Morgunblaðið - 03.10.1989, Blaðsíða 31
Breiðuvík:
Laugabrekku.
HEYSKAPUR gekk illa og gæftir era slæmar. Það má segja að
mjög erfitt tíðarfar hafi verið í sumar bæði til lands og sjávar. Hey-
skapur gekk mjög seint. Flestir bændur luku heyskap 26. ágúst og
sumir fyrr. Tveir bændur hafa ekki lokið heyskap. Gras var sumstað-
ar fítið vegna kals.
Gæftir hafa verið mjög slæmar
í sumar en afli sæmilegur þegar
gefið hefur á sjó. Fimm trillur hafa
verið á lúðuveiðum og aflað vel.
Stapatindur frá Arnarstapa hefur
verið með snurvoð og aflað sæmi-
lega. Bjarni Einarsson sem kaupir
fiskinn frá Arnarstapa hefur verkað
í salt.
Fjórir sumarbústaðir eru nú í
smíðum við Arnarstapa og tveir
þeirra eru fokheldir. í sumar var
hafist handa við félagsheimilið
Snæfell á Arnarstapa. Viðbygging-
in sem verið hefur í deiglunni í
mörg ár er langt komin, en það
hefur ekki verið nothæft lengi
vegna þess að hana vantaði.
2. september sl. kom fólk úr
sveitinni saman í félagsheimilinnu
og spilaði félagsvist. Fjölmenni var
og var spilað á 11 borðum. Eftir
spilamennskuna voru kaffiveiting-
ar.
Sovéska sendinefndm sem dvaldi hérlendis í viku í boði Æskulýðssambands íslands. Morgunblaðið/Þorkeli
Sovésk ungmenni í heimsókn:
Tíðarfar til lands
og sjávar erfitt
Áhugí á að efla tengslin
við íslenskt æskufólk
HÉR A landi voru stödd fyrir skemmstu þrjú sovésk ungmenni í
boði Æskulýðssambands íslands (ÆSÍ). Á fréttamannafúndi sögðust
þau margt hafa lært af jafhöldram sínum hérlendis og vera staðráðin
í að efla tengslin sem mest við íslenskt æskufólk.
N orðurlandamót
framhaldsskóla í skák:
MH í efsta sæti
SKÁKSVEIT Mcnntaskólans við
Hamrahlíð sigraði á Norðurlanda-
móti framhaldsskóla sem lauk í
Noregi á sunnudag. Er þetta í 10.
skipti sem Menntaskólinn við
Hamrahlíð vinnur norðurlanda-
mótið, sem nú var haldið í 16. sinn.
Skáksveit Menntaskólans við
Hamrahlíð hlaut 14 vinninga af 20
mögulegum. I öðru sæti varð sænska
sveitin með 13 vinninga. A- og b-
sveitir Noregs urðu í 3.-4. sæti með
1114 vinning. Danir fengu 714 vinning
og Finnar ráku lestina með 214 vinn-
ing.
Eftirtaldir skákmenn skipuðu lið
Menntaskólans við Hamrahlíð:
1. borð Sigurður Daði Sigfússon (4
vinn. af 5 mögulegum).
2. borð Þröstur Árnason (2 v.)
3. borð Snorri G. Bergsson (414 v.)
4. borð Arnaldur Loftsson (314 v.)
varamaður: Guðmundur T. Árnason.
Fararstjóri og liðsstjóri _MH-sveit-
arinnar var Jóhannes Ágústsson.
Sigurður Daði Sigfússon og Snorri
G. Bergsson fengu verðlaun fyrir
góðan árangur hvor á sínu borði.
Eins og ég hef áður getið, vígði
séra Rögvaldur Finnbogason prest-
ur á Staðarstað styttu af Maríu
mey, sem stendur við Lífslind
Hellnamanná á Hellnum, þann 23.
júlí sl. Mikill fólksstraumur hefur
verið að lindinni síðan hún var vígð,
en hún þykir fögur. Sagan af vígslu
lindarinnar síðan 1230 er skráð á
staðnum.
Héraðsfundur Snæfells- og Dala-
prófastsdæmis var haldinn á Búðum
á Snæfellsnesi sunnudaginn 3. sept-
ember. Messað var í Búðarkirkju
klukkan 11 árdegis. Sr. Hreinn
Hákonarson prestur í Söðulsholts-
prestakalli prédikaði, sr. Rögnvald-
ur Finnbogason prestur á Staðar-
stað og sr. Ingiberg Hannesson
prófastur og prestur á Hvoli í Döl-
um þjónuðu fyrir altari.
Altarisganga fór fram í mess-
unni. Eftir messu var snæddur há-
degisverðurá hótelinu á Búðum. Að
lokinni máltíð var fundur settur.
