðið sé
varðveitt ef ég má orða
það svo. Og eftir að ég
hef rætt þetta ítarlega
við lögfræðinga þá sögðu
þeir allir: Þér er fijálst
að setja bráðabirgðalög
og stofha til ráðherra án
ráðuneytis. Og þetta er
gert víða um lönd. Til
dæmis í Bretlandi þá er
einn valdamesti maður-
inn hjá Margaret Thatch-
er ráðherra án ráðuneyt-
is... Hhis vegar eftir að
ég hef hugleitt þetta mál
þá sýndist mér ljóst að
það var ekki þörf á
bráðabirgðalögum. Það
er þama mjög góð stofii-
un Hagstofa Islands sem
að ýmsu leyti var eðli-
legra þegar ég hafði
hugsað málið að afhenda
Júlíusi...“
I Morgunblaðmu á
sunnudag kemur hins
vegar fram, að Júlíus
Sólnes hagar sér út á við
eins og umhverfisráðu-
neyti hafi verið stofiiað.
Júlíus segir: „Það má eig-
inlega segja það,“ þegar
hann er spurður, hvort
haim sé strax faritin að
vinna sem umhverfisráð-
herra. Segir hann að
umhverfismálin séu strax
Júlíus Sólnes
Andreas Papandreou
Ráðherra án umboðs
Landsfundur Borgaraflokksins var haldinn um helgina og þar fögn-
uðu menn þeim áfanga í sögu flokksins að tveir fulltrúar hans eru
orðnir ráðherrar í ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar. Hefur
starf flokksins einkum snúist um það undanfarið að komast inn í
stjórnina. Forsætisráðherra sagði í sjónvarpsþætti í Stöð 2 á dögun-
um, að það hefði verið skylda hans „sem forsætisráðherra að
gera þetta [koma Borgaraflokknum í stjórn] þannig að siðferðið
sé varðveitt ef ég má orða það svo“. Nú er annar ráðherra Borgara-
flokksins farinn að haga sér eins og umhverfisráðherra án þess
að hafa til þess umþoð. Er drepið á þetta í Staksteinum í dag og
einnig afstöðu vinstri flokkanna hér til Andreasar Papandreous í
Grikklandi.
að flytjast til sín úr öðr-
um ráðuneytum. Þá segir
Júlíus að hann sé búinn
að setja sig í samband
við alla umhverfisráð-
herra Norðurlanda til
þess að tilkynna þehn
þessa breytingu.
Hvað er hér að gerast?
Um langt árabil hefur
verið tekist á um það á
Alþingi hvort stofna skuli
umhverfisráðuneyti.
Ákveðið var að gera það
ekki með bráðabirgða-
lögum nú í sumar en
samt talar Júlíus Sólnes
eins og ráðuneytið hafi
þegar verið stofiiað. Tel-
ur ríkisstjóm sem þannig
starfer yfirleitt þörf á því
að styðjast við lög? Hvar
er siðferðið núna, sem
forsætisráðherra var svo
oferlega í huga í sjón-
varpsþættinum?
Heillaóskir til
Papandreous
Andreas Papandreou
vann kosningasigur í
Grikklandi í júní 1985.
Hinn 6. júní það ár birt-
ist eftirfarandi klausa
hér í Staksteinum af
þessu tilefiii:
„Frá þvi er skýrt í
Þjóðviljanum í fyrradag,
að Svavar Gestsson, for-
maður Alþýðubandalags-
ins, hafi sent Papandreou
„þjartanlegar" ham-
ingjuóskir með „söguleg-
an sigur, sem mun efla
lýðræðis- og friðaröfl
hvarvetna í heiminum".
Og Svavar lætur þess
einnig getið að „íslenskir
sósíalistar" samlagm
með grisku þjóðinni. A
forsíðu Alþýðublaðsins er
á hinn bóginn rætt um
„kratasigur" í Grikklandi
og þar á bæ tala menn
um að ,jafhaðarmenn“
hafi urniið stórsigur und-
ir forystu Andreasar
Papandreous. Alþýðu-
btaðið segir ekki frá því
að skeyti hafi verið sent
frá Jóni Baldvin Hanni-
balssyni til Aþenu. Margt
bendir þó til þess að Pap-
andreou komist í svipaða
aðstöðu og Francois Mitt-
errand, Frakklandsfor-
seti, sem fékk skeyti bæði
frá Alþýðuflokknum og
Alþýðubandalaginu, þeg-
ar hann náði forsetakjöri
á sínum tima...
„Sigur sósíalista í
Grikklandi er sigur allra
sósíalista!" segir Þjóðvilj-
iun í forystugrein á
þriðjudaginn. Nú er það
spumingin hvort Pap-
andreou er „sósíalisti"
eða , jafiiaðarmaður"?
Hvemig væri að Mál-
fundafélag félagshyggju-
fólks tæki máhð fyrir á
fundi?“
Þetta var sem sé skrif-
að fyrir rúmum fjórum
ámm og gæti Birting nú
hæglega komið í stað
Málfundafélags félags-
hyggjufólks ef leita þarf
sátta í þessu máli meðai
vinstrisinna. Pápandreou
á hms vegar mjög í vök
að veijast eftir að hann
tapaði þingkosningum í
sumar, þar sem unnið er
að því að upplýsa spill-
ingu er þreifst í stjóm-
artið hans, símahleranir
og flárglæfra. Fer engum
sögum af því hvor gerir
meira filkall til hans
núna Ólafiir Ragnar
Grimsson, núverandi for-
maður Alþýðubandalags-
ins, eða Jón Baldvin
Hannibaisson.
Bera spari-
skírteinin
þín bara
3-4% vexti?
Átján flokkar spariskírteina, gefnir út á árunum
1979-1983, bera aðeins 3-4% vexti yfir verðbólgu.
Sjö þessara flokka koma til innlausnar nú í sept-
ember, október og nóvember. Það borgar sig að
innleysa þá og kaupa ný bréf með betri vöxtum.
Við veitum alla þjónustu við innlausn spariskír-
teina og ráðgjöf um hvaða flokka borgar sig að
innleysa. Þú getur hringteðakomiðvið hjáokkur
í Ármúla 7. Veriö velkomin í VIB.
VIB
VERÐBREFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF
Ármúla 7, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30