Prófasturinn sr. Ingiberg Hannes-
son setti fundinn og stjórnaði hon-
um. Mörg mikilvæg mál varðandi
kirkju og kristindóm voru rædd á
fundinum. Fundurinn var vel sótt-
ur. Honum var slitið í kirkjunni
með bæn sem sr. Rögnvaldur Finn-
bogason flutti og sameiginlegum
söng fundarmanna.
- Finnbogi
í sovésku sendinefndinni voru
Alexander Abramov, 1. ritari
Moskvudeildar Æskulýðshreyfing-
ar sovéska kommúnistaflokksins
(Komsomol), Alexej Konjkov,
starfsmaður Æskulýðssambands
Sovétríkjanna (KMO), og Olga
Makova, viðskiptafræðine,mi í
Moskvu og félagi í Komsomol.
Samskipti ÆSÍ og sovéskra
æskulýðssamtaka eiga sér langa
sögu. Annað hvert ár hafa Sovét-
menn komið hingað í heimsókn og
hitt árið hefur íslensk sendinefnd
farið til Moskvu. Heimsókn Sovét-
mannanna nú var óvenjuleg að því
leyti að gestirnir voru enn á létt-
asta skeiði og hér var umbótasinna
að ræða, eindregna fylgismenn
Míkhaíls Gorbatsjovs.
í máli Abromovs, 1. ritara
Moskvudeildar Komsomol, kom
fram að æskulýðshreyfing komm-
únistaflokksins ætti nú nokkuð und-
ir högg að sækja því félagsmönnum
hefði fækkað talsvert og væru þeir
nú um 30 milljónir. Hann var m.a.
spurður um þá gagnrýni sem fram
hefur komið í vestrænum fjölmiðl-
um á sovésk æskulýðssamtök að
þau sendi einungis pólitíska gæð-
inga til Vesturlanda en ekki óbreytt
æskufólk. Abromov svaraði því til
að þetta væri ekki rétt, t.d. hefðu
skiptinemasamtökin AFS opnað
skrifstofu í Moskvu og opnaðist þar
með leið fyrir venjulega mennta-
skólanema að dveljast erlendis.
Einnig gæfist vestrænum ung-
mennum kostur á að dvelja um
lengri eða skemmri tíma hjá sovésk-
um fjölskyldum.
Það orð hefur löngum farið af
Sovéska Æskulýðssambandinu
(KMO) að það léti stjórnast af Kom-
somol sem er eitt aðildarfélaganna.
Alexej Konjkov, starfsmaður KMO,
sagði að sambandið væri nú í raun
fijálst og óháð opinberum afskipt-
um. Hann sagði mikla grósku vera
í æskulýðsstarfi í Sovétríkjunum og
nær daglega bættust sambandinu
ný aðildarfélög.
Sovétmennirnir áttu viðræður við
ýmsa fulltrúa íslenskra æskulýðs-
félaga hérlendis og hittu unga
stjórnmálamenn að máli. Sovéska
sendinefndin sýndi átaki ÆSÍ gegn
vímuefnaneyslu sérstakan áhuga.
Sögðu Sovétmennirnir koma til
greina að sú reynsla sem skapaðist
hérlendis í forvörnum gæti nýst í
sovésku æskulýðsstarfi.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 2. október.
FiSKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 85,00 53,00 79,35 18,147 1.439.970
Ýsa 125,00 60,00 102,76 5,623 577.765
Ýsa(ósl.) 99,00 65,00 73,15 2,868 209.796
Karfi 51,00 51,00 51,00 0,050 2.525
Ufsi 29,00 29,00 29,00 0,126 3.654
Samtals 80,69 31,740 2.561.113
í dag verður selt óákveðið magn af blönduðum afla úr bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 68,00 43,00 63,10 7,918 499.633
Ýsa 128,00 67,00 96,86 24,726 2.394.956
Ufsi(umál) 15,00 15,00 15,00 0,016 240
Samtals 88,68 32,696 2.899.632
Selt var úr netabátum. i dag verða meðal annars seld 16 tonn
af þorski, 12 tonn af karfa, 30 tonn af ufsa og óákveðið magn
af öðrum tegundum úr Ottó N. Þorlákssyni RE og bátum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 72,50 44,00 69,28 49,610 3.436.797
Ýsa 110,00 30,00 89,75 11,432 1.025.985
Karfi 51,50 33,00 45,08 1,465 66.027
Ufsi 39,00 15,00 35,50 0,871 30.958
Samtals 70,24 66,330 4.658.697
Selt var meðal annars úr Hauki GK og Búrfelli KE. i dag verður
selt óákveðið magn af blönduðum afla úr bátum.
SKIPASÖLUR í Bretlandi 22. til 29. september.
Þorskur 129,47 128,180 16.595.033
Ýsa 141,29 30,750 4.344.721
Ufsi 70,74 2,760 195.253
Karfi 68,50 1,385 94.866
Koli 113,85 2,365 269.256
Samtals 129,67 173,075 22.443.296
Selt var úr Stakfelli ÞH í Hull 26. september og Skarfi GK í
Hull 28. september.
GÁMASÖLUR í Bretlandi 22. til 29. september.
Þorskur
Ýsa
Ufsi
Karfi
Koli
Samtals
136,19 337,245 45.930.158
127,41 257,071 32.752.333
66,80 6,035 403.136
71,78 5,265 377.926
104,33 62,516 6.522.407
130,28 723,300 94.230.758
SKIPASÖLUR í Vestur-Þýskalandi 25. til 29. september.
Þorskur
Ýsa
Ufsi
Karfi
Samtals
1 12,93 13,916 1.571.533
84,47 3,309 279.499
65,20 187,042 12.194.583
82,14 277,458 22.791.379
70,62 548,650 38.743.710
Selt var úr Glófaxa VE og Viðey RE 26. september, Hjalteyrinni
EA 27. september og Hjörleifi RE 29. september. Selt var úr
öllum skipunum í Bremerhaven.
Skoðanakönnun SKÁÍS:
Sj álfstæðisflokk-
urinn fengi 53,3%
I niðurstöðum skoðanakönnunar sem SKAIS hefúr gert fyrir Stöð 2
kemur fram að Sjálfstæðisflokkurinn fengi atkvæði 53.3% þeirra sem
afstöðu tóku með einhverjum flokki eða 27,6% þeirra sem svöraðu
í könnuninni. Hringt var í 800 einkanúmer, 652 svör fengust og tóku
338 svarenda afstöðu. Óákveðnir voru 28,1%, 10,7% sögðust ekki
kjósa eða myndu skila auðu og 9,4% neituðu að svara. Könnunin var
gerð um síðustu helgi.
Alþýðuflokkui' fengi 7,1%, Fram-
sóknarflokkur 14,5%, Alþýðu-
bandalag 10,9% og Kvennalisti
10,9% þeirra sem tóku afstöðu.
Aðrir flokkar fengju minna en 1%.
Spurt var um 1-3 stjórnmála-
menn sem fólk bæri mikið traust
til og hlaut Halldór Ásgrímsson
41,8%, Steingrímur Hermannsson
29,4%, Þorsteinn Pálsson 25,9%,
Jón Sigurðsson 13,5%, Ólafur
Sveitin hefur alla tíð lagt mikla
áherslu á góða þjálfun félaga og
sent fólk í leiðbeinendaþjálfun hjá
Björgunarskóla LHS og hafa þeir
í framhaldi af því haldið árleg nám-
skeið í skyndihjálp, fjallamennsku,
rötun, leitartækni o.fl. Þá fara fé--
Ragnar Grímsson 13,2%, Davíð
Oddsson 11,6% og aðrir minna.
Einnig var spurt um 1-3 stjórn-
málamenn sem hefðu „sýnt alvar-
lega siðferðisbresti í stjórnarhátt-
um“. Jón Baldvin Hannibalsson var
þar efstur á blaði með 81,4%,
Steingrímur Hermannsson með
41,1%, Ólafur Ragnar Grímsson
með 22,9% og Stefán Valgeirsson
með 10,9%.
lagar einnig utan á hin ýmsu nám-
skeið eða til æfinga.
En öflugt starf krefst duglegra
einstaklinga. Því óskar hjálparsveit-
in eftir nýjum félögum til starfa.
(Úr fréttatilkynningu)
Tónleikar í
Haftiarborg
AUSTUR-ÞÝSKI píanóleikarinn
Elfrun Gabriel heldur tónleika í
Hafnarborg, menningar- og lista-
stofnun Hafnarfjarðar, á morgun
miðvikudaginn 4. október klukkan
20.30.
Elfrun Gabriel kom fyrst fram sem
einleikari með hljómsveit aðeins 14
ára gömul. Hún stundaði nám í
píanóleik við Feiix Mendelssohn
Bartholdy-tónlistarskólann í Leipzig,
hjá prófessor Pavel Serebryakov í
Leningrad og prófessor Halina
Czersny Stefanska í Cracow. Á
námsárunum hlaut hún tónlistar-
verðlaun sem kennd eru við Carl
Maria von Weber.
Elfrun Gabriel hefur leikið einleik
með þekktustu hljómsveitunum í hei-
malandi sínu og farið í tónleikaferðir
um Mið- og Austur-Evrópu, einnig
til Danmerkur, Svíþjóðar, Noregs og
íslands.
Efnisskrá tónleikanna er fjöl-
breytt.
Hjálparsveit skáta
í Kópavogi 20 ára
HJÁLPARSVEIT skáta í Kópavogi verður 20 ára þann 4. nóvember
nk. Hefur starf sveitarinnar verið öflugt frá upphafi og mikil vinna
verið lögð í að koma upp öflugum björgunarbúnaði. En búnaður
kostar peninga og hefur aðalfjáröflun sveitarinnar verið flugelda-
sala. Hafa Kópavogsbúar stutt dyggilega við sveitina í þeim efnuin.